Morgunblaðið - 25.07.2006, Síða 31

Morgunblaðið - 25.07.2006, Síða 31
alvöru þegar hann var ráðinn flug- þjónn til Loftleiða hf., en ég starfaði þá þar sem slíkur. Örn var athafnasamur alla tíð og þá ekki síst á þessum árum. Hann hafði starfað sem verslunarstjóri hjá Japís, annaðist tónlistarþátt fyrir ungt fólk í útvarpi og æfði knatt- spyrnu með Val, svo fátt eitt sé nefnt. Hann var vinmargur, kátur, ljúfur í viðmóti og hláturmildur, enda hvers manns hugljúfi, hvar sem hann fór. Á þeim árum, sem við störfuðum saman sem flugþjónar, voru hinar tíðu utanlandsferðir Ís- lendinga rétt að hefjast og voru það því talsverð forréttindi að fá að starfa við að ferðast landa á milli, enda líka ólíkt því sem nú er tekin áhafnarhvíld á flestum viðkomustöð- um. Þá áttum við Örn samveru- stundir beggja vegna Atlantshafs- ins, brölluðum margt og nutum lífsins. Æskuheimili Arnar stóð á Njáls- götu 3. Í stórfjölskyldunni átti hver sína íbúð þar, foreldrarnir á þriðju hæð, en Örn hreiðraði um sig í „töff“ stúdíóíbúð í risinu. Njálsgatan lá í þjóðbraut og varð því risið eins og félagsmiðstöð, þar sem straumurinn lá út og inn, sér í lagi um helgar. Oft hefur því allt stóðið eflaust reynt á þolrifin í Ásu og Börge, þegar græj- urnar, ekki stilltar á lægsta, og hlátrasköllin glumdu út í nóttina og liðið síðan ruddist niður stigann, eins og fílahjörð, til að kanna hvað lífið hefði upp á að bjóða. Svona liðu ungdómsárin við leik og störf. Lífið gaf endalaus fyrirheit og ekki var ástæða til að hafa stórar áhyggjur af framtíðinni. Samt kom að því að ungæðið rjátl- aðist af okkur og flestir festu að lok- um ráð sitt og hófust handa við að koma upp heimili og kjarnafjöl- skyldum, en þær hugmyndir áttu þó lengi vel ekki upp á pallborðið hjá okkur. Örn varð hamingjumaður í einka- lífi sínu. Hann fann stóru ástina sína, Berglindi, og saman eignuðust þau sólargeislana þrjá, Arnór Dan, Kar- en og Heiðdísi. Örn átti fyrir dótt- urina Hrafnhildi og Berglind átti Söndru. Fjölskyldan var og er einstaklega samhent, börnin efnileg og falleg. Ég minnist margra samverustunda með þeim öllum, ekki síst stóra dagsins í júlí í fyrra, þegar Sandra og Mikael giftu sig hér í Reykjavík. Það var stór stund fyrir foreldrana. Annan hamingjudag áttu þau í júní sl., þegar yngstu börnin þrjú útskrif- uðust sem stúdentar og Sandra fékk sína háskólagráðu. Eftir að fjöl- skyldan flutti til Danmerkur urðu samfundir eðlilega færri, en ferðir þeirra til Íslands voru tíðar og alltaf reyndum við að hittast. Síminn var líka óspart notaður. Eins hefði verið óhugsandi að koma til Danmerkur og leggja ekki lykkju á leið sína og heimsækja þau á fallega heimilið í Sorö. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa átt tveggja daga sam- vist með þeim í Sorö í byrjun júní sl. Þær stundir verða dýrmætar í minn- ingunni. Nú þegar kemur að kveðjustund Arnar, vinar míns, þakka ég honum samfylgdina, sem alla tíð einkennd- ist af drengskap og hlýju í minn garð. Ég bið blessunar Berglindi og börnunum og kveð að lokum með orðum skáldsins: Þú fagra minning eftir skildir eina sem aldrei gleymist meðan lífs ég er. Friðleifur Helgason. Ég vil hér votta fjölskyldu Arnar Petersen mína innilegustu samúð vegna andláts hans hinn 19. júlí sl. Við áttum gegnum árin, sem ég hef starfað í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, mörg símtöl sem alltaf voru fræðandi og uppbyggileg fyrir báða aðila og alltaf skein í gegn eldhuginn í ferðamennskunni, Örn Petersen. Þannig mun hann lifa í minningu þeirra sem eftir lifa. Blessuð sé minning hans. Megi góður Guð gefa ykkur, fjölskyldunni hans, styrk til að komast í gegnum hina erfiðu tíma framundan. Kristín Oddsdóttir Bonde. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2006 31 MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Starfsfólk í móttöku Við hjá Radisson SAS 1919 Hótel erum að leita að starfsfólki í móttöku. Leitað er að þjónustu- sinnuðum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna hjá alþjóðlegu fyrirtæki með mikla framamöguleika. Hæfniskröfur: — Dugnaður — Sveigjanleiki — Áhugasemi — Mjög góð ensku- og íslenskukunnátta — Lágmarksreynsla í samskonar starfi er 1 ár Umsóknir sendist til Robyn Mitchell: robyn.mitchell@radissonsas.com „Au-pair“ Danmörku Dönsk fjölskylda óskar eftir „au-pair“ til að gæta Peter, 4 ára og Erik, 4 mán. Faðirinn er stýrimaður og er á sjó í 1 mán. og svo heima í 1 mán. Móðirin er lyfsali og vinnur í apóteki. Þitt starf er að gæta Erik, sækja Peter í leikskóla og hjálpa með heimilisstörfin. Við erum náttúruunnendur og bókelsk og bjóð- um þig velkomna í fjölskylduna. Sendu okkur póst á Hjerl@tdcadsl.dk eða hringdu í s. 0045 98902130 eða farsíma 0045 29914176. Raðauglýsingar 569 1100 Sölufulltrúi Ört vaxandi auglýsinga- og útgáfufyrirtæki óskar eftir að ráða sölufulltrúa í fullt starf. Fyrir- tækið er í miklum vexti og eru næg verkefni framundan, hérlendis jafnt sem erlendis. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi. Reynsla af sölu- mennsku er æskileg en ekki skilyrði. Umsóknir sendist fyrir 31. júlí til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „Sala — 18755“. ALÞJÓÐLEG skákmót eru oft og einatt haldin á sumrin þegar áhugamenn um skák eru í sumarleyfi. Mótshaldarar op- inna skákmóta treysta á að fjárhag þeirra sé borgið með mikilli þátttöku skáktúrista. Á undanförnum árum er orðið algengara að íslenskir áhugamenn flykkist á mót er- lendis og hefur þá Danmörk, Ungverja- land og Tékkland oft orðið fyrir valinu. Í ár taka sjö íslenskir skákmenn þátt í Politiken Cup sem er alþjóðlegt mót sem haldið hefur verið um langt árabil í Kaup- mannahöfn. Yngstur íslensku keppend- anna er Hjörvar Steinn Grétarsson (2.130) en hann er einnig stigahæstur þeirra. Í fyrstu umferð lagði hann stigalágan Dana að velli en í þeirri næstu mætti hann hin- um fræga armenska stórmeistara Rafael Vaganjan (2.593). Hjörvar hafði hvítt og tefldi rólega gegn hinum rómaða snillingi. Þrátt fyrir að hafa skipt upp á mörgum peðum og að peðastaðan væri symmetrísk þá var Hjörvar lentur í þó nokkrum vand- ræðum þegar svartur hafði leikið sínum 21. leik og neðangreind staða kom upp: Hvítur á við margvíslegan vanda að etja í þessari stöðu og reyndi Hjörvar að leysa þetta með taktískum hætti en það gekk því miður ekki upp: 22. Da3? nauðsynlegt var að leika 22. Hb2 eða jafnvel 22. Bh3!?. 22. … Bxb1 23. Ba5 þetta hefur verið hug- mynd hvíts með 22. leik sínum en sá ar- menski á öflugan mótleik. 