Morgunblaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 22
Skriflegur þjónustusamningur
er meðal atriða sem ber að hafa
í huga þegar ráða á iðnaðar-
mann í vinnu. » 28
neytendur
|fimmtudagur|5. 10. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Sextán manna gönguhópur
lagði land undir fót í sumar
og gekk um Katalóníu og
Aragóníu. » 26
ferðalög
Það er meðal annars hægt að
kaupa á tilboði lambalæri og
súpukjöt af nýslátruðu og
lambahrygg. » 24
tilboð
Börkur Gunnarsson hefur dval-
ið í Írak og honum er minnis-
stætt kaffihúsið á „græna
svæðinu“ þar. » 27
kaffihús
Órannsökuð erfðabreytt hrís-
grjón hafa undanfarið fundist í
bandarískum hrísgrjónasend-
ingum víða um heim. » 24
hrísgrjón
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Þ
essi samningur gefur bæði
nemum og starfandi snyrti-
fræðingum gullið tækifæri
til að ferðast og vinna í lúx-
usumhverfi á launum, sem
eru mun hærri en tíðkast á Íslandi,“ segir
Inga Þyrí Kjartansdóttir, framkvæmda-
stjóri Snyrtiakademíunnar í Kópavogi.
Inga Þyrí og Kristín Stefánsdóttir,
eigendur Snyrtiakademíunnar, hafa gert
samning við Steiner LTD, sem rekur al-
hliða snyrtistofur og heilsulindir um borð
í 125 skemmtiferðaskipum, sem sigla
með farþega um öll heimsins höf.
„Þetta er stórt tækifæri fyrir íslenskar
stúlkur, sem vilja freista gæfunnar úti í
heimi auk þess sem launin eru miklu
hærri en sem nemur nemakaupinu hér
heima. Þær stúlkur, sem hafa lokið bók-
legu og verklegu snyrtifræðinámi, ýmist
hér hjá okkur í Snyrtiakademíunni eða
frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, geta
sótt um að komast um borð í skipin til að
vinna sem nemar eða fullmenntaðir
snyrtifræðingar, eins lengi og þær
kjósa.“ Fyrsta íslenska stúlkan, Erla
Gísladóttir, byrjar að vinna fyrir Steiner
í desember nk., en hún mun útskrifast frá
snyrtiskóla Snyrtiakademíunnar. Búast
má við því að fleiri fylgi í kjölfarið. Ingrid
Borst, ráðningastjóri Steiner, kemur
hingað til lands í desember til að taka ís-
lenska kandidata í starfsmannaviðtöl.
Kröfuharðir kúnnar
„Við erum að leita að förðunarfræð-
ingum, naglafræðingum, nuddurum, hár-
greiðslufólki, sjúkraþjálfurum og íþrótta-
fræðingum. Þeir, sem til greina koma,
eru sendir í þjálfunarbúðir á vegum
Steiner í London í tvær til tólf vikur áður
en þeir eru sendir áfram um borð í eitt-
hvert skipanna. Hver starfsmaður gerir
átta mánaða samning í senn og eru laun-
in að jafnaði um tvö þúsund evrur á mán-
uði skattfrjáls auk árangurstengdrar
söluþóknunar. Ekki þarf starfsfólkið um
borð að greiða sérstaklega fyrir aðbúnað,
afþreyingu eða mat um borð. Steiner
byrjaði sem lítið fjölskyldufyrirtæki, en
er nú orðið að stórveldi, sem hefur verið á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum frá árinu
1994.“ Auk þess að reka heilsulindir og
snyrtistofur um borð í 125 skemmtiferða-
skipum, sér Steiner um sömu starfsemi á
um sextíu lúxushótelum vítt og breitt um
heiminn undir heitunum Mandara Spa
eða Elemis Spa og framleiðir eigin
húðkremalínu undir heitinu Elemis.
„Um borð í hverju skipi erum við með
tuttugu til þrjátíu manna teymi. Við vilj-
um sjálf þjálfa okkar starfsfólk fyrir þessi
störf um borð í skipunum því við erum að
fást við kröfuharða kúnna,“ sagði Ingrid í
samtali við Daglegt líf, en hún var stödd
hér á landi um síðustu helgi um leið
og skemmtiferðaskipið Star
Princess lá við Skarfabakka í
Sundahöfn. Um borð í skipinu,
sem telur átján hæðir, voru
2.600 farþegar og 1.100 starfs-
menn frá 43 þjóðum. Ferðalagið hófst
í Kaupmannahöfn og síðan komið við í
Rússlandi, Svíþjóð, Noregi, Englandi,
Skotlandi, Írlandi og Íslandi, en héðan
var förinni heitið til endastöðvarinnar
New York.
Heilsulind Ein af fjórum sundlaugum um borð í hinu átján hæða Star Princess skemmtiferðaskipi.
Lúxushótel Star Princess
er eitt af 125 skipum sem
Steiner mannar í stöður
snyrtifræðinga,
hárgreiðslufólks,
nuddara og
íþróttaþjálfara.
Íslendingum
býðst vinna
í skemmti-
ferðaskipum Morgunblaðið/Ómar
Samningur Inga Kolbrún Hjartardóttir, skólastjóri Snyrtiskólans, Ingrid Borst, ráðningastjóri Steiner, Anna María
Jónsdóttir í nemaleyfisnefnd, Inga Þyrí Kjartansdóttir og Kristín Stefánsdóttir, eigendur Snyrtiakademíunnar.
TENGLAR
..........................................................
www.snyrtiakademian.is
www.steinerleisure.com