Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 20
neytendur
20 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Ef kartöflur byrja að taka ásig grænan lit bendir allt tilþess að eiturefnið sólanín
sé farið að myndast í þeim. Þá ber
að flokka þær kartöflur frá og
henda. Borði fólk þessar eitruðu
kartöflur gera meltingartruflanir
og taugaeitrunareinkenni á borð
við þróttleysi, doða og sinnuleysi
vart við sig og í verstu tilfellunum
getur mikil neysla á þessum eitr-
uðu kartöflum leitt til dauða, að
sögn Gríms Ólafssonar, sérfræð-
ings á matvælasviði Umhverf-
isstofnunar.
Neytendasamtökunum hafa að
undanförnu borist kvartanir um
grænar kartöflur í matvöruversl-
unum og hafa samtökin gefið út
ráðleggingar um hvernig geyma
eigi kartöflur svo vel fari, byggðar
á leiðbeiningum Sigurgeirs Ólafs-
sonar, fagsviðsstjóra plöntu-
sjúkdóma hjá Landbúnaðarstofnun.
„Ef þess er ekki gætt að forða
kartöflum frá birtu taka þær fljótt
á sig grænan lit. Ljósið kemur af
stað myndun blaðgrænu og gerist
það hraðar við háan hita en lágan.
Rauðar kartöflur grænka líka þótt
það sjáist ekki eins vel vegna rauða
litarins. Samhliða grænkuninni get-
ur ljósið einnig valdið aukningu á
magni efnasambanda, svokallaðra
glýkóalkalóíða, m.a. sólaníns, sem
gefa kartöflunum beiskt bragð og
gera þær óheilnæmar til matar fari
magn þeirra yfir ákveðin mörk.
Mjög ólíklegt er að magn þessara
efnasambanda fari upp í slík mörk í
þeim kartöfluafbrigðum, sem hér
eru ræktuð, þótt kartöflurnar fái á
sig daufgrænan lit í verslunum. Til
þess þyrftu þær að vera lengi úti í
sólarljósi. Hins vegar er mjög eðli-
legt að viðskiptavinir verslana séu
tortryggnir út í grænar kartöflur
og líti á þær sem gallaða vöru.
Kartöflur eiga ekki að vera grænar.
Það hlýtur því að vera kappsmál
fyrir metnaðarfullar matvöruversl-
anir að bjóða viðskiptavinum sínum
eingöngu upp á grænkufríar kart-
öflur. Til þess að það megi verða
þarf að huga að því á öllum stigum
að hlífa kartöflunum við birtu eins
og hægt er, hjá ræktandanum,
heildsöludreifingunni og loks hjá
smásölunni. Þurfi kartöflur að
standa einhvern tíma á björtum og
heitum lager má t.d. breiða yfir
þær með svartri yfirbreiðslu en
kartöflur eiga að vera sem allra
mest í kæli. Sérstaklega þarf að
huga að uppstillingu vörunnar í
versluninni og þá sérstaklega þar
sem kartöflurnar eru seldar í lausu.
Þar þarf að sjá til þess að sem
minnst bein lýsing falli á kartöfl-
urnar og að þær stoppi þar sem
styst. Má t.d. skerma þær þannig
af að þær séu í skugga og er ekki
nokkur vafi á að margir við-
skiptavinir munu meta þær ráðstaf-
anir sem gerðar eru til að tryggja
þeim gæðakartöflur,“ segir m.a. í
ráðleggingum Sigurgeirs.
Óráðlegt er að borða grænar kartöflur
Morgunblaðið/Arnaldur
Varasamt Borði fólk grænar kartöflur sem eru orðnar eitraðar gera meltingartruflanir og taugaeitrunareinkenni á
borð við þróttleysi og doða vart við sig að sögn Gríms Ólafssonar, sérfræðings á matvælasviði Umhverfisstofnunar.
Framleiðendur og þeir sem
sjá um pökkun eiga að
flokka grænar kartöflur
frá í framleiðslu.
Þeri sem sjá um pökkun
verða að sjá til þess að kart-
öflurnar séu geymdar í
myrkri meðan þær eru í
þeirra vörslu.
Verslanir verða að sjá til
þess að sem minnst lýsing
sé á kartöflum meðan þær
eru í búðinni, t.d. geyma
þær í dimmum kössum sem
viðskiptavinir taka kartöfl-
urnar úr eða í dökkum um-
búðum.
Neytendur ættu að geyma
kartöflur á dimmum stað
heima fyrir.
Varast skal að borða
skemmdar og/eða grænar
kartöflur.
Góð
geymsluráð
TENGLAR
.............................................
www.ust.is