Morgunblaðið - 05.10.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 05.10.2006, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is KÅRE Bryn tók við stöðu fram- kvæmdastjóra EFTA fyrir rúmum mánuði síðan, en hann hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum inn- an norsku utanríkisþjónustunnar, einkum á sviði viðskipta- og efnahags- mála. Á níunda og tíunda áratugnum hafði hann meðal annars með að gera málefni fiskveiða, hvalveiða og um- hverfisverndar og átti af þeim sökum oft erindi til Íslands. Hann er nú á yf- irreið um aðildarlöndin og segir að það sé mjög mikilvægt að hitta per- sónulega og funda með stjórnvöldum, alþingismönnum og hagsmunaaðilum sem komi að starfinu innan EFTA með ýmsum hætti Bryn segir að uppbygging EFTA og verkefni séu að mörgu leyti sér- stök þar sem samtökin séu tvískipt vegna stjórnmálaþróunarinnar á und- anförnum árum. Þannig séu þrjú af ríkjunum fjórum sem myndi samtök- in með samning við Evrópusamband- ið um Evrópska efnahagssvæðið, en fjórða landið, Sviss, standi þar fyrir utan og taki þátt í þeirri starfsemi samtakanna sem lúti að gerð fríversl- unarsamninga við önnur lönd og svæði. Sá hluti starfseminnar sem lúti að samningnum um Evrópska efna- hagssvæðið gangi mjög vel í stórum dráttum hvað snerti alla tæknilega hluti. EFTA ríkin taki almennt fullan þátt í þróun og undirbúningi nýrrar löggjafar þar til að ákvarðanatöku komi, þar sem þau séu ekki aðilar að Evrópusambandinu. Það sé gallinn við þetta fyrirkomulag, en í flestum tilvikum takist EFTA ríkjunum að hafa áhrif á það á hvern veg ný löggjöf þróist á fyrri stigum. Aðspurður um núverandi viðræður um stækkun EES vegna stækkunar ESB með tilkomu Rúmeníu og Búlg- aríu og kröfur ESB um aukin framlög EFTA ríkjanna í þróunarsjóði sam- bandsins þess vegna segir Bryn að EFTA veiti Efta-ríkjunum ráðgjöf í þessum viðræðum, en þau komi þar fram hvert fyrir sig. Hann vildi ekki staðfesta upplýsingar um upphæðir sem fram komu í Morgunblaðinu í gær, en sagði að það væri sannarlega litið svo á að erfitt yrði að mæta kröf- um sambandsins. Varðandi fríverslunarsamninga EFTA að öðru leyti, sagði Bryn, að það hefðu verið mikil vonbrigði að við- ræður Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) um tollalækkanir hefðu siglt í strand í sumar. Ekkert útlit væri fyrir að þær viðræður yrðu teknar upp aft- ur fyrr en eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum næsta haust. Nú þeg- ar yrði vart við aukin áhuga ríkja á því að gera fríverslunarsamninga og það væri ákveðin lausn til skemmri tíma litið, þó auðvitað væri hagfeldast að leysa þessi mál á alþjóðlegum grund- velli. Þannig væri til dæmis komið nýtt líf í viðræður EFTA og Kanada um fríverslun, sem lengi hefðu verið í strandi og líkur til þess að sest yrði að samningaborði þar aftur. „Ég held að við höfum mikilvægu hlutverki að gegna fyrir aðildarríki okkar hvað aukna fríverslun snertir, sem er mikilvæg fyrir vöxt efnahags- lífsins í löndunum,“ sagði Bryn. Aðspurður um Kína, fjölmennasta ríki heims, sagðist hann vita af góðum samskiptum Íslands og Kína og reikna með að viðræður þar á milli myndu halda áfram og ef til vill gætu þær viðræður þróast yfir í það að verða viðræður um fríverslun við EFTA. Ísland hefur mikilvægu hlutverki að gegna í EFTA Kåre Bryn, nýr fram- kvæmdastjóri Fríversl- unarsamtaka Evrópu, EFTA, segir að Ísland hafi mjög mikilvægu hlutverki að gegna innan samtakanna. Morgunblaðið/Sverrir EFTA Kåre Bryn hitti Sólveigu Pétursdóttir, forseta Alþingis í gær m.a., en einnig ræddi hann við ráðherra í ríkisstjórninni og hagsmunaðaila. