Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Naumur meirihluti sænskra kjós-enda ákvað að kominn væri tímitil að senda jafnaðarmenn í fríeftir 12 ára stjórnarsetu, þar af síðustu 10 árin undir forystu Görans Pers- sons. Hann afhenti lausnarbeiðni sína í gær og hefur ákveðið að hætta einnig sem leið- togi jafnaðarmanna í mars næstkomandi. Hann segist hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir að tap myndi þýða að hann ætti að draga sig í hlé. „Mér finnst þetta svolítið dapurlegt,“ sagði forsætisráðherrann er hann ræddi við fréttamenn í gær. „En sá tími rennur upp í lífi sérhvers forsætisráð- herra að hann verður að afhenda þingfor- setanum lausnarbeiðni sína og ég hef orðið að bíða lengi eftir því.“ Sigurgleðin var mikil á hjá andstæðing- unum í kosningabandalagi fjögurra borg- aralegra flokka. „Það var samstarf sem lagði grunninn að sigri okkar,“ sagði Fred- rik Reinfeldt, forsætisráðherraefni borg- araflokkanna og leiðtogi hægrimanna sem fengu um 26% atkvæða. Reinfeldt benti í sigurræðu sinni á að flokkurinn hefði í þetta sinn komist til valda með því að breytast. „Við þorðum að setja spurning- armerki við það sem við vorum að gera, þorðum að viðurkenna gallana,“ sagði hann. Ósigur jafnaðarmanna, sem fengu rúm 35% atkvæða, er mikill, einkum var hrunið mikið í Stokkhólmi og sumir fréttaskýrend- ur segja að ráðleysis hafi gætt hjá flokkn- um undanfarin ár, skýra stefnu hafi skort. Jafnaðarmenn hafa ekki verið með minna fylgi á landsvísu síðan 1914 og jafnframt því sem þeir sleikja sárin þurfa þeir næstu mánuði að finna nýjan leiðtoga. Enginn augljós kandídat virðist í augsýn. Tókst „hið ómögulega“ Dagblaðið Dagens Nyheter hefur gjarn- an þótt hallt undir jafnaðarmenn. En í leið- ara þess í gær er sagt að niðurstöður kosn- inganna marki þáttaskil og í reynd hafi ákveðnar grundvallarreglur sem menn hafi treyst á í 70 ár reynst úreltar. Borgara- flokkunum hafi í þetta sinn tekist hið ómögulega: að sigra jafnaðarmenn enda þótt efnahagsmálin séu á ágætu róli. „Ef marka má viðtekinn sannleika ætti góður hagvöxtur og hækkandi kaupmáttur launa að hafa tryggt stjórnarflokknum völdin áfram,“ segir blaðið. „70 ára reynsla raðir sjúklin Brors, pólití Atvinnule hjá þeim sem unum fjórum landstjórnin og þreyta ve við kjötkatl spillingu se herrastólum ára gamla P Persson ákaft að var og sagði að argæru sem kerfið sæns „Norræn leyti gott,“ í Svíþjóð hefur gefið til kynna að þessi þum- alfingursregla eigi við rök að styðjast. Jafn- aðarmenn hafa einvörðungu þurft að sætta sig við ósigur þegar aðstæður hafa verið mjög óvenjulegar. Ekki í þetta sinn. Bandalag borgara- flokkanna hefur sannað bæði fyrir sjálfum sér og kjósendum að ekki sé hægt að ganga út frá því sem vísu að jafnaðarmenn séu ríkjandi flokkur.“ Ljóst er að niðurstaðan er mikill per- sónulegur ósigur fyrir Persson ekki síður en flokkinn. Hann tapar miklu fylgi þótt hagvöxtur sé mikill, verður sennilega rúm 4% á árinu og atvinnuleysið mælist sam- kvæmt opinberum tölum aðeins tæp 6%. En þess ber að geta að keppinautarnir segja raunverulegt atvinnuleysi mun meira, tölurnar séu fegraðar með ýmsum brellum og ef til vill sé rétta talan 15–20%. Verst sé að stór hluti þjóðarinnar hafi verið án nokkurrar atvinnu um langt skeið. Margir Svíar segja að of auðvelt sé að vera á bótum af öllu tagi, aðhald skorti og fólk sé einfaldlega ekki hvatt nægilega mik- ið til að vinna eða mæta í vinnu þegar hún sé til staðar. „Mikið er um að fólk sé fjar- verandi vegna veikinda – það er sagt að Sví- ar séu hraustasta þjóð í heimi en hvergi séu Engin umbylting í hægfara breytinga Sigur! Leiðtogar borgaraflokkanna fagna. Frá vinstri: Gö Miðflokksins, Lars Leijonborg, leiðtogi Þjóðarflokksins, o Í HNOTS »Um nSvíþj þeim bes »Jafnastjórn anlagt 65 Væntanlegir ráðamenn í Svíþjóð lofa að berjast gegn atvinnuleysinu. Kristján Jónsson kynnti sér kosningaúrslitin og stefnu bandalags borgaraflokkanna sem vann nauman sigur á vinstrimönnum. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Fredrik Reinfeldt, verðandi forsætisráð-herra Svíþjóðar, þykir yfirvegaður, ró-legur og fremur hlédrægur. Honum ertamt að koma fram sem venjulegur Svíi og hann hefur lýst sér sem miklum fjöl- skyldumanni. „Hann er mildur, íhugull og hlustar á fólk,“ sagði Henrik Brors, leiðarahöfundur sænska dagblaðsins Dagens Nyheter. „Kjósendurnir kunna vel að meta rólega og alúðlega framkomu hans.“ „Ég er sjálfsöruggur og rólegur að eðlisfari. Það þýðir þó ekki að ég sé ekki ástríðufullur og ákveðinn í skoðunum,“ sagði Reinfeldt í viðtali nýlega. Reinfeldt, sem er 41 árs, segist vera með ein- faldan smekk. Hann hefur gaman af heim- ilisstörfunum, einkum hreingerningum, barna- uppeldi, lestri góðra glæpasagna og sagnfræði- u a a S e b a g e h s k a a i y B g f s rita. Eins og nærri má geta hefur hann mikið dálæti á ABBA. „Ég hafði áhuga á sálfræði og því sem knýr fólk áfram,“ sagði Reinfeldt. „En ég valdi stjórnmálin vegna þess að á vettvangi þeirra er hægt að hafa áhrif á aðstæður fólks.“ Sleipur eins og sápa Fredrik Reinfeldt fæddist 4. ágúst 1965, er kom- inn af athafnamönnum og ólst upp í Täby, útborg norðan við Stokkhólm. Hann var fyrst kjörinn á sænska þjóðþingið þegar hann var 26 ára, aðeins ári eftir að hann lauk hagfræðinámi við Stokkhólmsháskóla. Hann varð leiðtogi ungra hægriflokksmanna ári síðar. Karl-Petter Thorwaldsson, sem var leiðtogi ungra jafnaðarmanna í Svíþjóð á þessum tíma, segir að þeir hafi kallað Reinfeldt „Sápuna“ vegna þess að hann hafi verið svo sleipur henti- stefnumaður að hann hafi alltaf runnið úr greipum þeirra. „Í hvert skipti sem við lögðum erfiðar spurningar fyrir hann í kappræðum var hann með „Mildur, íhugull og hlust GJAFIR TIL GÓÐGERÐARMÁLA Framlög fyrirtækja og einstak-linga til líknarmála og góð-gerðarstarfsemi ýmiss konar hafa stóraukizt á undanförnum ár- um, að því er fram kemur í frétta- skýringu Ragnhildar Sverrisdóttur, sem birtist í sunnudagsblaði Morg- unblaðsins. Tölur frá ríkisskatt- stjóra sýna fram á þetta; þannig voru framlög til líknar- og menningarmála í fyrra um sjöfalt hærri en árið 1998. Í samtölum við forsvarsmenn líknar- og hjálparsamtaka kemur sömuleiðis fram að auðveldara sé að fá fjárfram- lög til slíkrar starfsemi en áður var. Sú þróun, sem lýst er í áðurnefndri fréttaskýringu, sýnir vel að hin nýja stétt íslenzkra auðmanna lætur margt gott af sér leiða. Þeim hefur fjölgað margfalt, sem hafa efni á því að styrkja myndarlega hjálpar- og þróunarstarf, líknarstarfsemi, menntun og menningu – og telja það raunar skyldu sína að gera það. Þeir, sem minna mega sín, bæði innan- lands og í fátækustu löndum heims- ins, njóta góðs af. Úlla Magnússon, formaður SOS barnaþorpa á Íslandi, orðar þetta þannig í samtali við Morgunblaðið: „Það er áreiðanlega mikil vakning al- mennt í þessum málum. Ég held að þetta megi bæði rekja til góðs efna- hagsástands, en líka til þess að frétt- ir af ástandinu víða í heiminum eru meira áberandi en nokkru sinni fyrr og aðgengilegar öllum. Margir sem koma hingað og ákveða að styrkja börn í fjarlægum löndum nefna að þeir hafi það svo gott og eigi allt til alls, svo þeir megi til með að láta eitt- hvað af hendi rakna. Fólki finnst það eiginlega skuldbundið til þess, ef það er sjálft svo lánsamt að njóta góðs lífs. Börn þessa fólks alast svo upp við þessi viðhorf.