Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 46
Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Það var ákveðið að hafa eitt stórtkvöld á Norrænum músíkdögumþar sem nokkrum listformum yrðislegið saman; tónlist, dans, söng, vídeólist og leiklist. Irma Gunnarsdóttir hjá Dansleikhúsinu hafði samband við mig þegar það kom upp og ég ákvað að slá til og taka þátt í því,“ segir Jóhann F. Björgvinsson dansari sem mun sýna nýtt dansverk í tengslum við Norræna mús- íkdaga á kvöldi sem ber yfirskriftina Concerto. Rauð hlauphjörtu „Ég valdi kanadíska tónskáldið Jean Francois Laporte til að dansa við. Hann býr til sín eigin hljóðfæri og sinn eigin hljóðheim, í þessu verki spilar hann m.a á loftpressu sem blæs í blöðrur sem blása í rör og út úr því koma ótrúleg hljóð. Laporte verður svo með tónleika á sama stað seinna um kvöldið. Við hitt- umst fyrst nýlega og einhvern veginn small þetta hjá okkur, hann spilar með dansinum og við dönsum við tónlistina. Ég er líka með djasssöngkonu frá Bretlandi í verkinu, vídeómyndir á tjaldi og rauð hlauphjörtu,“ segir Jóhann kankvís. Dansverkið heitir Piece of me og fjallar um ást- ina. „Það sem er að ger- ast í mínu persónulega lífi hefur alltaf áhrif á dansverkin mín og ég er ástfanginn af lífinu. Ég fékk líka innblástur frá texta, úr kvikmyndinni V for Vendetta, sem fjallar um skilyrðislausa ást, að elska einhvern sem þú hefur aldrei hitt.“ Með sofandi dansgen í tvö ár Þrír dansarar eru í verkinu ásamt Jóhanni, þær Guðrún Óskarsdóttir, Inga Maren Rún- arsdóttir og Þórdís Schram. Það telst til tíð- inda að Jóhann skuli stíga á svið nú þar sem hann hefur ekki dansað í tvö ár. „Dansgenið sofnaði í mér fyrir tveimur árum. Ég hafði ekki lengur þörf fyrir það að dansa og koma fram og fór því alfarið að semja dansverk og kenna Pilates. En svo vaknaði dansgenið aftur og mig langaði á svið, þetta verk er líka svolít- ið sérstakt, það er mér hjartnæmt og mig langaði til að koma því sjálfur til skila. Í þessi tvö danslausu ár samdi ég mikið af dans- verkum, í fyrra frumsýndi ég t.d. fjögur ný verk víðs vegar um heiminn og nú er ég að vinna að einu verki í London, þar sem ég bý, sem er samstarf Íslands, Kanada, Svíþjóðar og Bretlands og verður frumsýnt hér á landi eftir ár en ég mun dansa sjálfur í því.“ Aðspurður hvað fleira sé fram undan segir Jóhann að það viti hann hreinlega ekki. „Mér finnst gott að leyfa lífinu að flæða og þá gerist alltaf eitthvað gott.“ Ásamt Piece of me verða tvö önnur dans- verk sýnd þetta kvöld eftir Irmu Gunn- arsdóttur og Höllu Ólafsdóttur, dönsuð við verk norrænna tónskálda. Concerto fer fram laugardagskvöldið 7. október í Verinu í Loft- kastalanum og hefst kl. 20. Dansarinn „Ég valdi kanadíska tón- skáldið Jean Franco- is Laporte til að dansa við. Hann býr til sín eigin hljóð- færi og sinn eigin hljóðheim.“ Spilað með dansi og dansað við tónlist Morgunblaðið/Árni Sæberg |fimmtudagur|5. 10. 2006| mbl.is Staðurstund EINHVERJUM kann að þykja söngleikurinn um Egil Skallagrímsson fjarstæðukennd hug- mynd en þeir Hlynur Þorsteinsson og Sig- urður J. Grétarsson eru ekki meðal þeirra. Á dögunum kom út platan Egill Skalla- grímsson söngbók sem hefur að geyma söng- leik eftir þessari þekktu Íslendingasögu. Hlynur semur öll lögin á plötunni en þeir Sig- urður eru höfundar texta auk þess sem ljóð eftir Egil sjálfan koma þar fyrir, meðal ann- ars Höfuðlausn og Sonatorrek. Í samtali við Morgunblaðið sagði Hlynur þá félaga ekki hafa verið hrædda við að hrófla við hinni þekktu sögu á þennan hátt. „Okkur fannst þess virði að reyna þetta þar sem við vissum ekki til þess að nokkur hefði gert tilraun til þessa áður,“ sagði hann. „Við erum harla kátir með árangurinn. Platan er löng, jafnlöng og fimm hliðar á vín- ylplötu. Menn verða því að vera þolinmóðir við hlustunina en ég held að þetta eigi eftir að renna vel eftir eitt tvö skipti.“ Söngleikurinn var hreint ekki saminn á einni nóttu og segir Hlynur þá félaga fyrst farið að huga að verkinu árið 1999. Það var þó fyrst í fyrra að skriður komst á málið og textagerð og lagasmíð hófst af alvöru. Þó söngleikurinn liggi fullbúinn á plötunni segist Hlynur ekki hafa áform um að setja hann upp … allavega ekki ennþá. Aðspurður hvort fleiri Íslendingasögur í söngleikjabúningi séu væntanlegar svarar Hlynur: „Það er ekkert ákveðið enda er þetta óskaplega mikil vinna. Textarnir voru ekki einfaldir enda grínumst við stundum með það að platan sé fyrir greindara fólk með húm- or.“ Hljómsveitin Úlfar er flytjandi söngleiksins á plötunni en hana skipa auk Hlyns, Sigurðar og Egils Skallagrímssonar þeir Gunnar Einar Steingrímsson, Hjörtur Guðnason, Gunnar Kristján Steinarsson og Soffía Stefánsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Söngleikjasmiðir Þeir Hlynur Þorsteinsson og Sigurður Grétarsson sömdu söngleik um Egils sögu og eru harla ánægðir með árangurinn. Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Þeir Hlynur og Sigurður sömdu söngleik um Egil Skallagrímsson Fyrir greindara fólk með húmor Heiða Jóhannsdóttir segir kvik- myndina Talladega-nætur vera eina fyndnustu gamanmynd ársins. » 48 kvikmynd Fjöldi fólks mætti í áheyrn- arprufu fyrir sjónvarpsþáttinn X-Faktor sem sýndur verður á Stöð 2 í vetur. » 48 sjónvarp Aparnir í Eden virðast sann- arlega eiga upp á pallborðið hjá þjóðinni en plata Baggalúts sit- ur á toppi Tónlistans. » 48 tónlist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.