Morgunblaðið - 27.09.2006, Page 11

Morgunblaðið - 27.09.2006, Page 11
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar Samningsstaðan var orðin mjög þröng „MÉR finnst samningarnir bera merki þess að samningsstaðan var orðin mjög þröng og viðsemjandinn hafði eiginlega öll spil á hendi,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylk- ingarinnar, sem lítur svo á að ís- lensk stjórnvöld hefðu átt að setj- ast mun fyrr að samningum við Bandaríkjamenn um viðskilnaðinn og ekki hafi verið tekið nægilega vel á þeim málum á undanförnum árum. „Það er búið að liggja lengi fyrir að Bandaríkjamenn teldu ekki ástæðu til að vera hér með varnarviðbúnað og vildu fara héðan. Við þær að- stæður hefðu íslensk stjórnvöld átt að setjast við samningaborðið, setja sér markmið og reyna ná því fram að brotthvarf hersins væri skipulagt fyr- irfram,“ sagði Ingibjörg sem telur að með því móti hefði verið hægt að taka á öllu sem viðkemur mannvirkjum á varnarsvæðinu, mengun af völdum hersins og fyrst og fremst því fólki sem sagt er upp. Hún telur það slæma niðurstöðu að Bandaríkjamenn komi ekki að hreinsun varnarsvæðisins að nokkru leyti. „Mengunarmál svæðisins hafa ekki verið rannsökuð til fullnustu og það veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér í þessum efnum. Það hefði í raun átt að vera skýlaus krafa um að Bandaríkjamenn hreinsuðu upp eftir sig.“ Ingibjörg segir auk þess lágmarks- kröfu að megindrættir í varnaráætl- uninni séu kynntir utanrík- ismálanefnd og forystumönnum stjórnmálaflokkanna. „Ég hlýt að gagnrýna að það skuli vera gerð varnaráætlun fyrir landið sem enginn þekkir nema forsætisráðherra og ut- anríkisráðherra. Þar af leiðandi er ekkert vitað um hvernig þessum vörnum verður við komið og ég hef ákveðnar efasemdir um þjóðrétt- arlega stöðu slíkrar áætlunar.“ Ánægð með öryggisnefnd Þrátt fyrir að finna megi ágalla á samningaviðræðunum segir Ingi- björg það ánægjuefni að þeim sé nú lokið. Það verði nú að veruleika að Ís- land sé herlaust land og mikil gæði séu samfara því að búa í svo frið- samlegum heimshluta. Hún er auk þess ánægð með að stofnuð verði ör- yggisnefnd sem verður samstarfs- vettvangur fulltrúa stjórnmálaflokk- anna. „Það er í samræmi við þær tillögur sem við í Samfylkingunni höf- um flutt og nefndin mun þá leggja lín- urnar í varnar- og öryggismálum. Það er ánægjuefni að þær tillögur skuli hafa náð fram og tekið tillit til þeirra.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir RÍKISSTJÓRNIN hyggst vinna að því að koma á laggirnar samstarfsvettvangi fulltrúa stjórnmálaflokkanna þar sem fjallað verði um öryggi Íslands á breiðum grundvelli, m.a. í samstarfi við sambærilega aðila í nálægum löndum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu rík- isstjórnarinnar, sem birt var í gær, vegna nýrra verkefna íslenskra stjórnvalda, við brottför varnarliðsins. Er blaðamaður Morgunblaðsins spurði Geir H. Haarde forsætisráðherra nánar út í þessa fyrirætlan í gær nefndi hann öryggismála- nefnd, sem starfaði í rúman áratug, en var lögð niður árið 1991. Sú nefnd var skipuð fulltrúum stjórnmálaflokkanna. „Við erum ekki að hugsa þetta nákvæmlega eins en við teljum heppilegt að til sé vettvangur þar sem fulltrúar flokk- anna eða forystumenn þeirra geta talað saman, með fagfólk sér við hlið.“ Geir nefndi einnig að til væru öryggismálastofnanir eða alþjóða- málastofnanir í flestum nálægum löndum. Jón Sigurðsson, starfandi utanríkisráð- herra, sagði að það væri mjög mikilvægt fyrir sjálfstæða þjóð að hafa slíkan samstarfsvett- vang „til þess að leggja sjálfstætt íslenskt mat á þessi mikilvægu mál í framtíðinni og aðstoða stjórnvöld við að taka stefnuna á hverjum tíma,“ sagði hann. Ný öryggismálanefnd stofnuð MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 11 GEIR H. Haarde forsætisráðherra og Jón Sig- urðsson, starfandi utanríkisráðherra, greindu frá niðurstöðum varnarviðræðna Íslendinga og Bandaríkjamanna, sem staðið hafa síðustu mán- uði, á fjölmennum blaðamannafundi sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu í gærdag. Morgunblaðið/Kristinn Niðurstaða samninga í höfn Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins Ríkisstjórnin bjargaði sér fyrir horn GUÐJÓN Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir að ríkisstjórnin hafi bjargað sér fyrir horn