“ Í fréttaskýringunni kemur fram að stöndug fyrirtæki eru byrjuð að breyta vinnubrögðum sínum í góð- gerðarmálum. Í stað þess að dreifa styrkjum sínum víða, styrkja þau gjarnan stór, afmörkuð verkefni. Ástæðan er sú að fyrirtækin vilja sjá áþreifanlegan árangur og kannski spilar inn í að þau telja sig þá fá meiri kynningu en ef þau styrkja mörg smáverkefni. Eins og fram kemur í grein Ragn- hildar Sverrisdóttur, vakti það mikla athygli er bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett tilkynnti að hann ætlaði að gefa yfir 80% allra auðæfa sinna til góðgerðarmála. Buffett gaf peningana ekki beint til ákveðinna málefna, heldur til fimm stofnana, sem styrkja margvíslegan málstað. Langmest af fénu fer í sjóðinn, sem Bill Gates, stofnandi Microsoft, og Melinda kona hans, stofnuðu og styrkir einkum verkefni í heilbrigð- ismálum í þriðja heiminum og verk- efni á sviði menntamála. Ástæðuna fyrir þessu segir Buffett þá, að á vettvangi sjóðsins hafi orðið til sér- þekking á góðgerðarmálum, sem hann hafi fyrir vikið ekki þurft að leggja vinnu í að byggja upp. Í landi, þar sem allt er á mun smærri mælikvarða en hjá Warren Buffett og Bill Gates, gæti verið enn ríkari ástæða til þess fyrir þá, sem vilja gefa mikla peninga til góðgerð- armála, að sameinast um stofnun eða stofnanir, sem byggja upp slíka sér- þekkingu og sameina ólíka krafta, sem vilja láta gott af sér leiða. NETFÖNG OG RUSLPÓSTUR Tölvupóstur er orðinn mikilvægtsamskiptatæki. Fyrst í stað sá fólk fyrst og fremst hinar jákvæðu hliðar tölvupóstsamskipta. Símhring- ingum fækkaði og samskipti um tölvupóst komu í staðinn, sem voru einfaldari og tóku minni tíma. En smátt og smátt fór fólk að kynn- ast hinum neikvæðu hliðum þessara samskipta. Að sumu leyti vegna þess að farið var að ofnota tölvupósta, m.a. með því að senda fjölmörg eintök á sama vinnustað. Að öðru leyti með því að sendingar á svokölluðum rusl- pósti breiddust út. Nú er svo komið, að á sumum vinnustöðum getur það tekið einn og sama starfsmann nokkrar klukku- stundir á degi hverjum að fara í gegn- um tölvupóstsendingar. Hluti af þeim tíma fer í að eyða ruslpósti, auglýs- ingapósti og öðru slíku. Þegar til þessa er horft kemur það mjög á óvart, svo að ekki sé meira sagt, að símafyrirtæki hafi afhent lista með netföngum fólks til aðila, sem eftir því hafa leitað. Hver hefur gefið þessum fyrirtækjum heimild til að dreifa slíkum listum? Að vísu telja fyrirtækin sig skyld til þess lögum samkvæmt. Póst- og fjarskiptastofn- un virðist ekki sammála þeirri laga- túlkun. Notendur greiða fyrir netföngin. Þeir hafa ekki samið við viðkomandi fyrirtæki til þess, að netföngum þeirra sé dreift með þeim hætti, að hægt sé að demba yfir viðkomandi einstaklinga ruslpósti. Í raun og veru er þetta óþolandi aðgerð af hálfu símafyrirtækja. Sumir þeirra, sem haft hafa net- föng hjá símafyrirtækjum í þeirri trú, að þau væru trúnaðarmál á milli þeirra og viðkomandi fyrirtækis hafa síðustu mánuði fengið yfir sig mikið magn af ruslpósti og ekki skilið hvernig viðkomandi sendandi hefur komizt yfir viðkomandi netfang. Það hlýtur að vera næsta skref þeirra, sem þróað hafa tölvupóstinn sem samskiptatæki að halda þeirri þróun áfram með það í huga að fjar- lægja þessar neikvæðu hliðar tölvu- póstsamskipta. Að vísu eru til ýmsar aðferðir til þess að sía póstinn, sem berst til viðkomandi einstaklinga, m.a. aðferðir, sem þeir sjálfir geta gripið til. Það breytir hins vegar engu um það, að símafyrirtækjum ætti að vera bannað að dreifa netföngum við- skiptavina sinna með þeim hætti, sem gert hefur verið nema samþykki þeirra sjálfra liggi fyrir. Póst- og fjarskiptastofnun þarf að taka fast á þessu máli, m.a. til þess að vernda viðskiptavini símafyrirtækj- anna og annarra, sem bjóða upp á netfangaþjónustu. Með sama hætti og fólk getur valið um það, hvort símanúmer þess séu skráð eða ekki á sá hinn sami að geta valið um það hvort netfang hans sé birt með ein- hverjum hætti eða ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.