Morgunblaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HS KREFST EINGREIÐSLU
Forsvarsmenn Hitaveitu Suð-
urnesja (HS) hafa sent fulltrúum
varnarliðsins kröfur hitaveitunnar
þar sem krafist er eingreiðslu vegna
tapaðra viðskipta sökum meints
brots á samningi vegna brotthvarfs
varnarliðsins. Sú upphæð sem kraf-
ist er fæst ekki uppgefin. Næsti
fundur Íslands og Bandaríkjanna
um varnarsamstarf verður haldinn í
Washington dagana 3. og 4. ágúst.
Veikindi takmarka þjónustu
Veikindi hjá flugumferðarstjórum
og mikil flugumferð ollu því að ekki
reyndist unnt að veita fulla flugum-
ferðarþjónustu í gær. Umferð var
takmörkuð við ákveðna hæð og til-
tekin svæði fyrir vikið. Flugumferð-
arstjórar neita að taka aukavaktir.
Hefja starfsemi í Finnlandi
Heimsferðir hafa keypt stærstu
ferðaskrifstofukeðju Finnlands,
Matka Vekka Group, en innan
hennar starfar jafnframt fjórða
stærsta ferðaheilsala Finnlands,
Lomamatka.
Útilokar vopnahlé
Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, sagði í gær að ekki kæmi til
greina að fallast á vopnahlé í Líb-
anon á næstu dögum og að hernaði
Ísraela yrði haldið áfram uns Ísrael
stafaði ekki lengur hætta af Hizboll-
ah-hreyfingunni. Tugir þúsunda
íbúa Suður-Líbanons flúðu norður á
bóginn í gær eftir að stjórn Ísraels
tilkynnti að hlé yrði gert á loft-
árásum á Líbanon í tvo daga. Ísr-
aelskar herflugvélar gerðu þó árásir
á nokkur skotmörk í gær.
Segja stríð hafið á Sri Lanka
Allt að 67 menn hafa fallið í átök-
um stjórnarhersins á Sri Lanka og
uppreisnarmanna úr röðum tam-
ílsku Tígranna. Talsmenn Tígranna
sögðu í gær að stríð væri hafið í
landinu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 24/26
Fréttaskýring 8 Bréf 26
Úr verinu 11 Minningar 27/29
Viðskipti 14 Skák 30
Erlent 15/16 Dagbók 32/35
Minn staður 17 Víkverji 32
Akureyri 18 Velvakandi 33
Austurland 18 Staður og stund 34
Daglegt líf 19 Ljósvakamiðlar 42
Menning 20 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
HEIMSFERÐIR tóku í gær við rekstri finnska
fyrirtækisins Matka Vekka Group, sem er stærsta
ferðaskrifstofukeðja Finnlands. Innan keðjunnar
starfar jafnframt fjórða stærsta ferðaheildsala
Finnlands, Lomamatkat. Starfsmenn eru allt í allt
280. Áætluð velta finnsku fyrirtækjanna í ár er um
12,4 milljarðar króna. Heimsferðir eru nú fjórða
stærsta ferðaskrifstofa Norðurlandanna með
starfsemi í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi
og Svíþjóð. Samanlögð velta Heimsferða og dótt-
urfyrirtækja er áætluð um 35 milljarðar á þessu
ári og er þá Matka Vekka tekið með í reikninginn.
