Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 20
menntun |þriðjudagur|19. 9. 2006| mbl.is daglegtlíf Blóðbergsblandan er góð við kvefi og flensu segir Hólmfríður Bjartmarsdóttir sem selur te úr íslenskum jurtum. » 25 heilsa Matthías Pétursson var í skák- sveit Laugalækjarskóla sem sigraði á Norðurlandamóti grunnskólanema. » 23 skák Hestaunnandinn Kata á Kálfs- stöðum kom alla leið frá Alaska til að gerast vinnukona í ís- lenskri sveit. » 22 daglegt Paradísarheimt er sennilega eftirlætisLaxnesskáldsaga Ragnars HelgaÓlafssonar grafísks hönnuðar semá heiðurinn af nýju kápuútliti verka nóbelsskáldsins sem Edda útgáfa gefur út. Sjálfur ólst Ragnar upp við að verk Halldórs Laxness væru rædd við matarborðið líkt og nýjustu fréttirnar úr dagblöðunum. Ragnar hefur hannað nýtt útlit á átta bækur Laxness og á von á því að þeim fari fjölgandi eftir því sem eldri upplög verða uppseld og þörf verður á endurútgáfu þeirra. „Það var svolítið snúið að gera svip á verk sem allir eiga eitthvað í því þessar bækur eru ákveðin stofnun fyrir þjóðinni,“ segir hann inntur eftir því hvernig hann nálgaðist verkefnið. „Laxnessbækurnar með sínu bandi og sinni gyllingu eiga einfaldlega að samsama sjálfum sér og því fór ég þá leið að vinna upp úr því fallega skrauti sem er á bandinu.“ Á viðkvæmum unglingsárum Ekki verður hjá því komist að spyrja Ragnar hvort hann hafi sjálfur lesið mörg verka Laxness. „Yrði maður ekki sviptur ríkisborgararétti og passport ef maður gerði það ekki í þessu landi?“ spyr hann hlæjandi á móti en bætir svo við. „Að sjálf- sögðu hef ég lesið Laxness, meira og minna allan mér til mikillar ánægju.“ Hann hikar þegar hann er rukkaður um hver sé uppá- haldsbók hans úr smiðju Kiljans. „Það fer eiginlega bara eftir því hvernig veðrið er. Mér finnst alltaf gaman að lesa greinasöfnin og minningarbækurnar en af skáldsögunum held ég að ég verði að segja Paradísar- heimt.“ Nóbelsskáldið og verk hans voru á vissan hátt samofin æsku Ragnars. „Ég var alinn upp á heimili þar sem þessar bækur voru ræddar fram og til baka eins og fréttir í dagblöðunum. Sjálfur byrjaði ég á því að lesa Barn náttúrunnar einhvern tímann snemma á viðkvæmum unglingsárum sem var ákaflega passandi. Svo las ég bækurnar óskipulega eftir það.“ Ragnar hitti Laxness í nokkur skipti þegar hann var barn enda er hann sonur Ólafs Ragnarssonar bókaútgef- anda sem m.a. ritstýrði útgáfum bóka Hall- dórs og ritaði bækur um æviferil og verk skáldsins. „Hann kom nokkrum sinnum heim og ég fór líklega oftar en einu sinni með pabba í heimsókn til þeirra hjóna á Gljúfra- steini.“ Hann gerir þó lítið úr því að hann hafi meiri tengsl við bækur Kiljans en gengur og gerist. „Þar sem verk Halldórs Laxness eru annars vegar finnst manni eins og allir Ís- lendingar eigi við þær sitt sérstaka sam- band.“ Morgunblaðið/Kristinn Hönnuður „Sjálfur byrjaði ég á því að lesa Barn náttúrunnar einhvern tímann snemma á viðkvæmum unglingsárum sem var ákaflega passandi,“ segir Ragnar Helgi. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Veðrið ræður hvaða Laxness er í uppáhaldi MIKIL hreyfing, leikur við ólíkar kringumstæður og alhliða líkamsbeiting frá fæðingu til þriggja ára aldurs veldur því að börn verða öruggari, fé- lagslyndari og færari líkamlega. Þetta er grund- vallaratriði í nýrri norskri kennslubók sem ætluð er leikskólakennurum. Sagt er frá bókinni á norska vefritinu for- skning.no og segjast höfundar hennar, Karin Kippe við Háskólann í Norður-Þrændalögum og Anne Berg við Minningarháskóla Maud drottningar, von- ast til að bókin eigi eftir að stuðla að meiri hreyfi- gleði, virkni og hreyfiþjálfun inni á leikskólunum. „Smábörn eru ákaflega líkamleg í öllu sem þau gera og hafa litla getu til óhlutbundinnar hugs- unar,“ segir Kippe. „Þau upplifa veröldina í gegn um líkamann með hreyfingu og í leik. Þegar börn hreyfa sig við mismunandi kringumstæður þróa þau bæði tilfinningu fyrir sjálfum sér, rannsókn- arþörf, hreyfigetu og hæfileika til að einbeita sér.“ Rannsóknir sýna að líkamleg geta og hreyfifærni er mikilvæg svo að barnið hljóti samþykki jafningja sinna. Upplifa nýja hluti Börn sem ráða vel við líkama sinn öðlast því bæði félagslega stöðu og sjálfstraust sem aftur hvetur þau til að hreyfa sig meira. „Einmitt þess vegna er mikilvægt að leyfa ungum börnum að prófa mis- munandi aðstæður og upplifa nýja hluti,“ heldur Kippe áfram. „Auðvitað er einfaldara og stundum reyndar nauðsynlegt að setja þau í vagna og ung- barnastóla en þannig eru þau snuðuð um mik- ilvæga þjálfun og upplifun.“ Bókin heitir á frummálinu Småbarnas kropps- lige verden og í henni er að finna ráð um ákveðnar æfingar sem stuðla að hreyfiþroska sem og leið- beiningar um hvernig best er að hanna leik- skólarými þannig að þau hvetji börnin til hreyf- ingar. Gott fyrir ung börn að vera á iði Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gleði Hreyfing á fyrstu æviárunum hefur áhrif á sjálfsmynd, rannsóknarþörf, hreyfifærni og getu til einbeitingar. börn Einar Georg Einarsson sendir tvær nýortar stökur að gamni sínu, aðra um að sumarið sé á förum: Haustið dregur reyfin rauð ratar veg um landið hið veiklulega vindagnauð virðist tregablandið. Einar Georg bætir við um rokk- ara: Flest verður landans fremd að gagni fáir eftir leikaða Hetjan okkar heitir Magni hann er nú að meikaða. Eysteinn Pétursson sendir vísu um Árna Johnsen: Sálin Árna er heið og há, hún er í líki svana. En ekki minna þurfti en þrjá að þrífa og ræsta hana. Enginn vísnaþáttur stendur undir nafni án þess þar birtist reglulega vísur eftir Andrés H. Valberg, sem átti alltaf síðasta orðið á fundum Ið- unnar. Andrés orti hringhendu á Hallormsstað fyrir Sigurð Blöndal: Hér er yndi að hitta frið hlusta á lindarboða klífa tind og klettarið kynjamyndir skoða. VÍSNAHORN Af rokkara pebl@mbl.is Krakkar hafa mikinn áhuga á söng ef marka má aðsókn í í Kórskóla Langholtskirkju. » 24 börn Fullorðnir verða að hlusta á börnin. » 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.