Morgunblaðið - 25.07.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.07.2006, Qupperneq 1
Listaveislan LungA Át fjóra andarunga Græðgin varð átfrekum urriða að aldurtila í Laxá | 6 KR lagði ÍBV í vítakeppni  Viggó þjálfar Flensburg  Veigar Páll skorar enn  Stærri og veglegri hátíð en nokkru sinni fyrr | 18/38 DANSKIR stjórnmálamenn segja að hluti af hugsanlegum tekjum sem fengist gætu við olíuvinnslu við Grænland eigi að renna í danska rík- issjóðinn til mótvægis við árleg fjár- framlög Dana til Grænlendinga. Danir greiða þeim árlega sem nemur 36 milljörðum íslenskra króna og segja talsmenn þriggja stjórn- málaflokka í Danmörku að nota eigi hluta olíuteknanna til að lækka fjár- framlagið, að því er fram kemur í Politiken. Jarðfræðingar telja að geysilegt magn af olíu geti verið á sjávarbotni við Grænland. | Miðopna Grænlend- ingar fái ekki allan olíugróðann ÍSRAELSKA kajakkonan Rotem Ron, sem ætlar sér að róa hringinn í kringum landið, náði landi í Reykjavík í gærkvöldi. Rotem á nú einungis eftir að fara yfir Faxaflóa og fyrir Snæfellsnes að lokamark- inu í Stykkishólmi, en þaðan lagði hún af stað 10. júní sl. Að sögn Rot- em var suðurleiðin erfiðasti leggur ferðarinnar og þurfti hún að glíma við mikla ölduhæð og brim auk þess sem sandbyljir á landi gerðu henni erfitt fyrir. „Þetta var stór- vandræðalaust en auðvelt var það ekki,“ segir Rotem. Henni var þó launuð þolinmæðin með nátt- úrufegurð strandlengjunnar sem hún segir engri lík. „Á Vestfjörðum sá ég snævi þakta jörð en þegar ég fór um Norðurland og Austurland urðu fjöllin miklu grænni. Fugl- arnir, fiskarnir, hvalirnir og allt það sem ég er ekki vön að sjá heima fyrir heillaði mig upp úr skónum.“ Morgunblaðið/ÞÖK „Stórvand- ræðalaust en auðvelt var það ekki“ Eftir Bryndísi Sveinsdóttur bryndis@mbl.is CONDOLEEZZA Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, átti fund með Fouad Siniora, forsætisráð- herra Líbanons, í Beirút, höfuðborg landsins, í gær en þangað fór hún óvænt í ferð sinni um Mið-Austur- lönd þar sem hún reynir að tryggja frið. Þá átti hún fund með forseta líb- anska þingsins, en hann hafnaði til- lögum Rice að lausn á deilu Ísraela og Hizbollah. Siniora sagði Rice að árásir Ísr- aela á landið væru að færa það „aft- urábak um 50 ár“ og krafðist vopna- hlés þegar í stað. Rice lofaði hann flóttamenn en talið er að þeir séu orðnir meira en 800 þúsund. Haft var eftir öðrum embættismanni hjá SÞ að sú upphæð væri dropi í hafið og talið væri að tjón vegna árása Ísraela í Líbanon næmi tveimur milljörðum dala. Bandaríkjamenn ætla að veita 30 milljóna dollara aðstoð. taka ætti á Hizbollah væri innanrík- ismál í Líbanon. Dropi í hafið Jan Egeland, yfirmaður neyðar- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, SÞ, hefur beðið um 150 milljóna dollara til neyðaraðstoðar við líbanska fyrir „hugrekki“ og sagðist hafa „miklar áhyggjur af þjáningum Líb- ana“. Fundurinn var spennuþrung- inn og tók tvær klukkustundir, mun lengur en áætlað hafði verið. Þá hafnaði forseti líbanska þings- ins, Nabih Berri, sem tengist Hizbol- lah, tillögum Rice á fundi. Þar var kveðið á um vopnahlé, að líbanski herinn og fjölþjóðlegar sveitir yrðu send til suðurhluta landsins og Hiz- bollah-samtökin afvopnuð á 30 km svæði frá landamærunum við Ísrael. Berri hafnaði því og lagði til að samið yrði um vopnahlé en beðið með að senda líbanska herinn á vett- vang. Til að vopnahlé næðist yrðu að koma til fangaskipti og það hvernig Rice hitti ráða- menn í Beirút Forseti líbanska þingsins hafnaði til- lögum bandaríska utanríkisráðherrans Reuters Líbanskur drengur skoðar rústir húsa í Beirút eftir árásir Ísraela. Lundúnum. AFP. | Hið klassíska rómantíska bónorð þar sem karlinn fer á hnén og biður kærustu sinnar, virðist vera á undanhaldi ef marka má breska könnun. Í ljós kom að þriðjungur para einfaldlega ákveður í sameiningu að giftast. Þó virðist enn vera hlutverk karls- ins að bera upp bónorðið, ef trú- lofun fer þá fram á þann hátt, því samkvæmt könnuninni höfðu kon- urnar einungis beðið karla sína að giftast sér í 3% tilvika. 8.500 manns tóku þátt í könnuninni. Rómantíska bónorðið á undanhaldi PASCAL Lamy, framkvæmdastjóri Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar, WTO, lýsti því yfir í gær að frekari samningaviðræðum sem kenndar hafa verið við Doha yrði frestað um ótiltekinn tíma. Árangur af þeirri fundalotu sem staðið hefur yfir í Genf er því enginn, en markmið viðræðnanna var að ná samkomulagi um frjálsari viðskipti með landbúnaðarvörur og lækkun tolla. Guðmundur Helgason, ráðuneytisstjóri í land- búnaðarráðuneytinu, sem tekið hefur þátt í Doha- viðræðunum undanfarin ár, segir að kenna megi átökum milli Bandaríkjanna, Evrópusambands- ins og stærri þróunarríkja eins og Brasilíu og Indland og Brasilía, sýni vilja til að koma á móts við kröfur um að opna markaði sína fyrir iðnaðar- vörur. Það má segja að viðræðurnar sitji fastar inni í þessum þríhyrningi. Á meðan ekkert þokast í samkomulagsátt um þessi stóru ágreiningsmál gerist ekki neitt,“ sagði Guðmundur. Guðmundur treysti sér ekki til að spá fyrir um næstu skref í Doha-viðræðunum. Lamy hefði frestað viðræðum um ótiltekinn tíma. Væntanlega þyrftu samningamenn einhverja mánuði til að kæla sig niður. Upphaflega var áformað að ljúka Doha-viðræð- unum á fjórum árum, en nú hafa þær staðið í sex ár án þess að samkomulag hafi tekist. Indlands um árangursleysi viðræðnanna. „Það er samdóma álit allra sem að þessum við- ræðum koma að Bandaríkjamenn þurfi að taka á sig meiri niðurskurð í innanlandsstuðningi við landbúnað en þeir hafa verið reiðubúnir að gera. Það er mikill þrýstingur á Evrópusambandið að veita meiri markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvör- ur, en sambandið hefur ekki verið tilbúið að mæta þeim kröfum. Síðan vantar mikið upp á að stærri þróunarríki, sem eru lengra á veg komin eins og Árangurslausar viðræður Bandaríkin þurfa að taka á sig meiri niðurskurð í stuðningi við landbúnað  Doha-viðræðunum | 10 og 14 Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ♦♦♦ STOFNAÐ 1913 200. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.