Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.09.2006, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Einar Sig-urjónsson fædd- ist á Unnarsstíg 3 í Hafnarfirði 7. ágúst 1924. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi 10. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Steinþóra Þor- steinsdóttir, f. 4.6. 1883, d. 8.2. 1945, og Sigurjón Arn- laugsson, f. 15.7. 1877, d. 10.12. 1959. Einar var yngstur 12 systkina sem öll eru látin. Einar kvæntist 27. júlí 1946 eft- irlifandi konu sinni Bryndísi Elsu Sigurðardóttur, f. 12.11. 1922. Börn þeirra eru: 1) Steinþór Ein- Primel, f. 14.12. 1979, barn henn- ar er Camilla Mist Primel, f. 23.8. 2004. 2) Guðný Elísabet Ein- arsdóttir, f. 25.3. 1956. Maki I: Sö- ren Sigurðsson, f. 14.7. 1956. Þau skildu. Sonur þeirra er Sigurður Sörensson, f. 20.9. 1976. Maki II: Einar Eyjólfsson. Börn þeirra eru Einar Már Einarsson, f. 22.4. 1983, Inga Lilja Einarsdóttir, f. 16.2. 1986, Júlíus Birkir Ein- arsson, f. 21.9. 1990, og Bryndís Ingibjörg Einarsdóttir, f. 9.8. 1993. Einar bjó alla sína tíð í Hafnar- firði. Hann tók sveinspróf í hár- skurði 1946 og stundaði iðn sína alla tíð eftir það. Einar var með rakarastofu á Strandgötu 9 í Hafnarfirði í 45 ár. Einar var heiðursmeðlimur Lúðrasveitar Hafnarfjarðar. Útför Einars verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13. arsson, f. 15.1. 1952, maki I: Katrín Sig- urrós Óladóttir, f. 21.10. 1953. Þau skildu. Dóttir þeirra er Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir, f. 21.6. 1973, maki Bjarni Sveinsson, f. 6.12. 1972. Dætur þeirra eru Katrín Alda Bjarnadóttir, f. 9.9. 1996, og Thelma Karen Bjarnadóttir, f. 12.5. 2002. Maki II: Sylvie Primel. Börn þeirra eru Elsa Nadsja Primel Steinþórsdóttir, f. 7.3. 1993, og Máni Emeric Primel Steinþórsson, f. 22.10. 1997. Fósturdóttir Stein- þórs og dóttir Sylvie er Ganaëlle Elsku pabbi minn, nú ertu farinn frá okkur eftir erfið veikindi síðustu daga. Nú hefurðu fengið kærkomna hvíld sem þú áttir svo sannarlega skilið. Það er mikill söknuður hjá mér og minni fjölskyldu. Nú verða ekki fleiri ferðir upp á Sólvang og þykir mér það miður. Mikið var gam- an í sumar þegar við fjölskyldan héldum upp á 60 ára brúðkaupsaf- mælið ykkar mömmu og þú lékst á als oddi. Nú þegar þú ert farinn þá koma allar skemmtilegu minning- arnar upp í kollinn á manni, vegna þess að þú varst svo mikill grallari, alltaf svo stutt í grínið hjá þér. Þess- ar minningar ætla ég að geyma mjög vel í huga og hjarta mér. Hvíl í friði, elsku pabbi minn og hafðu þökk fyrir allt og allt. Legg nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer, sitji Guðs englar yfir mér (Hallgr. Pét.) Þín dóttir Guðný Elísabet Einarsdóttir. Það ríkti mikill friður yfir þér þeg- ar kallið kom. Hvíldin var því örugg- lega kærkomin. Þú veiktist á mið- vikudegi og lést aðfaranótt sunnu- dags. Við fengum dýrmætan tíma til að kveðja þig. Alla tíð hefur verið einstakt samband á milli okkar og þið amma skipað stóran sess í hjarta mínu. Ég var mikið hjá ykkur sem barn og þið dekruðuð við mig. Við spiluðum á spil eða spjölluðum sam- an. Þú svindlaðir stundum og við höfðum bæði gaman af. Það spillti ekki að eiga afa sem spilaði á túbu í Lúðrasveit Hafnarfjarðar og þegar kom að hátíðisdegi og skrúðganga fór um bæinn, hljóp ég fremst til að vera við hlið þér. Þú spilaðir líka á harmoniku í gamla daga á böllum og gjarnan spilaðir