Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Til leigu
lagerhúsnæði
Allt að 2.000 fermetra húsnæði til
leigu miðsvæðis í Reykjavík.
Upplýsingar gefur Gunnar
í síma 693 7310.
Fundir/Mannfagnaðir
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Kynningarfundur
vegna Höfðatorgs
Vakin er athygli á kynningarfundi vegna auglýstra
breytinga á deiliskipulagi fyrir Skúlatúnsreit
eystri, Höfðatorg, sem afmarkast af Borgartúni,
Skúlatúni, Höfðatúni og Skúlagötu.
Fundurinn verður haldinn í kvöld,
mánudaginn 16. okt.
klukkan 20 í Laugalækjarskóla.
Hverfisráð Laugardals
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsviðFélag
sjálfstæðismanna
Fundur með
borgarstjóra
Opinn félagsfundur Félags
sjálfstæðismanna í vestur- og
miðbæ verður haldinn mánu-
daginn 16. október kl. 17:15 á
Kaffi Reykjavík við Vesturgötu.
Gestur fundarins verður
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri.
Fundarstjóri verður Sigríður
Andersen, formaður félagsins.
Í ljósi þess að hveitibrauðsdag-
ar nýs borgarstjórnarmeirihluta
eru liðnir þykir vesturbæingum
áhugavert að fá að heyra hvaða
meðferð málefni vestur- og
miðbæjar fá hjá borgaryfirvöldum á næstu
misserum.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Húsnæði óskast
Skrifstofuhúsnæði óskast
800 fm skrifstofuhúsnæði óskast til kaups eða
leigu miðsvæðis í Reykjavík fyrir traustan
aðila.
Húsnæðið þyrfti að vera til afhendingar fljótlega.
Upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn ehf.
Óðinsgötu 4. s. 570 4500.
Ýmislegt
Lekur skattkerfið?
Margir lífeyrissjóðir, (14), hafa ákveðið að
lækka afturvirkt greiðslur til þúsunda öryrkja
frá 1.11.2006 vegna annarra tekna þeirra. (Eru
eignatekjur þar á meðal?) Hvernig fá þessir
lífeyrissjóðir glöggar og traustar upplýsingar
um „aðrar tekjur“ öryrkja?
Í 117. gr. laga nr. 90/2003 er bann við því að
skattkerfisstarfsmenn skýri óviðkomandi
mönnum fá tekjum og efnahag skattaðila.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
Félagslíf
HEKLA 6006101619 IV/V
GIMLI 6006101619 I
I.O.O.F. 19 18710168
Raðauglýsingar
sími 569 1100
MINNINGAR
✝ Sigþrúður Sig-laugsdóttir
(Dúa) fæddist á Ak-
ureyri 11. ágúst
1952. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri 8.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðfinna Sig-
ríður Jónsdóttir, f.
17. des. 1920, d. 4.
mars 2000, og Sig-
laugur Brynleifsson,
f. 24. júní 1922, d. 8.
febr. 2003. Sigríður
og Siglaugur skildu. Alsystkini
Sigþrúðar eru: Guðrún, f. 1. ágúst
1947, eiginmaður Sigurður Emil
Ragnarsson, f. 12. sept 1943, d. 5.
sept. 2000; Ingibjörg Svafa, f. 10.
eiginkona Margrét Birna Sveins-
dóttir, f. 11. maí 1967; Dóróthea
Júlía, f. 13. nóv 1968; Brynleifur, f.
29. ágúst 1970, eiginkona Jóhanna
Sigurveig Ólafsdóttir, f. 20. apríl
1975.
Sigþrúður giftist 13. ágúst 1977
Hjörleifi Gíslasyni, f. 19. des. 1948.
