Morgunblaðið - 01.08.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 33
DAGBÓK
Ljósmyndasamkeppnin hjá okkur snýstum að mynda fólkið, náttúruna og dýrinog allt annað skemmtilegt sem finna máí Breiðholtinu – og af nógu er að taka,“
segir Þráinn Hafsteinsson, frístundaráðgjafi í
Breiðholti, um ljósmyndasamkeppni sem hófst
fyrir skömmu og stendur til 15. ágúst, en þá eru
síðustu forvöð að skila inn myndum. Hver og einn
má skila þremur myndum og má hvort heldur sem
er gera það á rafrænu formi eða á pappír.
„Hlutverk okkar hér í þjónustumiðstöðinni í
Breiðholti er að ýta undir hverfisvitund og betra
mannlíf í hverfinu. Samkeppnin er hluti af því að
fá fólk til að skoða Breiðholtið með jákvæðum
augum og festa það á mynd,“ segir Þráinn.
Allir geta tekið þátt í ljósmyndasamkeppninni,
hvar sem þeir búa og jafnt áhugaljósmyndarar og
atvinnumenn. Eina skilyrðið er að myndin sé tek-
in í Breiðholti.
„Keppnin hófst rétt áður en fegrunarátakið
hófst í Breiðholtinu 22. júlí og skilafrestur er 15.
ágúst. Fegrunarátakið gengur undir nafninu:
„Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík“ og svo er
í gangi hjá okkur átak sem kallast Betra Breiðholt
og undir það fellur allt sem við gerum til að auka
mannlíf í Breiðholtinu, meðal annars þessi ljós-
myndasamkeppni.
Ég veit ekki til að það hafi í annan tíma verið
haldin svona hverfisljósmyndasamkeppni. Við
rennum því dálítið blint í sjóinn hvað það varðar
og vitum í rauninni ekkert á hverju við eigum von.
Við höfum þegar fengið þó nokkuð af myndum og
eigum vonandi eftir að fá heilan helling í viðbót.
Ég vil leggja áherslu á að með þessari sam-
keppni viljum við leggja áherslu á það góða og
flotta í Breiðholtinu. Það koma oft neikvæðar
fréttir en við viljum draga fram það jákvæða sem
er auðvitað miklu meira en það sem neikvætt er,“
sagði Þráinn.
Ef menn senda myndirnar á rafrænu formi þá
er best að senda þær á betrabreidholt@reykja-
vik.is en ef menn vilja prenta myndirnar út og
senda okkur þær á pappír þá er það: Þjónustu-
miðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, 109 Reykjavík.
Okkur finnst svo rosalega margt flott hér í
hverfinu og langar að draga það fram með já-
kvæðum hætti í svona samkeppni. Síðan verður
haldin sýning á myndunum í göngugötunni í
Mjódd og verðlaunamyndirnar verða birtar í
Breiðholtsblaðinu,“ segir Þráinn, en vildi ekki
gefa upp hverjir væru í dómnefndinni þannig að
menn reyndu ekki að hafa áhrif á þá.
Vegleg verðlaun verða veitt þeim sem taka
fimm bestu myndirnar að mati dómnefndarinnar.
„Það eru vinningar frá Myndvali í Mjódd, mynda-
vélar og ljósmyndavörur, í mismiklum mæli eftir
því í hvaða sætum menn eru,“ segir Þráinn.
Tómstundir | Allir geta verið með í ljósmyndasamkeppni um bestu myndina úr Breiðholtinu
Skoða hverfið jákvæðum augum
Þráinn Hafsteinsson,
frístundaráðgjafi í
Breiðholtinu, er fæddur
og uppalinn á Selfossi
þar sem hann lagði
stund á íþróttir frá
unga aldri. Hann var af-
reksmaður í frjáls-
íþróttum og fór til Ala-
bama í Bandaríkjunum
sem keppnismaður til
að læra íþróttafræði,
var landsliðsþjálfari í frjálsum og hefur starf-
að sem frístundaráðgjafi í sex ár, síðasta árið í
Breiðholtinu. Kona hans er Þórdís Gísladóttir,
hástökkvari og íþróttafræðingur, og eiga þau
tvær dætur, Helgu 17 ára og Hönnu 8 ára.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Rbd7 8.
