Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  NA-átt 5–10 m/s. Rigning eða súld á N- og NA- landi, annars skýj- að með köflum og skúrir. Styttir upp vestanlands. » 8 Heitast Kaldast 15°C 5°C STARFSMENN Háafells unnu í gær hörðum höndum við það að breiða túnþökur á hljóðmanir sem reistar hafa verið við Hallsveg í Grafarvogi. Nú gildir að hafa hraðar hendur enda þess skammt að bíða að vetur konungur taki völdin og veður leyfi ekki störf af þessu tagi. Verkið var líka vandasamt og veitti ekki af löngum vélarmi til að auðvelda lagn- inguna. Svo er spurning hvort, að verki loknu, hlíðin verði ekki svo fögur að hún hafi aldrei jafnfögur sýnst. Morgunblaðið/Kristinn Hlíðin fagurklædd í Grafarvogi FARÞEGUM Strætós fjölgaði um 20% í júlí og ágúst í ár samanborið við sömu mán- uði í fyrra og sambærilega þróun má merkja það sem af er septembermánuði, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar, framkvæmda- stjóra Strætós bs. Ásgeir sagði um mikinn viðsnúning að ræða, á fyrsta árs- þriðjungi hefði far- þegum fækkað um tæp 2% samanborið við sama tímabil í fyrra. Hann þakkaði þessa þróun nýja leiðakerf- inu. Þeir hefðu alltaf sagt að það tæki tíma fyrir leiðakerfið að festa sig í sessi og þó það hefði verið sett af stað í júlí í fyrra hefði breytingunni ekki lokið í raun fyrr en með endurbótum á kerf- inu í mars í vetur. Leiðakerfinu að þakka „Ég er þeirrar skoðunar að hann sé að skila sér núna, árangurinn af þessari breyt- ingu,“ sagði Ásgeir. Hann sagði umræðuna um strætó hafa verið frekar neikvæða undanfarið og það hefði komið dálítið niður á því sem þeir hefðu verið að reyna að gera. Þegar frá liði töluðu verkin. Það væri a.m.k. enga aðra skýringu að hafa en breytt leiðakerfi. Ásgeir bætti því við aðspurður að farþeg- um Strætós hefði ekki fjölgað frá því byggðasamlagið tók til starfa 2001 og al- mennt talað hefði verið um farþegafækkun að ræða undanfarin ár, ef frá væru talin skammvinn tímabil hjá SVR. „Við höfum ekki séð svona tölur frá því fyrirtækið tók til starfa í núverandi mynd,“ sagði Ásgeir. Strætófarþegum fjölgar Mikill við- snúningur TÖLUVERT margt fólk vantar til starfa á hjúkrunarheimili þótt eitthvað hafi tek- ist að ráða af fólki fyrir haustið. Bæði er skortur á faglærðu og ófaglærðu starfs- fólki, að sögn forsvarsmanna hjúkrunar- heimila. Helga Jóhanna Karlsdóttir, starfsmannastjóri á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund, segir að það hafi gengið upp og ofan að fá fólk til starfa und- anfarið, en um 10–12 manns vantar til starfa á Grund. „Núna vantar aðallega fagfólk eins og sjúkraliða. Hitt hefur ver- ið að tínast inn og við erum ofsalega dug- leg að púsla [saman vöktum],“ segir Helga. Aðalheiður Vilhjálmsdóttir, hjúkrunar- forstjóri í Skjóli, segir stöðuna skárri en hún var um mánaðamótin ágúst–septem- ber. Einkum vanti fagfólk til starfa, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og fé- lagsliða. | 11 „Erum ofsalega dugleg að púsla“ RÚMLEGA 23 þúsund manns hafa undirrit- að yfirlýsingu undir slagorðinu: „Nú segjum við stopp!