Morgunblaðið - 25.07.2006, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ENGINN ÁRANGUR
Frekari samningaviðræðum á
vegum Alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar (WTO) í Genf hefur verið
frestað um óákveðinn tíma. Mark-
mið viðræðnanna var að ná sam-
komulagi um frjálsari viðskipti með
landbúnaðarvörur og lækkun tolla.
Guðmundur Helgason ráðuneyt-
isstjóri segir viðræður hafa siglt í
strand vegna átaka milli Bandaríkj-
anna, ESB og stærri þróunarríkja.
Framkvæmdir stöðvaðar
Framkvæmdum við nýja bens-
ínstöð Essó nálægt Umferð-
armiðstöðinni var hætt í liðinni viku
þar sem tilskilin leyfi höfðu ekki
fengist. Gísli Marteinn Baldursson,
formaður umhverfisráðs, segir sjálf-
stæðismenn telja að þessi staðsetn-
ing stöðvarinnar sé ekki heppileg en
viðurkenni rétt Essó til að reisa
hana.
Komin til Mið-Austurlanda
Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hitti for-
sætisráðherra Líbanons og forseta
líbanska þingsins í Beirút í gær en
hún er á ferð um Mið-Austurlönd
þar sem hún reynir að miðla málum
til að tryggja frið á svæðinu.
Reglur um eldiskvíar
Undirbúningur er hafinn að setn-
ingu reglna um staðsetningu fiskeld-
iskvía. Sjávarútvegsráðherra segir
vinnuna á frumstigi. Í slíkum reglum
yrði skorið úr hvar slíkar kvíar
mættu vera og til dæmis hversu ná-
lægt árósum þær mættu vera.
Vilja hluta af olíugróða
Danskir stjórnmálamenn segja að
hluti af hugsanlegum tekjum sem
fengist gætu við olíuvinnslu við
Grænland eigi að renna í danska rík-
issjóðinn til mótvægis við árleg fjár-
framlög Dana til Grænlendinga.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 22
Fréttaskýring 8 Viðhorf 24
Viðskipti 12 Bréf 24
Úr verinu 13 Minningar 25/31
Erlent 14/15 Skák 25
Akureyri 17 Dagbók 32/35
Austurland 18 Víkverji 32
Landið 20 Velvakandi 33
Daglegt líf 19 Staður og stund 34
Landið 20 Ljósvakamiðlar 42
Menning 20, 36 Veður 42
Umræðan 21/24 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
MAÐURINN sem lést í bif-
hjólaslysi við Eystri-Rangá á
sunnudag hét Birkir Hafberg
Jónsson til heimilis að Öldu-
bakka 19, Hvolsvelli. Birkir var
26 ára að aldri, fæddur 9. apríl
árið 1980 og var ókvæntur og
barnlaus.
Lést í bif-
hjólaslysi
MAÐURINN sem lést í bílslysi
á Strandavegi í nágrenni
Hólmavíkur á laugardag hét
Þórður Björnsson til heimilis
að Skólabraut 5 á Seltjarnar-
nesi. Þórður fæddist á Hólma-
vík 8. nóvember árið 1922 og
ólst þar upp. Stundaði hann sjó-
mennsku á yngri árum þar til
hann flutti til Keflavíkur árið
1952 þar sem hann starfaði
lengst af sem bifreiðarstjóri.
Lést í bíl-
slysi við
Hólmavík
FYRSTI fundur samráðsnefndar
Reykjavíkurborgar um málefni eldri
borgara var haldinn í gær. Með
nefndinni verður komið á vettvangi
þar sem eldri borgarar í Reykjavík
munu fá beinan aðgang að kjörnum
fulltrúum í borgarstjórn en að mati
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og full-
trúa Samtaka aldraðra í nefndinni
hefur verið full þörf á slíku.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri sat fyrsta fund nefndarinnar
en í henni sitja tveir fulltrúar úr
borgarstjórn auk fulltrúa frá Sam-
tökum aldraðra og Félagi eldri borg-
ara. Jórunn Frímannsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er
formaður nefndarinnar og segir hún
að borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins hafi lagt fram tillögu þeg-
ar flokkurinn var í minnihluta um
stofnun slíkrar nefndar en hún hafi
ekki náð fram að ganga. „Hug-
myndin er sú að það sé bein tenging
milli pólitískra fulltrúa og samtaka
eldri borgara. Samtök aldraðra og
Félag eldri borgara hafa talað um að
þörf væri á að koma upplýsingum
beint til kjörinna fulltrúa,“ segir
Jórunn. Nefndin mun ekki skila af
sér niðurstöðum eða skýrslu heldur
er tilgangurinn með stofnun hennar
fyrst og fremst að koma á virku
samráði en á fundinum í gær var
ákveðið að stefnt yrði að því hún
myndi hittast fjórum sinnum á ári.
Markmið samráðsins er að fjölga
tækifærum eldri borgara til að búa
sem lengst í eigin húsnæði og móta
áætlun um hvernig eyða megi
löngum biðlistum eftir húsnæði.
