Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Elsku Sigurjón, þú fórst frá okkur allt of skjótt, þú varst nýbúinn að eignast tíunda barna- barnið, litlu stelpuna mína, hún var aðeins 11 daga þegar þú fóst til himna, mér fannst sem himininn hryndi yfir okkur. Þvílíkur missir að hafa þig ekki hér hjá okkur. Orðatiltækið „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ hefur sko sannarlega staðið fyrir sínu. Ég er miður mín af söknuði og mig langar bara að þú vitir að ég hefði aldrei getað óskað mér betri og hjálpsamari tengdapabba en þig, elsku Sigurjón. Stundir sem við áttum saman munu lifa í minningu minni og ég á eftir að sakna þín sárt. Þú varst einstaklega hjálpsamur og góður við alla sem þú þekktir og vildir öllum svo vel. Megi guð og allir hans englar taka þig í faðm sér, því halda mega þeir fast í gullmola eins og þig. Minning þín lifir. Lína Björk. Elsku besti afi, það er erfitt að kveðja svona yndislegan mann eins og þig. Betri afa var ekki hægt að hugsa sér. Allt gekk út á afa, enda kalla ég alla jeppa afajeppa. Nú er enginn afi til að fara með Viktor í afajeppa og gefa ópal eins og þú varst vanur að gera. Það er stutt síðan ég fékk að koma til ykkar í heimsókn og þar lékum við okkur saman bakvið hús. Þú sagðir mér sögur og söngst fyrir mig er ég var í heimsókn hjá ykkur. Þessi lög og sögur mun mamma sjá til að við munum. Þú varst alltaf fyrstur að hringja ef við bræðurnir vorum veik- ir heima og athuga hvernig við hefð- um það. Sigurjón G. Þorkelsson ✝ Sigurjón G. Þor-kelsson fæddist í Reykjavík 15. sept- ember 1946. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 5. sept- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Háteigskirkju 18. september. Nú er enginn afi sem hringir til að kæta okkur. Þú varst svo stolt- ur af honum nafna þínum Daníel Sigþóri en þú varst vanur að kalla hann Sigþór eða nafna. Þú sást ávallt fyrir því að ég fékk líka mína at- hygli. Mamma og pabbi munu sjá til þess að minning þín lifi í okk- ar lífi. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Við biðjum fyrir þér og biðjum Guð að leiða þig í ljósið og varðveita þig. Þínir afastrákar, Viktor Örn og Daníel Sigþór. Elsku yndislegi afi. Við trúum því ekki enn að þú sért farinn frá okkur. Þú varst besti afi í heimi, svo góður og skemmtilegur. Þú varst alltaf í leik við okkur. Oft fórstu á fjórar fæt- ur á bak við sófa og komst svo gelt- andi á móti okkur, það var sko gam- an. Þú varst svo mikil barnagæla og við kepptumst við að fá að sitja hjá þér og hlusta á sögurnar þínar frá því þegar þú varst lítill, þær voru svo spennandi. Svo var beðið í röðum eft- ir að fá að standa á löppunum á þér og þú labbaðir með okkur þannig og söngst. Þér fannst alltaf gaman þeg- ar við komum í heimsókn og alltaf komstu til okkar þegar við vorum las- in og gafst okkur ópal. Ég (Marey) fékk að vinna alla laugardaga í sjoppunni þinni að af- greiða bland í poka og hjálpa þér með ýmislegt og alltaf tókstu mig með þér heim og vildir að ég gisti hjá ykkur ömmu. Við áttum yndislega tíma saman og þegar ég (Írena) fékk heilahrist- ing komstu og sóttir mig og mömmu og keyrðir okkur á spítalann og varst hjá okkur alla dagana á spítalanum og líka þegar ég (Erik) þurfti að fara á barnaspítalann, þá varstu þar öllum stundum og vaktir yfir mér. