Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 19
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Innri-Njarðvík | „Ég fékk köllun í
sumar, um að nú væri kominn tími
til að gera eitthvað,“ segir Sveindís
Valdimarsdóttir. Hún ákvað í sumar
að hætta kennslu sem hún hefur
sinnt með litlum hléum í tuttugu ár
og stofna eigið fyrirtæki til að þróa
aðferðir við pappírsgerð, eiginlega
tilraunastofu í pappírsmassagerð.
Hún hefur komið sér upp aðstöðu í
gamla slippnum í Innri-Njarðvík og
hættir að kenna um áramótin.
„Þetta er hrein ævintýra-
mennska,“ segir Sveindís þegar hún
er spurð að því hvað hafi komið til.
„Ég ætlaði heldur aldrei að verða
kennari. Eftir stúdentspróf vann ég
hjá félagsmálafulltrúanum hér í
Keflavík. Þar voru erfið mál í gangi
og ég spurði einhverju sinni Vil-
hjálm Ketilsson í hálfkæringi hvort
nokkuð væri hægt að komast í
kennslu,“ segir Sveindís en þetta
samtal leiddi til þess að hún var
strax ráðin kennari við Holtaskóla.
Hún ætlaði að kenna í eitt ár en þau
urðu tuttugu, fyrst í Holtaskóla og
síðar í Heiðarskóla. Hún var raunar
ekki alveg samfellt í kennslunni því
hún fór nokkrum sinnum í nám við
Háskóla Íslands, reyndi meðal ann-
ars fyrir sér í viðskiptafræði og
lærði frönsku í einn vetur.
„Kennslan er ofsalega skemmti-
legt starf,“ segir Sveindís. Hún hef-
ur kennt flestar greinar en sam-
skiptaverkefni milli landa hafa gefið
henni kraftinn til að halda áfram.
Hægt að gera heilan heim
Hún segist alltaf hafa verið að
gera tilraunir og sé auk þess alin
upp við það að nýta alla hluti. Það
varð til þess að hún hefur unnið með
nemendum sínum við að endurnýta
pappír. „Ég byrjaði smátt en sá
fljótt hvað hægt væri að gera margt
úr þessu efni. Ekki aðeins pappír
heldur margt annað, heilan heim,“
segir hún og bætir við að reynsla
hennar úr leikhússtarfi hafi styrkt
hana í þessu.
Það voru síðan þrír atburðir í
sumar sem gerðu það að verkum að
Sveindís ákvað að taka stökkið og
helga sig tilraunum með papp-
írsmassagerð. Hún fór til Barcelona
á Spáni og heillaðist af verkum arki-
tektsins Antoni Gaudí. Þá gekk hún
um hálendi Íslands. „Á Sveinstindi
sáum við til fimm jökla. Þegar svo er
hlýtur eitthvað fleira að gerast,“
segir Sveindís. Þriðji atburðurinn
sem hafði svo mikil áhrif á Sveindísi
í sumar er andlát ömmu hennar. „Ég
hugsaði með mér að þetta væru
skilaboð um að nú ætti ég að gera
eitthvað nýtt,“ segir Sveindís.
Býður upp á námskeið
Hún viðurkennir að það sé
kannski brjálæði að hætta að kenna,
taka á leigu húsnæði og hoppa út í
óvissuna. „En ég hef mikla trú á að
þetta verkefni gangi,“ segir hún.
Hún tók á leigu húsnæði í gamla
slippnum í Innri-Njarðvík fyrir
vinnustofu. Þar er hún að hefja þró-
un nýrra aðferða við papp-
írsmassagerð þar sem ýmsum efn-
um er blandað saman við pappírinn
og aðferða við þurrkun massans til
að auðvelda flutninga. Reiknar hún
með að það verkefni taki eitt til tvö
ár. Hún vonast til að geta tekið upp
samvinnu við grunnskóla og leik-
skóla um að útvega þeim papp-
írsmassa til að nota við föndur. Hún
segist vita af eigin raun hversu erfið
aðstaða sé í skólunum til þess verks.
Þá segist hún geta haldið námskeið
fyrir almenning.
„Já, ég þykist vera umhverfisvæn,
þótt ég geri sjálfsagt lítið meira í því
en aðrir,“ segir Sveindís þegar hún
er spurð að því hvort það sé drif-
krafturinn í áhuga hennar á verkefn-
inu. „Þetta er mikið neyslusamfélag
og við þurfum að hugsa meira um
það hverju við hendum frá okkur.“
En hún nefnir að velferð fólksins,
andleg og líkamleg, hafi áhrif á sig.
