Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is V arnir Íslands verða tryggð- ar með svokölluðum hreyfanlegum herstyrk, sem kæmi í stað fastrar viðveru Bandaríkjahers hér á landi, samkvæmt varnaráætlun fyrir Ísland, sem bandarísk og íslensk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um. Forystumenn stjórnarflokkanna kynntu samkomulagið á blaðamanna- fundi í gær, þeir Geir H. Haarde, for- maður Sjálfstæðisflokksins og forsætis- ráðherra og Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og starfandi ut- anríkisráðherra. Varnaráætlunin var þó ekki kynnt í smáatriðum. „Áætlun sem þessi er leynileg, eðli máls samkvæmt, annars væri lítið hald í henni,“ sagði Geir H. Haarde. „[Varnaráætlunin] byggist á tilteknum forsendum og fjallar um við- brögð við vá á ýmsum stigum og hvern- ig að málum er staðið.“ Í áætluninni er, eins og áður sagði, gert ráð fyrir því að varnir Ísland verði tryggðar með öflugum og hreyfanleg- um viðbúnaði og liðsafla. „Það mikil- væga í þessu er, og það er staðfest og undirstrikað, að Bandaríkin muni verja Ísland ef á þarf að halda. Á bak við það stendur allur hernaðarmáttur Banda- ríkjanna,“ sagði Geir ennfremur. Geir tók fram að hann teldi sam- komulag Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál mjög viðunandi. Jón tók í sama streng. Þá sagði Geir að með þessu nýja samkomulagi yrði ekki gerð nein breyting á varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1951. Verið væri að byggja á þeim samningi til framtíðar „varðandi varnir og öryggis- samstarf ríkjanna,“ sagði hann. Undirbúningur fyrstu æfinganna hafinn Meðal þess sem fjallað er um í áætl- uninni, fyrir utan samkomulagið um hreyfanlega herstyrkinn, er samráðs- ferli íslenskra og bandarískra stjórn- valda á hættutímum. Í áætluninni er m.ö.o. kveðið á um það með hvaða hætti þessir aðilar muni tala saman ef upp koma neyðartilvik, að sögn Geirs, þann- ig að samskiptin verði hröð og skilvirk. Í áætluninni er einnig kveðið á um að Bandaríkin haldi árlega tvíhliða og/eða fjölþjóðlegar heræfingar á íslensku landsvæði og í íslenskri lofthelgi og landhelgi, að fengnu samþykki ís- lenskra stjórnvalda. „Af Íslands hálfu er sérstök áhersla lögð á nauðsyn loft- varnaæfinga, en ýmsar annars konar æfingar koma jafnframt til greina, eins og æfingar á sjó,“ sagði Geir. „Und- irbúningur fyrir fyrstu æfinguna af þessu tagi hefst fljótlega og óformlega er talað um að hún geti orðið í júní á næsta ári.“ Þá er í áætluninni vikið að ratsjár- stöðvunum. „Eins og sakir standa er nú í gildi samningur Bandaríkjastjórnar við Ratsjárstofnun og Símann um að reka hér fjórar stöðvar fram til 15. ágúst á næsta ári. Það er í samræmi við skuldbindingar Bandaríkjamanna gagnvart NATO, en þetta kerfi er eins og kunnugt er byggt á kostnaði banda- lagsins og í eigu þess,“ sagði Geir. Ís- lensk og bandarísk stjórnvöld hafa hins vegar ákveðið að ræða tvíhliða og við Atlantshafsbandalagið um fjármögnum og fyrirkomulag ratsjárkerfisins. Tím- inn fram að 15. ágúst á næsta ári verður notaður til þeirra viðræðna. Geir sagði að íslensk stjórnvöld hefðu boðist til þess að taka töluverðan þátt