Þau skildu. Börn þeirra: 1) Finnur
Sigurðsson (faðir Sigurður Guð-
mundsson frá Akureyri), f. 24.
mars 1972. Eiginkona hans er
Berglind Vilhjálmsdóttir, f. 27. maí
1973. Þeirra dóttir er Diljá, f. 14.
febr. 2001. 2) Gísli, f. 5. ágúst 1981.
Kærasta hans er Bryndís Fiona
Ford, f. 25. des. 1978. 3) Sveinn, f.
9. jan. 1984. 4) Leifur, f. 22. júlí
1986.
Sigþrúður bjó lengst af á Ak-
ureyri og stundaði þar ýmis störf,
en síðustu æviár sín einbeitti hún
sér að hönnun og framleiðslu
minjagripa.
Útför Sigþrúðar verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
ágúst 1950, eig-
inmaður Pétur Þór-
arinsson, f. 23. júní
1951; Brynleifur
Gísli, f. 22. sept 1953,
eiginkona Anna
Árnína Stefánsdóttir,
f. 30. júlí 1953; Guð-
brandur, f. 29. jan
1956, sambýliskona
Matthildur Ágústs-
dóttir, f. 7. júní 1956;
Júlía, f. 24. febr. 1959,
eiginmaður Óttar Ár-
mannsson, f. 25.
ágúst 1957; og Hall-
grímur, f. 6. okt 1971. Hálfsystkini
Sigþrúðar, börn Siglaugs og seinni
konu hans Ingibjargar Þ. Steph-
ensen, f. 9. jan 1936, d. 27. apríl
2001, eru: Þorsteinn, f. 8. maí 1967,
Elsku mamma, ég veit ekki alveg
hvernig ég á að byrja þessi orð en
hugsi ég hvað þú myndir segja,
myndir þú segja þetta vera bara fína
byrjun. Þannig hefur þú alltaf verið,
hvattir okkur bræður áfram í nánast
öllu og leyfðir okkur að prófa okkur
áfram í hinu og þessu sem við vildum
prófa okkur í. Mikið varst þú stolt af
mér þegar ég byrjaði í mínu núver-
andi starfi og hef ég fengið að vita
það nánast daglega síðan. Stolt, gleði
og hamingja einkenndu þig, alltaf til
í að koma út á göngu eða hlaupa und-
ir bagga með Diljá mína þegar ég var
að lenda í útkalli og mig vantaði
pössun strax. Aldrei voru nein
vandamál eða leiðindi sem ílengdust
hjá þér. Íhugun, jóga, almenn úti-
vera og einstakt val á góðum vinum
gaf þér svo mikið. Veikindi þín slógu
mig mikið út af laginu, allt í einu gat
stefnt í það að ég missti yndislega
móður og frábæran vin í einni svip-
an. Hvert annað var best að leita en
til þín? Þú hughreystir mig og
ákveðnin, blíðan og keppnisskapið
kom þá fram í sinni mögnuðustu
mynd og taldir þú okkur trú um það
að þú myndir sigra þennan versta
óvin. Þetta var um haustið 1997. Síð-
an eru liðin mörg yndisleg ár og
margfalt fleiri yndislegar stundir.
Hvað þú hefur kennt mér mikið,
hvað þú átt eftir að koma mikið að í
vangaveltum mínum um lífið og til-
veruna. Diljá mín segir að hún
gleymi aldrei neinum sem deyr, nú
getir þú hitt Viktor og þið getið verið
saman.
Þú hefur verið og verður alltaf sig-
urvegari, sigurvegarinn okkar.
Mikið eigum við eftir að sakna þín,
elsku mamma!
P.S. Diljá biður að heilsa Viktori.
Finnur, Berglind, Diljá,
Stubbur og Nói.
Í dag kveðjum við hinsta sinni
kæra mágkonu og vinkonu okkar,
hana Dúu. Kveðjustundin kom ekki á
óvart en er engu að síður bæði ótíma-
bær og sár. Er okkur efst í huga
þakklæti fyrir umhyggju hennar og
ánægjulega samfylgd í rúma þrjá
áratugi, samfylgd sem hefur veitt
okkur mikla gleði, uppörvun og lífs-
fyllingu.