Df3 Dc7 9. g4 b5 10. Bxf6 Rxf6 11. g5
Rd7 12. O-O-O b4 13. Rd5 exd5 14.
exd5 Bb7 15. De4+ Be7 16. Rf5 Rc5
17. Rxg7+ Kf8 18. Dd4 Hg8 19. Rf5
b3 20. Bc4 bxc2 21. Hde1 He8 22.
He2 Bc8 23. Rh6 Db6 24. Dc3 Ra4
25. Dxc2 Hxg5 26. fxg5 Bxg5+ 27.
Kb1 Hxe2 28. Bxe2 Bd7 29. Bg4 Bb5
30. b3 Bxh6 31. Bf5 Bg7 32. Dc8+
Ke7 33. Hc1 Rc5 34. Dg8 Be5 35.
Bxh7 Da5 36. Dg5+ Kf8
Staðan kom upp á ofurskákmóti
sem fram fer þessa dagana í Biel í
Sviss. Azerski stórmeistarinn Teimo-
ur Radjabov (2.728) hafði hvítt gegn
kollega sínum frá Úkraínu, Andrei
Volokitin (2.662). 37. Hxc5! dxc5 38.
Dxe5 Dd2 39. Bc2 Bd3 og svartur
gafst upp um leið þar sem hvítur
vinnur biskupinn eftir 40. Dh8+ Ke7
41. d6+!.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Norður
♠854
♥ÁK9862 N/NS
♦G
♣KD5
Vestur Austur
♠KG3 ♠ÁD2
♥G75 ♥D1043
♦1062 ♦K87
♣G832 ♣1087
Suður
♠10976
♥
♦ÁD9543
♣Á94
Þegar gera á betur en vel, fer oft
verr en illa, segir máltækið.
Spilið að ofan kom upp í sveita-
keppni á Sumarleikunum í Chicago
og þar gerðust þau undur og stór-
merki að vel skólaðir spilarar end-
uðu í sex spöðum á báðum borðum!
Eins og sést, eiga NS heima í bút í
hjarta eða tígli, en viðleitni suðurs
til að gera betur en vel, leiddi til
sagnfarsa, sem endaði í spaðas-
lemmu:
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 2 hjörtu Pass 3 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4 spað-
ar
Pass 5 lauf Pass 5 tíglar
Pass 6 spaðar Allir
pass !
Þetta er eins og besti leikhúsfarsi,
misskilingur á misskilning ofan, og
öll viðleitni til að laga það sem af-
laga fer gerir aðeins illt verra.
Kerfið er eðlilegt, en svar á nýjum
lit á öðru þrepi krafa í geim. Suður
vildi því ekki segja tvo tígla við
hjartaopnun makkers og valdi að
melda spaðann á tíuna fjórðu. Látum
það vera, en þriggja tígla sögnin er
öllu vafasamari, enda er sú sögn
geimkrafa og sýnir lengri spaða.
Suður fékk þó annað tækifæri til að
bjarga málunum með því að passa
þrjá spaða, en hélt björgunartilraun-
um áfram með fjórum tíglum.
Norður leit réttilega svo á að
makker væri að reyna við spaðas-
lemmu og tók þátt í leiknum af fullri
einurð. Bæði austur og vestur voru
vissulega vongóðir um að slemman
færi niður, en hvorugur sá þó
ástæðu til að auglýsa spaðastyrkinn
með dobli.
Ótrúlegt en satt, en sömu sagnir á
báðum borðum og niðurstaðan 300 í
AV. Engin sveifa.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Höfuðborg – betri borg
HVERNIG á Reykjavíkurborg að
líta út í framtíðinni? Nokkrum mönn-
um liggur hátt rómur um það; svo
sem flugvöllinn burt, varðskipin eitt-
hvað annað, slippinn, Faxamjöl, alla
olíutanka úr Örfirisey, Faxamarkað,
hvalbátana, Grandafrystihúsið, salt-
fiskverkun Jóns Ásbjörnssonar burt
og helst nota gömlu Reykjavíkurhöfn
í eitthvað annað en báta og skipaað-
stöðu. Byggja svo inni við Sund og
alla skipaafgreiðslu upp á Grund-
artanga.
