Morgunblaðið - 27.09.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 39
menning
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Einbýlishús óskast nú þegar
Æskileg staðsetning:
Garðabær, Seltjarnarnes eða Arnarnes.
Rétt eign má kosta allt að 150 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Æskileg stærð 350-400 fm
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST -
STAÐGREIÐSLA
ÞAÐ ERU ekki margir listamenn
sem afreka það að fylla Laugardals-
höllina á þrennum tónleikum í röð, en
Björgvin Halldórsson lét sig ekki
muna um það nú um helgina og gerði
það með stæl, eins og hans var von og
vísa. Það var einkar ánægjulegt að
fylgjast með framgöngu Björgvins á
þessum tónleikum, þar sem hann
söng nokkur af sínum vinsælustu lög-
um, reffilegur og flottur, í dökkum
jakkafötum og hvítri skyrtu með
hálstau, og fyrir aftan hann var
„besta og stærsta hljómsveit lands-
ins“, eins og Björgvin orðaði það
sjálfur, Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ósjálfrátt reikaði hugurinn fjörutíu
ár aftur í tímann, á eftirminnilega
tónleika í þessari sömu höll, þegar
Bjöggi tryllti táningana og var kjör-
inn „poppstjarna Íslands“. Hér var
vissulega kominn sami gamli góði
Bjöggi, en greinilegt var þó að sá sem
nú stóð á sviðinu sem þroskaður og
yfirvegaður listamaður var kominn
talsvert langan veg frá gamla popp-
aranum, og er þetta sagt í jákvæðasta
skilningi þeirra orða.
Þegar Björgvin Halldórsson kom
fyrst fram á sjónarsviðið á sjöunda
áratug síðustu aldar, með hafnfirsku
poppsveitinni Bendix, varð mönnum
ljóst að hann hafði allt til að bera til
að verða vinsæl poppstjarna. Lífleg
sviðsframkoma og góð söngrödd,
ásamt ódrepandi áhuga og sönggleði,
skilaði honum í fremstu röð íslenskra
poppara. Eflaust hefðu einhverjir lát-
ið það duga og snúið sér að öðru þeg-
ar mesta fárið var yfirstaðið, en
Bjöggi var ákveðinn í að gera sönginn
að sínu ævistarfi, þótt hann hafi
vissulega starfað við fleira, svo sem
dagskrárstjórn. Ef ég man rétt var
hann spurður að því í blaðaviðtali,
skömmu eftir að hann var kjörinn
poppstjarna, hvað hann ætlaði að
gera þegar hann yrði stór. Popp-
stjarnan svaraði því til að hann ætlaði
að halda áfram að syngja og „kannski
verð ég bara eins og Haukur Mort-
hens“. Og Bjöggi stóð við þau orð.
Hann hefur náð því takmarki að feta í
fótspor Hauks heitins, og jafnvel far-
ið skrefinu lengra. Það fór því vel á
því að Björgvin tileinkaði minningu
Hauks eitt laganna á tónleikunum,
„Capri Catarina“. Tónleikarnir hóf-
ust á því að Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands, undir stjórn Bernharðs Wilk-
insons, lék svokallaða „Skýjasvítu“,
sem innihélt brot úr lögum eftir
Björgvin. Síðan steig söngvarinn á
svið og söng eigið lag, „Skýið“, við
texta eftir Vilhjálm heitinn Vilhjálms-
son, og svo tók hvert lagið við af öðru.
Eftirtektarvert er hversu Björgvin
sjálfur hefur samið mörg góð lög, sem
náð hafa vinsældum. Má þar nefna
„Ég er ennþá þessi asni sem þú
kysstir þá“, „Ég fann þig“, og HLH
lögin: „Vertu ekki að plata mig“,
„Riddari götunnar“ og „Áðan í út-
varpinu heyrði ég lag“. Fimm gesta-
söngvarar stigu á svið, Eyjólfur
Kristjánsson í lagi sínu „Ég lifi í
draumi“, Stefán Hilmarsson í laginu
„Í gær“, Sigga Beinteins í „Vertu
ekki að plata mig“ og svo börn ein-
söngvarans, Svala og Krummi. Svala,
stórglæsileg í útliti og framkomu,
söng lagið „Wére all grown up“ með
pabba sínum og Krummi söng tví-
söng með honum í laginu „You belong
to me“. Gat ég ekki heyrt betur en
strákurinn væri með nákvæmlega
sömu rödd og „gamli maðurinn“.
