Morgunblaðið - 25.07.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.07.2006, Blaðsíða 19
Daglegtlíf júlí M arkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort finna mætti tengsl á milli þyngdar nem- enda, hvernig þeim liði og árangurs í námi. Rann- sóknin náði til nemenda í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla á starfssvæði Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri veturinn 2003–2004 en rannsókn með áþekku sniði var framkvæmd í sömu bekkjum og af sömu aðilum veturinn 2000–2001,“ segir Magnús. Í rannsókninni var hæð og þyngd allra nemenda mæld og líkamsþyngdarstuðull þeirra reiknaður út. Nemendur í 7. og 10. bekk mátu sjálf eigin líðan á sérstöku prófi sem á ensku nefnist Youth Self Report, og í rannsókninni var það notað sem mælikvarði á líðan en prófið hafði verið staðfært fyrir íslenskar að- stæður. Niðurstöður samræmdra prófa í ís- lensku og stærðfræði voru svo notaðar sem mælikvarði á námsárangur en þau eru tekin í öllum þessum árgöngum.“ Jákvæð þyngdarþróun í 4.–7. bekk Hverjar voru helstu niðurstöður rann- sóknarinnar? ,,Þyngdarþróunin hér á þessu svæði er jákvæðari en víðast hvar annars staðar, t.d. í sambærilegum könnunum í Reykjavík, á Norðurlöndum og í Evrópu. Ofþyngd- arvandinn virðist ekki vera eins mikill. Þetta á sérstaklega við um 4. og 7. bekk þar sem enginn breyting hefur orðið á hlut- falli of þungra á 13 ára tímabili en við eig- um tölur um það nokkra áratugi aftur í tím- ann. Nemendur í 10. bekk skera sig hins vegar úr því þeir halda áfram að bæta við þyngd sína. Árið 1990 mældist hlutfall þeirra sem eru of þungir í 10. bekk 22,3%, 21,3% árið 2000 en er nú 27,7%. Í 4. bekk hefur hlutfallið hins vegar lækkað úr 24,7% árið 1990 í 16,7% nú.“ Hverjar teljið þið skýringarnar á þessum jákvæðu breytingum í 4. og 7. bekk? ,,Við vitum það ekki en e.t.v. er meira um frjálsa útileiki hér og að börn fari oftar gangandi í skólann.“ Magnús tekur hins vegar fram að það sé erfitt að meta út frá þessum tölum hvort of- þyngd og offita sé almennt að vaxa, minnka eða stendur í stað. ,,Þær benda til þess að breytileiki sé að aukast. Þyngstu ein- staklingarnir í dag eru mun þyngri en þyngstu einstaklingarnir sem við höfum töl- ur yfir voru fyrir rúmum 30 árum. Árið 1970 var t.d. enginn strákur í efsta bekk þyngri en 79 kg en sambærileg tala í dag er um 130 kg.“ Þungir hafa jafnmikla námshæfileika Það kemur fram í báðum rannsóknunum og enn betur í þeirri síðari að það eru greinileg tengsl á milli þyngdar og lakari námsárangurs. ,,Þetta á bæði við um 7. og 10. bekk en er þó gleggra í efsta árgangi grunnskólans. Þungum nemendum gengur lakar í námi,“ segir Magnús. ,,Í rannsókn- inni árið 2000 kom í ljós að of þungir nem- endur í 10. bekk fengu að meðaltali lægri einkunnir en meðalþungir og léttir jafn- aldrar þeirra og skipti þá ekki meginmáli hvort um stelpur eða stráka væri að ræða. Við vorum reyndar fyrst til þess að sýna beinlínis fram á þetta í fyrri rannsókninni þótt vissulega hafi komið áður fram vís- bendingar um slík tengsl en það er þó ekki hægt að tala um orsakatengsl sem slík. Tengslin virðast líka tengjast umhverfi og félagslegum þáttum hjá þessum börnum og er frekar einkenni þessa hóps heldur en or- sök. Í seinni rannsókninni nú var það stað- fest að tölfræðilegt samband er á milli þyngdar og námsárangurs að teknu tilliti til aldurs, kynferðis og líðanar. Meðal þungra eru aðeins örfáir nemendur sem ná ágætum námsárangri. Hins vegar virðast engar rannsóknir vera til sem benda til þess að þungir einstaklingar hafi minni hæfileika til náms en meðalþungir eða léttir ein- staklingar.