í kostnaði við rekstur ratsjárkerfisins, eftir 15. ágúst nk. Sömuleiðis kæmi til greina að semja um það við NATO að taka þátt í þeim rekstri. Í áætluninni er jafnframt gert ráð fyrir því að Bandaríkin og Ísland taki upp reglulega samráðsfundi um örygg- ismál, annars vegar milli ráðherra og hins vegar milli sérfræðinga. Að sögn Geirs er miðað við að fyrsti samráðs- fundur ráðherra verði haldinn í Reykja- vík í haust. Aukinheldur er í áætluninni tekið fram að íslensk stjórnvöld hyggist skipa fulltrúa, sem annist tengsl við bandarísk hernaðaryfirvöld, til þess að útvega upplýsingar um m.a. hernaðar- leg málefni. Að lokum er í áætluninni vikið að því að Bandaríkin og Ísland ætli að kanna leiðir til að auka samstarf milli bandarísku strandgæslunnar og Landhelgisgæslunnar með æfingum, þjálfun og starfsmannaskiptum. Og ennfremur að Bandaríkin og Ísland ætli að auka og styrkja samstarf á sviði lög- gæslu og landamæraöryggis. Ekki tómarúm í öryggi Eftir að Geir og Jón höfðu farið yfir samkomulagið við Bandaríkjamenn, voru þeir spurðir hverjar áhyggjur engar sýnilegar e Þeir voru jafnfram hygðust leita til N því. Þeir svöruðu unni, en Geir sag unni, að það hef mars sl., þegar kynntu Íslendingu stöðvarinnar, að h ir með sama hætt af þeim staðreynd að laga okkur að, áfram. „Í varnará vitað gert ráð fyri að halda. Og æfi með reglulegum h æfa varnir í lofti varnaræfinga.“ H æfingarnar gerð sýnilega sem að Bandaríkjamanna fremur að Ban einnig sýna sig h t.d. með því að sen Þegar Geir var Varnir Íslands v með hreyfanleg Samkomulag For ríkin um varnarm Forystumenn stjórnarflokkanna kynna nýja varnaráætlun fyrir Ísland VARNARSAMNINGUR ÍSLANDS OG BANDARÍKJANNA ÍSLENDINGAR taka við varnarsvæðunum, sem Bandaríkja- menn hafa haft til afnota frá árinu 1951, eigi síðar en 30. sept- ember nk. Undanskilið er þó lítið varnarsvæði í Grindavík en þar verða Bandaríkjamenn áfram með fjarskiptamöstur. Íslend- ingar taka sömuleiðis við öllum bandarískum mannvirkjum á umræddum svæðum. Kveðið er á um þetta í svokölluðum skila- samningi milli Íslands og Bandaríkjanna, sem samstaða hefur náðst um milli ríkjanna. Í samningnum er tekið fram að Bandaríkjamenn skuli skila svæðunum og mannvirkjunum í því ástandi sem þau eru í, þegar þeim er skilað, „án þess að þess sé vænst að Bandaríkin muni ráðast í úrbætur eða lagfæringar, þar með taldar umhverfis- úrbætur, af nokkru tagi eftir að fyrrnefndum varnarsvæðum og mannvirkjum hefur verið skilað,“ eins og segir í samningnum. Ríkisstjórn Íslands segir í yfirlýsingu, sem hún birti í gær, að stofna eigi hlutafélag í eigu ríkisins um framtíðarþróun og um- breytingu fyrrverandi varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli. „Verk- efni félagsins verður að koma þessu svæði og mannvirkjum á því með skipulegum hætti í arðbær borgaraleg not án þess að valdi röskum í samfélaginu,“ segir í yfirlýsingunni. „Félagið mun bera ábyrgð á og annast rekstur og umsýslu nánar tiltekinna eigna á svæðinu, útleigu, sölu, hreinsun og eftir atvikum niðurrif mann- virkja, þar til verkefninu telst lokið.