Morgunblaðið - 25.07.2006, Blaðsíða 16
Mývatnssveit | Það fylgir því
sérstök stemmning að sofa í
tjaldi og sumir grípa hvert tæki-
færi sem gefst til að fara í úti-
legu. Skemmtilegast er að sjálf-
sögðu að tjalda í góðu veðri og
það hafa landsmenn og erlendir
ferðamenn getað gert und-
anfarna daga.
Notalegt er að geta útbúið
morgunverð á þurru og sól-
vermdu grasi líkt og þau gera
þýska parið á myndinni á tjald-
stæðinu að Skútustöðum. Um
helgina var frábært veður í Mý-
vatnssveit, sól og 23 gráðu hiti
um hádaginn. Nutu þess allir í
botn, heimamenn og gestir.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Útbúa morgunmat á tjaldsvæðinu
Útilega
Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Hreinn Friðfinns-son opinberaðiinnsetninguna
Sögubrot og myndir í
Galleríi Suðsuðvestur
síðastliðinn laugardag.
Mörg forvitin augu litu
inn en ekki hefur verið
hægt að ljóstra miklu
upp um verkið til að
skemma ekki upplifun
sýningargesta.
Innsetningin tengist
menningarsögu Íslands,
10 málverkaprentunum
sem Helgafell lét gera
árið 1958 eftir mál-
verkum þekktustu ís-
lensku listmálara þess
tíma, og ekki síst Hreini
sjálfum sem ungum
manni. Hér er Hreinn á
tali við einn opn-
unargesta.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Sögubrot í Suðsuðvestur
Jónína Bjartmarzsækist eftir vara-formennsku í Fram-
sóknarflokknum. Virtist
það koma flatt upp á
Guðna Ágústsson vara-
formann. Guðmundi G.
Halldórssyni datt í hug:
Sýndu Guðni dáð og dug
og djörfung næstu stundir.
Reyndu bara að herða upp hug
og hafa Jónínu undir.
Starfslokasamningar
og kjör eldri borgara
vöktu Halldór Hall-
dórsson til umhugsunar.
Einn er siður alveg nýr
í okkar ríka landi:
Gamla fólkið við bölið býr
en börn þeirra óseðjandi.
Gamla fólkið
við bölið býr
helgi@mbl.is
♦♦♦
Landsveit | Skógerðin Táp sem framleiðir
hina þekktu Táp heilsuskó er rekin á
sveitabænum Lækjarbotnum í Landsveit.
Þar vinna hjónin Guðlaugur Kristmunds-
son og Jónína H. Þórðardóttir við fram-
leiðsluna ásamt börnum sínum.
Á fréttavefnum sudurland.is er birt við-
tal við Guðlaug og Jónínu. Þau voru í hey-
skap þegar blaðamanninn bar að garði en
gáfu sér þó tíma til að segja frá.
„Það var fyrir algjöra tilviljun að við fór-
um út í skógerð. Við ákváðum að söðla um
og seldum kvótann árið 2000 og í kjölfarið
höfðum við augun opin fyrir atvinnumögu-
leikum,“ sagði Guðlaugur við sudurland.is.
„Við fréttum í gegnum vinafólk okkar að
eigendur skógerðarinnar Táp ætluðu að
setja hana á sölu. Því gripum við tækifærið
og keyptum fyrirtækið sama ár og við seld-
um kvótann. Við vissum ekki hvað við vor-
um að fara út í því hvorugt okkar hafði
komið að skógerð áður. Þegar okkur hafði
verið kennt að búa til skóna í einn dag varð
ekki aftur snúið, framleiðslan var hafin.
Enginn ákveðinn viðskiptahópur fylgdi
framleiðslunni því fyrri eigendur höfðu
ekki framleitt skó í tvö ár. Við höfum því
sjálf komið upp hóp viðskiptavina í viðráð-
anlegri stærð fyrir okkur. Við hjónin
stöndum ein að skóframleiðslunni ásamt
börnum okkar tveimur sem eru dugleg að
hjálpa okkur,“ sagði Guðlaugur.
„Skóframleiðslan hentar vel með bú-
skapnum þar sem við getum unnið eftir
veðráttunni,“ sagði Jónína og hló. „Ef það
er leiðinlegt veður vinnum við í skónum en
í sól og blíðu njótum við frekar veðursins.“
Framleiða
heilsuskó við
Heklurætur
Ísafjarðardjúp | Hið margrómaða og ár-
vissa Ögurball var haldið á laugardags-
kvöld og þótti heppnast afar vel. „Þetta var
æðislega gaman og allir voru brosandi út
að eyrum. Það ríkti mikil gleði og hamingja
á ballinu. Við fengum gott veður og svo
voru margir útlendingar á staðnum sem
voru mjög hrifnir,“ segir Harpa Halldórs-
dóttir ein skipuleggjenda ballsins í samtali
við fréttavefinn bb.is á Ísafirði.
