Morgunblaðið - 25.07.2006, Page 8

Morgunblaðið - 25.07.2006, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýi meirihlutinn lætur sér ekki nægja að þvo, ryksuga og skjóta, það skal líka hreinsa borgina af strætó klúðrurum. Æ fleiri fyrirtækireyna nú aðhvetja starfs- fólk sitt til að hætta að reykja í vinnutímanum. Eins og kunnugt er hefur ríkt bann um reykingar á vinnustöðum síðan reglu- gerð við tóbaksvarnarlög- in tók gildi 15. júní 1999 og hefur síðan verið bann- að að reykja í húsnæði fyrirtækja, á húslóðum þeirra sem og í bílum svo dæmi séu nefnd. Víða hafa verið útbúin sérstök reyk- herbergi fyrir starfs- menn, en eftir því sem blaðamað- ur kemst næst virðast slík reykherbergi vera á undanhaldi og tækifærið oft notað þegar fyr- irtæki skiptir um húsnæði að leggja slík herbergi af. Landspítali – háskólasjúkrahús bættist nýverið í hóp þeirra fyr- irtækja sem hyggjast banna reyk- ingar starfsmanna sinna í vinnu- tíma. Bannið á að taka gildi 1. janúar 2007, en samkvæmt upp- lýsingum blaðamanns var ákveðið að hafa rúman undirbúningstíma, því allt árið 2006 verður notað til þess að undirbúa þessa breytingu í átaki sem nefnist „Göngum alla leið.“ Að sögn Hólmfríðar Er- lingsdóttur, verkefnisstjóra á skrifstofu starfsmannamála LSH, hefur spítalinn lengi verið reyk- laus vinnustaður. „Samt var vitað að einstaka starfsmenn reykja enn í vinnutímanum, hér og þar fyrir utan spítalann. Það þótti ástæða til þess að stíga skrefið til fulls og gera spítalann raunveru- lega að algjörlega reyklausum vinnustað,“ segir Hólmfríður og bendir á að í öllum atvinnuauglýs- ingum LSH komi fram að um reyklausan vinnustað sé að ræða. Hvetja starfsfólkið með jákvæðum aðgerðum Aðspurð segir Hólmfríður við- tökur starfsmanna við átakinu hafa verið góðar og að langflestir hafi mikinn skilning á því að LSH stígi skrefið til fulls og verði al- gjörlega reyklaus vinnustaður. Þess ber þó að geta að fyrrgreint átak nær aðeins til starfsfólks og að ekki hafa verið teknar ákvarð- anir um breytingar á reykaðstöðu sjúklinga á sjúkahúsinu. Sjúk- lingum er ávallt veitt aðstoð við að hætta að reykja hafi þeir áhuga á því og er sú aðstoð bæði í formi ráðgjafar og lyfja, s.s. nikó- tíntyggjós og nikótínplástra. Til þess að aðstoða starfsfólk LSH við að hætta að reykja hefur spítalinn boðið því upp á reyk- leysisnámskeið hjá Krabbameins- félagi Reykjavíkur, ýmiss konar fræðslu bæði á innri vef spítalans sem og í fréttabréfi vinnustaðar- ins auk þess sem starfsmönnum er veittur afsláttur af nikótínlyfj- um. Nú í sumar hefur reyklausum deildum og einingum spítalans verið veitt sérstök viðurkenning og verðlaun, t.d. í formi ávaxta- karfna. Allt er þetta, að sögn Hólmfríðar, gert til þess að hvetja starfsfólkið til reykleysis á já- kvæðan hátt. Í fyrrnefndri könn- un var spurt um afstöðu starfs- manna til átaksins „Göngum alla leið.“ Sögðu tæplega 90% að- spurðra að þeim litist mjög vel eða vel á það. Aðeins 2% sögðu að þeim litist illa á, en 10% höfðu ekki skoðun. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil boð- ið upp á námskeið fyrir vinnustaði til þess að hjálpa starfsmönnum að hætta að reykja. Að sögn Guð- laugar B. Guðjónsdóttur, fram- kvæmdastjóra félagsins, eykst eftirspurnin eftir slíkum nám- skeiðum ávallt þegar reykingar og reykingabann eru mikið til umræðu í þjóðfélaginu. Bendir hún sem dæmi á að öll umræðan um reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum, sem taka mun gildi um mitt næsta ár, hafi greinilega ýtt við mörgum um að leita sér aðstoðar við að hætta að reykja. Reyklausum starfsmönnum greidd hærri laun Aðspurð segir hún nokkur reykleysisnámskeið verða í boði í haust, en a.m.k. þrjú fyrirtæki bíði eftir slíkum námskeiðum en þeirra á meðal eru LSH og Húsa- smiðjan. Segir hún fjölda nám- skeiða fara eftir því hversu marg- ir starfsmenn viðkomandi fyrirtækja skrái sig. Að sögn Guð- laugar hefur orðið nokkur breyt- ing frá því sem áður var, en fyrir