Morgunblaðið - 19.09.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 17
ÞAÐ ER mikill hvalreki fyrir list-
unnendur að fá Pinu Bausch, Tanzt-
heater Wuppertal til landsins.
Flokkurinn er bókaður mörg ár fram
í tímann víðsvegar um heim. Í
Folkwang-ballettskólanum í Essen í
Þýskalandi, þar sem Bausch hóf sitt
dansnám, var boðið upp á ýmsar list-
greinar jafnhliða klassískum ballett.
Listgreinar sem ásamt dansinum
áttu eftir að mynda heildina í dans-
leikhúsi hennar. Í dag liggja eftir
Pinu Bausch dansverk á fjórða tug
talsins. Listfengi flokksins býr ekki
síst í dönsurunum sem hafa frjálsar
hendur til sköpunar. Þeir koma frá
öllum heimshornum með ólíkan
menningarbakgrunn og eru hug-
myndir þeirra litríkar eftir því. Ein-
hverju sinni sagði Bausch að hún
hefði ekki áhuga á hvernig dansari
hreyfði sig heldur hvað hreyfir dans-
arann. Senurnar í verkum hennar
byggjast þess vegna oftar en ekki á
persónulegri upplifun dansaranna
sjálfra. Verk Bausch eru rétt eins og
lífið sjálft, viðkvæm, klók og ófyr-
irsjáanleg. Sýningarnar eru ein-
stakar að því leyti að hver og einn
áhorfandi fær frelsi til að bregðast
við því sem hann upplifir. Það er eng-
in furða að áhorfendur í Wuppertal
hafi orðið hvumsa á áttunda áratugn-
um þegar þeir börðu fyrstu sýningar
hennar augum. Í þeim var hvergi það
haldreipi sem klassíski ballettinn
hafði. Hvorki söguþráður né heil brú
til að styðjast við. Verkunum var
vægast sagt illa tekið í byrjun.
Áhorfendur eru löngu hættir að
hneykslast á verkum Bausch. Í dag
er hún álitin snillingur og er einn
mesti áhrifavaldur okkar tíma í
sviðslistum. Sagt hefur verið að hún
sé krókódíllinn meðal svananna í
Svanavatninu. Tanztheater Wupper-
tal sýnir samtals fjórar sýningar á
verkinu Áqua í Borgarleikhúsinu.
Verkið er samvinnuverk Dansleik-
hússins frá Wuppertal og brasilískra
listamanna. Flokkurinn kemur hing-
að frá Porto Alegre í Brasilíu og
heldur heim til Wuppertal að sýn-
ingum loknum. Hann sýnir í Madrid
og New York síðar á árinu. Tuttugu
dansarar taka þátt í Áqua og tæp-
lega þrjátíu manns sjá um aðrar hlið-
ar svo sem sviðsmynd, lýsingu, bún-
inga og tilheyrandi tæknivinnu.
Sviðsmyndin í verkinu sam-
anstendur af hljóðnema framarlega
á sviðinu og blaktandi pálmatrjám
sem varpað er á allan sýningarflöt-
inn. Verkið hófst á pari sem át app-
elsínur af áfergju, konan sagði frá
krampa sem vakti hana upp um nótt.
Hún stóð upp og horfði út um
gluggann á stjörnurnar og virti fyrir
sér undurfallegan himininn. Fór aft-
ur í rúmið og þakkaði guði fyrir
krampann. Kona í gylltum kjól kom
inn og dansaði fallega undir blakt-
andi pálmum sem fylltu sviðið. Eitt
atriði leiddi af öðru og myndarlegir
karlmenn og gullfallegar konur í síð-
kjólum og háhæluðum skóm dönsuðu
og léku á víxl. Stólar og sófar í anda
verka Bausch komu og fóru og elt-
ingarleikir og skemmtilegar uppá-
komur voru á sínum stað. Leik-
húsgestum var boðið upp á drykk og
tóku jafnframt þátt í nokkrum atrið-
um að hætti Bausch. Minnisstæður
er fallega tragíkómískur kafli þar
sem kona sagði frá því sem hana
langaði að gera, dálítið brjálað en
óframkvæmanlegt að hennar mati.