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Elsku afi, við áttum okkar yndis- legustu stundir uppi í sumarbústaðn- um þínum, þú leyfðir okkur að stýra bílnum eins og þú leyfðir mömmu þegar hún var lítil. Við erum rík af góðum minningum um þig. Elsku afi, þín verður sárt saknað. Þín barnabörn, Marey Þóra, Írena Líf, Erik Fannar. Það er með miklum söknuði sem ég kveð minn kæra bróður í dag. Við bræðurnir ólumst upp í Holtunum og síðar í Hlíðunum. Sigurjón fór snemma að vinna fyr- ir sér og starfaði hann aðallega við verslunarstörf. Sautján ára gamall keypti hann fyrsta bílinn sinn og var það rauð VW bjalla. Mánuði seinna hafði hann tekið bílinn svo vel í gegn að enginn trúði að þar væri sami bíll á ferð. Hann hafði bætt krómi á hann, massað lakkið upp, sett ný teppi, stytti og krómaði gírstöngina og felldi inn auka mæla og setti lítil ljós í gangbretti og meðfram gólfinu í bílnum sem gaf daufa birtu. Þetta hafði ekki sést áður í VW bjöllu. Þarna kom strax í ljós hversu lag- hentur og útsjónarsamur Sigurjón var. Næstu árin var það mikið áhuga- mál hjá honum að gera upp bíla og urðu þeir allir glæsilega útlítandi. Í kring um 1970 var miðbærinn troðinn af bílum sem óku rúntinn og lögðu á Hallærisplaninu og öðrum plönum þar í kring. Eina helgina sást til gamals Trabants en þeir bílar þóttu ekki alveg þeir flottustu þá. Í bílnum voru tvær stúlkur og setti Sigurjón sig í samband við þær. Helgina á eftir var önnur þeirra kom- in á rúntinn með Sigurjóni og var það hún Þóra Björg sem síðar varð eig- inkona hans. Ekki voru þau að tví- nóna við hlutina og keyptu þau fljót- lega íbúð í Skaftahlíðinni. Enn og aftur kom í ljós handlagni hans. Nán- ast öllu var breytt í íbúðinni og hún gerð sem ný. Þar bjuggu þau næstu árin og eignuðust þrjár dætur, þær Önnu Kristínu, Guðrúnu og Lindu. Þegar kom að því að stækka við sig húsnæði keyptu þau í nýjasta hverfi Reykjavíkur þá, Seljahverfi. Þar gerði hann íbúð upp og var það svo vel gert að fólk hélt að iðnaðarmenn hefðu verið þar á ferð. Þetta voru sannkölluð gleðiár. Sigurjón vann þá mikið enda fjölskyldan orðin stór. Ekkert stoppaði hann þó í að hugsa stórt og fram í tímann því þegar hann sá raðhús á þremur hæðum í bygg- ingu til sölu stökk hann til og festi kaup á því. Þetta þótti töluvert átak að ráðast í kaup á svo stórri eign þar sem lítið var um lánsfé á þessum ár- um. Þarna bjuggu þau næstu tuttugu árin og fæddust þeim einnig tveir synir, þeir Sigurjón Þorkell og Hilm- ar Þór. Þar sem hann hafði þá alltaf unnið við verslunarstörf langaði hann að breyta til. Hann innréttaði þá bíl- skúrinn og hóf þar framleiðslu á hrá- salati. Reksturinn gekk strax vel. Hann vann þá langan vinnudag því hann vann öll störf sem viðkomu rekstrinum, framleiddi, pakkaði og keyrði salatið út. Eins og gefur að skilja hafði Sig- urjón ekki mikinn tíma fyrir áhuga- mál. Þó gaf hann sér tíma til að byrja að stunda hestamennsku með föður okkar, en hann hafði verið með hesta í allmörg ár. Hann keypti sér allan útbúnað og held ég að hann hafi fundið sig vel í þessu sporti. Einnig hafði hann áhuga á að fara í veiðtúra á sumrin og fór þá gjarnan ásamt Sigurjóni syni sínum. Fyrir u.þ.b. fimm árum seldi Sig- urjón salatgerðina og ætlaði hann að fara að taka því rólega. En nokkrum vikum seinna hafði hann fundið nýtt verkefni, hálfklárað hús í Kópavogi og það ekki af minni gerðinni. Strax daginn eftir kaupsamning byrjaði hann að vinna í húsinu frá morgni til kvölds. Hvergi mátti vera minnsta skekkja í neinu og var hvert smáat- riði framkvæmt af mestu nákvæmni. Ári seinna fluttu þau inn í húsið, Sig- urjón, Þóra og Hilmar Þór. Eins og komið hefur fram eignuð- ust þau Sigurjón og Þóra fimm börn og eiga þau fjögur elstu samtals tíu börn þannig að barnahópurinn er orðinn stór. Sigurjón var gríðarlega kröfuharð- ur við sjálfan sig og tók sér nánast aldrei frí. Hann vildi gera sem mest og best fyrir fjölskylduna. Einnig er vert að nefna að hann var fyrsti mað- ur til að rétta hjálparhönd