Um 250 gestir sóttu ballið og lék dúett-
inn Halli og Þórunn fyrir dansi, líkt og síð-
ustu ár, segir bb. Að sjálfsögðu var boðið
upp á rabarbaragraut og rjóma sem er
ómissandi liður á Ögurballinu. Ballið fór að
vanda fram í gamla félagsheimilinu í Ögri,
sem var reist 1926, og er dansiballamenn-
ingin í Ögri að minnsta kosti jafn gömul
húsinu. Þó lágu dansleikir niðri um árabil
þar til hefðin var endurvakin fyrir átta ár-
um.
Lengi vel komu menn siglandi á Ögur-
böll, rifjar bb.is upp þar sem engir akvegir
lágu í Ögur og eru bátaeigendur því jafnan
hvattir til að koma á bátum sínum sem gef-
ur ballinu sérstakt yfirbragð.
250 skemmtu
sér á Ögurballi
Mikil umferð einkennir hverja helgi á Sel-
fossi, einkum eru bílaraðirnar langar á
föstudögum þegar röðin nær frá Ölfus-
árbrú og langt út í Ölfus. Síðan aftur síð-
degis á sunnudögum þegar bílalestin nær
langt austur fyrir Selfoss og svo er hún
óslitin út allt Ölfus og upp Kambana.
Þetta er eitthvað sem þarf að laga. Nú
hafa bæjarstjórnir Hveragerðis, Árborg-
ar og sveitarstjórn Grímsness og Grafn-
ings ákveðið að leggja peninga í vænt-
anlegt félag með Sjóvá um
einkaframkvæmd við breikkun Suður-
landsvegar um Hellisheiði. Búast má við
að fleiri aðilar, sveitarfélög og einkaaðilar
bætist í hóp hluthafa.
Margir bíða spenntir eftir því hvernig
væntanlegt listaverk muni líta út á hring-
torginu við Ölfusárbrú, á Tryggvatorgi.
Listakonan Sigrún Ólafsdóttir frá Sel-
fossi hefur gert listaverk á torgið en hún
hefur starfað lengi erlendis og náð þar
miklum árangri í list sinni. Tilkoma lista-
verksins gæti verið upphaf nýs tíma með
því að bæjaryfirvöld og listamenn tækju
höndum saman við að hefja málara- og
höggmyndalist til vegs og virðingar og
skapa aðstæður og listaverk sem gefa
fólki tilefni til að staldra við og heim-
sækja gallerí eða til að skoða sérstök
verk utanhúss. Vel má hugsa sér það
markmið að á hverju ári yrðu afhjúpuð
eitt til tvö listaverk á Selfossi og jafnvel
komið upp listaverkagarði og fyrirtæki
hvött til að gefa þangað verk.
Sýningarsalir fyrir listaverk eru engir á
Selfossi og tími til að gera þar bragarbót
á. Listasafn Árnesinga var flutt í Hvera-
gerði en nýtist ekki listamönnum eins og
það gæti gert ef þeir hefðu opinn aðgang,
alveg eins og þeir hafa haft í Eden svo
dæmi sé tekið. Opna þarf alþýðulistinni
aðgang að Listasafni Árnesinga sem lið í
að örva listsköpun og aðgengi að listinni.
Miðbæjarskipulag á Selfossi er aftur kom-
ið á dagskrá og verið að undirbúa sam-
keppni arkitekta um hugmyndir að skipu-
laginu. Hugmyndir um 16 hæða
byggingar og stórhýsi í fyrirhuguðum
miðbæjargarði fengu mikinn mótbyr fyrir
kosningar og voru slegnar af. Nú bíður
fólk spennt eftir að sjá niðurstöður sam-
keppninnar sem fer í gang innan tíðar.
Það er orðið ljóst að skipulagsmál eru
vandmeðfarin og nauðsynlegt að huga vel
að öllum þáttum, einkum þegar hugsaðar
stórbyggingar liggja að íbúðarbyggð.
Úr
bæjarlífinu
SELFOSS
EFTIR SIGURÐ JÓNSSON
FRÉTTARITARA
Til sölu
amerískur húsbíll
Til sölu amerískur húsbíll
Sá flottasti á Íslandi
Til sýnis að Tangarhöfða 4
Símar 893 9857 og 692 9435
SMS FRÉTTIR mbl.is