Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HEFÐBUNDIN kennsla fór fram í Varmárskóla í Mosfellsbæ í gærdag og ekki að merkja á fasi nemenda og starfsmanna að eldsvoði hefði kvikn- að undir þaki yngri deildar skólans sl. föstudag. Rýma þurfti húsnæði skólans og þyrptust um 400 nemend- ur út á aðeins örfáum mínútum. Tók eldsvoðinn á taugar yngstu krakk- anna og að sögn foreldra eins þeirra var nokkur hræðsla við að snúa aftur til skóla í gærmorgun. Eldurinn kom upp í þakrými fyrir ofan bókasafn skólans. Safnið var af þeim völdum lokað í gærdag en þrífa þurfti m.a. vegna sóts og reyks, auk þess sem koma þurfti rafmagni aftur á. Viktor S. Guðlaugsson, skólastjóri, segir engar stórvægilegar skemmdir hafa orðið en ekki sé þó enn búið að leggja mat á þær. „Það hefði getað farið mun verr og það má segja að það sé tvíeggjað að eldurinn kvikni á starfstíma skólans. Það kann að hafa bjargað því að þarna yrði stór elds- voði,“ segir Viktor. Eldsupptök hafa ekki enn verið staðfest en grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Foreldri sem Morgunblaðið ræddi við segir það grafalvarlegt mál ef svo sé og segist hafa heyrt gagnrýnisraddir vegna þess hversu lítið var gert úr málinu. Þegar Viktor leitaði svara hjá rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík um eldsupptök var enn fátt um svör en rannsókn heldur áfram, ljóst er þó að tiltölulega létt er að komast upp á þakið og þar inn um lúgu í rýmið. Eldurinn kviknaði rétt fyrir klukkan tvö á föstudag, þegar síð- asta kennslustund dagsins var að lokum komin. Eldvarnarkerfi fór í gang og aðgerðaáætlun skólans var sett í gang. „Hér hanga uppi í öllum stofum upplýsingar um hvernig eigi að bregðast við svona kringumstæð- um. Þar kemur m.a. fram hverjar séu útgönguleiðir og þetta hefur allt verið afar vel kynnt starfsmönnum og kennurum,“ segir Viktor en skömmu fyrir eldsvoðann var haldin brunaæfing í skólanum og ekki tók nema 3-5 mínútur að rýma húsið. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var fljótlega komið á svæðið og þurfti að rífa klæðningu á þakinu til að komast að eldsvoðanum sem ekki var mikill – en talsverður reykur barst þó inn í húsið. Viktor segir við- bragðsáætlunina svo sannarlega hafa sannað gildi sitt. „Kennararnir hrósuðu krökkunum fyrir það hvern- ig gekk en þau fóru eftir öllu sem bú- ið var að kenna þeim. Við sögðum þeim einnig að það væri eðlilegt að gráta og sýna tilfinningar þegar svona kemur upp,“ segir Guðrún Markúsdóttir, deildarstjóri á mið- stigi. Rætt var um eldsvoðann í öllum kennslustofum í byrjun gærdagsins auk þess sem djákni og sálfræðingur voru til taks ef börnin vildu ræða málin frekar. „Svo sendum við bækling frá Rauða krossinum um að- stoð við börn eftir áfall og allir for- eldrar fá hann sendan heim með börnunum sínum ásamt orðsendingu frá okkur,“ bætir Guðrún við en einnig munu slökkviliðsmenn ganga í kennslustofur í dag og ræða málið frá þeirra bæjardyrum. Viðbragðsáætlun vegna eldsvoða sannaði gildi sitt þegar eldur kviknaði í Varmárskóla sl. föstudag Krökkunum hrósað fyrir hversu vel rýmingin gekk Morgunblaðið/Eyþór Ummerki Eldurinn kom upp í þakrými