Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 17

Morgunblaðið - 05.10.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2006 17 ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is LEIÐTOGAR margra ríkja hafa brugðist hart við þeirri hótun Norður-Kóreustjórnar að hefja til- raunir með kjarnavopn. Talið er að fyrir henni vaki meðal annars að reyna að draga úr fjárhagslegum þrýstingi sem Bandaríkjastjórn hefur beitt með þeim árangri að farið er að þrengja að ráðamönn- unum í Pyongyang. Sérfræðingar í málefnum Aust- ur-Asíu segja að taka beri hót- unina alvarlega. Þeir óttast meðal annars að kjarnorkutilraunir Norð- ur-Kóreumanna leiði til vígbúnað- arkapphlaups í þessum heimshluta. Embættismenn í Suður-Kóreu voru fljótir að vara við því að vax- andi spenna vegna deilunnar um Norður-Kóreu gæti orðið til þess að Japanir yrðu sér úti um kjarna- vopn. „Þetta gæti orðið til þess að Japanir fengju átyllu til að eignast kjarnavopn og það myndi síðan hafa eftirköst í Kína og Rússlandi og breyta almenna valdajafnvæg- inu í þessum heimshluta,“ sagði Yu Myung-Hwan, aðstoðarutanríkis- ráðherra Suður-Kóreu, í ræðu á þingi landsins í gær. Bankar þjarma að N-Kóreu Sérfræðingar sögðu að svo virt- ist sem eitt af markmiðum N-Kór- eustjórnar með hótuninni væri að reyna að losa sig úr fjárhagslegri spennitreyju sem Bandaríkjamenn hefðu haldið henni í að undan- förnu. „Bandarísk stjórnvöld hafa sagt bönkunum að ef þeir hætti ekki öllum viðskiptum við Norður-Kór- eu haldi þeir ekki aðgangi að bandarísku fjármálamörkuðunum,“ hafði fréttastofan AFP eftir Peter Beck, helsta sérfræðingi hugveit- unnar International Crisis Group í málefnum Norðaustur-Asíu. Síð- ustu mánuði hefur fjármálaráðu- neyti Bandaríkjanna lagt fast að bönkum í Singapúr, Víetnam og fleiri löndum að loka reikningum Norður-Kóreu. „Þetta er ekki liður í formlegum refsiaðgerðum, heldur tilraun til að beita almennum þrýstingi til að binda enda á ólög- lega fjármálastarfsemi Norður- Kóreumanna,“ sagði Beck. „En netið sem lagt hefur verið er svo stórt að það er líka farið að ná til löglegrar starfsemi.“ Notfæra sér kosningarnar Paik Hak-Soon, sérfræðingur við hugveitu í Seúl, sagði að Norður- Kóreumenn vonuðust einnig til þess að geta haft áhrif á kosning- arnar í Bandaríkjunum. „Stjórnin í Pyongyang telur að núna sé rétti tíminn til að knýja Bandaríkja- stjórn til að fallast á samninga- viðræður og aflétta fjárhagslegu refsiaðgerðunum,“ sagði Paik. Aðrir fréttaskýrendur í Suður- Kóreu tóku í sama streng og sögðu að ef Norður-Kóreumenn stæðu við hótunina hæfust kjarnorkutil- raunirnar að öllum líkindum fyrir kosningarnar 7. nóvember.                                      !""" !"#   "" $ #   $ $ $ "! % &$'$ (          )$'$   * + ,  $ +    -'. / $01   21$ ' !'!  / $01 ( 3(  !"#$#%& 45 ( 3(   $' (& ) * +,-&. / 0-*./ "",(% 6 /#!'! 6 0%  /#!'! $  )12,%(*(,2,!(3)4&-,412   ,567&&1(, ') 7%%%&( ,5*  %% 4#,*(,2,!(( *8!,67&& )'7,, " ), (%,!* 1 ,%#, (9#"%: %$ ,4  )12,%9;$ ;&*( *8! 5'#,#,*(, 2,!