þú gamla standarda á píanóið mitt. Það var stíll yfir þér þegar þú sast við píanóið og spilaðir eftir eyranu, þú lékst af fingrum fram. Stundum fékk ég að hjálpa þér að taka til í Bæjarbíói en líklega söng ég meira fyrir þig og dansaði heldur en að gera gagn. Og hvað þú varst þolinmóður að lofa mér að hanga hjá þér á rakarastofunni. Það var oft gaman að hlusta á þig spjalla við við- skiptavinina á meðan þú varst að klippa. Þú vildir vera fínn til fara og varst alltaf með bindi. Það var líka sérstök afalykt af þér. Við gátum hlegið mikið saman og þú varst svo mikill húmoristi. Þú gast endalaust rifjað upp einhver skemmtileg atvik og svo hlóst þú manna mest og hæst að þeim. Þú kallaðir mig ,,dudduna“ þína og mér þykir óendanlega vænt um það orð, þú máttir ekki kalla neinn annan því nafni, þá varð ég af- brýðisöm. Mig langar að þakka starfsfólki Sólvangs á þriðju hæðinni fyrir að hugsa einstaklega vel um þig. Elsku afi minn, við Bjarni, Katrín Alda og Thelma Karen kveðjum þig með uppáhaldsbæninni minni um leið og ég bið Guð að blessa ömmu og gefa henni styrk í sorginni. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir. Kæri Einar minn, nú kveður þú, síðastur af tólf systkinum og eflaust hvíldinni feginn. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast svo frábærum frænda og minnist allra þeirra skemmtilegu samverustunda með þér og fjölskyldu þinni í gegnum tíð- ina. Þú og pabbi heitinn, sem voruð yngstir í þessum stóra systkinahópi, voruð sérstaklega nátengdir í mörgu sem gert var á ykkar yngri árum og fjölskyldutengslin mikil alla tíð. Það var alltaf tryggt að þegar Einar og fjölskylda komu í heimsókn til okkar eða við til þeirra var glatt á hjalla. Frásagnargleði Einars var svo mikil og hann átti alltaf svo auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar á lífinu. Strax sem strákur varð ég heillaður af þessu létta fasi sem Einar bjó yfir og svo dró ekki úr ánægjunni að hafa hana Elsu, eiginkonu hans, nærri, með sína hlýju og sín hnyttnu inn- skot í frásagnir hans eða samræður. Þá má ekki heldur gleyma því hversu mikið var spilað og sungið þegar hist var í boðum og þá sá Einar oftast um undirspilið á píanó eða harmóniku. Það var á þeim tíma þegar fjölskyld- ur hittust um helgar og á hátíðisdög- um, í alvöru kaffiboðum, þar sem fólk skemmti sér við söng og leiki. Þá minnist ég þess hversu gaman Einar hafði af því að tefla og þá þurfti það alltaf að heita hraðskák. Lengi vel átti hann auðvelt með að hafa mig undir í þeim leik, en til að sporna við slíku fór ég að kynna mér skákbyrjanir sem dugðu oft vel í tafl- mennskunni við Einar. Það er sama hvert ég læt hugann reika um samverustundir okkar, allt- af kemur hlýja og ánægja fram í hugskoti mínu. Þá hefur ekki verið ónýtt að geta staðfært tengsl föður- ættar minnar í lífi Hafnarfjarðar í samræðum við Hafnfirðinga, með því eingöngu að nefna Einar rakara. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, Einar minn. Blessuð sé minning þín. Elsku Elsa mín, Steinþór og Guðný. Ég sendi ykkur mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Friðrik S. Kristinsson. Elsku Einar frændi. Nú ert þú bú- inn að kveðja þetta líf, síðastur af 12 systkinum. Það er ekki lítill hópur og öll þessi systkini spiluðu á hljóðfæri og sungu mikið. Hér sitjum við saman frænkurnar að skrifa nokkrar línur til þín í kveðjuskyni og þá eru ótal minning- ar sem sækja á hugann. Þú varst svo mikill gleðigjafi og sagðir svo skemmtilega frá. Enda hlógum við svo mikið stundum að það var farið að gæta að hvort ekki væri allt í lagi með okkur. Oftast var farið á Unnarstíginn á sunnudögum til afa og ömmu. Amma söng mikið og hún kunni líka ókjör af gamanvísum sem systkinin lærðu, einkum elsta dóttirin. Þar var spilað á tvær harmonikur, orgel, gítar og trompet og sungið dátt. Einar og Kristinn bróðir hans voru á sama aldri og við elstu barnabörnin, enda mikill vinskapur hjá okkur í gegnum árin eins og hjá fjölskyldunni allri. En svona líður ævin og nú ertu kominn til foreldra þinna og allra systkinanna og þar hefur vísast verið vel tekið á móti þér. Og þú áreið- anlega farinn að spila á nikkuna eða eitthvert annað hljóðfæri. Þú varst heppinn með þinn lífs- förunaut, eignaðist elskulega konu og tvö yndisleg börn. Sonurinn allur í músíkinni eins og þú og dóttirin vakin og sofin yfir velferð ykkar. Hvað er hægt að hugsa sér betra? Að leiðarlokum viljum við færa þér bestu þakkir fyrir samfylgdina og kveðjum elskulegan frænda með þakklæti og söknuði. Lilja, Soffía og Svava. Einar frændi er dáinn. Mig langar að minnast hans með nokkrum lín- um. Ég man alltaf þegar öll fjölskyld- an kom saman á Kaplaskjólsvegin- um hjá pabba og mömmu, þá var oft glatt á hjalla, sungið og spilað á gamla orgelið, jólalög spiluð og ann- Einar Sigurjónsson Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA S. JÓHANNSDÓTTIR, Fornhaga 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 21. september kl. 15.00. Ásgeir Sæmundsson, Sæmundur Ásgeirsson, Steinunn Jóhannsdóttir, Ásdís Ásgeirsdóttir, Helgi Árnason, Haukur Ásgeirsson, Ásdís Pálsdóttir, Anna Guðný Ásgeirsdóttir, Bjarni Á. Friðriksson, Hafdís Ásgeirsdóttir, Gyða Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HARRÝ HERLUFSEN hárskerameistari, Tjæreborg, Danmörku, áður búsettur í Hafnarfirði og á Ísafirði frá 1933-1959, andaðist föstudaginn 15. september sl. á Tjæreborg ældre senter. Auður Herlufsen (Stígsdóttir), Stígur Herlufsen, Þorbjörg Samúelsdóttir, Sigurður Herlufsen, Sigríður R. Bjarnadóttir, Frank Herlufsen, Harrý Herlufsen, Ingibjörg Jónsdóttir, Benjamín Herlufsen, Sólveig Ettrup, Haldor Ettrup, Hanna Rosa Herlufsen, og afkomendur þeirra. Elskulegur sonur okkar, KÁRI BREIÐFJÖRÐ ÁGÚSTSSON, varð bráðkvaddur föstudaginn 15. september. Fyrir hönd aðstandenda, Kolbrún Ólafsdóttir, Hörður Eiðsson, Ágúst Elbergsson, Árný B. Kristinsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA EINARSDÓTTIR, Miðvangi 41, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 15. september. Ólafur Guðbjörnsson, Guðbjörn Ólafsson, Ásta María Janthanam, Anna Elísabet Ólafsdóttir, Kristján Sigurmundsson, Ólafur Rúnar Ólafsson, Oddný Kristinsdóttir, Helgi Þór Ólafsson, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Einar Örn Kristinsson, Áslaug Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN GUÐLAUGUR KRISTINSSON, Hringbraut 107, Reykjavík, lést laugardaginn 16. september á deild 13E á Landspítala við Hringbraut. Svanborg Birna Guðjónsdóttir, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir Guðjón Gunnarsson, Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, Hildur Halldórsdóttir, Gyða Rut Guðjónsdóttir, Karen Birna Guðjónsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir og Halldór Andri Kristinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.