“ Gert er ráð fyrir að kostn- aður við hreinsun á svæðinu gæti numið allt að tveimur millj- örðum króna. Geir H. Haarde forsætisráðh Þjóðmenningarhúsinu í gær að mannvirkjunum sem íslenska r embættismenn hafa áætlað að anna væri um ellefu milljarðar sem það verð sem fæst fyrir ei „Þarna er um mjög mikil verðm mörg þessara mannvirkja kunn Samkvæmt upplýsingum frá ís ast við að nær helmingur mann Kostnaður við það gæti numið Færsla flugvallarstarfsemi Í skilasamningnum segir að alþjóðaflugvallarins í Keflavík því að að greiða fyrir því að fæ Íslands verði snurðulaus til þe un á flugumferð,“ eins og segir Geir sagði að gengið væri fr lendingar fengju ýmsan flugva til að reka flugvöllinn, án endu Til að byrja með yrði gerður le sem yrði síðan framlengdur sjá sama tíma, þar á eftir. „Leigan mánuði, en búnaðurinn sem Ísl Tökum við varnarsvæðunum og PUNKTUR – OG NÝTT UPPHAF Með samkomulagi íslenzkraog bandarískra stjórn-valda, sem gert var opin- bert í gær, er settur punktur aftan við langan kafla í sögu varna Ís- lands. Út af fyrir sig er fátt sem kemur á óvart í þeim samningum og samkomulögum, sem kynnt voru í gær. Samningaviðræðurnar, sem hafnar voru milli Íslands og Banda- ríkjanna um framkvæmd varnar- samnings ríkjanna, tóku óneitan- lega aðra stefnu en upphaflega var ætlað þegar Bandaríkin tilkynntu einhliða í marz síðastliðnum að þau hygðust fara með varnarliðið burt frá Íslandi. Íslenzk stjórnvöld voru þar með sett í erfiða stöðu. Miðað við það, sem nú liggur fyrir, verður ekki annað séð en bærilega hafi tekizt að spila úr þeirri stöðu úr því sem komið var og að íslenzkir hags- munir séu tryggðir að svo miklu leyti sem fært er. Umdeilanlegasta atriðið í samn- ingum Íslands og Bandaríkjanna er að Bandaríkjamenn skuli ekki bera fulla ábyrgð og kostnað af því að hreinsa til eftir sig á varnarsvæð- unum. Þeir greiða í raun fyrir þann kostnað með þeim miklu eignum á varnarsvæðunum, sem þeir afhenda íslenzkum stjórnvöldum. Það kem- ur síðan í hlut Íslands að ganga frá t.d. sorpurðunarstöðum þannig að þeir hætti að valda grunnvatns- mengun og að rífa óþörf mannvirki við Keflavíkurflugvöll. Bráðabirgðaáætlanir gera ráð fyrir að kostnaður við þessar að- gerðir geti numið um fimm millj- örðum króna. Að líkindum verða tekjur íslenzka ríkisins af sölu eignanna mun meiri en sem nemur þeim kostnaði. Jafnframt ber á það að líta að komi óvænt, stórfelld mengun á varnarsvæðinu í ljós á næstu fjór- um árum er hægt að taka málið upp á nýjan leik við Bandaríkin. Af þeim sökum er auðvitað brýnt að ljúka hreinsunar- og niðurrifsstarfi á gömlu varnarsvæðunum sem fyrst. Niðurstaðan virðist því Íslandi hagfelld, þótt óvissan um endanlega útkomu úr hinu fjárhagslega dæmi sé óneitanlega nokkur. Það skiptir auðvitað miklu máli að snurðulaus rekstur Keflavíkur- flugvallar er tryggður með sam- komulagi ríkjanna og að Íslending- ar fá ýmist afhent eða leigð þau tæki og búnað, sem þarf til flugvall- arrekstrarins. Enginn þarf að vor- kenna sjálfstæðu ríki að reka sinn eigin alþjóðaflugvöll og svo virðist raunar sem kostnaður Íslands af því að taka yfir rekstur flugvall- arins sé mjög hóflegur miðað við það, sem hefði getað orðið. Bandaríkin ábyrgjast