Fyrstu minningarnar um Dúu eru
frá unglingsárum mínum og fyrstu
búskaparárum hennar og Hjölla í
Reykjavík þar sem þau áttu fallegt
heimili. Dúa vann í Litaveri á þess-
um árum og ekki leið á löngu þar til
sveitaheimilið okkar hafði verið mál-
að, teppalagt og veggfóðrað með
vörum úr Litaveri og samkvæmt
nýjustu tísku áttunda áratugarins.
Hún vílaði ekki fyrir sér að búa til
snið og sauma frumlegar flíkur og
naut ég þess sem unglingur á leið í
mína fyrstu ferð til útlanda að eiga
fulla tösku af nýtísku fatnaði til ferð-
arinnar.
Hún var afburða smekkvís og list-
ræn og það lék flest í höndunum á
henni. Smekklegra heimili en heimili
þeirra Hjölla var vandfundið, enda
prýtt handveki þeirra beggja í bland
við gamla ættargripi sem voru Dúu
kærir og tengdust flestir æsku henn-
ar. Notalegt andrúmsloft einkenndi
heimilið og þar var gott og endur-
nærandi að njóta líðandi stundar.
Dúa var ein af þeim konum sem
greindist með krabbamein í brjósti,
hún barðist hetjulega við þann sjúk-
dóm og hafði betur í fyrstu. Hún
hugði vel að heilsunni og náði góðum
styrk á ný og var farin að vinna aftur,
bæði úti og að eigin hönnun og fram-
leiðslu á þjóðlegu handverki. En
enginn má sköpum renna. Fyrir
nokkrum misserum veiktist hún aft-
ur, meinið hafði búið um sig á nýjum
stað og enn hóf hún baráttuna. Það
hve hún var í góðu líkamlegu og and-
legu formi þegar hún veiktist að nýju
var henni styrkur í veikindunum. Á
þessum tíma skildu jafnframt leiðir
þeirra Hjölla og hélt Dúa heimili með
Leifi yngsta syni þeirra síðan. Í vor
var ljóst að Dúa næði tæplega heilsu
á ný þó hún gæfi aldrei upp þá von.
Hún hafði svo mikið að lifa fyrir og
kom það vel í ljós í veikindum hennar
hvað synirnir fjórir og fjölskyldan
hennar reyndust henni vel.
Það er táknrænt að Dúa háði sína
lokabaráttu á sama tíma og alþjóðleg
styrktarganga gegn brjóstakrabba-
meini var haldin í New York. En Dúa
var mikill göngugarpur og gekk dag-
lega langa túra „yfir brýrnar“ eða í
Kjarnaskógi á meðan kraftar entust
henni.
Við Kristján Rafn kveðjum Dúu
með söknuði. Við biðjum Guð að varð-
veita hana og styrkja þá sem eftir lifa.
Hildur Helga Gísladóttir.
Enginn veit sína ævi fyrr en öll er.
Nú ert þú farin til nýrra heim-
kynna, þar sem foreldrar þínir og
fleiri tóku á móti þér. Elsku Dúa, við
sáum þig fyrst fyrir 32 árum þegar þú
komst með lítinn tveggja ára glókoll
þér við hönd til að athuga hvort þú
gætir hugsað þér að fela okkur hann
til dagvistar meðan þú varst að vinna.
Nú er glókollurinn orðinn stór og hef-
ur ásamt yngri bræðrum sínum verið
þér mikil stoð í erfiðum veikindum.
Þeir hafa vakað yfir hverri þinni
stund og létt þér gönguna eftir
mætti. Það hafa verið forréttindi fjöl-
skyldu minnar að eiga þig og þína
fjölskyldu að vinum. Þú hefur verið
traustur vinur. Skilyrðislaus vinur.
