Morgunblaðið - 19.09.2006, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG HÉLT AÐ ÞAÐ
VÆRI ÞRIÐJUDAGUR
EN ÞAÐ ER Í RAUN
MIÐVIKUDAGUR ÞRÁTT FYRIR ÞESSA ÓTRÚLEGU
UPPGÖTVUN ÞÁ TEKST ÞESSUM NAGLA
AÐ HALDA RÓ SINNI
HÉRNA ER
MYND AF
LITLU
SYSTUR
KALLA!
HÚN
ER
SVO
SÆT
JÁ,
MJÖG
SÆT
MIKIÐ
ER HÚN
SÆT
HÚN
ER SVO
SÆT
KALLI
ÓTRÚ-
LEGA
SÆT
JÁ,
MJÖG
SÆT
EF VIÐ AFNEMUM ORÐIÐ
„SÆTT“ ÚR ÍSLENSKRI TUNGU
ÞÁ FÆRI ALLT Á ANNAN ENDAN
ÞETTA ER
EFLAUST TIL
MÍN
HÆ KALLI, TAKK FYRIR AÐ
HRINGJA. ÞETTA LITLA
SKRÍMSLI ER AÐ GERA MIG
BRJÁLAÐA. HVAÐ?
NEI, ÉG...
ÞETTA ER KALVIN HÉRNA Í
HINUM SÍMANUM. KÆRASTAN
ÞÍN ER ILLGJÖRN OG HATAR
BÖRN. HÚN YRÐI ALVEG
HRÆÐILEG MÓÐIR. ÉG VERÐ
AÐ LEGGJA Á NÚNA
EFTIR AÐ KALLI HÆTTIR
MEÐ ÞÉR ÞÁ Á HANN EFTIR
AÐ VERA MÉR ÞAKKLÁTUR!
KOMDU SÆLL, ÉR ER
BRÓÐIR ÓLAFUR...
ÉG ER KOMINN TIL
AÐ LÝSA UPP
TILVERU YKKAR...
HRÓLFUR, ÞAÐ ER KOMINN MAÐUR,
SEM VILL SELJA OKKUR KERTI!
...OG MUNDU AÐ
SANNIR MENN LJÚGA
ALDREI!
ÞÁ KOMAST
„SANNIR MENN“
EKKI MJÖG LANGT
Í LÍFINU
GERÐIR ÞÚ
ÞETTA GRÍMUR!!!
MIKIÐ VAR ÞESSI ÁRÁS
RAUNVERULEG
HANN ER
EKKERT
SMÁ
STERKUR
EN ÞARNA
LOSNAÐI
BJÁLKI ÚR
LOFTINU!
HANN ÆTLAR
AÐ LENDA...
...Á ÁHÆTTU-
LEIKKONUNNI!
ÉG MUNDI VILJA
DEKKJA HÁRIÐ
AÐEINS
JÁ, ÆTLI ÞAÐ KOMI
EKKI BARA VEL ÚT
LITAÐU
ÞAÐ BARA
EKKI OF
DÖKKT
VERTU ALVEG
RÓLEG, ÞÚ ERT EIN
AF BESTU KÚNUNUM
MÍNUM
VERTU
RÓLEG ANNA
ÉG HEITI
ABBY!
Í annað sinn í sömu vikunni hafaframleiðendur CSI þáttanna
rambað fram á mannslík við tökur.
Fyrr í vikunni varð tökulið CSI:
New York vart við óþef þar sem ver-
ið var að mynda í byggingu. Þegar
leitað var að orsök ólyktarinnar
fannst lík eins af íbúum hússins sem
hafði dáið í íbúð sinni nokkrum vik-
um áður, að því er virðist af náttúru-
legum orsökum.
Á föstudag voru síðan tökumenn
CSI: Miami að taka upp í garði við
Biscane-flóa þegar heimilislaus mað-
ur gaf sig fram við öryggisvörð á
tökusvæðinu og benti honum á lík
sem var á floti í sjónum.
Bráðabirgðarannsókn hefur ekki
leitt í ljós nein merki um áverka á
líkinu.
Í hvorugu tilvikinu voru leikarar
þáttanna nærri, því aðeins var verið
að mynda ýmiskonar aukasenur.
Naglinn David Caruso, sem túlkar
hinn úrræðagóða tæknirannsókn-
armann Horatio Cane og hjarta-
knúsarinn Adam Rodriguez sem
leikur Jesse Esteban Ramirez voru
því ekki til taks til að aðstoða við
lausn málsins.
Sýningar eru nú að hefjast á
fimmtu þáttaröð CSI: Miami en
þátturinn er í dag 9. vinsælasti sjón-
varpsþátturinn í Bandaríkjunum.
Hins vegar er CSI: Miami vinsælasti
bandaríski sjónvarpsþátturinn þeg-
ar litið er til áhorfs um allan heim.
