Morgunblaðið - 01.08.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 19
MæðrastyrksnefndReykjavíkur er að opnastarfsemi sína í nýjuhúsnæði.
„Þetta er gjörbylting. Við gerðum
makaskipti á 156 fermetra húseign
okkar á Sólvallagötu 48 og 220 fer-
metra húsnæði hér í Hátúni 12, en
það komst skriður á málið þegar
stuðningsaðili veitti okkur aðstoð við
að koma þessum skiptum á, við erum
þó aðeins með hluta þess húsnæðis
sem Góði hirð-
irinn hafði hér
áður,“ segir
Ragnhildur Guð-
mundsdóttir for-
maður Mæðra-
styrksnefndar
Reykjavíkur.
„Þetta er mikil breyting á aðstöðu,
hér er bæði rúmbetra og þægilegra
skipulag og svo er hér stór hurð svo
hægt er að aka vörum beint að lag-
ernum. Engir þröskuldar eru hér
sem gerir fært að aka hér um á hjóla-
stólum og er til þæginda fyrir þá sem
eru með börn í kerrum. Hér eru næg
bílastæði og góðar samgöngur – og
svo erum við dálítið sér, höfum látið
gera hurð að ofanverðu í austurátt,
þar sem inngangurinn er,“ segir
Ragnhildur.
Nú er fólk sem óðast að taka til hjá
sér í skápum og geymslum í sum-
arfríinu og upplagt að koma með það
sem ofaukið er af heilum og hreinum
fatnaði og rúmfatnaði og góðum og
nothæfum hlutum í hið nýja húsnæði
Mæðrastyrksnefndar í Hátúni 12.
Nefndin á sér merka sögu
Mæðrastyrksnefnd á sér merka
sögu og hefur löngu tekið sér ból-
festu í hjartastað höfuðborgarbúa.
Nefndin var enda stofnuð 1928 fyr-
ir forgöngu kvenna, ekki síst mæðgn-
anna Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og
Laufeyjar Valdemarsdóttur þegar
mikil neyð ríkti. Togarinn Jón forseti
hafði farist með allri áhöfn og eftir
stóðu ekkjur og fjölmörg föðurlaus
börn.
„Ég viðurkenni að konur, einkum
einstæðar mæður, standa okkur
nærri enda var nefndin stofnuð til að
koma þeim til liðs. En hingað eru all-
ir velkomnir, tímarnir hafa breyst og
karlar koma til okkar í auknum mæli.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
lét sig málin varða og vann mikið að
lagasetningu sem gat komið konum
til góða t.d. í sambandi við forsjár-
mál. Kvenréttindamál er í raun frels-
isstríð, rétt eins og mannréttindamál
eru, ég vil tengja þetta tvennt saman
– þetta er stríð sem aldrei tekur enda
og aldrei má sofna á verðinum.“ Að-
ildarfélög hennar eru átta, Kvenrétt-
indafélag Íslands, Kvenstúdenta-
félag Íslands, Hvítabandið,
Thorvaldsensfélagið, Hvöt, Kven-
félag Alþýðuflokksins, Húsmæðra-
félag Reykjavíkur og Félag fram-
sóknarkvenna.
Allt starf Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er unnið í sjálfboða-
vinnu, nema hvað nefndin hefur sam-
kvæmt lögum sínum leyfi til að hafa
starfsmann í hálfu starfi.
„Því starfi sinnir framkvæmda-
stjórinn, Aðalheiður Fransdóttir.
Hún er í 50% starfi en vinnur miklu
meira,“ segir Ragnhildur.
Umfang starfseminnar fer
sífellt vaxandi ár frá ári
Til Mæðrastyrksnefndar Reykja-
víkur gefa fyrirtæki, einstaklingar,
stéttarfélög og félagasamtök.
„Þessar gjafir gerir okkur kleift að
halda þessari starfsemi gangandi, en
umfang starfseminnar hefur farið
vaxandi undanfarin ár. Við metum
því mikils gjafir sem okkur berast,
nú síðast gaf Síminn okkur nýlegar
tölvur, sem kemur sér mjög vel, þær
munu létta okkur lífið. Starfsmaður
er hér alla daga og því hægt að koma
hingað því sem fólk vill gefa til starf-
seminnar.
Okkur er gefinn matur, húsgögn,
fatnaður, bækur og þannig mætti
telja. Öllu tökum við þakksamlega.
Ýmsir sýna nefndinni mikinn höfð-
ingsskap sem gerir okkur fært að lið-
sinna því fólki sem til okkar leitar.
Þess ber að geta að við erum að fá
nýja vefsíðu sem Sigurður Sigurðs-
son hannar fyrir okkur án endur-
gjalds og einnig erum við að fá nýtt
merki eða lógó sem Ingvar Sverr-
isson hjá Góðu fólki sá til að okkur
var gefið og Ámundi Ámundason
teiknar.
