Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 43
menning
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Terra Nova býður einstakt tækifæri
til að njóta haustsins við góðan að-
búnað í þessari skemmtilegu borg á
frábærum kjörum. Tallinn býður allt
það helsta sem fólk sækist eftir í
borgarferð; fallegar byggingar, ótel-
eljandi veitingastaði, fjörugt nætur-
líf, úrval verslana og mjög gott
verðlag. Gisting á frábærum kjörum
á Hotel Domina Inn Llmarine, ný-
tískulegu og fallegu fjögurra stjörnu
hóteli með góðum aðbúnaði og
þjónustu. Fjölbreytt gisting í boði.
frá Kr.49.990
M.v. 2 í herbergi í 4 nætur á Hotel Domina Inn
Ilmarine **** með morgunverði, 18. október.
Netverð á mann.
Tallinn
18. október
Glæsileg helgarferð
frá kr. 49.990
Hotel Domina Inn Ilmarine ****
- SPENNANDI VALKOSTUR
listin er þvílíkt að gera sig um leið.
Peaches hefur verið sett í hóp elekt-
róklass-listamanna, þar sem bitum
úr gömlu nýbylgjurokki og pönki er
sullað saman við raftónlist, og út-
koman oft vísvitandi „cheesy“ (nú
vantar gott íslenskt orð; lummu-
leg?).
Peaches sækir auk þess í hipp-
Jæja, eins og sjá má heldur mað-ur ótrauður áfram með ódýrufyrirsagnakeppnina. En all-
tént, ég smellti mér á tónleika með
Peaches hér í Berlín um daginn, á
hinum dásamlega tónleikastað
Postbahnhof.
Þar sá ég og Wilco síðasta haust
og ég held að ég hafi aldrei upplifað
betri hljóm í tónleikasal. Postba-
hnhof er fyrsta stopp fyrir virtar,
meðalfrægar sveitir; listamenn sem
eru við það að slá í gegn eða eru
sjóðandi heitir og í umræðunni.
Þetta er sá staður sem hýsti Franz
Ferdinand stuttu eftir fyrstu plöt-
una.
Ég var því pínu hissa þegar égfrétti að Peaches ætti að spila
á staðnum. Ég hélt að hún væri
meira „költ“ en staðarvalið hlýtur
þá að renna stoðum undir það, að
vinsældir hennar séu að aukast. Það
er eiginlega lítið hægt að segja um
tónleikana, annað en þetta: Peaches
er kúl. Og þá meina ég, Peaches er
KÚL. Tónleikarnir voru algjör
snilld.
Peaches, sem gaf nýverið út
þriðju plötu sína, Impeach my Bush,
hefur frá fyrstu tíð leikið sér að því
að ganga fram af fólki og setja með
því viðteknar hugmyndir í uppnám.
Kynlíf og kynímyndir eru henni sér-
staklega hugstæð, sjá t.d. snilld-
arlegan titil á plötu númer 2, Fat-
herfucker, en þar er söngkonan á
umslaginu, alskeggjuð. Helsti slag-
ari Peaches er þá lagið „Fuck the
Pain Away“, sem var að sjálfsögðu
flutt með miklum bravúr um kvöld-
ið. Margir af textum hennar, og
lagatitlum ef út í það er farið, eru þá
vart prenthæfir.
Peaches myndi seint teljast kyn-
æsandi – og þó. Hún er kraftalega
vaxin, en sviðsframkoman er sveitt
og tilburðir hennar á sviði vel fallnir
til að koma fólki í gang. Undir enda
tónleikanna var Peaches í litlu öðru
en pínunærbuxum og brjóstahald-
ara.
En það er ekki nóg með að hug-myndafræðin og boðskap-
urinn sé á hreinu hjá Peaches, tón-
hopp af gamla skólanum og hreint
(eða öllu heldur skítugt) rokk og ról.
Eins og segir virðist vegur Peaches
fara vaxandi. Þannig er hún komin
með hljómsveit sér til fulltingis,
nokkuð sem gaf tónleikunum aukna
fyllingu.
Listræn heilindi eða hráleiki
söngkonunnar beið ekki hnekki við
þetta. Þá er vert að geta upphit-
unaratriðisins, Planning to Rock.
Um var að ræða stúlku eina, sem
blandaði haglega saman mynd-
skeiðum, tónlist og dansi; á vissan
hátt af Peaches-skólanum þó að efn-
istök væru önnur.
Eitt af því skemmtilega við aðfara á tónleika er að velta lýð-
fræðinni fyrir sér, þ.e. skiptingu
áhorfendafjöldans. Hann segir oft
mikið um listamennina sjálfa. Hér
voru „hipsterar“ (svala fólkið) Berl-
ínar mættir unnvörpum nema hvað;
New York-vinkillinn á hreinu. En
einnig mátti sjá harða Peachesaðdá-
endur, fólk sem hefur gripið þessa
ögrun hennar á lofti og end-
urspeglar það svo í klæðaburði og
almennu háttalagi. Svalar lesbíur
streymdu þá í salinn í miklum mæli,
og það gladdi mitt mjög svo for-
dómalausa hjarta. Það hefði verið
gaman að hafa Snorra í Betel og fé-
laga þarna með sér. Þeir, og margir
fleiri, hefðu haft gott af einni
kennslustund með Peaches (sem var
NB kennari og bókasafnsfræðingur
áður en hún hellti sér út í tónlistina).