áfram varnir Íslands í samræmi við varn- arsamninginn frá 1951, sem stend- ur óhaggaður. Það er mikils virði, þótt varnirnar séu að sjálfsögðu ekki eins og íslenzk stjórnvöld hefðu talið æskilegt. Sú staða, sem nú er komin upp, þýðir að Íslend- ingar verða að bregðast við á ýmsa vegu og sýna frumkvæði í eigin varnar- og öryggismálum í miklu meira mæli en undanfarna áratugi. Í fyrsta lagi verður að efla ýmsar innlendar öryggisstofnanir. Um þann þátt málsins er fjallað að hluta til í yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar frá í gær. Þar skiptir ekki sízt máli efling sérsveitar lögregl- unnar og Landhelgisgæzlunnar. Í samkomulaginu við Bandaríkin er kveðið á um stuðning þeirra við þessar stofnanir og fleiri. Samstarf á þessum sviðum var áður fyrir hendi, en gera verður ráð fyrir að það verði eflt, í því ljósi að Banda- ríkin taka ekki lengur ábyrgð á ör- yggi landsins með því að hafa hér herafla. Ástæða er til að nefna þann þátt í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem varðar að íslenzk yfirvöld hafi „lög- heimildir til náins samstarfs við stjórnvöld og alþjóðastofnanir þar sem skipst er á trúnaðarupplýsing- um“. Þetta þýðir m.a. að hér þarf að stofna þá þjóðaröryggisdeild, ör- yggislögreglu eða hvað menn vilja kalla það, sem rætt hefur verið um á undanförnum mánuðum og miss- erum. Í öðru lagi þarf að stórefla rann- sóknir og upplýsingaöflun á sviði varnar- og öryggismála. Ríkis- stjórnin hyggst koma á fót „sam- starfsvettvangi fulltrúa stjórnmála- flokkanna þar sem fjallað verði um öryggi Íslands á breiðum grund- velli, m.a. í samstarfi við sambæri- lega aðila í nálægum löndum“. Við fyrstu sýn virðist þessi vettvangur eiga að verða sambærilegur Örygg- ismálanefnd, sem var og hét, en spyrja má hvort ekki sé þörf á mun viðameiri starfsemi, í ljósi gjör- breyttra aðstæðna. Full ástæða er til að byggja hér upp, í samstarfi stjórnvalda og háskólanna, sjálf- stæða rannsóknastofnun í utanrík- is- og öryggismálum, sem jafnaðist á við t.d. norsku Utanríkismála- stofnunina NUPI eða sambærilegar stofnanir í nágrannalöndum okkar. Markvisst þarf að efla þekkingu og menntun íslenzkra sérfræðinga á þessu sviði. Í þriðja lagi hljótum við að leita enn nánara samstarfs við ná- granna- og bandalagsríki okkar við Norður-Atlantshaf, t.d. Noreg, Bretland og Danmörku, um sam- starf í varnar- og öryggismálum og björgunarmálum. Í fjórða lagi verður Ísland að endurskoða allt samstarf sitt við Atlantshafsbandalagið. Það blasir strax við að semja þarf upp á nýtt um mannvirki í eigu bandalagsins hér á landi, nú þegar Bandaríkin fara ekki lengur með stjórn þeirra. Brotthvarf bandarísks varnarliðs héðan hlýtur að þýða að Ísland reiði sig í auknum mæli á önnur NATO-ríki. En á móti hljótum við enn að auka framlag okkar til bandalagsins og virkni innan þess. Gærdagurinn var endapunktur á langri sögu. En hann markar líka nýtt upphaf kafla í varnar- og ör- yggismálum Íslands, sem Íslend- ingar þurfa fyrst og fremst að skrifa sjálfir. Sá tími er liðinn að við getum reitt okkur nánast al- gjörlega á aðra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.