Gríðargóður markaðsaðgangur
Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Heimsferða, segir fyrirtækið vera eitt af þeim best
reknu í Finnlandi og að bæði vörumerkin, Matka
Vekka og Lomamatkat, séu mjög sterk á finnska
markaðnum. „Það hefur mjög breitt vöruúrval,
býður bæði hefðbundnar sólarlandaferðir en líka
mikið af borgarferðum og ferðum til Eystrasalts-
landa, siglingar og annað slíkt. Fjárfestingasjóð-
urinn CapMan, sem átti fyrirtækið, hefur í raun
búið það til úr mörgum smærri fyrirtækjum og má
segja að fyrirtækið í núverandi mynd hafi orðið til
á undanförnum þremur árum.“
Andri segir styrk fyrirtækisins liggja í gríðar-
lega góðum aðgangi að mark-
aðnum og að fyrirtækið hafi
mjög gott orðspor. „Okkar
sóknarfæri hér er að við eigum
tilbúna samninga á tugum
áfangastaða sem við fljúgum til
annars staðar frá úr Skandin-
avíu, svo það er mjög auðvelt
fyrir okkur að koma inn með
nýjar áherslur.“
Andri segir Matka Vekka
hafa vaxið myndarlega síðustu
fjögur ár en Heimsferðir sjái fram á að geta aukið
sérstaklega Lomamatkat-hlutann, þar séu mjög
miklir hagræðingarmöguleikar og margt sem
hægt sé að leggja fyrirtækinu til sem hafi ef til vill
skort hingað til. Aðspurður um hvort ráðgert sé að
skipt verði um stjórnendur og hvort einhverjir Ís-
lendingar muni koma að daglegum rekstri fyr-
irtækisins segir Andri svo ekki verða því annað
hafi gefist honum best.
Áfram finnskir stjórnendur
„Reglan hjá mér er að hafa stjórnendur frá við-
komandi landi í hverju fyrirtæki. Hver markaður
hefur sín sérkenni. Ég vil endilega hafa finnska
stjórnendur hér í Finnlandi. Þeir hafa öðruvísi
auga fyrir markaðnum en við sem erum utanað-
komandi getum haft.“
Heimsferðir eru svo með framkvæmdastjórn
sem í eru Íslendingar, Svíar og Danir. „Sú stjórn
er yfir öllum fyrirtækjum Heimsferða og hún
verður yfir fyrirtækinu og framkvæmdastjóran-
um hér í Finnlandi,“ segir Andri.
30% vöxtur í hverju landi
Hann segir Heimsferðir nú komnar með frá-
bæran grunn í hverju Norðurlandanna. Finnland
sé orðið álíka stórt í veltu og Svíþjóð en þar á eftir
komi Danmörk, svo Ísland og svo Noregur.
Um frekari útrás segist hann „heldur leggja
áherslu á að hvert fyrirtæki fái að vaxa innbyrðis
en að kaupa einhverja aukna markaðshlutdeild í
hverju landi.“ Það hafi tekist mjög vel í ár. „Við er-
um með 30% vöxt í öllum okkar löndum það sem af
er árinu í ár. Líka á Íslandi, sem við áttum ekki
von á. Ef við höldum þeim vexti erum við í af-
skaplega spennandi málum.“
Hann segir Heimsferðir hafa borið gæfu til að
kaupa eingöngu fyrirtæki sem hafi verið mjög
heilbrigð. „Það hefur gefið okkur mikið forskot og
við höfum í raun getað keyrt upp vöxt strax í stað
þess að eyða miklum tíma í að laga til og breyta.
Við höfum horft til Finnlands síðan fyrir ári síðan
og það er frábært að þetta skyldi detta inn núna.“
Andri segir að alls staðar verði haldið í gömlu
vörumerkin, þau séu það dýrmætasta á hverjum
markaði. Hins vegar verði í haust kynnt nafn fyrir
móðurfélagið, sem sé regnhlífarfélag fyrir öll fé-
lögin, mögulega nafn sem ekki hafi heyrst áður.
Heimsferðir kaupa stærstu
ferðaskrifstofukeðju Finnlands
Andri Már
Ingólfsson
FJÖLSKYLDUBÚÐUM Íslands-
vina við Snæfellsskála nálægt Kára-
hnjúkavirkjun lauk formlega í gær
en þær stóðu í tíu daga. Samkvæmt
upplýsingum frá mótmælendum í
búðunum í gær hyggst þó stór hópur
vera þar áfram og hugsanlega alveg
fram í september. Í gær voru yfir
fimmtíu manns í búðunum.
