Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga. Bjóðum nú frábær tilboð á
tveimur hótelum - Hotel Ilf, sem er góð þriggja stjörnu gisting og Hotel Park
sem er vel staðsett og nýendurnýjað fjögurra stjörnu hótel. Fararstjórar
Heimsferða gjörþekkja borgina og
kynna þér sögu hennar og heillandi
menningu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Helgarferð til
Prag
9. nóvember
frá kr. 39.990
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi 9. nóv. í 4
nætur á Hotel Park með morgunmat.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi 9. nóv. í
4 nætur á Hotel Ilf með morgunmat.
STOFNFUNDUR nýs félags vél-
stjóra og járniðnaðarmanna var
haldinn á laugardaginn var, en í
nýja félaginu sameinast Vélstjóra-
félag Íslands og Félag járniðnaðar-
manna. Nýja sameinaða félagið
hlaut nafnið Félag vélstjóra og
málmtæknimanna (VM). Félagar
eru um fjögur þúsund talsins, en
um 2.200 voru í Vélstjórafélaginu og
um 1.800 í Félagi járniðnaðar-
manna.
Helgi Laxdal er formaður hins
nýja félags og Örn Friðriksson
varaformaður. Helgi sagði að stofn-
fundurinn hefði tekist ljómandi vel.
Almennt væri ánægja með samein-
inguna, þó undantekningar væru á
því eins og gengi. Hið sameinaða fé-
lag yrði með fjögur þúsund félaga
og yrði það langstærsta stéttar-
félagið sem næði til alls landsins.
Samlegðaráhrif af sameiningunni
væru mikil og eftir eitt til tvö ár
ætti að vera hægt að lækka fé-
lagsgjöldin verulega og veita þrátt
fyrir það betri þjónustu en áður.
Helgi sagði að samanlagt væru
félögin með 23 kjarasamninga. Þeir
fyrstu þeirra rynnu sitt skeið í árs-
byrjun 2008 og síðan fram eftir því
ári, en kjarasamningum myndi eitt-
hvað fækka við sameininguna.
Helgi sagði að vélstjórar og járn-
iðnaðarmenn ættu margt sameig-
inlegt og ynnu hlið við hlið víða um
land, auk þess sem námið félli sam-
an að hluta til. Ekki hefur verið
ákveðið hvar sameinað félag verður
til húsa, en gengið verður frá því á
næstu 1–2 mánuðum að sögn Helga.
22 milljónir sparast
Í tilkynningu vegna sameining-
arinnar kemur fram að markmið
með henni sé að sinna kjaramálum
enn betur og efla þjónustu, t.a.m.
vegna persónubundinna samninga,
og ráðgjöf um kjaramál. Þá felist
mörg tækifæri í faglegri símenntun,
orlofsaðstaða félagsmanna verði
fjölbreyttari og sjúkrasjóður verði
betur í stakk búinn til þess að lið-
sinna félagsmönnum. Sjóðir samein-
aðs félags verði sterkari, auk þess
sem fjárhagslegt hagræði af sam-
einingunni sé talið nema um 22
milljónum króna.
Stofnfundur nýs félags vélstjóra og járniðnaðarmanna haldinn á laugardag
Félag vélstjóra og málm-
tæknimanna verður til
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjörnir Stjórn hins nýja félags vélstjóra og málmtæknimanna.
MORGUNBLAÐIÐ og Sambíóin
bjóða áskrifendum Morgunblaðsins
í dag sem og næstu mánudaga tvo
miða fyrir einn í alla sali Sambíó-
anna. Á forsíðu Morgunblaðinu í
dag er álímdur miði sem áskrif-
endur geta tekið með sér og fá þá 2
bíómiða á verði eins fyrir allt að
fjóra. Miðinn gildir í alla sýning-
arsali Sambíóanna í Álfabakka í
Breiðholti, Kringlunni, Akureyri,
Keflavík og Háskólabíói, nema svo-
kallaða lúxus-sali, VIP sali, og ekki
heldur á íslenskar bíómyndir. Í
þessum 5 bíóhúsum er samtals 18
salir og fjöldi bíómyndanna sem til
sýnis er mikill, þar á meðal umtal-
aðar stórmyndir eins og World
Trade Center, Queen, Zidane, The
Road to Guantanamo og Jackass –
number two.
Áskrifendur fá
2 fyrir 1 í bíó
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ virð-
ist ekki sætta sig við þá löggjöf sem
nú ríkir um hluta af vörum í mjólk-
uriðnaðinum, en það er Alþingi sem
hefur sett þær reglur og að svo
stöddu er ekki rétt að breyta þeim,
segir Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra. Í úrskurði sínum í máli
Mjólku og Osta- og smjörsölunnar
mæltist eftirlitið til þess við landbún-
aðarráðherra að hann beitti sér fyrir
breytingum á ákvæðum búvörulaga
sem hindra samkeppni og mismuna
fyrirtækjum í mjólkuriðnaði.
„Mjólkuriðnaðurinn og starfsum-
hverfi hans er mótað og markað af
löggjöf sem Alþingi er nýbúið að
setja og ég tel að hafi skilað sér í
lægra verði á mjólkurafurðum en
ella væri.“ Guðni segir fyrirkomulag
þessara mála eiga sér langa sögu hér
á landi sem og í fleiri löndum hér í
Evrópu. „Árið
2004 var mörkuð
löggjöf sem gerir
ráð fyrir að
mjólkuriðnaður-
inn sé áfram und-
ir opinberri verð-
lagningu þar sem
fulltrúar launa-
fólks koma að
ákvarðanatöku
um verðlagningu á þessum vörum.