nokkrum árum tókst fyrirtækjum auðveldlega að fylla heilt nám- skeið. Nú virðast víða hins vegar vera orðnir svo fáir starfsmenn eftir í viðkomandi fyrirtækjum sem reykja að oft séu á hverju námskeiði starfsmenn frá tveim- ur til þremur fyrirtækjum í senn. Guðlaug fagnar því að sífellt fleiri fyrirtæki séu farin að taka fram í atvinnuauglýsingum sínum að um reyklausan vinnustað sé að ræða. Segir hún þetta sterkara skref en að auglýsa eftir reyk- lausu starfsfólki, sem oft tíðkist. Að sögn Guðlaugar beita fyrir- tæki ýmsum aðferðum til að hvetja starfsfólk til að hætta að reykja. Segist hún t.d. vita að fyr- irtæki hafi greitt reyklausum starfsmönnum hærri laun með þeim rökum að reykingafólk taki fleiri pásur vegna reykinga og sé mun oftar frá vegna veikinda. Fréttaskýring | Reykingar í vinnutíma Ætla að stíga skrefið til fulls Sífellt fleiri fyrirtæki vilja taka fyrir reykingar starfsmanna á vinnutíma Um 20% landsmanna reykja daglega. LSH notar ár til að undirbúa algjört reykleysi  Til að skoða umfang reykinga starfsmanna LSH var í febrúar sl. framkvæmd vefkönnun meðal starfsmanna. Af þeim sem svör- uðu sögðust 49% aldrei hafa reykt, 35% sögðust þegar vera hætt að reykja, 11% sögðust reykja daglega og af þeim sögð- ust 7% svarenda reykja í vinnu- tíma. Þess ber að geta að aðeins 561 starfsmaður svaraði spurn- ingunni, sem er um 10% allra starfsmanna spítalans, því á LSH starfa í kringum 5.000 manns. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is FULLTRÚAR geimvísindastofnana Bandaríkjanna (NASA), Evrópu (ESA) og Japan (JAXA) komu sam- an á ráðstefnu sem fram fór á Foss- hótel Nesbúð á Nesjavöllum. Ráð- stefnugestirnir voru á fjórða tug, frá átta mismunandi löndum. „Ísland varð fyrir valinu vegna þess að það er hlutlaust svæði, heppilega staðsett milli Japan, Bandaríkjanna og Evrópu,“ að sögn dr. Marcus Kirsch, vísindamanns hjá ESA og kvörðunarsérfræðings XMM-Newton gervitunglsins. Geislar ná ekki til jarðar Gervitunglið er útbúið búnaði til að skynja röntgengeislun frá fyrir- bærum í geimnum en stofnanirnar þrjár eru þær einu í heiminum sem ráða yfir slíkum gervitunglum. Í geimnum er að finna fyrirbæri sem ekki gefa frá sér sýnilegt ljós heldur röntgengeisla, sem er ljós með mun meiri orku. Svarthol, nift- eindastjörnur og virkar vetrarbraut- ir eru dæmi um slík fyrirbæri og þau er hægt að skoða með myndavélum sem nema röntgengeislun. Þessi fyr- irbæri eru því meðal viðfangsefna háorkustjörnufræði. „Röntgengeislunin kemst ekki gegnum gufuhvolf jarðar og því er ekki mögulegt að rannsaka þessi fyr- irbæri frá jörðu niðri. Menn brugðu því á það ráð hér áður fyrr að senda búnað hátt upp í gufuhvolfið með loftbelgjum eða geimskutlum, en nú búum við svo vel að á sporbaug um jörðina eru sex gervitungl búin tækj- um til að skoða fyrirbærin,“ sagði dr. Kirsch í samtali við Morgunblaðið. Hafa aldrei komið saman áður „Fleiri en eina myndavél er að finna á sumum gervitunglanna og á ráðstefnunni voru fulltrúar allra röntgenmyndavéla sem eru á braut um jörðu. Er þetta í fyrsta sinn sem allir sem virkir eru í þessum geira stjörnufræðinnar koma saman.“ Þar sem gervitunglin styðjast ekki við sama kvarða eru niðurstöður þeirra örlítið ólíkar. „Ein spurninganna sem við reynd- um að svara á þessari ráðstefnu var hvort við gætum komið okkur saman um að skilgreina stjörnu eða fyrir- bæri sem staðalkerti á röntgensvið- inu. Við vildum í það minnsta svara því hvort mögulegt sé að skilgreina slíkt staðalkerti,“ sagði dr. Kirsch, en staðalkerti eru nothæf til að kvarða birtumælingar tækja þar sem röntgenbirta staðalkertanna er vel ákvörðuð. Nokkur staðalkerti voru sam- þykkt á ráðstefnunni auk þess sem hópurinn ákvað að stofna alþjóðlega nefnd sem mun koma saman á næstu árum, til að ráða ráðum sínum um kvörðun á sviði háorkustjörnufræði. Fulltrúar geimvísinda- stofnana á Nesjavöllum Eftir Jóhann Magnús Jóhannsson johaj@hi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.