fyrir ofan bókasafn skólans, ef vel er skoðað sjást ummerki eftir brunann. Fór vel Arna Arnardóttir deildarstjóri, Guðrún Markúsdóttir deildarstjóri og Viktor S. Guðlaugsson skólastjóri voru ánægð með viðbrögð nemenda. Eftir Andra Karl andri@mbl.is Í HNOTSKURN »Nokkru áður en eldsvoð-inn kom upp hafði verið haldin brunaæfing. Þær eru framkvæmdar reglulega. »Aðeins tók 3-5 mínútur aðrýma skólann – alls um 400 nemendur. »Grunur leikur á að kveikthafi verið í en það hefur ekki fengist staðfest hjá lög- reglunni í Reykjavík. „VIÐ héldum fyrst að þetta væri brunaæfing og ætluðum ekki að fara út,“ segir Örn Bjartmars Ólafsson, ellefu ára nemi í Varm- árskóla, um fyrstu viðbrögð sín við eldinum á föstudag. Fljótlega varð honum og öðrum í bekknum hins vegar ljóst að um alvöru eldsvoða var að ræða og fylgdu þau því að- gerðaráætlun skólans. Örn var í handmennt þegar brunabjallan glumdi en sú stofa er nokkuð langt frá upptökum eldsins. Hann segist ekki hafa hræðst og vart vitað að eldur væri laus fyrr en út var komið. „Ég var með töskuna mína og skóna með mér þannig að ég hljóp bara beint út. Við hittumst svo öll í brekkunni fyrir utan,“ segir Örn sem er nokk- uð ánægður með hversu tíðar brunaæfingar eru í Varmárskóla þar sem þær hafi hjálpað mikið til og allir krakkarnir hafi því vitað hvað ætti að gera í slíkum kring- umstæðum. Örn Bjartmars Ólafsson var í handmennt þegar brunabjallan glumdi. Hann segir að tíðar brunaæfingar í skólanum hafi hjálpað mikið til á föstudag. Héldu að þetta væri æfing JÓHANNA Embla Þorsteinsdóttir, ellefu ára nemandi í Varmárskóla, var í kennslustund í samfélagsfræði þegar eldsvoðans varð vart á föstu- dag. Hún segir að allir í bekknum hafi haldið að um æfingu væri að ræða, kennarinn einnig. „Þegar við vorum komin fram á gang þá lét kennarinn okkur fara í tvöfalda röð og finna félaga. Við fundum reykj- arlykt á ganginum og þá fengum við, ég og vinkona mín, svolítið sjokk.“ Embla segir þó sjokkið ekki hafa verið meira en það að þær vinkon- urnar gengu einfaldlega út fyrir. „Við höfðum ekki tíma til að ná í skóna okkar og þurftum að sækja þá seinna og klæða okkur í þá úti,“ seg- ir Embla sem varð smávegis skelkuð vegna eldsvoðans. Blautt var í veðri þegar nemendur skólans yfirgáfu skólahúsið og biðu í grasbrekku á lóðinni. Nokkur rign- ing var og krakkarnir margir hverjir ekki með yfirhafnir. „Ég var hins vegar með úlpuna mína við hliðina á stofunni þannig að ég náði að kippa henni með mér á leiðinni út.“ Reykjarlykt á ganginum Embla fékk svolítið sjokk þegar hún fann reykjarlykt á göngunum. BÍLVELTA varð á Biskupstungnabraut nálægt Laugarbakka síðdegis í gær. Öku- maður og tveir farþegar voru í bílnum þar af einn sem festist í flakinu og urðu liðsmenn Brunavarna Árnessýslu að beita klippum til að losa hann úr bílflak- inu. Öll fengu að fara heim að lokinni læknisskoðun á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi. Bifreið valt á Biskupstungnabraut ARNARSTOFNINN er nú um 66 pör og hefur hann þrefaldast frá því að bannað var að bera út eitur fyrir tófu árið 1964, samkvæmt vef Nátt- úrufræðistofnunar Íslands (NÍ). Þar segir að í vor hafi stofninn verið stærri en nokkru sinni síðan farið var að fylgjast með örnum um 1920. Í fyrrasumar komust fleiri ungar á legg en dæmi eru um á síðari árum, en varpið 2006 „gekk hins vegar óvenju illa, einkum vegna af- leits tíðarfars sem hafði reyndar mikil áhrif á fuglavarp um land allt. Vöktun á örnum hefur verið aukin og hafa m.a. senditæki verið sett á arnarunga til að auðvelda eftirlit.