Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 49 menning Einstakt umhverfi, metnaðarfull matargerð og bráðskemmtileg dagskrá. Sveit-Ungarnir sjá um frábæra tónlistardagskrá og halda uppi brosmildri stemningu. Jólafjöldasöngur - undir stjórn Valda í Brekkukoti og Bjarna Guðmundssonar. Tröllafossar upplýstir og heilsar upp á tröllskessuna í klettinum. Tónmilda Ísland - Einstök og hrífandi sýning um íslenska tónlist og náttúru. Reykjavík - Fossatún 88 km eða um 1 klst. akstur. Beygt er út af þjóðvegi 1 áður en komið er að Borgarfjarðarbrúnni inn á veg nr. 50 - Borgarfjarðarbraut, sem liggur að Hvanneyri, Reykholti og Húsafelli. Fossatún er í um 18 km fjarlægð eftir að beygt er og blasir við þegar farið er yfir brúna á Grímsá. Nánari upplýsingar í s. 433 5800 - www.steinsnar.is - www.fossatun.is Forréttir: 1. Hátíðarsíld 2. Jólasíldarsalat 3. Grafinn lax 4. Reyktur lax 5. Hunangskryddleginn lax 6. Koníakslax í kryddostahjúpi 7. Laxamús með kavíar 8. Heitreykt gæsabringa 9. Tvítaðreykt hrátt hangikjöt með suðrænum ávöxtum 10. Heimalagað sveitaapaté 11. Heimalagað sviðapaté 12. Rjúpusúpa Aðalréttir: 1. Hátíðarhangikjöt 2. Sveitaskinka 3. Villikryddað jólalamb 4. Heilsteiktur fylltur kalkúnn 5. Léttreykt sykursaltað grísalæri 6. Innbakaður lax með spínati og gráðosti 7. Heitt humar og laxasalat Meðlæti: 1. Brún villikryddsósa 2. Brún gráðostasósa 3. Hunangsdijonsósa 4. Piparrótarsósa 5. Graflaxsósa 6. Köld sjávarréttasósa 7. Pannerað rótargrænmeti 8. Rauðkál 9. Rauðrófur 10. Grænar baunir 11. Maísbaunir 12. Ferskt blandað salat 13. Waldorfsalat 14. Kartöfluuppstúf 15. Sykurbrúnaðar kartöflur 16. Heimalöguð rabarbarasulta 17. Rifsberjahlaup 18. Laufabrauð 19. Heimabakað rúgbrauð 20. Heimabakað kanelbrauð Eftirréttir: Eplasalat Súkkulaðiterta hússins Jólaís Sörur Piparkökur Jólahlaðborð - Matseðill 24. og 25. nóvember ● 1., 2., 8. og 9. desember Verð 4.900 kr. ● Borðapantanir í síma 433 5800 Tíminn og vatnið SKUGGALEIKUR, ný íslensk ópera, verður frumsýnd í Óperunni 18. nóvember. Tónlistin er eftir Karólínu Eiríksdóttur og textinn er eftir Sjón. Leikstjóri og leik- myndar- og búningahöfundur er Messíana Tómasdóttir. Óperan er byggð á sögunni Skugganum eftir H.C. Andersen, dæmisögu, þar sem skáldið felur skugga sínum að finna skáldgyðju sína, sem reynist ekki þrautalaust. Sagan er margræð, vekur siðferði- legar spurningar og á ekki síður er- indi í nútímanum en þegar hún var skrifuð. Hér eru Sverrir Guð- jónsson og Ásgerður Júníusdóttir í hlutverkum sínum, en aðrir söngv- arar eru Eyjólfur Eyjólfsson og Ingibjörg Guðjónsdóttir. Ljósmynd/Salbjörg Rita Jónsdóttir Skugginn og prinsessan LEIKKONAN Helen Mirren þykir sýna afburða góðan leik í hlutverki sínu sem Elísabet II Englands- drottning í kvikmyndinni The Queen. Mirren hlaut meðal annars verðlaun sem besta leikkona í aðal- hlutverki á aðþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Feneyjum sem haldin var á dögunum. The Queen segir frá viðbrögðum drottningar við sviplegu fráfalli Díönu prinsessu. Drottningin lok- aði sig og fjölskyldu sína af í kjöl- farið meðan breska þjóðin þráði huggun. Myndin var á dögunum sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð og var jafnframt opnunarmynd hátíð- arinnar. Með önnur hlutverk fara James Cromwell sem leikur Philip drottningarmann, Alex Jennings sem Karl Bretaprins, Sylvia Syms sem drottningarmóðirin og Michael Sheen sem Tony Blair. Leikstjóri The Queen er Stephen Frears. Myndin hefur víðast hvar hlotið lof gagnrýnenda en hún er frumsýnd í Háskólabíói á morgun. Úr myndinni Philip drottningarmaður, Elísabet og Tony Blair. Frumsýning | The Queen Drottningin Mirren Erlendir dómar: Metacritic: 90/100 New York Times: 100/100 Hollywood Reporter: 90/100 Variety: 90/100 Allt skv. Metacritic. OKTÓBERFEST Þjóðverja er hátíðahöld sem smitað hafa út frá sér víða um heim. Ár hvert er þessi hátíð öls og gleði haldin ekki bara í Þýskalandi heldur í mörgum öðrum Evrópuríkjum. Í gamanmyndinni Beerfest (Bjórhátíð) segir af tveim- ur bræðrum sem ferðast frá Bandaríkjunum til Þýska- lands til að taka þátt í herlegheitunum. Bræðurnir Jan og Todd uppgötva í Þýskalandi leynd- armál, samkvæmisleik sem að sögn má best lýsa sem samblandi af kneyfun öls í bland við slagsmál með berum hnefum. Leikstjóri myndarinnar er Jay Chandrasekhar sem hefur gert myndir á borð við The Dukes of Hazzard og Super Troopers. Beerfest er frumsýnd í Sambíóunum á morgun, föstu- dag. Frumsýning | Beerfest Bjór Um er að ræða gamanmynd um tvo bræður. Bjórhátíðin mikla Erlendir dómar Metacritic: 50/100 Variety: 50/100 New York Times: 50/100 Hollywood Reporter: 30/100 HRYLLINGSMYNDIN Texas Chainsaw Massacre: The Beginning verður heimsfrumsýnd hér á landi sem og í Bandaríkjunum á morgun. Eins og nafnið gefur til kynna er hér á ferðinni sagan af því hvernig eitt frægasta illmenni kvikmyndasög- unnar varð til, keðjusagarmorðinginn. Áður en vinirnir Eric og Dean eru sendir til herþjón- ustu í Víetnam ákveða þeir að sletta aðeins úr klaufunum ásamt kærustunum Chrissie og Bailey. Þau verða fyrir slysi á vegum úti en þegar lögreglustjóri svæðisins ætlar að aðstoða þau verða aðstæðurnar skyndilega martrað- arkenndar. Texas Chainsaw Massacre: The Beginning er frum- sýnd í Laugarásbíói og Regnboganum. Frumsýning | Texas Chainsaw Massacre: The Beginning Byrjunin Sögð er saga keðjusagarmorðingjans. Upphafið Erlendir dómar: Metacritic: 50/100 Hollywood Reporter: 50/100 Bæði skv. Metacritic.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.