Einnig að tryggt verði nægt fram-
boð búsetukosta og leiðir verði skoð-
aðar til að auka val aldraðra um
þjónustu, umhverfi og aðstæður.
„Við viljum skoða sem flestar gerðir
úrræða því fólk er með mismunandi
þarfir,“ segir Jórunn. „Við erum að
taka við núna og við viljum opna á
sem flestar leiðir til að hægt sé að
sjá þá möguleika sem eru til staðar.“
Jón Aðalsteinn Jónasson, fulltrúi
Samtaka aldraðra í nefndinni, segir
að tími hafi verið kominn til að hlust-
að væri á raddir eldri borgara. „Við
höfum bent ráðamönnum á að fólk
vilji búa heima hjá sér eins lengi og
hægt er, en ekki að vera sett inn á
stofnanir. Það þarf að auka heima-
þjónustu og heimahjúkrun til að það
geti gengið upp. Þessi samráðsnefnd
er mjög góð leið miðað við það sem
við höfum áður fengið og borg-
arstjóri tekur myndarlega á þessu
máli,“ segir Jón Aðalsteinn. Samtök
aldraðra hafi reynt að ræða málin
við ráðamenn bæði ríkis og borgar
og fengið afar litlar undirtektir.
„Eldra fólk hefur verið sett mikið út
úr umræðunni en þetta er mjög fjöl-
mennur hópur og hann er að eldast
og verða stærri.“
Fundur samráðsnefndar um málefni eldri borgara
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson heilsar fundarmönnum á fyrsta fundi nýju samráðsnefndarinnar.
Fleiri leiðir verði opnaðar
OF SNEMMT er að segja til um
hvaða lagaákvæðum þarf að breyta til
að fullnægja ákvörðunum um breyt-
ingar á upplýsingakerfi Schengen,
segir Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sem sat fund um málið í Brussel
í gærdag. Lagalega hlið málsins er
enn til skoðunar á meðal ráðherra og
einnig milli framkvæmdastjórnar
ESB og Evrópuþingsins.
Breytingarnar á upplýsingakerfinu
áttu að taka gildi í apríl 2007 en Björn
segist ekki viss um að búið verði að
leysa öll tæknileg vandamál fyrir
þann tíma. „Að því er stefnt að unnt
verði að hrinda að minnsta kosti hluta
kerfisins í framkvæmd næsta vor en
þetta er enn óljóst vegna tæknilegra
úrlausnarefna, í raun er auðveldara
að finna pólitískar og lögfræðilegar
lausnir en glíma við hinn tæknilega
vanda,“ segir ráðherra og bætir því
við að Schengen-samstarfið sé að taka
miklum breytingum um þessar
mundir. Koma þær breytingar til
vegna stækkunar Evrópusambands-
ins, og þar með Schengen, og hinnar
nýju tækni við skráningu og nýtingu
upplýsinga á grundvelli rafrænna
vegabréfa. „Það stefnir allt í að útgáfa
vegabréfsáritana verði í raun á einni
hendi inn á Schengen-svæðið í því
skyni að tryggja sem best ytri landa-
mæri þess,“ segir Björn Bjarnason.
Schengen tekur
miklum breytingum
SAMFYLKINGIN leggur til að
borgarstjóra verði falið að hefja nú
þegar viðræður um flutning á mál-
efnum aldraðra, fatlaðra, heilsu-
gæslu, þar með talinni heima-
hjúkrun og tengdum verkefnum,
frá ríki til Reykjavíkurborgar. Til-
laga þessa efnis verður flutt á
næsta borgarráðsfundi.
Á fyrsta fundi samráðshóps um
málefni aldraðra í gær var þetta
kynnt. Borgarstjóri greindi frá því
að hann hefði óskað þess af ráðu-
neytum heilbrigðis- og fjármála að
skipaðir yrðu hópar um byggingu
einstakra hjúkrunarheimila, segir í
tilkynningu frá Degi B. Eggerts-
syni, borgarfulltrúa Samfylkingar.
„Eðlilegt er að stefna að samfloti
allra sveitarfélaga í þessu efni en
þyki fullreynt að ná samkomulagi
undir merkjum Sambands íslenskra
sveitarfélaga leiti Reykjavíkurborg
beinna samninga um verkefnaflutn-
ing. Tryggt verði að nauðsynlegir
fjármunir til uppbyggingar og
reksturs viðkomandi málaflokka
fylgi verkefnunum. Stefnt skal að
því að samkomulag og áætlanir um
verklag við verkefnaflutninginn
liggi fyrir um áramót,“ segir í til-
lögu Samfylkingarinnar.
Vilja viðræður við ríkið
LÖGREGLAN í Reykjavík viðhafði í
gær sérstakt umferðareftirlit þar
sem leyfilegur hámarkshraði er 30
km. Mega 20 ökumenn eiga von á því
að fá sekt fyrir hraðakstur. Af þeim
verður einn sviptur ökuleyfi í þrjá
mánuði og tveir í tvo mánuði. Að
sögn lögreglu stendur til að halda
eftirlitinu áfram.
20 teknir fyr-
ir hraðakstur
♦♦♦