Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 41 menning rauða húsið Búðarstíg 4 820 Eyrarbakka raudahusid@raudahusid.is 483 3330 www.raudahusid.is 23. september: Valgeir Guðjónsson, Stuðmaður, Spilverksmaður og húmoristi af guðs náð leikur og syngur af fingrum fram. 7. október: Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson flytja fegurstu og eftirminnilegustu perlur Ellenar. 14. október: Guðlaug Dröfn syngur meðal annars lög hinnar dáðu Evu Cassidy. 21. október: KK flytur sín þekktustu lög sem þú vaknar yfirleitt með á heilanum á hverjum morgni, og nokkur fleiri í viðbót. 28. október: Kristjana Stefáns, hin dáða jazzsöngkona okkar sunnlendinga, flytur okkur í hæstu hæðir og leyfir okkur að vera þar. 4. nóvember: Hinar einu og sönnu Borgardætur, Andrea Gylfa, Ellen Kristjáns og Berglind Björk mála Eyrarbakka rauðan, ásamt Eyþóri Gunnarssyni, og hvorki Bakkinn né gestir munu verða samir á eftir. Matseðill: frá kl. 20.00 stundvíslega. sjávarréttasúpa rauða hússins langeldaður lambaskanki og íslenskur humar eða: stórlúðusteik og humarhali heimalagaður konfektbiti með jarðaberjum og rjóma kaffi Kr. 5.900,- pr.mann Kr.6.900,- 4.nóvember í Rauða húsinu Eyrarbakka Rafmagnslaust Á laugardagskvöldum í vetur verða rafmagnslausir tónleikar í Norðursal Rauða hússins á Eyrarbakka, með nokkrum af fremstu tónlistarmönnum landsins. Matreiðslumeistarar okkar hafa sett saman sérstak- lega girnilegan matseðil, sem stendur tónleikagestum til boða. Þú einfaldlega hringir núna í 483 3330 og pantar þér rafmagnslaust borð í Rauða húsinu – og nýtur kvöldsins með frábærum tónlistarmönnum í einstakri og rafmagnslausri nálægð. Hringdu núna í 483 3330 » 19. september heldur LiljaÁrnadóttur fyrirlestur sem kall- ast „Með silfurbjarta nál. Spor mið- alda í íslenskum útsaumi.“ » 3. október heldur GuðmundurÓlafsson fyrirlestur sem kallast „Baldursheimskumlið – myndir Arn- gríms málara.“ » 17. október heldur Þór Magn-ússon fyrirlestur sem kallast „Með gullband um sig miðja. Silfur og búningaskart.“ » 31. október er það fyrirlesturÁgústs Georgssonar, „Fagur fiskur í sjó. Sjávarhættir á grunn- sýningu Þjóðminjasafnsins.“ » 28. nóvember er komið að InguLáru Baldvinsdóttur, „Sérðu það sem ég sé? Ljósmyndir á grunn- sýningu Þjóðminjasafnsins.“ » Síðasta sérfræðileiðsögnin fyrirjól verður 12. desember í fylgd Þóru Kristjánsdóttur; „María guðs- móðir í Þjóðminjasafninu.“ Dagskráin fram að jólum ÞAÐ var greinilegt þegar gengið var inn í Laugardagshöllina síðastliðið laugardagskvöld að áhorfendur gerðu sér vonir um góða tónleika. Það lá spenna og eftirvænting í loftinu enda er mörgum í fersku minni vel- heppnaðir tónleikar Nick Caves á Hótel Íslandi fyrir fjórum árum. Áhorfendur byrjuðu að tínast inn í salinn undir átta en illa gekk að fá fólk til þess að setjast og var klukkan farin að ganga níu þegar ljósin voru loksins slökkt. Kyrrð færðist yfir sal- inn og hljómsveitin gekk inn og tók upp hljóðfærin sín. Einhver vandræði voru með hljóðið á fiðlunni í fyrstu og heyrðust aðeins rafmagnaðir skruðn- ingar úr hátalarakerfinu. Eftir augnabliks vandræðaástand braust út hlátur í salnum sem gaf fyrirheit um afslappaða og góða stemningu. Þegar hljóðið var komið í lag á fiðl- unni byrjaði hljómsveitin á forspili og Cave gekk í salinn, stillti sér upp við flygilinn og byrjaði að hamra hljóm- borðið. Cave náði strax góðu sam- bandi við áhorfendur og hvatti hann fólk til þess að biðja um lög. Milli laga mátti heyra áhorfendur kalla nöfnin á hinum og þessum lögum úr salnum en greinilegt var að Cave ætlaði alls ekki að fara að óskum áhorfenda heldur ætlaði hann að halda sig við eigin lagalista því hann svaraði að bragði „við getum spilað það, við get- um spilað fjandans hvað sem er“ en síðan renndi hann sér í lag af eigin lista. Með Nick Cave var hljómsveit skipuð meðlimum úr hljómsveitinni Bad Seeds, þeim Martyn P. Case á bassa, trommuleikaranum Jim Scav- unos og Warren Ellis á fiðlu. Bassa- leikur Case var þéttur og trommu- leikur Scavunos hreint frábær. Saman mynduðu þeir þéttan bak- grunn fyrir frjálslegan fiðluleik Ellis og píanóleik Caves. Ellis spilaði á fiðl- una eins og rafmagnsgítar milli þess sem hann brá henni undir vanga og strauk með fiðluboganum og voru hljóðin sem hann framkallaði hreint ótrúleg. Cave veit hvernig á að skemmta áhorfendum og renndi í gegnum mörg af sínum bestu lögum, eins og „The Ship