Hljómsveit undir stjórn Þóris
Baldurssonar lék undir, ásamt Sin-
fóníunni, en Þórir útsetti tónlistina og
fórst það vel úr hendi, svo sem við var
að búast. Í bakröddum voru Guðrún
Gunnarsdóttir, Regína Ósk, Eyjólfur
Kristjánsson og Friðrik Ómar. Einn-
ig steig Karlakórinn Fóstbræður á
svið og tók undir í nokkrum þekktum
íslenskum sönglögum. Ég sé ekki
ástæðu til að staldra frekar við ein-
stök lög eða fara nánar út í frammi-
stöðu söngvara eða tónlistarmanna,
en allt þetta fólk stóð sig með stakri
prýði. Áheyrendur voru líka vel með
á nótunum og kom Björgvin tvívegis
fram í uppklappi, og tók þá meðal
annars Þó líði ár og öld, – að sjálf-
sögðu! Hljómburður var ágætur, en
ljóst er þó að Laugardalshöllin er
ekki hönnuð sem tónleikahöll og við
það verðum við bara að lifa þangað til
tónlistarhúsið rís við höfnina. Aðal-
atriði er hins vegar að hér var boðið
upp á glæsilega söngskemmtun, sem
að umgjörð og innihaldi jafnast á við
það besta sem hér hefur verið boðið
upp á í langan tíma og er full ástæða
til að óska Björgvini til hamingju með
skemmtilega og vel heppnaða tón-
leika.
Glæsileg söngskemmtun
TÓNLIST
Laugardalshöll
Björgvin Halldórsson á tónleikum í
Laugardalshöll, ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, Karlakór
Fóstbræðra, valinkunnum hljóðfæraleik-
urum og landsþekktum gestum.
Tónleikar Björgvins Halldórssonar
Sveinn Guðjónsson
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Reffilegur Björgvin Halldórsson á sviði með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Eitt farsælasta sjálfstæða leikhúslandsins, Möguleikhúsið, er nú aðhefja sitt sautjánda leikár og að
venju kennir margra grasa í dagskránni.
Möguleikhúsið leggur áherslu á að bjóða
upp á frumsamið íslenskt efni fyrir börn og
unglinga og verður þetta leikár engin und-
antekning á. Það verða átta íslensk verk á
boðstólum í vetur, tvær nýjar sýningar, fjór-
ar frá fyrri leikárum og tvær gestasýn-
ingar.
Um miðjan október verður einleikurinn
Höll ævintýranna eftir Bjarna Ingvarsson
frumsýnt. Þetta er gamanleikur sem segir
frá manni sem kemur í heimsókn í þeim til-
gangi að segja börnum ævintýr, á sviðinu er
höll full af ævintýrum og með aðstoð
barnanna nær hann einu ævintýri út úr höll-
inni og flytur það með tilþrifum.
Eftir áramót er það sagan um Sæmund
fróða sem birtist í nýrri leikgerð Péturs
Eggerz á fjölum Möguleikhússins. Um er að
ræða nýja sýn á þjóðsöguna um Sæmund
fróða þar sem spenna og gamansemi bland-
ast saman. Sæmundur sleppur úr klóm
Kölska með klókindum í Svartaskóla og eft-
ir það hefst eltingarleikur þeirra á milli og
þá reynir á hvor sé klókari, Sæmundur eða
Kölski, þegar á hólminn er komið.
