Morgunblaðið - 27.09.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.09.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 262. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is BOLTINN FLÝGUR ÍSLANDSMÓTIÐ Í HANDKNATTLEIK KARLA HEFST Í KVÖLD >> HANDBOLTI Á 12 SÍÐUM MOSI KÖTTUR HRAKNINGAR Á HOLTA- VÖRÐUHEIÐI Á BÓK LENTI Í BÍLSLYSI >> 42 FRAMLÖG íslenskra stjórnvalda til þróunarsamvinnu munu nær þrefald- ast á næstu þremur árum og aukast frekar árin á eftir, með það að mark- miði að ná takmarki Sameinuðu þjóð- anna – 0,7% af vergum þjóðartekjum. Þetta kom fram í ræðu Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra á 61. allsherjarþingi SÞ í New York í gær. Í ræðu sinni lagði Valgerður áherslu á stöðu kvenna og barna, sagðist hún m.a. vilja sjá frekari við- leitni hjá SÞ til að auka jafnrétti kynjanna. Ráðherrann gerði auk þess mikið úr stuðningi Íslands við þróunarsjóð SÞ í þágu kvenna. „Starfsemi UNIFEM verður að fá meira vægi innan SÞ. Ísland hefur aukið stuðning sinn við starfsemi UNIFEM meira en tífalt á undan- förnum tveimur árum og við munum auka stuðning okkar enn frekar,“ sagði Valgerður og kom jafnframt inn á málefni Barnahjálpar SÞ, UNI- CEF. Sagði hún að íslensk stjórnvöld mundu einnig auka framlög til þeirr- ar mikilvægu vinnu sem þar væri unnin. „Ég er stolt af því að geta sagt að íslenska þjóðin hefur verið sér- staklega virk og er með hæstu fram- lög þjóðríkja á mann til UNICEF.“ Valgerður kom ennfremur inn á umhverfismálin og endurnýjanlega orku í ræðu sinni og sagði Ísland hafa sérstöðu hvað varðaði jarðhita og gæti þar miðlað af þekkingu sinni. Hún nefndi aukningu á notkun end- urnýjanlegar orku sem eina leið til að mæta orkuþörf en um leið gæta að umhverfisáhrifum. „Þess vegna tek- ur Ísland virkan þátt í að kynna end- urnýjanlega orku og nýja tækni í þró- unaraðstoð sinni,“ sagði Valgerður m.a. og nefndi sem annað dæmi um skuldbindingu Íslands á þessu sviði alþjóðlega ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík um notkun vetnis í þróunarríkjunum. Um málefni hafsins sagði ráðherra mengun og óábyrgar veiðar áhyggju- efni í ljósi afgerandi áhrifa á afkomu þróunarríkja, sem eru 95% þeirra sem byggja afkomu sína á fiskveið- um. „UNIFEM verður að fá meira vægi“ Reuters Sameinuðu þjóðirnar Valgerður Sverrisdóttir ávarpar allsherjarþing SÞ. Í NÝRRI varnaráætlun fyrir Ísland, sem Íslendingar og Bandaríkjamenn hafa samið um er gert ráð fyrir því að varnir landsins verði tryggðar með öflugum og hreyfanlegum við- búnaði og liðsafla Bandaríkjamanna. Forystumenn stjórnarflokkanna, Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jón Sigurðsson, starfandi utanríkis- ráðherra, greindu frá þessu sem og öðrum niðurstöðum varnarviðræðna íslenskra og bandarískra stjórn- valda á blaðamannafundi í gær. Þeir sögðu niðurstöðu viðræðn- anna mjög viðunandi. Geir sagði að Nicholas Burns, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hefði hringt í sig um kl. ellefu í gærmorg- un til að staðfesta ákveðin lokaatriði í samningunum. Forystumönnum stjórnarandstöðunnar var kynnt nið- urstaðan um hádegi í gær og utan- ríkismálanefnd þingsins eftir há- degi. Geir sagði að bæði ríkin gætu ver- ið sátt við niðurstöðuna. Geir til- kynnti framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins, NATO, Jaap de Hoop Scheffer, þessa niðurstöðu í gær. Ný varnaráætlun mun áfram byggjast á varnarsamningnum frá árinu 1951. Samkvæmt svonefndum skila- samningi ríkjanna taka Íslendingar við öllum varnarsvæðunum og mannvirkjum af Bandaríkjamönn- um í lok mánaðarins, nema litlu svæði í Grindavík, þar sem Banda- ríkjamenn verða áfram með fjar- skiptamöstur. Íslendingar hafa tekið að sér að hreinsa svæðin og rífa nið- ur byggingar á þeim. Áætlaður kostnaður við það nemur um fimm milljörðum króna. Talið er að svo- kallað hrakvirði mannvirkjanna, sem Íslendingar taka við, sé um ell- efu milljarðar króna. Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, sem stýrði viðræðunum fyrir hönd bandarísku samninganefndarinnar, segir að ábyrgð Bandaríkjamanna á vörnum Íslands hafi ekkert breyst. „Við telj- um okkur bera ábyrgð á vörnum Ís- lands.“ Um umhverfismálin segir hún að Íslendingar og Bandaríkjamenn muni hafa samráð komi fram vitn- eskja um að heilbrigði og öryggi manna sé í hættu vegna umhverf- ismengunar á næstu fjórum árum. „Komi eitthvað slíkt í ljós munum við aftur setjast að samningaborðum og ræða úrlausnir.“ Forystumenn stjórnarandstöðu- flokkanna gagnrýna að Bandaríkja- menn komi ekki að hreinsun varn- arsvæðanna. Hreyfanlegar varnir tryggi öryggi Íslands Morgunblaðið/Kristinn Varnarviðræður Niðurstaða varnarviðræðnanna var kynnt í gær. Íslendingar eiga alfarið að sjá um hreinsun varnarsvæðanna Í HNOTSKURN »Varnarsamningur Íslandsog Bandaríkjanna var gerður árið 1951 og rann bók- un, sem gerð var við hann um framkvæmd samningsins, út árið 2001. »Nýtt samkomulag umvarnarmál verður form- lega undirritað í Washington eftir um það bil tvær vikur.  Sjá bls. 10–12 og miðopnu Eftir Örnu Schram og Silju Björk Huldudóttur HAFINN er undirbúningur af hálfu félagsmálaráðuneytisins að laga- breytingu sem fæli í sér að Íbúðalána- sjóði (ÍLS) yrði heimilt að setja á fót fjármögnunarkerfi á heildsölustigi. Það yrði rekið sem sjálfstæð rekstr- areining innan Íbúðalánasjóðs og yrði fjármagnað með útgáfu svokallaðra sérvarinna skuldabréfa; fjármögnun- in yrði þannig án ríkisábyrgðar en að- ferðin á að tryggja að fjármögnunar- kerfið fengi sama lánshæfismat og sömu kjör á markaði og ÍLS nýtur nú með ríkisábyrgð en gagnrýnendur ÍLS hafa einatt beint spjótum sínum að ríkisábyrgðinni og hún hefur verið sögð stríða gegn reglum EES-samn- ingsins. Að mati Samtaka banka og verð- bréfafyrirtækja hindra tillögurnar eðlilega samkeppni og beinast frekar að ríkisvæðingu á húsnæðislána- markaði og ganga þannig þvert á nú- tímaleg viðhorf um hlutverk ríkisins, þ.e. að það haldi sig fjarri samkeppn- ismörkuðum. Í Vegvísi Landsbankans segir að tillögurnar virðist í meginatriðum ganga út á það að hverfa aftur til fyrra fyrirkomulags á fasteignalána- markaði og ekki sé sjálfgefið að bank- arnir fallist á að gerast afgreiðsluað- ilar fyrir nýjan banka; tillögurnar séu því ekki líklegar til sátta. ÍLS reki heildsölu- banka  Stofnun | 14  Húsnæðismál | 25 Washington. AFP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að það væri „barnalegt“ og „glappaskot“ að draga þá ályktun að stríðið í Írak hefði aukið hryðjuverkaógnina í heiminum og orðið vatn á myllu ísl- amskrar öfgahyggju. Forsetinn hafnaði þar með niður- stöðu skýrslu sem byggðist á mati allra sextán leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna. „Mat mitt er að [hryðjuverkamennirnir] myndu finna einhverja aðra afsökun ef við værum ekki í Írak,“ sagði Bush. Gagnrýnir lekann Bush sneri vörn í sókn eftir að hafa sætt harðri gagnrýni vegna skýrsl- unnar. Sagði hann að niðurstöðum hennar hefði verið lekið í fjölmiðla til að „rugla bandarísku þjóðina í rím- inu“ og styrkja stöðu demókrata fyrir kosningar 7. nóvember. Bush kvaðst hafa ákveðið að gera kafla í skýrsl- unni opinbera til að kjósendurnir gætu kynnt sér þá sjálfir. Hann við- urkenndi að hryðjuverkahópar not- færðu sér átökin í Írak til að afla sér nýrra liðsmanna en sagði að það væri „glappaskot að telja að sókn gegn fólki, sem vildi skaða bandarísku þjóðina, stofnaði henni í meiri hættu“. Bush snýr vörn í sókn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.