Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI AUSTURLAND Kárahnjúkavirkjun | Framkvæmd þeirra mótvægisaðgerða sem um- hverfisráðherra setti sem skilyrði fyrir byggingu Kárahnjúkavirkjun- ar árið 2001 er á ýmsum stigum. Hluti þeirra 20 atriða sem sett voru sem skilyrði fyrir framkvæmdinni hefur þegar verið uppfylltur með ákveðnum breytingum á hönnun virkjunarinnar og staðsetningu mannvirkja, vegstæða, efnisnáma og haugstæða, auk þess sem fallið var frá nokkrum þáttum fram- kvæmdarinnar. Yfirgripsmiklar rannsóknir og vöktun eru ýmist nýhafnar, í gangi eða lokið og þá einkum varðandi gróðurfar, hreindýralíf, fuglalíf, set- og öskulög, bergmyndanir, botn- dýralíf og fornminjar. Landsvirkjun hefur unnið með ýmsum verkfræði- og rannsóknarstofnunum hérlendis og erlendis vegna mótvægisaðgerð- anna. Hálslón vegur þyngst „Þau skilyrði ráðherra sem ég tel vega þyngst eru við Hálslón,“ sagði Pétur Ingólfsson, verkfræðingur á verkfræði- og framkvæmdasviði Landsvirkjunar, á opnum fundi um virkjunina á Fljótsdalshéraði ný- verið. „Það sem við höfum gert núna er vegarlagning og sandfyllingar inn með austurströnd Hálslóns,“ sagði Pétur. „Þær, ásamt fleiri sandfyll- ingum sem við setjum upp á völdum stöðum sem við höfum fundið út, m.a. í samvinnu við Vatnaskil, er áætlað að uppfylli skilyrði umhverf- isráðherra hvað þetta varðar. Þau fjölluðu um að við gætum varist 50 ára stormi án þess að hann ylli áfoksgeirum. Ég tel engan vafa á að komin eru fín svör við því.“ Áhyggjur eru af sandskriði inn á gróðursvæði úr lónstæðinu á vorin þegar vatnsborðsstaða verður hvað lægst sem og leirfoki, en íbúum á Fljótsdalshéraði eru vel kunnugir rykstormar ofan af hálendinu og líst illa á ef slíkt eykst til muna. Sandgildrur eru meðal mótvæg- isaðgerða við Hálslón, en Pétur seg- ir að því hafi einnig verið velt upp að halda ryki niðri með áveitum. „Það virðist ekki flókið og við höfum verið að útfæra þá hugmynd í samvinnu við Verkfræðistofu Austurlands.“ Þá segir hann unnið að uppgræðslu og skipulagningu á slíkum verkefn- um sem fara munu í gang á næst- unni til að takast á við áfok úr lón- stæðinu. Það á einkum að gera með því að styrkja þann gróður sem fyr- ir er á svæðinu. Þ.á m. gæti verið að sá melgresi til að stöðva sandskriðið út úr lóninu áður en það kaffærir að- liggjandi gróður. Tappinn settur í eftir viku „Öll hin skilyrðin eru uppfyllt, ég get lofað því,“ sagði Pétur á fund- inum. Meðal téðra skilyrða er að Landsvirkjun láti vinna viðbragðs- og aðgerðaáætlun við neyðar- ástandi og er hún fyrirliggjandi af hálfu fyrirtækisins, en í frekari vinnslu hjá ríki og stjórnvaldi heima í héraði, klapparhaft ofan Lagar- fljótsvirkjunar er lækkað um metra áður en rekstur virkjunarinnar hefst, ljúka á ýmsum náttúrufræði- legum rannsóknum áður en fyllt er í Hálslón og Landsvirkjun á í sam- vinnu við Náttúrustofu Austurlands að standa að nauðsynlegri viðbót- arvöktun hreindýra á fyrstu 10 ár- um á starfstíma virkjunarinnar. Byrjað verður að fylla Hálslón í næstu viku, en hvaða dag það verð- ur fer eftir veðurfari og rennsli Jöklu, sem æskilegt er að sé í lág- marki þegar hafist er handa. Mótvægisaðgerðir vegna Kárahnjúkavirkjunar á ýmsum stigum Aðgerðir vegna leirfoks úr lónstæði Hálslóns vega þyngst Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Lónstæðið Landsvirkjun segir öll skilyrði umhverfisráðherra um mót- vægisaðgerðir uppfyllt og unnið sé að vörnum gegn áfoki úr Hálslóni. »Umhverfisráðherra settiárið 2001 20 skilyrði um