Hvers vegna varð Reykjavík höf-
uðborg? Hvers vegna er Reykjavík-
urflugvöllur hér? Það vita margir
betur en ég, en ekki allir. Hvers
vegna þetta er svona í dag? Í svokall-
aðri síðari heimsstyrjöld skapaðist
þörf fyrir bækistöðvar á Íslandi til
þess að tryggja okkur og okkar sam-
starfsþjóðum yfirráð hér í þessum
heimshluta + frið sem hefur haldið
síðan. Það þurfti að stunda eftirlits-
flug héðan frá Íslandi til að reyna að
tryggja siglingar á Norður-
Atlantshafi með birgðir. Ekki var far-
þegaflug komið, farþegaflutningar
milli landa voru þá með skipum. Bret-
ar komu hingað fyrst með herlið og
vegna yfirburða veðurskilyrða varð
Reykjavík fyrir valinu um flug-
bækistöð. Fyrst með sjóflugvélar
bæði í Skerjafirði og við sundin blá.
Síðan þróaðist þetta og aðstaðan
batnaði með tilkomu vallarins í
Vatnsmýrinni, ekki urðu teljandi
skaðar á flugvélum eftir að starfsem-
in komst á þurrt.
Allar framkvæmdir hafa ein-
hverjar fórnir í för með sér, en
gleymum ekki kostunum sem vega
þyngra. Hér á landi var atvinnuleysi,
en allt í einu var atvinnu að fá hjá
hernum.
Fólk flutti til Reykjavíkur, ski-
paumferð fór vaxandi inn- og útflutn-
ingur dafnaði, hér varð til drifkraftur.
Nú er komið þreytuhljóð í þessa
borgarþjóð, og aðrir staðir á landinu
geta tekið við þessu hlutverki. Er þá
ekki lausnin að þetta fari annað svo
sem hátæknisjúkrahús. Væri ekki
hægt að nýta fleiri hafnir en Reykja-
víkurhöfn til inn- og útflutnings. Er
þetta að verða eins konar Rómaborg?
Er Vatnsmýrin ef til vill fyrir postu-
línspáfa?
Hver vill verða arkitekt að þessu
nýja og handstýrða skipulagi, eftir
sjálfbæra þróun.
Rausari.
Myndavél í óskilum
NÝ Samsung Slim Wave-myndavél
tapaðist föstudaginn 28. júlí. Mynda-
vélin var með SD minniskorti, 512 mb
sem inniheldur myndir með mikið til-
finningalegt gildi fyrir eiganda. Ef
einhver kannast við ferðir myndavél-
arinnar og /eða minniskortsins er sá
hinn sami vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 692 2383. Fund-
arlaunum er heitið.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
50-70%
afsláttur
af öllum fatnaði
Laugavegi 56 – sími 551 7600
Útsölulok
Afmælisþakkir
Birgir Gunnlaugsson 50 ára
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
glöddu okkur í tilefni 50 ára afmælisins 28. júlí
sl. Sérstakar þakkir fá Snorri Hjaltason, stjórn
UMFÍ, Baldur, Gunnar og Finnbogi, fyrir
þeirra ómetanlega innlegg.
Lifið heil,
Birgir og Signý.
KRISTILEGT fjölskyldumót verð-
ur á Hlíðardalsskóla um versl-
unarmannahelgina. Þar verða góðir
fyrirlestrar, kvöldvökur, varðeldur
og fleira.
Gestur mótsins verður Miroslav
M. Kis. Sérsvið hans er kristileg sið-
fræði. Efnið sem hann fjallar um
nefnist „Áform Guðs fyrir þig“. Sér-
stök barnadagskrá verður fyrir
börnin. Ræðumaðurinn mun sér-
staklega reyna að höfða til unglinga
en einnig verður sérstök dagskrá
fyrir þá. Allir eru velkomnir.
Frekari upplýsingar og skráning
á skrifstofu aðventista, sími 588 7800
eða með tölvupósti : sda@adventist-
ar.is
Kristilegt fjölskyldu-
mót í Hlíðardalsskóla
Morgunblaðið/Jim Smart