þeim sem þurftu á hjálp að halda. Aldraðri móður okkar reyndist hann ávallt vel. Talaði við hana í síma oft á dag, hitti hana reglulega og vildi allt fyrir hana gera. Nú þegar komið er að leiðarlokum þakka ég bróður mínum samfylgdina í gegn um árin, allar ráðleggingarnar og hjálpsemi. Alltaf rétti hann mér hjálparhönd ef ég þurfti á að halda. Nú veit ég að faðir okkar hefur tekið á móti Sigurjóni og hafa endurfund- irnir verið ánægjulegir og geta þeir tekið upp þráðinn við spjall um hesta og bíla. Kæri bróðir, þín verður sárt sakn- að. En ég veit, að við hittumst aftur að lokum. Guð blessi þig. Móður, eiginkonu og öllum börn- unum votta ég mína dýpstu samúð. Þinn bróðir, Hilmar Þorkelsson. Það hvílir mikil sorg hjá Böggu systur og fjölskyldu hennar. Eigin- maður hennar, faðir og afi lagðist á koddann, þreyttur eftir amstur dags- ins og kvaddi í svefni. Ljúfara and- láts er kannski ekki hægt að óska sér, en þetta var ekki tímabært. Það átti eftir að njóta alls þess sem búið var að strita fyrir, fjölskyldulífsins, sem Siggi mágur var svo ríkur af. Hann átti glæsilegan fimm barna hóp, tengdabörn og barnabörn, sem öll sakna og syrgja. Bagga systir kom heim með Sigga á tímum Glaumbæjar. Hann átti líka þennan fallega stífbónaða Volvo og dreif Böggu í bílprófið stuttu seinna. Eftir það gerðist allt svo hratt, settir upp hringar, barn á leiðinni, brúð- kaup og keypt húsnæði í Skaftahlíð- inni. Síðan kom hver prinsessan á fætur annarri. Siggi var mikill pabbi og vaktaði barnahópinn sinn vel, mataði og passaði vel upp á að bleiur væru hreinar og þurrar. Síðan bætt- ust við tveir prinsar og hópurinn orð- inn stór. Sumarbústaðurinn þeirra við Reynisvatn var þeirra afdrep um helgar og þar gat hópurinnn leikið sér úti í náttúrunni við æskustöðvar Böggu. Seinna kom sumarbústaður- inn í Þrastaskógi og að sjálfsögðu byggð tvö hús, svo pláss væri fyrir alla. Siggi gerði miklar kröfur til sjálfs sín og vinnan var honum allt, setti upp salatgerð og rak síðasta ár- ið verslun í Seljahverfinu. Það er mikil sorg að hann fékk ekki tæki- færi til að læra að njóta uppskerunn- ar. Ég sá hann fyrir mér aldraðan í ruggustól í sumarbústaðnum með alla krakkana hjá sér og Böggu sína, sem var hans gleðigjafi, hvers manns hugljúfi, brosandi og jákvæð fyrir flestu sem kom upp. Siggi var alltaf góður við mömmu okkar og með því síðasta sem hún gerði í sínu lífi var að kaupa styttu, lítinn hest í Portúgal, handa Sigga sínum. Nú stendur þessi hestur og fegrar stofuna í Jórsölum, en Siggi mágur er farinn. Ég hef þá trú að stór hópur af brosandi ættingjum hafi tekið á móti honum við ströndina hinum megin og umvafið hann. Sólin kemur alltaf upp aftur, þó dimmi um stund. Nú stendur fjölskylda hans saman sem ein sál, og Bagga mun brosa aftur og þau öll, og ylja sér við minningarnar. Innilegar samúðar- kveðjur sendi ég Kristínu móður hans, sem syrgir son sinn, og Hilmari bróður hans, sem mun styrkja hana gegnum sorgina. Ég kveð Sigga mág, sem var mér og mínum börnum góð- ur. Ég þakka 35 ára samfylgd. Rósa Ólafsdóttir. Elsku Sigurjón frændi. Það er erf- itt að kveðja þig þar sem þú fórst svo skyndilega. Ég hitti þig síðast hress- an og kátan í sumarbústaðnum áður en ég fór í frí til útlanda. En þann sama dag og ég kom heim kvaddir þú þessa jarðvist. Það voru mikil forréttindi að fá að kynnast svo góðum manni sem þú varst. Ávallt fylgdist þú vel með frænku þinni alveg frá því ég man eftir mér. Þú barst svo mikla um- hyggju fyrir mér. Þegar ég útskrif- aðist úr framhaldsskóla hélstu svo fallega ræðu fyrir mig í veislunni og samgladdist mér innilega, eins og ég væri þín eigin dóttir. Þegar ég vann hjá