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is „EFNAHAGSLEGU rökin sem voru til staðar þegar Bretland gekk í Evrópusambandið árið 1975 eru ekki lengur fyrir hendi,“ segir Chri- stopher Heaton-Harris, þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu til sjö ára. Hann er staddur hér á landi og mun m.a. halda fyrirlestur um Bretlandi og Evrópusambandið í Þjóðminjasafninu í dag. Fyrirlestur Harris er á vegum Heimssýnar og Stofnunar stjórnsýslu og stjórnmála við Háskóla Íslands og verður hann undir yfirskriftinni: Hvað ef Bretar ganga úr Evrópusambandinu? Harris segir að reglugerðir og löggjöf sam- bandsins á sviði vinnumarkaðar, sem Bretland eins og önnur aðildarríki verði að taka upp í sína löggjöf, séu íþyngjandi og hafi dregið úr sveigj- anleika á breskum vinnumarkaði og í bresku at- vinnulífi. „Í hnattvæddum heimi sjáum við mikið af fyr- irtækjum færa starfsemi sína til Brasilíu, Rúss- lands, Indlands og Kína,“ segir Harris og bendir á að erfitt sé að sjá efnahagslegan ávinning fyrir Bretland af því að vera í sambandinu. „Við getum ekki einu sinni séð sjálf um gerð viðskiptasamninga við Indland, sem er gömul bresk nýlenda og mikil vinátta á milli landanna,“ segir Harris. Vill umbætur á stofnanakerfinu Þá þurfi að koma á róttækum umbótum á stofnana- og nefndakerfi Evrópusambandsins og segir Harris að miklum peningum sé varið í nefndir sem litlu skili en kosti sambandið mikið að halda úti, ekki síst vegna mikils ferðakostn- aðar nefndarmanna. „Stærsti gagnrýnispunkturinn er þó í raun sá að það skortir á lýðræði innan sambandsins. Íhaldsflokkurinn hefur talað fyrir því að ákvarð- anir séu teknar eins nálægt fólkinu sjálfu og kostur er. Evrópusambandið gengur einmitt í hina áttina, því þar eru ákvarðanir teknar á hæsta mögulega stigi og þar af leiðandi langt frá fólkinu,“ segir Harris. Að sögn Harris hafa miklar efasemdir við að- ild Breta að Evrópusambandinu komið í ljós í skoðanakönnunum. Þar komi ýmislegt til, m.a. slæm nýting fjármuna innan sambandsins og að reglugerðir ESB hafi áhrif á störf fólks. Aðspurður hvaða áhrif það hefði ef Bretland drægi sig út úr sambandinu segist hann telja að áhrifin yrðu ekki mikil fyrir Breta, enda séu mikil viðskiptasambönd milli Bretlands og Evr- ópu auk þess sem Bretar hafi ekki tekið upp evruna og séu því ekki háðir ESB að því leyti. Vilja draga úr regluverkinu Íhaldsflokkurinn hefur ákveðið að draga sig út úr sambandi evrópskra hægri- og miðflokka (EPP) á næstu árum. Í flokknum eru þingmenn hægri- og miðjuflokka í Evrópu en Harris segir að helsta markmið flokksins sé að endurskoða evrópsku stjórnarskrána og leggja hana fram á ný. „Við viljum tilheyra flokki sem vill draga úr regluverki og yfirbyggingu sambandsins,“ segir hann og bætir við að flokkar úr nýjum aðild- arríkjum sambandsins í Austur-Evrópu séu að mörgu leyti á sama máli og breskir íhaldsmenn og til standi að mynda einhvers konar samtök eða flokk sem þessir flokkar stæðu saman að. „Við ætlum að láta á þetta reyna og koma þannig í gegn umbótum,“ segir Harris en bendir á að í síðustu kosningum til Evrópuþingsins hafi komið fram flokkur í Bretlandi sem hafa viljað skera alfarið á aðild Breta að Evrópusambandinu og fengið jafnmikið fylgi og íhaldsmenn þannig að þrýstingur frá kjósendum sé til staðar. Spurður um Ísland og Evrópusambandið segir hann að Ísland ætti ekki að ganga inn í sambandið. „Þið væruð óð ef þið gerðuð það.“ ESB íþyngjandi fyrir breskt atvinnulíf Morgunblaðið/Sverrir Efins um ESB Heaton-Harris segir að Íslend- ingar væru óðir ef þeir gengju í ESB. ROBERT Dixon er yfirmaður stefnumótunar hjá orku- og tæknirannsóknardeild Alþjóða- orkustofnunarinnar (IEA) Stofnunin, sem var sett á fót í kjölfar olíukreppunnar í upphafi átt- unda áratugarins, er á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í París. Dixon sótti nýlega fund stýrinefndar Alþjóðavetnis- samstarfsins, IPHE, í Reykjavík, þar sem ör- yggi í orkuframboði bar á góma. Inntur eftir samanburði á stefnu Evrópu- ríkja og Bandaríkjanna í þessum málaflokki segir Dixon áherslurnar um margt svipaðar. „Það er þrennt sem báðir aðilar vilja; öryggi í orkuframboði, umhverfisvernd, hvort sem það er með því að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda eða draga úr mengun, og aukinn hagvöxt í ríkjum sínum. Bandaríkjamenn, Evr- ópuríkin og Japanir leggja áherslu á þessi at- riði. Það sem er áhugavert er að stríðið gegn hryðjuverkum hefur haft áhrif og sú staðreynd að okkur er öllum nú orðið meira umhugað um röskun í framboði á orku. Umhverfissjónarmið voru á síðasta áratug mikilvægur hvati í þróun endurnýjanlegra orkugjafa, en nú vegur öryggi í orkuframboði og áhrif þess í efnahagsmálum þungt. Við vit- um að megnið af olíuframleiðslu heimsins fer fram þar sem hryðjuverk eru vandamál. Bar- áttan gegn hryðjuverkum er einn liður í að tryggja orkuframboð.“ Olíuverð mun haldast hátt Aðspurður um spár IEA um þróun olíuverðs í náinni framtíð segir Dixon þær vera í eina átt. „Reiknilíkön okkar hjá IEA eru skýr hvað þetta varðar. Við teljum að þeir dagar sem tunnan af olíu fór á 20 til 30 Bandaríkjadali séu líklega að baki. Það má áætla að verðið muni á næstunni nálgast 50 dollara á fatið en þegar vetrartíminn nálgast og skortur á orkufram- boði fer að gera vart við sig á lykilmörkuðum má gera ráð fyrir að verðið hækki á ný. Það ríkir einnig óvissa um vilja Rússa til að selja jarðgas á erlendum mörkuðum. Þá eiga sér nú stað breytingar á orkumörk- uðum heimsins. Í Evrópu fer nú fram einka- væðing á þessu sviði. Allir þessir þættir hafa áhrif á olíuverðið.“ Mörg dauðsföll í Asíu Spurður að lokum um framtíðarhorfur vetn- is sem orkugjafa segir Dixon þrennt skipta mestu máli í því samhengi. „Mat okkar hjá IEA er að vetnishagkerfið muni vaxa hægt til að byrja með. Við þurfum að lækka verð á rafölum, geta framleitt vetni í nægjanlegum mæli á mörgum stöðum og við þurfum að geta geymt það í farartækjum og á öðrum stöðum til að knýja vetnishagkerfið. Við erum mjög nálægt því að geta leyst þessi vandamál og áður en verðið á vetni lækkar verulega mun vöxtur á þessu sviði verða hægur á næstu fimm til tíu árum. Eftir þann tíma benda spár okkar til mikillar aukningar í notk- un vetnis, einkum á sviði samgangna. Jafnframt mun mikil mengun í vaxandi hag- kerfum verða hvati í þessa átt. Fólk í þessum löndum er bókstaflega að deyja vegna loftsins sem það andar að sér. Ég nefni sem dæmi Kína, en þar er að finna 16 af 20 menguðustu borgum heimsins,“ segir Robert Dixon. Öryggi í framboði á orku mjög mikilvægt Robert Dixon starfar hjá Alþjóðaorkustofnuninni. Í viðtali við Baldur Arnarson ræðir Dix- on um áhrif hryðjuverkastríðs- ins á áherslur í orkumálum. Morgunblaðið/Ásdís Mótar stefnu Robert Dixon sérhæfir sig í orkumálum í störfum sínum hjá IEA. SANDRA Franks, stjórn- málafræðingur, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.–4. sæti í próf- kjöri Samfylking- arinnar í Suðvest- urkjördæmi. Sandra hefur set- ið á Alþingi sem varaþingmaður, þar sem hún beitti sér einkum fyrir skattfrelsi líknar- félaga, neytendamálum og aðgerð- um gegn barnaklámi á Netinu. Sandra hefur um árabil tekið virk- an þátt í starfi Samfylkingarinnar. Sandra er 40 ára gömul. Hún lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Há- skóla Íslands og stundar nú meist- aranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Sandra er jafnframt öku- kennari að mennt, og hefur einnig starfað sem sjúkraliði. Sandra er varaformaður Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, og vefstjóri heimasíðu Neistans. „Ég hef mestan áhuga á neytenda- málum, og vil skera upp herör gegn okri símafyrirtækjanna sem ég tók upp þegar ég sat á Alþingi sem vara- þingmaður Samfylkingarinnar. Mér eru einnig hugleikin málefni lang- veikra barna, og hef gegnum Neist- ann tekið þátt í baráttu fyrir bættum aðbúnaði þeirra og betri kjörum for- eldra langveikra barna. Samfylking- in er á góðu skriði í Suðvesturkjör- dæminu, og ég vil leggja mitt af mörkum til að efla áhrif jafnaðar- manna bæði í kjördæminu og á landsvísu,“ segir í frétt frá Söndru. Stefnir á 3.–4. sætið Sandra Franks

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.