„Velferðin er samofin sköpun og
bættri menningu. Það skiptir máli að
við vitum hvaðan við komum og
hvert við erum að fara. Lífið þarf til-
gang og hann er að finna í nátt-
úrunni og menningunni,“ segir hún
og sýnir þar aðeins inn í hugarheim
bæjarfulltrúans Sveindísar.
Hún hefur fengið mikið hráefni
með fundargerðum, skýrslum og
öðrum gögnum sem hún fær send
frá Reykjanesbæ vegna starfa sinna
í bæjarpólitíkinni og sér fram á að
geta gert úr þeim fallega hluti
áfram.
Kominn tími
til að gera
eitthvað nýtt
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sköpun Sveindís Valdimarsdóttir gerir fallega hluti úr pappírsmassanum.
Sveindís Valdimarsdóttir opnar
tilraunastofu í pappírsmassagerð
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 19
SUÐURNES
FO
R
V
A
RN
AR
D A G UR IN
N
2
0
0
6
TAKTU ÞÁTT!
HVERT ÁR SKIPTIR MÁLI
www.forvarnardagur. is
Verkefnið er styrkt af
Því lengur sem unglingar
sniðganga áfengi því ólíklegra er
að þeir ánetjist fíkniefnum.
Hvert ár skiptir máli.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
5
4
9
2
Reykjanesbær | Fjöldi íbúa sótti um umönn-
unarbætur hjá Reykjanesbæ í gær, eftir að
opnað var fyrir umsóknir í fyrsta skipti. Árni
Sigfússon bæjarstjóri áætlar að um 220 íbúar
muni þiggja umönnunargreiðslurnar í senn.
Gangi það eftir munu greiðslur bæjarins
nema 6,6 milljónum kr. á mánuði. Ferli um-
sókna og afgreiðsla styrkja er algerlega raf-
ræn en það er á íbúavefnum mittreykjanes.is.
Tilgangurinn með umönnunargreiðslunum
er að sögn Árna Sigfússonar að auka mögu-
leika fjölskyldna á samvistum á mikilvægu
þroskaskeiði barnanna. Greiddar verða 30
þúsund krónur mánaðarlega til foreldra sem
lokið hafa töku fæðingarorlofs þar til barnið
hefur leikskólagöngu. Ef barnið sækir ekki
leikskóla halda greiðslurnar áfram, þar til
það kemst á grunnskólaaldur.
Til þess að öðlast rétt á umönnunar-
greiðslum þurfa foreldrar að sækja kynningu
á vegum Reykjanesbæjar innan þriggja mán-
aða. Fjallað verður um grundvallaratriði í
uppeldi barna. Gert er ráð fyrir að kynningin
taki tvær kvöldstundir og sú fyrsta verður
um miðjan október. Árni Sigfússon segir að
þar verði kynnt fyrir foreldrum sú þjónusta
sem Reykjanesbær veitir, nýjustu upplýs-
ingar í barnasálfræði og framþróun í barna-
uppeldi. Árni tekur fram að þessi kynning sé
eingöngu í jákvæðum tilgangi gerð, til þess
að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu.
Hann leggur áherslu á að öll börn í Reykja-
nesbæ eigi kost á leikskólavist. Þar séu engir
biðlistar nú og verið sé að byggja nýjan leik-
skóla og stækka tvo eldri til þess að svo verði
áfram.
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Opnað Ingibjörg Ólafsdóttir og Sebastiano Ferraú aðstoðuðu Árna Sigfússon við að opna fyrir
umsóknir um umönnunargreiðslur. Ingibjörg heldur á Maríu Valentínu, dóttur þeirra hjóna.
Opnað fyrir umsóknir um umönn-
unargreiðslur hjá Reykjanesbæ
SVEINDÍS Valdimarsdóttir hefur áhuga á að sjá meira líf við Tjarnirnar í
Innri-Njarðvík og segir að vinnustofa sín verði vonandi liður í því. Hún vill
fá þangað fleiri vinnustofur og jafnvel líka leikhús og kaffistofu. Þá geti
íbúar nýju hverfanna fengið sér gönguferð í sveitina til að taka þátt í skap-
andi starfi, skoða það sem aðrir eru að gera eða bara fá sér kaffisopa.
Húsnæðið er svo sannarlega fyrir hendi, meðal annars mikil húsakynni
hraðfrystihúss Brynjólfs. Húsin þarna eru illa nýtt. Sveindís segir þörf á að
gera sum húsin upp og fegra umhverfið. Þá verði svæðið aðlaðandi fyrir
gesti heim að sækja.
Meira líf við Tjarnirnar