Song“, „Wonderful Life“, „The Weeping Song“ og „The Mercy Seat“. Það var greinilegt að áhorf- endur þekktu lögin og fór fagn- aðarkliður um salinn á undan hverju lagi. Cave virkaði mjög afslappaður á sviðinu og þó svo að hljómsveitin sé greinilega mjög samæfð voru útsetn- ingar og hljóðfæraleikur oft mjög frjálslegur. Cave sat lengst af við flygilinn en átti það til í miðju lagi að spretta upp og grípa rafmagnsgít- arinn og spila aðeins á hann áður en hann settist aftur við flygilinn og kláraði lagið. Eftir nær tveggja tíma spil þakkaði Nick Cave fyrir og yfirgaf sviðið en áhorfendur voru ekki á því að leyfa honum að sleppa og klöppuðu vel og lengi þar til hann steig aftur á svið. Áður en hann hóf að spila aukalögin hvatti hann áhorfendur til þess að annaðhvort standa upp og dansa eða taka undir sönginn. Það voru ekki margir áhorfendur sem stigu dans en hins vegar tók allur salurinn undir og söng á móti Cave línuna „O mama“ úr laginu „The Lyre of Orpheus“. Cave flutti fimm aukalög áður en hann þakkaði fyrir sig í annað sinn. Enn var klappað en áhorfendur voru þó eitthvað óöruggir því sumir byrjuðu að ganga að útgöngudyrunum. En Nick Cave var ekki hættur, heldur steig hann aftur á svið og sagði „þið þurfið ekki að vera hér, þið megið fara ef þið viljið“ áður en hann skellti sér í lokalagið. Að loknum frábærum tónleikum kvaddi Nick Cave áheyr- endur með orðunum: „Þið eigið frá- bært land, farið og njótið lífsins.“ „Við getum spilað fjandans hvað sem er“ Morgunblaðið/Árni Torfason Hjónaást Nick Cave tileinkaði lagið „Babe you turn me on“ konunni sinni sem átti afmæli tónleikadaginn. TÓNLIST Laugardalshöll Tónleikar Nick Cave og félaga í Laug- ardalshöll laugardaginn 16. september sl. Auk Cave, sem söng og lék á píanó og rafgítar, komu fram Martyn P. Case á bassa, trommuleikarinn Jim Scavunos og Warren Ellis á fiðlu Nick Cave  Lárus Blöndal BRYDDAÐ verður upp á nýbreytni í starfsemi Þjóðminjasafns Íslands í vetur sem felst í sérfræðileiðsögn um safnið. Sérfræðingar safnsins, sem búa yfir margra ára reynslu og mikilli þekkingu, leiða áhuga- sama gesti um valda hluta grunn- sýningarinnar eða sérsýningar sem í gangi eru hverju sinni. Boðið verður upp á slíka leiðsögn í há- deginu annan hvern þriðjudag. Jafnframt verður áfram boðið upp á almenna leiðsögn um grunnsýn- ingu Þjóðminjasafnsins í vetur alla sunnudaga kl. 14 á Íslensku og alla laugardaga kl. 14 á ensku. Um síðustu helgi var opnuð sýn- ing í Bogasalnum á veggtjöldum og reflum fyrri alda. Lilja Árnadóttir sýningarhöfundur og fagstjóri munasafns Þjóðminjasafnsins fylgir opnuninni eftir í dag, 19. sept- ember, með leiðsögn um sýn- inguna. Eins og alltaf hefst leið- sögnin kl. 12.10 og tekur 35-45 mínútur. Vetraropnunartími Þjóðminja- safnsins hófst sl. laugardag og í vetur verður opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Þjóðminjasafnið var eitt þriggja safna sem hlutu sérstaka við- urkenningu sem eitt af bestu söfn- um Evrópu árið 2006. Til greina komu ný eða endurnýjuð söfn og hlaut Þjóðminjasafnið viðurkenn- ingu fyrir vel heppnaða end- ursköpun á sýningum og starfsemi safnsins. Sérfræðileiðsögn um Þjóðminjasafnið Morgunblaðið/Golli Sérfræðileiðsögn Sérfræðingar lóðsa gesti um Þjóðminjasafnið. ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Warner og hin vinsæla myndbandadreifing- arvefsíða YouTube hafa gert með sér samkomulag um dreifingu á tón- listarmyndböndum á vegum Warner á vef YouTube. Samningurinn kveður á um að Warner njóti hluta þeirra auglýs- ingatekna sem aflað er við sýningar efnis sem Warner á flutningsréttinn á. YouTube vefurinn er einn vinsæl- asti staðurinn á netinu í dag, en upp- haflega var vefnum ætlað að gera netnotendum kleift að skiptast á stuttum myndskeiðum. Mikið hefur borið á að upptökur af sjónvarps- þáttum og tónlistarmyndböndum hafi ratað inn á YouTube með ólög- legum hætti, þannig að eigendur flutningsréttar hafa ekki fengið greitt fyrir sýningar gegnum vefinn. Nú síðast hótaði útgáfurisinn Uni- versal málsókn gegn YouTube yrði ekki bundinn endir á dreifingu sjó- ræningjaupptakna gegnum síðuna. Með samningi Warner og You- Tube tryggir Warner sér einhverjar tekjur af sýningu efnis á vefsvæðinu, og YouTube trygggir sér góðan að- ganga að því ógrynni tónlistarmynd- banda sem framleitt er á vegum Warner. Warner og YouTube semja um dreifingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.