Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning GAMANMYNDIN Nacho Libre var frumsýnd í íslenskum kvikmynda- húsum um helgina og skaust beint í efsta sæti. Spéfuglinn Jack Black fer með aðalhlutverkið í myndinni, en hann leikur misvitran klausturkokk sem afræður að taka, á laun, þátt í keppni í mexíkóskri fjölbragðaglímu til að hafa efni á betri mat fyrir skjólstæðinga sína. Þegar ný nunna gengur til liðs við klaustrið flækjast málin enn frekar, enda vill kokkurinn kappsami ganga í augun á henni, en þarf um leið að sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að fjölbragðaglíma samræmist kristi- legum gildum. Dansmyndin Step Up færist niður um eitt sæti, og sömu sögu má segja um heimildarmyndina um Jón Pál og gamanmyndina um Gretti. Í fimmta sæti, ný á lista, er grín- myndin Clerks II í leikstjórn Kevins Smith, sjálfstætt framhald kvik- myndarinnar Clerks sem kom út ár- ið 1994 og skipað hefur sér sér- stakan sess í kvikmyndasögunni. Fyrri Clerks-myndin var sú fyrsta sem Smith lét frá sér en sló í gegn á Sundance-kvikmyndahátíðinni og markaði upphafið að glæstum leik- stjóraferli en Smith á stóran söfnuð aðdáenda sem hafa unun af oft á tíð- um „nördalegum“ efnistökum hans. Einnig ný á lista er íslenska kvik- myndin Börn, mynd Vesturports í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Myndin er sú fyrri af tveimur sem Ragnar mun gera í samstarfi við Vesturport, en gagnrýnandi Morg- unblaðsins gaf myndinni mjög góða umsögn og fjórar stjörnur. Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar á Íslandi Jack Black grínast og glímir niður samkeppnina                    ! "# $ "%  &$ # '(     )* +#,& -# ./ / */ 0/ 1/ 2/ 3/ 4/ )/ .5/  #?' !             Reuters Reffilegur Nacho Libre segir af kappsömum kokki sem gerist glímukappi. AÐSÓKN í kvikmyndahús í Banda- ríkjunum og Kanada var með minnsta móti nýliðna helgi. Þrátt fyrir það voru fjórar af fimm mest sóttu myndunum nýjar í kvik- myndahúsum. Vinsælasta myndin þessa helgina var Gridiron Gang, sannsöguleg mynd um vandræðaunglinga sem rata smám saman inn á beinu brautina með því að keppa í ruðn- ingi. Það er kraftaköggullinn Dwayne „The Rock“ Johnson sem fer með aðalhlutverk myndarinnar. Í öðru sæti var myndin The Black Dahlia sem jafnframt byggist á sönnum atburðum. Þar er rakið hið enn óleysta mál þegar ung kona, Elizabeth Short, fannst myrt á hrottalegan hátt í Hollywood. Short hafði verið að reyna að koma sér áfram sem leikkona en náði ekki að öðlast frægð fyrr en hún var myrt árið 1947. Með aðalhlutverk fara þau Josh Hartnett, Scarlett Johans- son, Aaron Eckhart og Hilary Swank. Myndin Everyone’s Hero var svo í þriðja sæti listans. Þar er á ferð- inni teiknimynd sem Christopher heitinn Reeve leikstýrði. Sagan segir af ungum dreng sem ferðast þvert yfir Bandaríkin til að skila hafnaboltahetjunni Babe Ruth der- húfunni sinni. Síðasti kossinn (The Last Kiss) hafnaði svo í fjórða sæti aðsóknar- listans, en þar segir af hópi ungra manna á þrítugsaldri sem allir eiga það sameiginlegt að forðast skuld- bindingu við hitt kynið eftir fremsta megni. Heldur dræm aðsókn um helgina Vinsælustu kvikmyndirnar 1. Gridiron Gang 2. The Black Dahlia 3. Everyone’s Hero 4. The Last Kiss 5. The Covenant 6. Invincible 7. The Illusionist 8. Little Miss Sunshine 9. Hollywoodland 10. Crank Sakamál Josh Hartnett í hlutverki sínu sem rannsóknarlögreglumað- ur í The Black Dahlia sem fjallar um morðið á Elizabeth Short. Kvikmyndir | Vinsælastar vestanhafs Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20 2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20 5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 15. okt. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15 Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 Sun 8/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Sun 24/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20 FOOTLOOSE Fös 22/9 kl. 20 Lau 23/9 kl. 20 Fim 28/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 HVÍT KANÍNA Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt verk eftir hópinn. Fös 22/9 kl. 20 frumsýning UPPS. Lau 23/9 kl. 20 hátíðarsýning UPPS. Sun 24/9 kl. 20 Mið 27/9 kl. 20 BANNAÐ INNAN 16 ÁRA. Engum hleypt inn án skilríkja. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI Áskriftarkort á 5 sýningar á 9.900. Þeir sem gerast áskrifendur fyrir 20.sept. fá gjafakort í Borgarleikhúsið í kaupbæti. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is PINA BAUSCH LOKSINS Á ÍSLANDI! Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn Pinu Bausch verður með 4 sýningar á verkinu Água í Borgarleikhúsinu. Í kvöld kl. 20 UPPS. Mið 20/9 kl. 20 Aðeins þessar sýningar Miðaverð 4.900. MEIN KAMPF Lau 23/9 frumsýning UPPS. Mið 27/9 kl. 20 UPPS. Fös 29/9 kl. 20 Lau 7/10 kl. 20 ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir! Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar- son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson. Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney. Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. www.leikfelag.is 4 600 200 Kortasala í fullum gangi! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Leikhúsferð með LA til London - UPPSELT Karíus og Baktus Lau 23. sept kl. 14 UPPSELT, Frumsýning Lau 23. sept kl. 15 UPPSELT Sun 24. sept kl. 14 UPPSELT, 2. kortasýn Sun 24. sept kl. 15 Aukasýning Lau 30. sept kl. 14 3. kortasýn, örfá sæti laus Sun 1. okt kl. 14 UPPSELT, 4. kortasýn Sun 1. okt kl. 15 UPPSELT Sun 1. okt kl. 16 Aukasýning Næstu sýn 8/10, 15/10, 22/10 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 „EINS GOTT AÐ ÞETTA SÉ EKKI LYGASAGA.“ Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is LÍK Í ÓSKILUM EFTIR ANTHONY NEILSON Bandaríska sjónvarpsdrottninginOprah Winfrey hefur hafið lög- sókn á hendur manni sem leitar nú allra leiða til að fá hana til að gefa kost á sér í embætti forseta Banda- ríkjanna. Lögfræðingar Winfrey hafa farið fram á að lögbann verði sett á sölu bókarinnar Oprah for President: Run Oprah Run eftir Patrick Crowe. Þá hafa þeir farið fram á að honum verði meinað að halda úti vefsíðu með nafni hennar og nota gjaldfrjálst símanúmer sem endar á „Oprah“. Í kröfu þeirra segir að aðfarir hans særi Winfrey og skaði hana og fram- leiðslufyrirtæki hennar Harpo. „Þetta kemur mér algerlega á óvart. Ef Oprah bæði þig um að bjóða þig fram til forseta myndirðu þá líta á það sem hrós eða hóta henni lögsókn,“ segir Crowe í viðtali við tímaritið New York Post. „Hvernig getur það að biðja hana um að bjóða sig fram skaðað hana og sært?“ Fólk folk@mbl.is Leikkonan ScarlettJohansson gagn- rýnir Hollywood fyrir að þvinga leikkonur til þess að grenna sig. Johansson segir kvik- mynda- og tískuheim- inn ýta undir átröskun hjá konum og slíkt sé ekki aðeins hættulegt heldur einnig laust við kynþokka. Kynþokk- inn felist ekki í því að vera grindhoraður. Johansson hefur ekki látið undan slíkum þrýstingi og leyft sínum línum að haldast sveigð- um og kvenlegum. „Ég reyni að halda mér í formi og borða hollan mat, ég er ekki spennt fyrir því að svelta mig til að verða óeðlilega mjó,“ segir Johansson. „Mér finnst það ekki fara konum vel og ég vil ekki tilheyra þeirri tísku. Það er heilsu- spillandi og þrýstir of mikið á konur almennt. Þær eru fengnar til að trúa því að þetta sé eftirsóknarvert útlit, en það er það ekki.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.