Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 253. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is FRIÐSÆLD SVEITAR ÓBILANDI ÁHUGI Á ÍSLENSKUM HESTUM DRÓ KÖTU Í HJALTADALINN >> DAGLEGT LÍF HVALREKI STÓR LIST- VIÐBURÐUR Á FERÐ DANSLIST BAUSCH >> 17 Fagleg og lögleg þjónusta í boði Löggild menntun snyrtifræðinga tryggir þér fagmennsku í snyrtingu og förðun og rétta og örugga húð- meðferð. Þú finnur snyrti- fræðinga í Félagi íslenskra snyrtifræðinga um land allt. Sjá nánar á Meistarinn.is. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir í gær að Írak og leiðtogar landsins stæðu nú á „krossgötum“. Líkur væru á að átökin í landinu þróuðust út í borgarastyrjöld yrði ekki gripið til aðgerða til að stemma stigu við mannskæðum árásum vígamanna. „Ef sundrung og ofbeldisaðgerðir verða áfram í sama farinu mikið lengur er fyrir hendi grafalvarleg hætta á að íraska ríkið falli saman, hugsanlega í miðju borgarastríði.“ Því taldi Annan mikilvægt að grípa til aðgerða í Bagdad og á alþjóða- vettvangi til að „færa Írak aftur frá brúninni“ og þannig stuðla að því að stöðugum árásum á óbreytta borg- ara og hermenn linni. Annan lét þessi orð falla á fundi með Jalal Talabani, forseta Íraks, og Condoleezzu Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í höfuðstöðv- um SÞ. Aðalumræðuefni fundarins var ástandið í landinu og sagði Ann- an „átakanlegt“ að „daglegt líf Íraka skyldi stjórnast af stöðugri hættu á ofbeldisaðgerðum trúarhópa“. Óöldin í Írak hélt áfram í gær þeg- ar að minnsta kosti 62 féllu í árásum. Annan hvetur til aðgerða Segir Írak á barmi borgarastyrjaldar vegna tíðra árása Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is LÝÐURINN kastaði grjóti að lögreglunni og stal af henni kylfum og beitti þeim gegn lög- reglumönnun- um. Það er allt vitlaust hérna. Líklega er ástandið að ná hámarki núna því lýðurinn er að komast inn í sjónvarpshúsið og ganga milli bols og höfuðs á lögreglunni eða leggja undir sig bygginguna,“ sagði Einar Gunnlaugsson námsmaður í Búda- pest sem varð vitni að uppþotunum í Búdapest í gær. Ástandið var að verða mjög alvarlegt um miðnætti að íslenskum tíma en Einar var kominn heim til sín þá og lenti ekki í hættu við sjónvarpshúsið. Kaus hann að koma sér heim þegar 200 manna lögreglulið var ofurliði bor- ið af æstu fólki í þúsundatali. Lög- reglumenn flúðu þá inn í sjón- varpshúsið og vörðust þar af veikum mætti en virtust vera að tapa víginu undir miðnætti þegar múgnum var að takast að brjótast inn og kveikja í húsinu. „Fólkið var búið að kveikja í bíl- um og mótmælti ríkisstjórninni harðlega. Lögreglan reyndi að komast þarna að en var yfirbuguð og er nú lokuð inni í sjónvarpshús- inu. Ég forðaði mér í burtu þegar ég áttaði mig á því hve brjálað ástandið var orðið.“ Einar býr í um 15 km fjarlægð frá vettvangi og er óhultur. „En það er allt kolvitlaust þarna niðri í bæ. Það var farið með eina tíu á spítala, bæði lögreglumenn og borgara. Ég sá þegar komið var með vatnsbíl til að nota gegn mannfjöldanum en lýðurinn yfir- bugaði ökumanninn samstundis.“ Hundruð lögreglu- manna borin ofurliði Íslenskur nemi varð vitni að ósigri lögreglu í Búdapest fyrir æstum múgi Einar Gunnlaugsson Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is UNGVERSKA lögreglan beitti í gærkvöldi táragasi er hún reyndi að hafa hemil á æstum múgi mörg hundr- uð manna sem brutust inn í höfuðstöðvar ríkissjón- varpsins í miðborg Búdapest. Mótmælendur eru æfir í garð Ferenc Gyurcsanys forsætisráðherra eftir að hann staðfesti að hafa sagt ósatt um stöðu efnahags- mála í aðdraganda þingkosninganna í apríl, í því skyni að hafa sigur á andstæðingum sínum. Þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt hafði mót- mælendum tekist að komast inn í byggingu sjónvarps- ins. Var ætlun þeirra sú að komast inn í upptökusal sjónvarpsins til að koma skilaboðum sínum á framfæri við þjóðina. Að sögn heimildarmanna AP-fréttastof- unnar slösuðust að minnsta kosti tíu manns í átökum við lögreglu. Stjórnarandstaðan hefur einnig brugðist ókvæða við játningu Gyurcsany, sem var að finna á hljóðupptöku af ræðu hans sem spiluð hefur verið í fjölmiðlum, og krafist þess að hann láti af embætti. Stjórnin mun halda neyðarfund í dag en hún hefur lýst yfir eindregnum stuðningi við leiðtoga sinn. Í ræðunni lagði forsætisráðherrann áherslu á nauð- syn þess að efnahagsumbótum yrði komið á í Ung- verjalandi. „Valkostir okkar eru ekki margir. Þeir eru ekki fyrir hendi vegna þess að við klúðruðum þessu. Og þetta var ekki smávægilegt klúður.“ | 14 AP Andstæðingar stjórnarinnar gerðu áhlaup á höfuðstöðvar ungverska ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Krefjast afsagnar Gyurcsanys Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Róm. AFP. | Að minnsta kosti tveir létu lífið þegar fjögurra hæða íbúðarhús í Mílanó- borg á Ítalíu varð fyrir miklum skemmdum í sprengingu í gær. Ekki liggur fyrir hversu margir slösuðust en fullyrt hefur verið að á sjötta tug manna hafi slasast í sprenging- unni sem talið er að rekja megi til gasleka. Að auki er vitað um að minnsta kosti tvo sem er saknað eftir sprenginguna. Hinir látnu voru ítalskur karl á sextugs- aldri sem bjó í húsinu og ungur Albani sem átti leið hjá þegar sprengingin varð. Meðal þeirra sem er saknað er sjö ára gamall drengur, en faðir hans rak kaffihús á jarðhæð hússins sem gjöreyðilagðist í gær. AP Björgunarmenn virða fyrir sér aðstæður á slysstað í Mílanó í gærkvöldi. Harmleik- ur í Mílanó Róm. AFP, AP. | Vatíkanið hélt í gær áfram tilraunum til að lægja öldurnar eftir afar umdeila ræðu Benedikts XVI páfa í síðustu viku, þar sem hann tengdi saman íslam og ofbeldi. Alls er þó óvíst hvort afsökunar- beiðni páfa og aðgerðir Vatíkansins muni slá á reiðina í mörgum múslímaríkjum. Flest bendir til, að ræða hans hafi orðið vatn á myllu öfgasamtaka, þ.á m. al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna í Írak, sem í gær gáfu út sameiginlega yfirlýsingu með víga- mönnum. Þar er páfinn, sem nefndur er „til- biðjandi krossins“, varaður við að hann og „Vesturlönd séu dauðadæmd“, líkt og sjá megi í „ósigrunum í Írak“ og víðar. | 14 Vatíkanið leitar sátta Öfgasamtök hvetja til árása gegn Vesturlöndum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.