Alltaf til staðar í blíðu og stríðu. Oft
höfum við dvalið saman, skemmt okk-
ur saman, ferðast saman utan- og
innanlands og síðast en ekki síst
gengið saman. Þær eru ófáar göngu-
ferðirnar í Kjarnaskógi þar sem þú
áttir þitt tré sem þú sóttir orku til og
þar sem þú fannst þínar rætur. Eftir
að þrek þitt vegna veikinda fór að
dvína fékkst þú mikla ánægju af
gönguferðum úti í náttúrunni. Þar
fylgdist þú með stóru og smáu í lífrík-
inu. Þú varst mikið náttúrubarn og
naust þín oft best ein með sjálfri þér á
gangi fjarri skarkala bæjarins. Það
var mjög í þínum anda að á 50 ára af-
mælinu skyldir þú bjóða fjölskyldu
þinni og vinum með þér í gönguferð
allfjarri alfaraleið. Þar varst þú á
slóðum forfeðra þinna. Okkur öllum
sem vorum með í för er þessi dagur
ógleymanlegur. Saga og fortíð í
hverju skrefi. Landið grösugt. Fjöll,
berjalyng, húsarústir, fé á beit og
fuglar á flugi við ströndina. Fegurð
hvert sem litið var.
Margt fallegt saumaðir þú á strák-
ana þína og sjálfa þig á árum áður en í
seinni tíð föndraðir þú fjölmarga
minjagripi sem vinsælir voru á þeim
vettvangi sem þú starfaðir á síðustu
árin en það var í Gamla bænum í
Laufási. Þar var eins og þú værir
fædd og uppalin. Þú féllst gjörsam-
lega inn í tíma bæjarhúsanna, og
þeirra hluta sem þar voru.
Elsku vinkona.
Að fylgjast með þér, fjörið að teiga
forréttindi voru þig að eiga,
kæra vinkona, kveðjumst að sinni
kölluð ert nú í alheimsminni.
Þú flogin ert burtu, fuglunum með,
flogin ert hærra en nokkur fær séð.
Ég kveð þig, vinkona, kveð þig um hríð,
ég kem svo seinna um einhverja tíð.
(S. F. G.)
Við þökkum þér alla þína vináttu
liðinna ára.
Elsku Finnur, Gísli, Sveinn, Leif-
ur, Berglind, Bryndís og Diljá, inni-
legar samúðarkveðjur til ykkar og
móðursystkina ykkar og fjölskyldna.
Sæunn og Guðmundur Karl.
Mig setur hljóða. Vinkona mín í
tæpa hálfa öld, Sigþrúður G. Sig-
laugsdóttir eða Dúa eins og hún var
kölluð, hefur kvatt þessa tilvist. Það
kom ekki á óvart, en ávallt heldur
maður í vonina um að ástvinir og vinir
dvelji lengur meðal okkar. En þannig
er lífið, dauðinn fylgir á eftir. Ég læt
hugann reika. Minningar um góða
vinkonu streyma. Móðurhlutverkið
var henni hugleikið. Drengirnir
hennar voru Dúu allt. Þeir voru henni
svo góðir.
Dúu var margt til lista lagt. Hún
var kröftug í listsköpun sinni, hvort
sem það var leir eða málverk. Þar
naut hún sín í frumkraftinum. Til
margra ára stundaði Dúa skíðaíþrótt-
ir og var margfaldur Íslandsmeistari
í svigi og stórsvigi.
Ég vil þakka vinkonu minni fyrir
tryggðina og að vera hún sjálf. Son-
um hennar Finni, Sveini, Gísla og
Leifi, barnabarni, tengdadóttur,
Hjörleifi, systkinum, öllum ástvinum
og frændgarði votta ég samúð mína.
Góða ferð.
Ingibjörg R. Vigfúsdóttir
(Dinda).
Sigþrúður
Siglaugsdóttir