Er Ísland engin undantekning og
eiga þættirnir fjölda aðdáenda hér-
lendis. Bæði CSI: Miami og CSI:
New York spunnust sem sjálfstæðir
þættir út frá CSI: Crime Scene In-
vestigation-þáttunum, og njóta allir
þættirnir mikilla vinsælda.
Fólk folk@mbl.is
Íþessari viku stendur RANN-ÍS fyrir Vísindavöku. Hjör-dís Hendriksdóttir er sviðs-stjóri alþjóðasviðs RANNÍS
og einn af skipuleggjendum Vís-
indavökunnar: „Þróun vísinda,
rannsókna og nýsköpunar er mjög
hröð í dag og oft erfitt fyrir hinn
almenna borgara að henda reiður á
þeirri þróun sem á sér stað,“ út-
skýrir Hjördís. „Gerðar hafa verið
kannanir sem leitt hafa í ljós að
bæði áhugi og skilningur almenn-
ings á tækni og vísindum fer sívax-
andi, en fólk vill þó fá enn meiri og
betri upplýsingar um það sem er
að gerast, og helst frá vísinda-
mönnunum sjálfum.“
Hjördís segir Rannís hafa leitað
nýrra leiða til að leiða saman vís-
indamenn og almenning og fæddist
þá hugmyndin að svokölluðu Vís-
indakaffi, sem fyrst var efnt til í
fyrra: „Þar sem við fengum tvo vís-
indamenn til að setjast niður í
þægilegu kaffihúsaumhverfi og
ræða saman og við áheyrendur um
vísindi á mannamáli,“ segir Hjör-
dís. „Móttökur fóru fram úr okkar
björtustu vonum og sprengdum við
hvert kaffihúsið af öðru utan af
okkur þó við veldum alltaf stærri
og stærri vettvang.“
Í þessari viku verður hægt að
sækja Vísindakaffi í Listasafni
Reykjavíkur, og ættu þá loksins
allir að geta komist að sem vilja:
„Fyrsta Vísindakaffið var á mánu-
dag og það síðasta verður á
fimmtudag, en á föstudag verður
Listasafnið undirlagt af vísinda-
fólki. Þann dag, milli 18 og 21, mun
vísindafólk kynna yfir 50 rann-
sóknarverkefni sem verið er að
vinna á Íslandi og bjóða gestum og
gangandi upp á persónulega kynn-
ingu á hverju verkefni. Rannsókn-
arverkefnin spanna öll svið vísinda
og ættu allir að geta fundið eitt-
hvað sem þeim þykir áhugavert, og
ekki síst börnin því Vísindaveröld
Fjölskyldu- og húsdýragarðsins
verður með útibú á staðnum.“
Við sama tækifæri verða veitt
verðlaun þeim einstaklingi sem
skarað hefur fram úr í miðlun vís-
inda til almennings, og einnig
verða veitt verðlaun í ljósmynda-
samkeppninni „Andlit vísinda-
mannsins“ sem ætluð var fólki á
aldrinum 16 til 23 ára og teikni-
samkeppninni „Vísindamaðurinn
minn“ sem haldin var fyrir 9 til 11
ára börn.
Vísindakaffi verður sem fyrr
segir frá mánudegi til fimmtudags
þessa viku og hefjast á hverju
kvöldi til 20, en Davíð Þór Jónsson
uppistandari er kaffistjóri. „Gísli
Pálsson prófessor og Níels Einars-
son riðu á vaðið á mánudag með
spjalli um mannvist á norður-
slóðum Evrópu. Á þriðjudagskvöld
fjalla Sigríður Þorgeirsdóttir og
Þorgerður Einarsdóttir um heim-
speki séða með kynjagleraugum,“
segir Hjördís. „Yfirskrift Vísinda-
kaffis á miðvikudag er „Má bjóða
þér sjálflýsandi svín?“ og ræða
Þorvarður Árnason og Einar Män-
tylä um kosti og galla erfða-
breyttra matvæla. Svo, á fimmtu-
dag, fjalla Ólafur Ingólfsson og
Tómas Jóhannesson um afleiðingar
hnattrænna veðurbreytinga fyrir
Ísland.“
Nánar má lesa um dagskrá vik-
unnar á www.rannis.is en aðgangur
er ókeypis að öllum dagskrárliðum
og allir velkomnir.
Vísindi | Rannís heldur vísindaveislu í
Listasafni Reykjavíkur þessa vikuna
Vísindin kynnt
á mannamáli
Hjördís Hend-
riksdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1961. Hún lauk
stúdentsprófi frá
FB 1984, BA-
prófi í alþjóða-
samskiptum frá
University of
Redlands í
Bandaríkjunum 1994 og masters-
prófi á sama sviði frá University of
Kent árið 1996. Hjördíst starfaði
hjá Reykvískri endurtryggingu
1986–1990 en hefur starfað hjá
Rannís síðan 1997, fyrst sem upp-
lýsingafulltrúi en síðar sem sviðs-
stjóri alþjóðasviðs. Hjördís er gift
Jóni Smára Úlfarssyni jarðverk-
fræðingi og eiga þau samtals fjögur
börn.