Morgunblaðið - 29.09.2006, Síða 25
sellerírót í kartöflumúsina í stað
piparrótarinnar.
Grasker með
hunangi og kanil
Fyrir 6
2 msk. smjör
1 msk. hunang
1 tsk. kanill
450 g grasker eða kúrbítur, afhýtt
100–200 g pekanhnetur, smátt
saxaðar
Afhýðið graskerið og skerið það í
teninga.
Bræðið smjör og hunang saman í
potti við lágan hita. Takið pottinn af
hellunni, setjið kanilinn út í og
hrærið vel í blöndunni.
Látið smjörblönduna í skál og
veltið graskersbitunum upp úr
henni. Raðið bitunum síðan á bök-
unarplötu og bakið í 15–20 mínútur
á 175°C.
Setjið bakaða bitana að lokum í
skál og stráið hnetunum yfir. Það
má einnig strá eins og einni teskeið
af kanil yfir, það fer eftir smekk
hvers og eins.
Grasker er grænmetistegund
sem er lítið notuð hér á landi en
fæst engu að síður í verslunum sem
bjóða upp á gott grænmetisúrval.
Skemmtileg tilbreyting frá hefð-
bundnu meðlæti með lambalæri. Ef
ekki fæst grasker má nota kúrbít en
það þarf ekki að afhýða hann.
Jarðarberja- og spínat-
salat
Fyrir 8–10
1 stór poki
eða 2 litlir af fersku spínati
2–3 öskjur jarðarber,
skorin í sneiðar
½ bolli ólífuolía
½ bolli sykur
¼ bolli gott vínedik
eða gott eplaedik
½ tsk. rifinn rauðlaukur
2 msk. sesamfræ
1 msk. birkifræ, ljós eða dökk
¼ tsk paprikuduft
¼ tsk worcestershiresósa
Setjið spínat og jarðarber á stórt
fat eða í salatskál. Blandið öðru hrá-
efni saman og hellið yfir salatið rétt
áður en það er borið fram. Það er
smekksatriði hversu mikið skal not-
að af salatsósunni en það má einnig
bera sósuna fram með salatinu ef
vill.
Þetta salat er einstaklega fal-
legt og fljótlegt að útbúa og hefur
gert mikla lukku á matarborðinu að
sögn Eddu.
Rabarbara- og
jarðarberjabaka
Fyrir 8
3 bollar hveiti
1 tsk. salt
250 g kalt smjör, skorið í litla bita
1 tsk. edik
1 egg
1⁄3 bolli kalt vatn
Setjið hveiti, salt og smjör í mat-
vinnsluvél og maukið þar til blandan
er orðin að mylsnu. Hrærið ediki,
eggi og vatni saman og blandið sam-
an við mylsnuna og hrærið þar til
blandan er orðin að deigi. Kælið
deigið í ísskáp í a.m.k. fjóra tíma.
Fylling
5 bollar jarðarber, skorin í sneiðar
5 bollar rabarbari, skorinn í bita
1 bolli hveiti
¾ bollar púðursykur
¾ bollar sykur
1 tsk. appelsínubörkur, rifinn
3–4 msk. smjör
Blandið þurrefnunum saman
ásamt appelsínuberkinum. Takið
hluta af deiginu, fletjið út og þekið
bökubotn sem er um 30 sm í þver-
mál. Setjið helminginn af rabar-
baranum og jarðarberjunum á botn-
inn og stráið yfir helmingnum af
þurrefnablöndunni. Setjið síðan af-
ganginn af ávöxtunum á botninn og
þá það sem eftir er af þurrefnunum.
Dreifið að lokum smjörklípum um
bökuna.
Fletjið út deig og búið til lok á
bökuna. Leggið lokið yfir fyllinguna
og þrýstið samskeytunum á botn-
inum og lokinu vel saman. Skerið 8–
10 lítil loftgöt á bökuna. Bakið við
180°C á blæstri í u.þ.b. 40 mínútur
eða þar til bakan hefur tekið á sig
fallegan lit.
Uppskriftin dugir í 3–4 botna
og lok. Gott er að fletja út auka
botna og lok og frysta og þá er ekki
lengi verið að því að skella í böku.
Morgunblaðið/ÞÖK
Lambalæri Borið fram með ferskri myntusósu ásamt kart-
öflumús með piparrót og graskersbitum með hunangi og kanil.
Morgunblaðið/ÞÖK
Rabarbara- og jarðarberjabaka Ljúffengt úr ofni Eddu með
léttþeyttum rjóma.
uhj@mb.is
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 25
Gestir
Bjarni Daníelsson, óperustjóri
Jamie Hayes, leikstjóri
Angela Gilbert, óperusöngvari
Bjarni Thor Kristinsson, óperusöngvari
Finnur Bjarnason, óperusöngvari
Katharina Guðmundsson, óperusöngvari
Snorri Wium, óperusöngvari
Gestgjafi Edda Jónasdóttir, starfsmaður
markaðssviðs Óperunnar
Matseðill
Forréttur: Lax í dilli og sojasósu með vatnsmelónusalati.
Aðalréttur: Lambalæri með myntusósu.
Meðlæti: Jarðarberja- og spínatsalat með sesam- og
birkifræjum. Kartöflumús með piparrót.
Graskersteningar með hunangi og kanil.
Eftirréttur: Rabarbara- og jarðarberjabaka með
léttþeyttum rjóma.