mótvægisaðgerðir fyrir bygg- ingu Kárahnjúkavirkjunar. »Hluti skilyrðanna var aðbreyta ýmsu varðandi hönnunarþætti virkjunar- innar. »Umfangsmiklum rann-sóknum er varða nátt- úrufar svæðisins er ýmist ver- ið að hrinda af stað, þær komnar í gang eða þeim að ljúka. »Nú er unnið að vörnumgegn leirfoki úr lónstæði Hálslóns þegar vatnsborðs- staða er hvað lægst, m.a. með sandgildrum og uppgræðslu. Í HNOTSKURN Egilsstaðir | Landbúnaðarráðuneytið út- hlutaði nýverið 45 milljónum króna til byggingar reiðhallar og tveggja reið- skemma á Austurlandi. Hestamannafélagið Freyfaxi á Fljóts- dalshéraði fékk 20 milljónir króna í reið- höll á Fljótsdalshéraði, hestamanna- félagið Hornfirðingur 15 milljónir til byggingar reiðskemmu á Hornafirði og hestamannafélagið Blær í Fjarðabyggð 10 milljónir í reiðskemmu á Norðfirði. Ráðuneytið úthlutaði alls 330 milljónum króna til 28 bygginga um land allt og fékk hestamannafélagið Léttir á Akureyri hæsta styrkinn, 29 milljónir, til byggingar reiðhallar þar í bæ. Hillir undir reiðhöll og skemmur eystra Reyðarfjörður | Stríðs- árasafninu á Reyð- arfirði áskotnaðist á dögunum dagbók með minningum Ron Davies, en hann var í breska hernum á Búð- areyri á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Davies, sem kom í boði Hafþórs Hafsteins- sonar, forstjóra flug- rekstrarsviðs Avion Group, þótti áhuga- vert að rifja upp gamla tíma og sjá gömul kennileiti. Hann er þekktur sem einn helsti sérfræðingur í sögu atvinnuflugs í heiminum. Þrátt fyrir háan aldur er hann enn að störfum og er forstöðumaður at- vinnuflugsdeildar National Air & Space Museum við Smithsonian Institute í Wash- ington, jafnframt því að veita forstöðu eigin útgáfufyrirtæki. Hann hefur skrifað og gefið út fjölda rita um sögu atvinnu- flugs og flugfélaga. Dagbók bresks her- manns til Stríðsára- safnsins á Reyðarfirði Úr Stríðsárasafn- inu á Reyðarfirði. SÚ nýjung hefur verið tekin upp á Iðnaðarsafninu á Akureyri að bjóða gestum upp á leið- sögn um safnið af bandi. Jón Arn- þórsson, safn- stjóri, hefur „löngum verið ómetanlegur hluti af upplifun heimsóknar í Iðnaðar- safnið,“ segir í fréttatilkynningu og „því ákvað stjórn safnsins að ráðast í það verkefni að hljóðrita leiðsögnina þannig að gestir framtíðarinnar gætu notið leiðsagnar hans með aðstoð tækninnar og gengið um safnið og hlustað á frásögnina í heyrnartólum. Inn í safnaleiðsögnina eru fléttaðar sögur og tónlist frá liðnum árum sem tengjast iðnaðarbænum Akureyri.“ Lesari með Jóni er Brynhildur Pétursdóttir og um hljóðritun og tæknilega úrvinnslu sá Kristján Edelstein. Frásagnir starfsfólks Næsta verkefni sem safnið hefur áhuga á að framkvæma er að hljóð- rita viðtöl og frásagnir starfsfólksins sem vann á þeim vinnustöðum sem kynntir eru í safninu. Stefnt er að því að flétta þær frásagnir inn í safnaleið- sögnina þannig að minningar og þekking fari ekki forgörðum og varð- veitist til framtíðar. Þannig verði smám saman aukið við upplifun gesta með lifandi frásögnum og minning- arbrotum. Jón alltaf nálægur á bandinu Jón Arnþórsson Frásagnir verksmiðju- fólks verða hljóðritaðar SPARISJÓÐUR Norðlendinga hef- ur ákveðið að styrkja Ferðafélag Akureyrar (FFA) um eina milljón króna vegna nýs húss sem meðlimir félagsins hafa unnið við að reisa í sumar. Nýja húsið er á meðfylgj- andi mynd, en því er ætlað að standa við Drekagil við Dyngjufjöll í Ódáðahrauni. „Með til- komu hússins verður bætt úr brýnni þörf fyrir gesta- móttöku, upplýsingar- miðstöð og landvarð- arbústað á svæðinu,“ seg- ir í frétt frá Sparisjóðnum. „Hið nýja hús félagsins er hið glæsilegasta timburhús með mjög góðri aðstöðu innandyra. Húsið er lokaáfangi í uppbyggingu FFA við Drekagil að sinni,“ segir jafnframt í frétt frá Sparisjóði Norðlendinga. Styrkir FFA um eina milljón króna ÁGÚST Þór Árnason, verkefna- stjóri við Félagsvísinda- og laga- deild Háskólans á Akureyri, flytur í dag fyrirlestur á Lögfræðitorgi HA. Í erindi sínu ræðir Ágúst Þór um lögin út frá réttarfélagsfræðilegu sjónarhorni og leitar svara við því hvort lögin nái alltaf tilgangi sínum og hvort þau geti hugsanlega haft þveröfug áhrif við það sem ætlunin var. Fyrirlesturinn verður í stofu L201 Sólborg við Norðurslóð og hefst kl. 12. Áhrif og áhrifa- leysi réttarreglna BJÖRN Stefánsson, sem verið hefur grenjaskytta í rúman áratug, segir nánast engan mófugl lengur að finna í dölunum sem ganga inn úr Eyja- firði og kennir mávi um að miklu leyti. Hann segir stóra hópa máva mæta undir kvöld á varptímanum, og gæða sér á kræsingum, marga kíló- metra frá byggð. Björn er húsgagnasmíðameistari á Akureyri. Hann hefur lengi stund- að hefðbundnar veiðar og því fylgst með dýralífinu, og síðustu tólf árin hefur hann fengist við refaveiðar. Fimm grenjaskyttur hafa nú það hlutverk, á vegum sveitarfélaganna í firðinum, að halda lágfótu í skefjum. Tófan gýtur jafnan í maí og Björn og þeir félagar liggja á greni frá því í byrjun júní þar til snemma í júlí. „Þetta er akkúrat þegar mófuglinn byrjar að verpa.“ Hann nefnir lóu, spóa, stelk, þröst og þúfutittling. Tófan hirðir ýmis egg, m.a. frá gæsinni, og fjölda þrastarunga á degi hverjum. En þegar kemur fram í miðjan júní, þegar allir mófuglarnir eru byrjaðir að verpa, mæta mávarn- ir til leiks og taka völdin. „Þeir koma í stórum flokkum undir kvöld, 50–60 fuglar og labba svo í rólegheitum um móana, mjög skipulega, og éta eggin á staðnum. Þetta sér maður í öllum hliðardölum út frá Eyjafirði, meira að segja lengst inni í afdölum. marga kílómetra frá mannabyggð.“ Spurður um ástæðu þessa segir Björn: „Síðan lokað var á allan úr- gang frá frystihúsum og bræðslum hefur mávurinn þurft að leita annað eftir æti. Nú er líka ýtt daglega yfir öskuhaugana ofan Akureyrar og þar því minna að hafa en áður.“ Björn segir að þeir hafi orðið varir við þessi ferðalög mávanna fyrir nokkrum árum, og síðustu þrjú til fjögur ár hafi hreinlega ekki sést mó- fugl inn til dala. „Þar ómaði alltaf fagur fuglasöngur fyrir 10–15 árum en í dag heyrist ekki í fugli.“ Björn hefur lengi veitt rjúpu, og er á þeirri skoðun að rjúpnaskyttan sé jafnvel hengd fyrir mávinn eins og bakarinn fyrir smiðinn. „Ég efast ekki um að mávurinn finni rjúpuna eins og aðra fugla,“ segir hann og telur að mávi megi að einhverju leyti kenna um ástand rjúpnastofnsins. Fagur fuglasöngurinn heyrist ekki eins og á árum áður Mávur hefur útrýmt mófugli inn til dala Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Plága Björn Stefánsson við skrifborðið á verkstæði sínu. Hann telur að mávur hafi meiri áhrif á rjúpnastofninn en nokkurn grunar. »Björn segir máv búinn aðútrýma mófugli úr dölum Eyjafjarðar. Hann leiti annað í fæðuleit en áður og gangi ótrú- lega skipulega til verks. »Björn segir að tvö til þrjútófugreni finnist á ári í Eyjafirði og sífellt nær byggð. » „Manni finnast hettumávarstundum hálfsaklausir en þeir eru ótrúlega grimm kvik- indi og ég efast ekki um að þeir finni rjúpu eins og aðra fugla,“ segir Björn. Í HNOTSKURN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.