Hér verður opið á hverjum mið-
vikudegi eftir hádegi og geta þá þeir
sem hingað koma valið úr því sem á
boðstólum er og fengið matarúthlut-
anir. Hér vinna margar konur þarft
verk og ég vil koma á framfæri þakk-
læti til allra þeirra sem hafa styrkt
okkur til þeirra starfa.“
Daglegtlíf
ágúst
Ragnhildur formaður raðar í hillur
fatnaði sem nefndinni hefur borist.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
F.v. Aðalheiður Fransdóttir framkvæmdastjóri, Ragnhildur Guðmunds-
dóttir formaður og Margrét Kristín Sigurðardóttir, fjármálastjóri Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur.
„Það má aldrei sofna á verðinum,“ segir Ragnhildur Guðmundsdóttir formaður
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Guðrún Guðlaugsdóttir skoðaði nýtt húsnæði
nefndarinnar í Hátúni 12. Þar verður starfsemin opnuð hinn 23. ágúst nk.
FLUTNINGAR | Mæðrastyrksnefnd flytur í nýtt húsnæði
Takið til í skápum og
gefið þeim sem þurfa
MARKAÐSMENN leggja gjarnan mikið upp úr því að kortleggja
neytendur eftir neysluvenjum, áhugasviðum og efnahag. Og eins
hafa glanstímaritin í gegnum tíðina verið dugleg að leggja fram
krossapróf af margvíslegum toga þar sem fólki er skipað í ýmsa
flokka, oft meira í gríni en alvöru. Kúbanskættaði fjármálagúrúinn
Julie Stav telur varanlegt ásigkomulag bankareiknings hvers og
eins ekki minna lýsandi og í bók sinni The Money In You! skiptir
hún fólki í fimm ólíka neytendaflokka og greinir þar frá öllum þeim
kostum og göllum sem hver flokkur býr yfir, sem og hvernig komast
megi hjá vandkvæðunum. Að sögn Stav segir fjármálaeðli okkar
líka heilmikið um fjárhagslegar framtíðarhorfur.
Dívan. Lætur stjórnast af tilfinningunum og notar oft streitu
sem afsökun fyrir að eyða háum fjárhæðum. Dívan „verðlaunar
sig“ oft með dýrum gjöfum af því að „hún á það skilið“.
Góðgerðartýpan. Örlát manngerð sem er alveg sama um pen-
inga. Hún gefur oft fé til ólíkra líknarfélaga. En þegar miklu er
eytt verður oft lítið eftir í buddunni og því skiptast oft á skin og
skúrir í fjármálum góðgerðartýpunnar – og tímabilum þar sem
fjármálin eru í góðu lagi fylgja yfirleitt tímabil þar sem þau eru í
mjög slæmu standi.
Rannsakandinn. Þessi manngerð skoðar vandlega smæstu smá-
atriði og skilmála í öllum fjármála- og fjárfestingartilboðum sem
berast. Engu að síður verður rannsakandanum ekki alltaf svo
mikið úr verki í þessum efnum.
Lífskúnstnerinn. Þessi týpa er undir áhrifum vínguðsins Díoný-
susar. Hún elskar hið ljúfa líf og á erfitt með að standast dýran
fatnað, glitrandi skart, eðalvín og fjölmennar veislur. Með slíkan
lífsstíl sparar hún hins vegar lítið fé.
Sparnaðartýpan. Þessi sparsama manngerð sparar mikið og
eyðir litlu. Hver króna skiptir máli og litlu er eytt í annað en lífs-
nauðsynjar. Hún nýtir sér alltaf útsölur þegar færi gefst og gerir
mikið af því að leita uppi bestu tilboðin.
NEYTENDUR
Hvernig neytandi ert þú?
BANDARÍSK rannsókn bendir til þess að konur og
karlar með litla sjálfvirðingu hneigist til að halda
að maki þeirra elski þau ekki nema þeim vegni vel í
vinnunni.
Sandra Murray, við Buffalo-háskóla í Bandríkj-
unum, komst að þessari niðurstöðu eftir að hafa les-
ið dagbækur rúmlega 150 hjóna til að afhjúpa
leyndardóma í samböndum karla og kvenna.
Hjónin færðu daglega inn upplýsingar um hvort
þeim farnaðist vel eða illa í vinnunni. Þau skráðu
einnig hversu mikla viðurkenningu og ást þau teldu
sig hafa fengið frá makanum þann daginn. Sjálfs-
virðingin reyndist gefa vísbendingu um hvernig
fólk skynjar ást og viðurkenningu makans. Körlum
og konum með litla sjálfsvirðingu fannst ást makans
vera undir því komin hvernig þeim vegnaði í
vinnunni – þeim fannst þau njóta meiri ástar þegar
þeim gekk vel í vinnunni. Konur og karlar með
mikla sjálfsvirðingu hneigðust á hinn bóginn til að
líta svo á að ást makans væri skilyrðislaus. Reyndar
hneigðust konur með mikla sjálfsvirðingu jafnvel til
að finnast þær njóta meiri ástar þegar þeim farn-
aðist illa í vinnunni.
Skýrt var frá rannsókninni í tímaritinu Persona-
lity and Social Psychology Bulletin.
Reuters
Sjálfsvirðingin reyndist gefa vísbendingu um hvern-
ig fólk skynjar ást og viðurkenningu makans.
Tengja ástina við
velgengni í vinnu
RANNSÓKN