þér í sjoppunni með skólanum síðastliðinn vetur kom það bersýni- lega í ljós hvaða mann þú hafðir að geyma. Leitun hefði verið að betri vinnuveitanda. Það sem einkenndi þig var mikill dugnaður, glaðværð og umhyggju- semi í garð þinnar nánustu. Þér hlotnaðist sá auður að eignast fimm börn og tíu barnabörn og naust þú þín hvergi betur heldur en í návist þeirra. Ég kveð þig nú, elsku frændi, með söknuði en veit jafnframt að þú ert kominn í faðm elsku afa sem var okk- ur öllum svo kær. Guð blessi þig að eilífu. Þín frænka, Íris Björg Hilmarsdóttir. Við erum stödd á Mallorca í sumarfríi og fáum sms skilaboð frá syni okkar að Sigurjón nágranni sé látinn. Þvílíkt áfall. Við erum búin að vera nágrannar í u.þ.b. 17 ár í Fljóta- selinu og það var gott að hafa Sig- urjón, Þóru og börnin þeirra svo ná- lægt. Synir okkar léku sér mikið saman. Þau eru öll sómafólk. Það var svo gaman að hitta Sig- urjón, hann bauð góðan daginn hátt og skýrt og hressilega og hafði alltaf frá svo mörgu að segja. Sigurjón var mikill bílamaður og átti alltaf fína bíla og var þess vegna fastur í bíl- skúrnum eða á bílaplaninu að stúss- ast eitthvað, enda hitti Helgi hann oft þar og maður hélt stundum að hann hefði gufað upp á heimleiðinni en auðvitað var hann að spjalla við Sig- urjón. Helgi var alltaf brosandi og léttur eftir spjallið við Sigurjón. Fyrir um það bil tveimur árum fluttu þau úr Fljótaselinu í nýtt og flott einbýlishús í Kópavoginum og vann Sigurjón við að byggja það upp, hann var alltaf sívinnandi. Þegar Unnur Aldís, dóttir okkar, heyrði að þau væru að fara sagði hún: „Æ, hvað það er leiðinlegt, Fljótasel- ið verður aldrei samt eftir að Sigur- jón er farinn.“ Henni fannst, eins og öðrum á okkar heimili, gaman að hitta hann, enda bera börn og ung- lingar besta skynbragðið á hvern mann fólk hefur að geyma. Ég hitti Sigurjón úti í búð fyrir stuttu síðan og spjölluðum við lengi saman, þar á meðal um ferðalög. Ég var alltaf að dásama siglingar í Kar- íbahafinu og vildi endilega að hann færi þangað í afslöppun og tók hann undir það í fyrsta skipti í mörg ár, enda sagðist hann ætla að fara að minnka vinnu og húsnæði fljótlega, en svona er það, hann fór í ferðina sem við förum víst öll í að lokum en allt of fljótt. Þegar við hringdum til Unnar Aldísar, sem er í fullu námi í Kaupmannahöfn, og tilkynntum henni lát Sigurjóns brá henni illa og sagði: „En leiðinlegt, mér þótti alltaf svo vænt um hann Sigurjón. Var búin að sjá hann fyrir mér sem gamlan hressan kall.“ Bestu samúðarkveður sendir hún fjölskyldunni þar sem hún kemst ekki í jarðarförina. Það væri margt hægt að skrifa um Sigurjón, en við látum þetta nægja. Við eigum góðar minningar og þær geymum við. Elsku Þóra, börn og aðrir aðstand- endur, okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Guðlaug, Helgi og börn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, systur, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRDÍSAR GÍSLADÓTTUR, Klapparstíg 5, Akureyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyflækningadeildar FSA fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Andrés Bergsson, Steinunn Gísladóttir Arnar Andrésson, Hrefna Kristín Hannesdóttir, Gísli Andrésson, Ingibjörg Jónsdóttir, Jón Andrésson, Margrét Pálsdóttir, Guðrún Andrésdóttir, Jakob Tryggvason, ömmu- og langömmubörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LÁRU STEINUNNAR EINARSDÓTTUR. Halldór Halldórsson, Ingibjörg Halldórsdóttir, Hannes Guðmundsson, Sigrún Halldórsdóttir, Björn Jóhannesson, Marta Kristín Halldórsdóttir, Jón Rúnar Gunnarsson, Einar Halldórsson, Kristjana Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.