Hér þykir þetta hafa gefist mjög vel
og er það mikilvægt bæði fyrir
mjólkuriðnaðinn og fyrir aðgang
smárra og meðalstórra verslana að
mjólkuriðnaðinum í samkeppni við
stærri verslanakeðjur,“ segir Guðni
og segist ekki sjá neina ástæðu til að
breyta löggjöfinni. „Því síður vil ég
breyta henni þegar þau tíðindi ger-
ast að mjólkuriðnaðurinn einn geng-
ur til samstarfs við ríkisvaldið um að
lækka matvælaverð til neytenda,
sem hlýtur að reyna á hann,“ segir
Guðni.
Er ekki sammála
Samkeppniseftirliti
Ráðherra vill ekki breyta starfsumhverfi mjólkuriðnaðarins
Guðni Ágústsson
Í HNOTSKURN
» Samkeppniseftirlitið telurað ákvæði um mjólkuriðn-
aðinn raski samkeppni og feli í
sér mismunun.
» Hefur eftirlitið mælst tilþess að lögum um mjólk-
uriðnað og starfsumhverfi
hans verði breytt.
» Landbúnaðarráðherra erþessu ekki sammála og tel-
ur ekki tímabært að breyta
lögunum.
BJÖRN Bjarnason, dómsmálaráð-
herra og æðsti yfirmaður löggæslu-
mála til sjós og lands, heimsótti í
gær bandaríska herskipið USS
Wasp í Reykjavíkurhöfn og skoðaði
það með leiðsögn skipherrans. Með
í för voru þeir Georg Kr. Lárusson,
forstjóri Landhelgsisgæslu Íslands,
og Jón Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn og yfirmaður sérsveitar rík-
islögreglustjóra.
Herskipið Wasp liggur við
Skarfabakka og hefur umferð um
svæðið verið lokað og er varðbát-
urinn Baldur frá Landhelgisgæsl-
unni með gæslu á meðan.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Heimsóttu Wasp í
Reykjavíkurhöfn
YFIRLÝSING landbúnaðarráð-
herra þess efnis að hann ætli ekki að
beita sér fyrir breytingu á búvöru-
lögum svo mjólkuriðnaðurinn verði
ekki undanþeginn samkeppnislögum
vekur furðu framkvæmdastjóra
Mjólku, ekki síst í ljósi afdráttar-
lausrar niðurstöðu úrskurðar Sam-
keppniseftirlitsins sem birtur var
fyrir helgi. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Mjólku.
Ólafur Magnússon segir viðbrögð
Guðna Ágústssonar landbúnaðar-
ráðherra vekja mikla furðu og þau
séu alveg úr takti við aðra þróun í
samfélaginu, sérstaklega í ljósi þess
að Osta- og smjörsalan og MS séu
langstærstu fyrirtækin í vinnslu og
framleiðslu matvæla á innlendum
neytendamarkaði.
Hann bendir jafnframt á að þessi
fyrirtæki njóti ríkisstyrkja til niður-
greiðslu á mjólk, til útflutnings á af-
urðum sínum og síðast en ekki síst
njóti þau lög-
verndar til einok-
unar á markaði.
Óska eftir
fundi
„Það blasir líka
við ef þessi einok-
unarfyrirtæki fá
áfram að vera
undanþegin sam-
keppnislögum og fá óátalið að beita
refsiverðu athæfi í samkeppni við
innlenda framleiðendur, þá mun
mjólkuriðnaðurinn hér á landi ekki
verða í stakk búinn til að bregðast
við erlendri samkeppni og dagar þá á
endanum uppi eins og nátttröll. Því
skorum við á Guðna Ágústsson að
skoða sinn gang betur og óskum
jafnframt eftir fundi með landbún-
aðarráðherra til að fara yfir þessi
mál,“ segir framkvæmdastjóri
Mjólku.
Í fréttatilkynningunni segir að í
úrskurði Samkeppniseftirlitsins um
opinberar hömlur í mjólkuriðnaði sé
undirstrikað að verðsamráð, mark-
aðsskipting og annað samkeppnis-
hamlandi samráð milli keppinauta
séu alvarlegustu brotin á samkeppn-
islögum og geti varðað stjórnvalds-
sektum og refsingu.
„Með búvörulögunum nr. 85/2004
hafa vinnubrögð sem teljast til refsi-
verðrar háttsemi í öllum öðrum at-
vinnugreinum og rekstri verið lög-
leyfð innan Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði. Þessi tilhögun, sem
leyfir verðsamráð, skiptingu mark-
aða og verkaskiptingu langstærstu
fyrirtækja í matvælaframleiðslu á
Íslandi, þekkist hvorki í nágranna-
ríkjum okkar né innan Evrópusam-
bandsins. Þar væri slík háttsemi litin
mjög alvarlegum augum enda refsi-
verð,“ segir Ólafur Magnússon,
framkvæmdastjóri Mjólku.
Yfirlýsing ráðherra
vekur furðu
Ólafur Magnússon
♦♦♦
BROTIST var inn í Holtaskóla í
Keflavík í fyrrinótt og rótað til og
skemmt, að sögn lögreglunnar í
Keflavík. Gluggar voru spenntir
upp en engu virðist hafa verið stol-
ið. Ekki er vitað hver var að verki
en málið er í rannsókn.
Innbrot í Holta-
skóla í Keflavík