“ Hafa nýlega endurheimt forn óðul á Suður- og Norðurlandi Á vef NÍ segir að einungis 39 pör hafi orpið með vissu og komu aðeins 18 þeirra upp 24 ung- um í ár. „Varpárangur (mældur sem fjöldi unga á par: 0,36) hefur ekki verið svona slæmur síðan kalda vorið 1989 (var þá 0,3 ungar/par). Hið sama á við um varpárangur mældan sem hlutfall þeirra para sem kom upp ungum; (28% 2006 og 25% 1989).“ Á vef NÍ segir að ernir hafa nýlega endur- heimt forn óðul á Suðurlandi og Norðurlandi og fullorðnir fuglar sjáist nú æ oftar utan varpslóða vestanlands. Allir ungar sem komust á legg 2006 hafi verið litmerktir, svo innan fárra ára megi búast við að rekast á slíka fugla við hreiður. Alls hafi verið merktir 332 ernir hér á landi síðan 1939 og voru langflestir þeirra, eða 317, ungar í hreiðrum. Um helmingur fuglanna, eða 174 alls, hafi verið merktur frá og með árinu 2000. Auk starfs- manna Náttúrufræðistofnunar og Náttúrustofu Vesturlands hafi þeir Trausti Tryggvason, Hall- grímur Gunnarsson og Finnur Logi Jóhannsson verið stórtækastir merkingamanna. Senditæki fest á þrjá arnarunga Í sumar voru senditæki fest á þrjá arnarunga í jafnmörgum hreiðrum við norðanverðan Faxa- flóa. Tækin eiga að endast í a.m.k. eitt ár og er vonast til að hægt verði að bregða upp skýrara ljósi af ferðum og afkomu arnarunga fyrsta vet- urinn sem sennilega er erfiðasti tíminn í lífi arna. Hallgrímur Gunnarsson sem fylgst hefur með örnum við Faxaflóa um árabil annast þetta eftir- lit. Segir að til samanburðar megi geta þess að hafísvorið 1979 sem hafi verið hið allra versta í arnarsögunni hafi aðeins 17% para komið upp ungum. „Þá var hlutfall varppara sumarið 2006 (59% eða 39 af 66 pörum) hið langlægsta síðan kuldavorið 1995. Þeim fuglum sem verpa hefur reyndar fækkað hlutfallslega með stækkandi stofni en í bestu árum urpu yfir 80% paranna.“ Arnarstofninn aldrei stærri Varp gekk óvenju illa í sumar og er afleitu tíðarfari einkum kennt um Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Morgunblaðið/RAX Vond tíð í sumar Afleitt tíðarfar hafði áhrif á varp arna og annarra fugla í sumar. UM EITT hundrað ökumenn eiga fjár- sektir yfir höfði sér eftir að hafa ekið of hratt um Hvalfjarðargöngin um liðna helgi. Samkvæmt upplýsingum sem feng- ust hjá lögreglunni í Reykjavík, sem ann- ast myndavélaeftirlit í göngunum, voru hinir brotlegu að jafnaði á tæplega 90 km hraða en þrír ökumenn óku á meira en 100 km hraða. Í Hvalfjarðargöngum er leyfilegur há- markshraði 70 km á klukkustund. Segir lögreglan að þessi hraðakstur veki nokkra athygli í ljósi þeirrar opin- beru umræðu sem hefur verið undan- farna daga um umferðarmál í þjóðfélag- inu. Mikið um hraðakstur í Hvalfjarðargöngum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.