Morgunblaðið - 25.07.2006, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 7
FRÉTTIR
SEXTÁN ökumenn voru teknir fyr-
ir ölvunarakstur hjá lögreglunni í
Reykjavík um helgina. Að mati lög-
reglunnar er þetta mikið áhyggju-
efni. Jafnmargir ökumenn voru
stöðvaðir fyrir að nota ekki bílbelti
og þá voru þrjátíu teknir fyrir
hraðakstur þessa sömu helgi.
Sextán teknir
fyrir ölvunarakstur
JÓHANNES Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir fulla
ástæðu til að velta fyrir sér til hvers
nefnd um matvælaverð hafi verið
skipuð miðað við
viðbrögð ráð-
herra í ríkis-
stjórninni við
hugmyndum sem
Hallgrímur
Snorrason, hag-
stofustjóri og for-
maður nefndar-
innar, setti fram í
skýrslu sinni.
„Forsætisráð-
herra snýst í raun gegn öllum hug-
myndum sem formaður
matvælaverðsnefndarinnar setur
fram í skýrslu sinni. Þannig telur
forsætisráðherra að niðurfelling á
vörugjöldum og tollum og lækkun
virðisaukaskatts skili sér miklu
fremur til heildsala og smásala en í
buddu almennings. Neytendasam-
tökin minna á tvennt í þessu sam-
bandi. Í fyrsta lagi liggur fyrir að
þegar virðisaukaskattur var lækkað-
ur í 14% á flestöllum matvælum þá
skilaði það sér til neytenda. Í öðru
lagi hafa stjórnvöld eftirlitsstofnanir
sem geta fylgt því fast eftir að þessar
lækkanir skili sér til neytenda. Þá
segir forsætisráðherra einnig að
flokkur hans vilji, eins og samstarfs-
flokkur hans í ríkisstjórn, standa
vörð um íslenskan landbúnað og er á
forsætisráðherra að skilja að þar
með megi ekki hrófla við ofurtollum
á innfluttum landbúnaðarvörum.
Landbúnaðarráðherra hefur bent
á í fjölmiðlum að það séu ekki aðeins
matvæli sem séu dýr hér á landi og
nefnir dæmi um verð á lyfjum og
fatnaði og að þetta þurfi einnig að
skoða. Það er undarlegt að fyrst nú
þegar tillögur liggja fyrir um hvern-
ig ná megi niður verði á matvælum
skuli landbúnaðarráðherra reyna að
eyða umræðunni með þessu. Hvers
vegna í ósköpunum kom hann ekki
strax með þessar athugasemdir sín-
ar? Þá er furðulegt að réttlæta hátt
matvælaverð með þessum hætti,“
segir Jóhannes í pístli á heimasíðu
Neytendasamtakanna.
Jóhannes segir að Neytendasam-
tökin ætlist til þess að stjórnvöld fari
eftir tillögum formanns nefndarinn-
ar um hvernig lækka megi allt of
hátt matvælaverð hér á landi. Sam-
tökin minna á að matvælaverð hér á
landi er með því hæsta sem gerist í
heiminum. Það sé jafnframt skoðun
Neytendasamtakanna að það sé ekki
endalaust hægt að fara í buddu neyt-
enda til að halda uppi óarðbærri
framleiðslu í landinu.
Spyr til
hvers
matvæla-
nefndin var
sett á fót
Jóhannes
Gunnarsson
GLATT var á hjalla hjá íbúum við Jörfabakka í
Breiðholti þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti
þar leið hjá um helgina. Þar var búið að slá upp
heljarinnar íbúahátíð með öllu tilheyrandi en há-
tíð þessi er árlegur viðburður við bakkann og
telst íbúum til að þetta sé sautjánda árið sem hún
er haldin.
Kepptu börnin meðal annars á íþróttamóti þar
sem veitt voru verðlaun fyrir bestu frammistöðu
og Þorkell Elías Kristinsson lét sig ekki vanta
frekar en áður og lék af ákafa á harmonikkuna.
Að endingu var grillað og skemmt sér í blíðviðr-
inu fram á kvöld. Morgunblaðið/ Jim Smart
Harmonikkan
munduð á íbúahá-
tíð við Jörfabakka
ÚTSALA
INNBROT var framið í söluturn-
inum Ásnum í Stykkishólmi í fyrri-
nótt og hefur lögreglan á Snæfells-
nesi tekið málið til rannsóknar.
Spennt hafði verið upp hurð í dyr-
um söluturnsins og hún skemmd.
Síðan var stolið töluverðu magni af
varningi. Þar á meðal öllum DVD-
myndunum af leigu söluturnsins,
DVD- og myndbandstækjum ásamt
sælgæti og gosdrykkjum.
Innbrot í
Stykkishólmi
♦♦♦