23. … Rce4! 24. Bxc7 Bxa3 25. Rxb1 Bb4! svartur hefur nú gjörunnið tafl enda verður hann skipta- mun yfir í endatafli sem hefði knúið hvítan til uppgjafar í 38. leik. Af Íslendingunum sjö hefur Bjarni Sæ- mundsson (1.945) flesta vinninga en and- stæðingur hans í fyrstu umferð mætti ekki til leiks og í annarri umferð gerði hann jafntefli við Dana með 2.202 stig. Ingvar Ásbjörnsson (2.007), Bjarni Ágústsson (1.945) og Daði Ómarsson (1.830) unnu allir sínar skákir í 2. umferð eftir að hafa lotið í lægra haldi í fyrstu um- ferð á meðan Lárus H. Bjarnason (1.670) og John Ontiveros (1.560) hafa tapað báð- um sínum skákum. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu þess, http://www.politikencup.dk/. Skákhátíð í Pardubice Eins og alltaf hefur skákhátíðin í Pardubice í Tékklandi á að skipa afar öfl- ugum skákmönnum. Í A-flokki taka Hannes Hlífar Stefánsson (2.564) og hjón- in Lenka Ptácníková (2.193) og Omar Sa- laman (2.174) þátt. Gengi Hannesar hefur ekki alveg verið eins og best hefur verið á kosið en hann hefur gert tvö jafntefli og unnið eina skák gegn töluvert stigalægri andstæðingum. Mótið er þó eingöngu rétt að byrja svo að vonandi nær hann sér vel á strik þegar lengra líður á það. Lenku hef- ur hinsvegar gengið allt í haginn í fyrstu þrem umferðunum þar eð hún hefur líkt og Hannes unnið eina skák og gert tvö jafntefli en andstæðingarnir hafa verið mun stigahærri en hún. Í fjórðu umferð mætir hún sterkum stórmeistara frá Aserbaídsjan og má búast við að róðurinn verði henni þar erfiður. Omar hefur gert tvö jafntefli og tapað einni skák og er ár- angur hans svipaður eins og við mátti bú- ast. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu þess, http:// www.czechopen.net. Dagur og Guðmundur tefla í Kesckemet í Ungverjalandi Nokkrir íslenskir skákmenn hafa náð áfanga að alþjóðlegum meistaratitli á mótum í Kesckemet í Ungverjalandi. Ekki er útlit fyrir að Degi Arngrímssyni (2.327) eða Guðmundi Kjartanssyni (2.291) takist það að þessu sinni en þeir taka nú þátt í lokuðu alþjóðlegu móti. Til að ná áfanganum eftirsótta þarf að fá sjö vinninga af níu mögulegum en að fimm skákum loknum hafði Dagur þrjá vinn- inga en Guðmundur hafði 1½ vinning eftir 6 skákir. Hjörvar Steinn tapaði fyrir Vaganjan í Politiken Cup. Íslendingar að tafli í útlöndum SKÁK Kaupmannahöfn í Danmörku POLITIKEN CUP 22.–30. júlí 2006 HELGI ÁSS GRÉTARSSON daggi@internet.is Bikarkeppnin Þá er lokið a.m.k. fimm leikjum í þriðju umferðinni. Sveit Þriggja frakka sigraði sveit Erlu Sigurjónsdóttur með 155 gegn 138. Þá vann sveit Hermanns Friðriksson- ar sveit Nicotinell með 102 gegn 82. Tvær sveitir af Suðurnesjum komust í 16 liða úrslit en riðu ekki feitum hesti frá sín- um viðureignum. Suðurnesjasveitin tapaði fyrir sveit Garða og véla ehf. með 73 stigum gegn 114 og sveit Sparisjóðsins í Keflavík tapaði sl. sunnudagskvöld fyrir sveit Orku- veitunnar með 81 gegn 122. Sparisjóðs- menn náðu aldrei að sýna sitt rétta andlit, töpuðu þremur fyrstu lotunum en klóruðu í bakkann í lokalotunni. Eins og áður hefir komið fram er svo sveit Víðis Jónssonar á Akureyri komin í 8 liða úrslitin eftir sigur á sveit Hákons Sig- mundssonar frá Dalvík. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.