Búðabúar sögðu umferð lögreglu
um svæðið hafa aukist mjög eftir
mótmælaaðgerðir í fyrradag. Einn
þeirra, Ólafur Páll Sigurðsson, segir
lögreglumann hafa gert tilraun til að
keyra yfir sig og hyggst kæra atvikið
í dag. „Þeir voru hérna fyrir framan
Snæfellsskálann eins og þeir gera,
að taka myndir af fólki og reyna að
vera ógnandi. Ég gekk fram fyrir bíl-
inn til að sjá þá sem voru inni í jepp-
anum. Ég stóð um fimm sentímetr-
um frá stuðaranum. Þá gaf maðurinn
bara í og keyrði á mig og ætlaði yfir
mig. Ég einhvern veginn kútveltist á
húddið og tókst að rúlla mér af því og
niður af hliðinni á bílnum,“ segir
Ólafur og bætir jafnframt við að litlu
hafi munað að mun verr færi. Eftir
þetta segir hann bílinn hafa „brunað
burt“ í átt að Eyjabakkajökli. Seinna
hafi hann spurt ökumanninn hvort
það hefði verið hann sem hefði reynt
að keyra yfir sig. „Hann sagði já,
neitaði að gefa mér nafnið sitt en gaf
mér númerið sitt.“
Ekki náðist í lögregluna á Egils-
stöðum í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson
Umferð lögreglu við búðirnar er sögð hafa aukist eftir mótmæli í fyrradag.
„Ætlaði að keyra yfir mig“
TÍU ÁR eru í dag liðin
frá því að Ólafur Ragnar
Grímsson var settur í
embætti forseta Íslands.
Hann tók við embætti
sem fimmti forseti lýð-
veldisins í Alþingishús-
inu 1. ágúst 1996.
Ólafur Ragnar sagði í
viðtali við Ríkisútvarpið í
gær að sú ákvörðun sín
að staðfesta ekki fjöl-
miðlalögin svonefndu
vorið 2004 hefði verið ákveðin
nauðvörn fyrir lýðræðið í landinu.
Þá sagðist hann ekki hafa haft hug-
myndaflug til að láta sér detta í
hug að ríkisstjórn og
meiri hluti Alþingis
myndi ljúka fjölmiðla-
málinu á þann hátt að
gera forseta lýðveldisins
valdameiri en stjórnar-
skráin geri ráð fyrir með
því að ógilda lögin og
leggja fram nýtt frum-
varp, en bera ákvörðun
forsetans ekki undir
þjóðaratkvæðagreiðslu
eins og stjórnarskráin
mæli fyrir um. Með þessu hefði for-
seta „de facto“ verið fært neitunar-
vald sem hann hafi ekki samkvæmt
stjórnarskránni.
Tíu ár frá embættistöku Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Íslands
Vald forsetaembætt-
isins jókst með neitun
fjölmiðlafrumvarps
Ólafur Ragnar
Grímsson
ÖKUMAÐUR sem fluttur var á
Landspítala – háskólasjúkrahús eft-
ir útafakstur og bílveltu á Sandgerð-
isvegi í gærkvöldi liggur nú á gjör-
gæsludeild. Samkvæmt upplýsing-
um læknis var hann ekki settur í
öndunarvél, en meiðsl hans voru þá
ekki fullrannsökuð.
Tilkynnt var um slysið til lögreglu
klukkan 18.30 en tildrög þess eru
enn í rannsókn að sögn lögreglunnar
í Keflavík. Maðurinn var einn í bíln-
um. Bíllinn fór talsvert langt út af
veginum og mun maðurinn hafa
„flogið út úr bílnum“. Virðist sem bíl-
belti hafi annaðhvort slitnað eða gef-
ið sig á annan hátt.
Á gjörgæslu
eftir bílveltu