Hún þuldi upp ýmsar hugmyndir og
fékk bræðisköst þess á milli. Hug-
myndir hennar spruttu út frá dauð-
um hlutum en enduðu á hennar eigin
persónu og þeim takmörkunum sem
hún bjó sér. Við það flúði hún af
hólmi og hljóp um sviðið. Ungur agn-
arsmár kvendansari dansaði af til-
þrifum í gleðivímu undir mynd af
bátum í ólgusjó. Hún var klædd vín-
rauðum kjól með mikið sítt svart hár.
Það var alveg ljóst hvað hreyfði þann
dansara, gleðin í henni bókstaflega
kastaði henni um sviðið. Áqua er
undir sterkum brasilískum áhrifum.
Suðræna tónlistin, pálmarnir og risa-
vöxnu gúmmíplönturnar að
ógleymdri breytilegri myndinni sem
varpað var á sýningarflötinn fylltu
vitin af Brasilíu. Dansararnir búa yf-
ir ágætis danstækni og reyndi nokk-
uð á hana í verkinu. Í dansflokki
Pinu Bausch eru engir tveir eins.
Styrkleiki flokksins býr meðal ann-
ars í ólíkri gerð dansaranna, útliti
þeirra, misjöfnum aldri og menning-
arbakgrunn. Alltaf bar eitthvað nýtt
og spennandi við í verkinu svo at-
hyglinni var haldið óskertri allan
tímann. Það var ljúft að hrífast með
dönsurunum í gleðinni yfir vatninu í
lok verksins. Áhorfendur kunnu vel
að meta snilldina í sýningu kvöldsins
og var Bausch og dansflokki hennar
klappað stíft lof í lófa ásamt viðeig-
andi húrrahrópum í lokin. Unnendur
lista ættu ekki að láta þetta verk
framhjá sér fara. Hér er stór list-
viðburður á ferð.
Morgunblaðið/Golli
Vel heppnað „Unnendur lista ættu ekki að láta þetta verk fram hjá sér fara. Hér er stór listviðburður á ferð,“ seg-
ir Lilja Ívarsdóttir gagnrýnandi um sýninguna Áqua, sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu.
Vatn á myllu danslistar
DANSLIST
Borgarleikhúsið
Pina Bausch og Tanztheater Wuppertal.
17. september klukkan 20.
Áqua
Lilja Ívarsdóttir
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Fréttir á SMS
Fréttir í tölvupósti
REYKJAVÍK, 15.–22. SEPTEMBER
www.reykjavik.is
EVRÓPSK
SAMGÖNGU-
VIKA
LOFTSLAGSBREYTINGAR
Reykjavíkurborg tekur nú, fjórða árið í röð, þátt í Evrópsku Samgöngu-
vikunni. Þema Samgönguvikunnar í ár er loftslagsbreytingar og mun
dagskrá vikunnar taka mið af því. Leiðarljós Samgönguviku er hreint loft
og verður lögð áhersla á hvernig val á samgöngumáta hefur áhrif á
umhverfi, heilsu og borgarbrag.
Þriðjudagur 19. september
12.00 Heilsa og samgöngur. Hádegisfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Munu fleiri Reykvíkingar velja sér samgöngumáta með heilsufarslegan
ávinning í huga? Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar er að hjólreiða- og
göngufólk verði sýnilegra í umferðinni.
Frummælendur: Dagur B. Eggertsson læknir, Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona og Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs.
Fundarstjóri er Sigmar Guðmundsson.
Fyrir utan Ráðhúsið sýna bílaumboð visthæfa og sparneytna bíla.
Miðvikudagur 20. september
12.00 Borgarbragur og samgöngur. Hádegisfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Getum við breytt götumynd Reykjavíkur þannig að meira jafnræðis gæti
á milli ólíkra samgöngumáta? Hvaða áhrif hafa samgöngur á
borgarbrag?
Frummælendur: Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi, Guðmundur
Steingrímsson, blaðamaður og rithöfundur og Sigurður Guðmundsson
skipulagsfræðingur.
Fundarstjóri er Sigmar Guðmundsson.
Fyrir utan Ráðhúsið sýna bílaumboð visthæfa og sparneytna bíla.
Meira um dagskrá Samgönguviku á www.reykjavik.is
TALSMENN
HREINS LOFTS
Reykjavíkurborg
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
3
4
9