( )12,% ,9-,(< 9 ,!&2&%9*',*46!%(= !  "  # # #$ #   %$  ! &' (#)    $ 7%! % "    : % $ , 4 % Telja hættu á vígbúnaðar- kapphlaupi Hótun N-Kóreumanna sögð tilraun til að losna úr fjárhagslegri spennitreyju Í HNOTSKURN » Norður-Kóreumenn lýstu þvíyfir í febrúar 2005 að þeir hefðu þróað kjarnavopn. » Bandaríska leyniþjónustanCIA telur að Norður- Kóreumenn geti nú þegar sett saman sex til átta kjarnorku- sprengjur. » Norður-Kóreumenn ollumiklu upppnámi í júlí þegar þeir skutu sjö eldflaugum í til- raunaskyni. Sokoto. AFP. | Margir kvíða því að þurfa að leiða lífsförunautinn upp að altarinu, umstangið í kringum athöfnina er mikið og flestir eru því fegnir þegar hún er að baki. Þó eru þeir til sem sverja heit um eilífa tryggð oftar en einu sinni, sumir miklu, miklu oftar. Nígeríumað- urinn Shehu Malami, sem er á 69. aldursári, tilheyrir ugglaust þess- um hóp en hann gerði sér lítið fyrir í síðustu viku og gifti sig í 201. skiptið á lífsleiðinni. „Ég vil ekki fleiri giftingar, þetta er endirinn. Ég mun halda í eig- inkonur mínar fjórar allt til enda svo fremi sem annað ólán hendir mig ekki,“ sagði Malami íbygginn, þar sem hann sat í skugga mangó- trés í borginni Sokoto í vikunni. Þegar Malami kvæntist í 200. skiptið í júní 2004 lofaði hann að það yrði í allra síðasta skipti. En erfitt reyndist að halda loforðið, hann kvæntist enn og aftur í síðustu viku til að fylla í skarð fertugrar ástkonu sem hann skildi við. Malami nálgast sem fyrr segir sjötugt en honum er lýst sem lág- vöxnum og sköllóttum 29 barna föður. Hann gengur undir gælu- nafninu „Maisaje“, sem útleggst „maðurinn með skegghárin“, en að eigin sögn hefur líf hans einkennst af ævintýralegri reynslu af hjóna- böndum, svo sem nærri má geta enda eiginkonurnar alls 199 talsins. Prófessor í sálarlífi kvenna „Ég hef einstaklega kröfuharðan smekk fyrir konum og kynlífs- löngun mín er nokkuð sterk. Ég bar mig alltaf eftir lostafullum konum, því mér hafa aldrei þótt konur með siginn afturenda spennandi.“ Malami hugðist gefa út ævisögu en því miður lést vinur hans, sem ætlaði að fjármagna útgáfuna, þeg- ar frásögnin var komin að eig- inkonu númer 160. „Ég lít á mig sem prófessor þegar kemur að kon- um og sálarlífi þeirra. Það er ekki til sú manngerð á meðal kvenna sem ég hef ekki fengist við.“ Fékk loksins nóg eftir 201 giftingu Ramallah. AFP. | Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hét í gær stuðningi Bandaríkja- stjórnar við Mahmoud Abbas, leið- toga Palestínumanna, sem hefur átt undir högg að sækja. Rice sagði eftir fund með Abbas í Ramallah á Vesturbakkanum að Ab- bas hefði vakið „mikla aðdáun“ bandarískra ráðamanna. Áður hafði Abbas sagt að viðræður hans við leiðtoga Hamas um myndun þjóð- stjórnar á svæðum Palestínumanna hefðu farið út um þúfur. Rice hyggst einnig ræða við Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, til að reyna að blása lífi í friðarumleit- anir í Mið-Austurlöndum. Reuters Lofar stuðn- ingi við Abbas

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.