Frá fyrri leikárum er haldið áfram aðsýna Landið vifra sem er byggt á
barnaljóðum Þórarins Eldjárns. Hattur og
Fattur og Sigga sjoppuræningi, eftir Ólaf
Hauk Símonarson, munu stíga á fjalirnar
þriðja árið í röð, eflaust mörgum til gleði og
ánægju. Langafi prakkari var sýnt rúmlega
150 sinnum hjá Möguleikhúsinu á árunum
1999 til 2001. Leikverkið, sem er byggt á
sögum Sigrúnar Eldjárn, mun snúa aftur í
vetur en í því segir frá lítilli stúlku, Önnu,
og blindum langafa hennar sem er alltaf
tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmti-
legum uppátækjum. Um jólin snýr önnur
vinsæl barnasýning aftur, en það er leikritið
um Smið jólasveinanna sem var fyrst sýnt
1992. Öðru sinni í vetur kemur Kómedíu-
leikhúsið á Ísafirði til samstarfs við Mögu-
leikhúsið með sýningarnar um Dimmalimm
og Gísla Súrsson, báðar í einleik Elfars
Loga Hannessonar.
Möguleikhúsið hefur aðsetur sitt aðLaugavegi 105 með um 100 manna
sýningarsal en er samt hálfgert farandleik-
hús. Stærstur hluti sýninganna fer fram í
leik-,grunn- og framhaldsskólum landsins
þannig að það er orðið hluti af eðlilegu
skólastarfi víða og allir landsmenn ættu að
hafa jafnan aðgang að leikhúsinu. Með
þessu skemmtilega og sérstaka fyr-
irkomulagi hefur Möguleikhúsið fest sig í
sessi í íslensku þjóðfélagi og er orðið stór
þáttur í menningar- og listuppeldi barna um
allt land.
Ævintýri og þjóðsaga
í Möguleikhúsinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gaman Barnaleikritið Landið vifra verður
áfram í sýningu hjá Möguleikhúsinu í vetur.
AF LISTUM
Ingveldur Geirsdóttir
» „Stærstur hluti sýningannafer fram í leik-, grunn- og
framhaldsskólum landsins
þannig að það er orðið hluti af
eðlilegu skólastarfi víða og allir
landsmenn ættu að hafa jafnan
aðgang að leikhúsinu.“
ingveldur@mbl.is
Eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
BANDARÍSKI tommuleikarinn
Zoro er kominn til landsins og heldur
tvenna tónleika hér á landi, í FÍH-
salnum í kvöld og í Brekkuskóla á
Akureyri á fimmtudagskvöld. „Það
er að vissu leyti óvenjulegt að vera
með einleikstónleika á trommur en
þó ekki svo því ég spila við tónlist af
bandi. Ég hef sem sagt meðferðis
tónlist sem ég spila við og því verða
þetta eins og venjulegir tónleikar.
Tónleikagestir sjá þó einungis
trommarann á sviðinu,“ segir Zoro.
Hann segir að það muni kenna
margra grasa í tónlistarvalinu en
uppistaðan verði R&B-tónlist, fönk,
soul, gospel, fönkaður bræðingur og
klassískt R&B. „Þetta er því allt sam-
an efni sem fellur undir R&B-
skilgreininguna.“ Zoro er ekki síst
þekktur fyrir samstarf sitt við Lenny
Kravitz og félaga úr Earth Wind &
Fire. „Já, ég vann með flestum úr
Earth Wind & Fire og var á tónleika-
ferðalögum með aðalsöngvara sveit-
arinnar, Philip Bailey. Svo var ég
með Lenny Kravitz á síðasta stóra
tónleikaferðalagi hans.“
En hvernig kemur það til að hann
er hingað kominn? „Þetta er hluti af
tónleikaröð sem ég er að halda á
Norðurlöndum. Það hefur lengi stað-
ið til að ég kæmi hingað og það gekk
loksins upp núna. Ég veit ekki mikið
um tónlistarlífið hér á landi enda er
þetta í fyrsta sinn sem ég kem til Ís-
lands,“ segir Zoro.
Trommar við undir-
spil af upptökum