Ferskar
ferskjur
Á nærfötunum Peaches myndi seint teljast kynæsandi – og þó.
arnart@mbl.is
AF LISTUM
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
Á LJÓSANÓTT í Reykjanesbæ var
opnuð sýningin Prójekt Pattersson á
vegum hins framsækna gallerís
Suðsuðvestur í samvinnu við Lista-
safn Reykjanesbæjar. Á opnun fóru
fram tónlistaratriði, sundballett og
gjörningar í aflagðri sundhöll bæj-
arins sem einnig hýsir stóran part af
þeim myndlistarverkum sem á sýn-
ingunni eru. Önnur verk eru í sýn-
ingarsal Suðsuðvesturs, á gafli tón-
listarskólans og við Rockville á
Miðsnesheiði. Myndlistarmennirnir
sem eiga verk á sýningunni eru
Didda Hjartardóttir, Dodda Maggý,
Elsa D. Gísladóttir, Erling Klingen-
berg, Finnur Arnar Arnarson,
Gunnhildur Hauksdóttir, Hekla
Dögg, Helgi Þórsson, Inga Þórey
Jóhannsdóttir, Kolbeinn Hugi, Ólöf
Helga Helgadóttir, Páll Thayer,
Ráðhildur Ingadóttir og Sólveig
Einarsdóttir. Sýningin fjallar um
þau tímamót sem nú eru þegar
bandaríski herinn hefur yfirgefið
landið og veltir m.a. upp þeirri
spurningu hvort hin amerísku áhrif
sem þeim fylgdu muni halda velli.
Margir listamannanna beina sjónum
sínum að þeim efnahags- og menn-
ingaráhrifum sem vera hersins
höfðu á land og þjóð en ekki síst í
nánasta umhverfi hans sem var á
Suðurnesjum. Hekla Dögg á
skemmtilegt og seiðandi verk í sund-
lauginni sjálfri þar sem hún hefur
fleytt þúsundum álkróna sem voru í
umferð hér sællar minningar á verð-
bólguárunum. Krónurnar voru
hæddar á sínum tíma fyrir smæðina
og efniviðinn og kallaðar flotkrónur.
Í sundlauginni sökkva þær ann-
aðhvort til botns eða fljóta og
grúppa sig saman í lítil eylönd úr áli.
Það má segja að peningarnir leiti
þangað sem þeir eru fyrir og verkið
sýni fram á að það er hreint og klárt
náttúrulögmál sem stjórnar þessu.
Gunnhildur Hauksdóttir er með
óvenju nærgöngula innsetningu sem
fjallar um „ástandið“, meintar kana-
mellur og ástandsbörn. Hún dregur
upp mynd af Íslandi sem litlu
(ástands)barni með túttu og nafla-
streng sem er enn fastur við Banda-
ríkin í hinni langdregnu fæðingu
þjóðarinnar inn í samtímaveruleika
kapítalisma vesturlanda. Kolbeinn
Hugi er einnig upptekinn af fæðing-
arhugmyndum í grótesku tölvuunnu
myndbandi af honum sjálfum með
stóra genitalíu að fæða bjórdós, sem
hann síðan drekkur úr eftir átökin.
Þetta verk felur í sér, fyrir utan aug-
ljósar tengingar við þema sýning-
arinnar, skopstælingu á heimspeki-
legum hugmyndum listheimsins um
sköpun. Nietzsche sagði að til væru
tvær gerðir af listamönnum, þeim
sem vildu geta af sér og þeim sem
vildu frjóvgast og fæða af sér. Tími
rómantíkeranna er sagður liðinn og í
stað listamanna eins og Renoirs,
sem sagðist mála með skaufanum, er
núna eftirsóknarverðast að skrifa
með „kvenlíkamanum“ fyrir bæði
kynin. Dodda Maggý á mjög áhrifa-
ríkt myndbandsverk í sýningarsal
Suðsuðvesturs þar sem sakleysi
bernskunnar verður tvírætt, ekki
síst þegar fullorðnir leika sem börn
og hefðbundin siðferðismörk verða
óljós. Herinn og áhrif hans í Kefla-
vík á sína stærstu birtingarmynd í
augum þjóðarinnar og tengingar
hennar við útlönd í staðsetningu
flugvallarins þar. Hestakerra Ingu
Þóreyjar sem staðsett er fyrir utan
sundhöllina er orðin að eins konar
flughermi sem virkar ótrúlega sann-
færandi, sérstaklega í slagviðri.
Ekki er hægt að telja upp öll verkin
á sýningunni hér en í heild er hún
skemmtileg og fersk og óhætt að
segja að framtakið sé aðstandendum
hennar til sóma þótt nokkuð hafi
skort á upplýsingar til hins almenna
sýningargests. Ástæða er til að
hvetja fólk, ekki síst heimamenn, til
að skoða sýninguna en eins og reyk-
merki Elsu Dóróteu á opnun þýddu
„Hér er allt í lagi“ þá er ekkert að
óttast við samtímalistina þótt tungu-
tak hennar sé frábrugðið hefð-
bundnum myndverkum. Það er alla
vega hægt að finna áhugaverð um-
ræðuefni á þessari sýningu.
Fljótandi „Hekla Dögg á skemmtilegt og seiðandi verk í sundlauginni
sjálfri þar sem hún hefur fleytt þúsundum álkróna sem voru í umferð hér
sællar minninga á verðbólguárunum.“
Flotkrónur og fæðing þjóðar
MYNDLIST
Suðsuðvestur
Sýningin stendur til 24. september.
Opið laugardaga og sunnudaga frá kl.
13–18.
Prójekt Pattersson
Þóra Þórisdóttir
» Peaches, sem gaf ný-verið út þriðju plötu
sína, Impeach my Bush,
hefur frá fyrstu tíð leik-
ið sér að því að ganga
fram af fólki og setja
með því viðteknar hug-
myndir í uppnám.