“ Magnús segir að flestar rannsóknir sýni, þótt það hafi ekki verið niðurstaðan í þess- ari, að tengsl eru á milli þyngdar og líð- anar. ,,Þá þýðir lakari líðan lakari náms- árangur. Nám er vinna barna og unglinga og þetta endurspeglar það sem á vitaskuld einnig um fullorðna, við skilum lakari vinnu þegar okkur líður ekki vel.“ Verður að virkja foreldra En hvernig getur skólinn og heilsugæslan komið til móts við nemendur sem eru of þungir? ,,Það er mjög æskilegt að hafa einhver úrræði fyrir þennan hóp eins og þverfaglegt meðferðarteymi sem hægt er að vísa til. Góð skólamötuneyti í öllum grunnskólum og skólaíþróttir sem henta öllum eru nauðsyn- leg. Það eru ekki allir sem finna sig í skóla- íþróttum eins og þær eru í dag. Heilsugæsl- an getur komið inn með fræðslu og forvarnir og fyrr en áður jafnvel strax í ungbarnavernd. Ábyrgð heimilanna er mikil og fyrirmyndanna þar og það hefur marg- sýnt sig að það er ekki hægt að takast á við þetta verkefni nema að foreldrar séu virkj- aðir. Áreitið er mikið í nútímasamfélagi. Versl- anir og fyrirtæki gætu stillt auglýsingum á sælgæti og annarri óhollustu í meira hóf og hafa þessa vöru ekki þar sem allir, börn sem aðrir, eiga leið um. Reglufesta í mál- tíðum s.s. að borða morgunverð með fjöl- skyldunni og neyta ávaxta daglega ver bæði gegn of mikilli þyngd og bætir náms- árangur samkvæmt þessari rannsókn og er rétt að benda sérstaklega á það.“  BÖRN | Niðurstöður rannsóknar á Akureyri og í nærsveitum Þyngd hefur áhrif á námsárangur Niðurstöður nýlegrar þverfaglegrar rannsóknar Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Reynis ráð- gjafarstofu sýna m.a. að tengsl eru á milli aukinnar þyngdar og lakari námsárangurs hjá nemendum í 10. bekk. Unnur H. Jóhannsdóttir ræddi nánar við Magnús Ólafsson lækni um rannsóknina og þýðingu hennar. Magnús Ólafsson segir að í rannsókninni hafi komið fram að engin breyting hafi orðið á hlut- falli of þungra nemenda í 4. og 7. bekk undanfarin 13 ár og það jafnvel lækkað. Morgunblaðið/Eyþór Í rannsókninni kom fram að þungum nem- endum gengur lakar í námi. Reglufesta í máltíðum og að neyta ávaxta dag- lega ver gegn ofþyngd og bætir námsárangur. Reuters Nám er vinna barna og unglinga og við skil- um lakari vinnu þegar okkur líður ekki vel Morgunblaðið/Margrét Þóra TVÆR nýlegar rannsóknir benda til að mikil fiskneysla geti spornað við sjóndep- ilsrýrnun, sem mun vera ein helsta orsök blindu á efri árum. Sannað er að omega-3-fitusýrurnar, sem eru í fiski, t.d. laxi, styrkja bæði hjarta og heila og nú bendir allt til að fiskneytendur verndi augun líka. Í annarri rannsókninni tók þátt 681 aldraður bandarískur karlmaður. Hún leiddi í ljós að þeir karlmenn, sem voru með fisk á matseðlinum að minnsta kosti tvisvar í viku, voru í 36% minni hættu á að fá sjóndepilsrýrnun en hinir, sem ekki borðuðu fisk að staðaldri. Hin rannsóknin náði til 2.335 kvenna og karla í Ástralíu og fylgdi þeim eftir yfir fimm ára tímabil. Niðurstaða hennar var að þeir, sem borðuðu fisk a.m.k. einu sinni í viku, minnkuðu hættuna á sjóndep- ilsrýrnun um 40%. Vísbendingar komu auk þess fram í bandarísku rannsókninni um að reykingar hefðu slæm áhrif á augun. Sjóndepilsrýrnun byrjar með þoku, sem þróast síðan út í blindu, en talið er að 7–8% fólks yfir 75 ára aldri fái sjúkdóm- inn. Með hækkandi lífslíkum fólks má gera ráð fyrir aukinni tíðni, sagði dr. Jo- hanna Seddon, augnlæknir í Boston og einn af höfundum rannsóknarinnar, í samtali við fréttavef NBC. Hún bætti því við að þeir karlmenn, sem væru ekki að- eins með omega-3-fitusýrur í mataræðinu heldur einnig omega-6-fitusýrur, sem finnast m.a. í grænmetisolíum og bök- unarvörum, væru í mjög góðum málum. Gera mætti þó ráð fyrir því að fiskætur lifðu heilsusamlegar en aðrir, og það kynni að hafa áhrif í þessu samhengi.  HEILSA Fiskneysla ver augun Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.