“ á heimasíðunni stopp.is. Heima- síðan var sett upp í kjölfar átaks gegn bana- slysum í umferðinni sem orðin eru 20 á þessu ári. Fimm þúsund manns rituðu undir yfir- lýsinguna á sunnudaginn og bættust í hóp þeirra 18 þúsund sem fyrir voru. Lögreglan á Húsavík hafði afskipti af öku- mönnum á ofsahraða í gær, þar af einum sem stöðvaður var á rúmlega 150 km hraða á Mý- vatnsöræfum og öðrum á um 120 km hraða. 23 þúsund segja stopp! ♦♦♦ ♦♦♦ FÉLAG leik- skólakennara ákvað í gær að vísa kjaravið- ræðum sínum við sveitarfélög- in til ríkissátta- semjara, að sögn Bjargar Bjarnadóttur, formanns Fé- lags leikskólakennara, en samn- ingar leikskólakennara eru lausir frá 30. september næstkomandi. Björg segir leikskólakennara og launanefnd sveitarfélaganna hafa frá í júní fundað jafnt og þétt með hléum. Þokkalega hafi miðað og heilmiklar viðræður verið í gangi allan september þar sem mörg mál hafi þokast ágætlega. Rak aðeins upp á sker „Við vorum í vinnutörn núna um helgina en okkur rak aðeins upp á sker þannig að við ákváðum að vísa þessu til ríkissáttasemjara,“ segir Björg en hún vill ekki greina frá kröfum leikskólakennara. Ekki sé hægt að segja til um hversu langan tíma málið taki eftir að það hefur borist ríkissáttasemjara, en hann muni nú kalla aðila saman. Menn hafi að sjálfsögðu sett sér það markmið að ljúka við gerð hins nýja kjarasamnings áður en hinn rennur út. „Það er ekkert útséð með að það takist ekki, hálfur mán- uður er til stefnu og ýmislegt hægt að gera ef aðilar leggjast á eitt,“ segir hún og er bjartsýn á að samn- ingar takist í mánuðinum. Kjaradeilu leikskólakenn- ara vísað til sáttasemjara Í HNOTSKURN » Síðustu kjarasamningarlaunanefndar sveitarfé- laga og leikskólakennara voru undirritaðir í desember 2004. » Í þeim var kveðið á umað mestar hækkanir yrðu hjá yngsta hópi leik- skólakennara og þeim sem sinntu deildarstjórn. Björg Bjarnadóttir SYKURMOLARNIR koma saman á stórtónleikum í Laugardalshöll 17. nóvember næstkomandi í til- efni af því að liðin eru 20 ár frá því smáskífan „Ammæli“ kom út. FL Group er bakhjarl tónleik- anna en útgáfufyrirtækið Smekk- leysa fær að njóta góðs af miða- sölutekjum. Sérstakur gestur á tónleik- unum er sjálfur Johnny Triumph og allar líkur á að hann muni ekki um að taka smellinn „Luftgitar“. „Honum fannst allt í lagi að koma fram ef hann fengi að spila með „bakköpp“-sveitinni sinni, The Sugarcubes, svo við tókum hann á orðinu,“ sagði Einar Örn Bene- diktsson í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins. | 40 Sykurmolar Bragi, Einar Örn, Björk, Sigtryggur og Þór. Sykurmolatónleikar 17. nóvember HJÁ iðnaðarráðuneytinu liggja fyrir umsóknir frá orkufyrirtækj- um um rannsóknarleyfi á þremur svæðum á suðvesturhorninu sem ekki hafa verið virkjuð; þ.e. í Brennisteinsfjöllum og Krýsuvík á Reykjanesskaga og í Grændal sem liggur upp af Hveragerði. Af þess- um svæðum virðast Brennisteins- fjöll vera eftirsóttust. Júlíus J. Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suður- nesja, gagnrýnir seinagang í um- sóknarferli vegna rannsóknarleyfa og segir furðulegt að enn skuli standa á umsögn umhverfisráðu- neytisins. Í lögum sé kveðið á um skjóta afgreiðslu en ráðuneytið virðist ekki hafa nokkrar áhyggjur af því að brjóta lög með því að draga að klára sína umsögn. Rannsóknarleyfi á þremur svæðum Brennisteinsfjöll eru eftirsóttust  Gæti stefnt | 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.