Morgunblaðið - 25.07.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.07.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 17 MINNSTAÐUR SUNDGARPARNIR Viktoría Ás- kelsdóttir og Sigurður Smárason syntu í gærmorgun yfir Eyjafjörð, frá útsýnisstaðnum norðan Vaðl- areits og komu að landi hjá Sigl- ingaklúbbnum Nökkva við Höephner eftir um klukkustundar langt sund. Þau höfðu meðferðis kyndilinn, tákn hins alþjóðlega vináttuhlaups sem stendur yfir, en hlauparar voru á Ak- ureyri í gær. Hlaupið hófst 13. júlí og er áætlað að það taki 15 daga og hafa hlauparar þá lagt að baki rúma 1.500 kílómetra. Þau Viktoría og Sigurður létu vel af sér að loknu sjósundi, sögðu sjóinn ekki hafa verið mjög kaldan og voru því þokkalega brött enda hefði gengið vel. Viktoría hefur líka hug á að synda yfir Hvalfjörðinn þegar Vin- áttuhlaupið verður á þeim slóðum. Vináttuhlaupið er alþjóðlegt kynd- ilboðhlaup, það hófst í Lissabon í Portúgal 2. mars sl. og er tilgangur þess að efla vináttu og skilning sem og umburðarlyndi. Alls verða hlaupn- ir 40.000 km í 70 löndum í öllum heimsálfum en búist er við að þátt- takendur í ár verði vel á aðra milljón. Sigrún Stefánsdóttir bæjarfulltrúi tók á mót þátttakendum og bauð sundgörpum upp á heitt kakó að loknum sundspretti. Sigrún tók síðan við kyndlinum og hljóp með hann að Ráðshústorgi, þar tók Starri Heið- marsson frá Ungmennafélagi Eyja- fjarðar við honum og hljóp áleiðis til Dalvíkur. Syntu með kyndilinn yfir Eyjafjörð Komu með kyndilinn. Sigurður og Viktoría koma að landi við Höephner. Morgunblaðið/Margrét Þóra Vinátta. Þau Sigurður Smárason og Viktoría Áskelsdóttir syntu yfir Poll- inn með kyndilinn og voru að vonum kampakát þegar þau náðu landi. TENGLAR .............................................. www.worldharmonyrun.org/iceland AKUREYRI BRÆÐURNIR Egill Ari og Brynjar Leó fengu að leika sér stundarkorn við kappróðrarbáta og þótti það af- ar skemmtilegt. Hlupu um og skoð- uðu bátana gaumgæfilega, en þess- ir bátar eru nú uppi á þurru landi, til sýnis fyrir gesti og gangandi við Oddeyrartanga. Þar vekja þeir at- hygli ferðalanga sem margir eiga leið þarna um, farþegar af skemmtiferðaskipum sem koma til Akureyrar. Ungir og leika sér Bóklegt bifhjól- anám í fjarnámi EKILL ökuskóli hefur fengið leyfi Umferðarstofu fyrir fjarnámi í bók- legu námi til bifhjólaréttinda. Fyrir hefur Ekill ökuskóli leyfi fyrir fjarnámi í bóklegu námi fyrir Ö1 hluta til almennra ökuréttinda en bíða þarf aðeins lengur til að fá fullt leyfi fyrir Ö2 námskeiði einnig. Þrátt fyrir það er hér um að ræða ákveðinn áfanga í þeirri frumkvæð- isvinnu sem Ekill ökuskóli vinnur að við að koma bóklegu ökunámi fyrir öll ökuréttindi í fjarnám og með því gefa öllum landsmönnum jafnan kost á því að sækja bóklegt nám til ökuréttinda án þess að þurfa að sækja það um langan veg Nær en ekki fjær | Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis hefur sent bæjarráði Akureyrar erindi þar sem þess er farið á leit við bæjarstjórn að þegar ákvarðanir verða teknar varðandi tengibraut- ir í og við hverfið verði tekið meira tillit til skoðana og hagsmuna íbúa þess en þeirra sem fjær búa. Opið lengur | Bæjaráð Akureyrar hefur heimilað forsvarsmönnum 6 skemmtistaða að hafa opið lengur en vant er um verslunarmanna- helgina. Um er að ræða Kaffi Ak- ureyri, Sjallann, Vélsmiðjuna, Rocco, Café Amour og Græna hattinn. Hjalti Jón Sveinsson bók- aði á fundinum að hann sæti hjá við afgreiðslu málsins.   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.