með samkomulaginu í varnarmálum miðað við það hvernig hún hafi verið tekin í ból- inu þegar Bandaríkjamenn hafi einhliða tilkynnt um brottför hersins í vor. „Í þessu sam- komulagi felst að Banda- ríkjamenn munu koma hérna inn ef á þarf að halda ef að okkur steðjar ógn að þeirra mati eða okkar og í því er falið ákveðið ör- yggi. Hefði viljað skoða nánara samstarf við NATO-ríkin í Evrópu Ég hefði hins vegar gjarnan viljað skoða að taka upp nánara samstarf við NATO-ríkin í Evrópu og þá kannski sérstaklega Norð- menn og Dani að því er varðar staðsetningu okkar og öryggi hér í norðurhafinu,“ sagði Guðjón Arn- ar einnig. Hann sagði að það væri ánægju- legt út af fyrir sig að við værum ekki með her í landinu á frið- artímum. Það væri góð þróun í sjálfu sér en auðvitað þyrftum við að sinna öryggismálum okkar með einhverjum hætti og þetta sam- komulag veitti okkur nokkra tryggingu í þeim efnum að hans mati. Hvað varðaði yfirtöku eigna og hugsanlega kostnað því samfara og hreinsun vegna mengunar mætti auðvitað deila um það en það væri þó gott að það væri fyr- irvari um að ef upp kæmi alvar- legri mengun en kortlögð hefði verið væri hægt að taka málið upp við Bandaríkjamenn innan fjög- urra ára. Guðjón Arnar sagði að starfsemi ratsjárstöðvanna væri nauðsynleg fyrir öryggi okkar og einnig fyrir Atlantshafsbandalagið og yfirleitt flug hér í norðurhöfum. Við myndum því ekki standa einir í þeim efnum í framtíðinni að hans mati, en hins vegar ætti eftir að finna form á rekstur og fyr- irkomulag ratsjárstöðvanna til framtíðar. Margvísleg tækifæri „Að öðru leyti yfirtökum við all- ar eignir á Keflavíkurflugvelli og tryggjum hér áframhaldandi flug og flugöryggi og það skiptir miklu máli að þar sé ekki um neinn veik- an hlekk að ræða,“ sagði Guðjón einnig. Hann sagðist sannfærður um að það væru margvísleg tækifæri til atvinnuuppbyggingar á Kefla- víkurflugvelli eftir brottför hersins. Það þyrfti að vinna skipulega að því að þróa þá mögu- leika. Gott væri ef það gæti gengið hratt fyrir sig, en þó mætti ekki rasa um ráð fram. Guðjón Arnar Kristjánsson Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG Fagna sögulegum tímamótum með brottför hersins „ÉG VIL segja það í fyrsta lagi að ég fagna þeim sögulegu tímamót- um, sem eru að verða með brottför erlends hers úr landinu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG. „Þessi tíma- mót bjóða auð- vitað upp á að móta nýjar áherslur í utan- ríkis- og öryggis- málum Íslands og ná sáttum um þau mál á alveg nýjum grundvelli eftir þær deilur sem vera erlends hers í landinu hefur valdið hér í meira en hálfa öld,“ sagði hann ennfremur. Steingrímur sagðist hins vegar verða að gagnrýna hvernig íslensk stjórnvöld hefðu notað tímann und- anfarin ár til að undirbúa þessar löngu fyrirsjáanlegu breytingar. „Það sem mér finnst einkum gagn- rýnivert í þeim efnum er í fyrsta lagi að hafa ekki undirbúið betur yfirtöku okkar á rekstri Keflavík- urflugvallar og að ekki skuli hafa verið rannsökuð betur sú mengun sem hersetan skilur eftir sig og lagaleg ábyrgð Bandaríkjamanna í því sambandi,“ sagði hann einnig. Steingrímur sagði að hvað varð- aði samkomulag um yfirtöku mann- virkja og svæða væri í sjálfu sér já- kvætt að það fengist botn í það mál og þar drægi úr hættunni á því að herstöðina á Miðnesheiði dagaði uppi sem draugasvæði. „En þar með er það kannski upp- talið sem hægt er segja jákvætt hvað það snertir. Langalvarlegasti ágallinn á þessu samkomulagi að mínu mati er að Bandaríkin fara héðan án þess að gengið sé frá því fyrst með óyggjandi hætti að þau beri fulla og óskipta ábyrgð á allri mengun sem herinn skilur eftir sig og komi til með að bera þann kostnað sem því er samfara að hreinsa þetta upp,“ sagði Stein- grímur. Ísland tæki óháða stöðu Hann sagði að hvað varðaði stjórnmálasamkomulagið við Bandaríkin um svokallað áfram- haldandi varnarsamstarf teldi hann enga þörf á því. „Ég er andvígur því að Bandaríkjamönnum skuli heitið hér aðstöðu til heræfinga og annarra umsvifa á komandi árum. Ég tel að það væri nær að leita samkomulags um að varnarsamn- ingurinn yrði einfaldlega felldur úr gildi og Ísland tæki sér í framhald- inu óháða stöðu og tryggði öryggi sitt á slíkum grunni í framtíðinni,“ sagði Steingrímur að lokum. Steingrímur J. Sigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.