Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 15
INNKAUPAKORT VISA
Nýr dagur – ný tækifæri
Bjarni reddar öllu.
• Innkaupakort VISA er ókeypis kreditkort.
• Ekkert stofngjald, árgjald eða seðilgjald.
• Kortið er ætlað í rekstrarinnkaup og kemur
í stað beiðna- og reikningsviðskipta.
• Lengri greiðslufrestur.
Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum.
Nánari upplýsingar í síma 525-2280
Úttektartímabil Innkaupakorts er almanaksmánuður og
gjalddagi reiknings 25. næsta mánaðar.
MICHELLE Bachelet, forseti Chile, fór um
helgina í skoðunarferð um staðinn þar sem
henni og móður hennar var haldið í fang-
elsi árið 1975 á valdatíma Augusto Pinoch-
ets einræðisherra. Bachelet (t.v.) skoðar
hér líkan af fangelsinu, Villa Grimaldi,
ásamt móður sinni, Angelu Jeria (2. frá
vinstri).
Staðurinn hefur verið gerður að frið-
argarði til minningar um þúsundir manna
sem sættu pyntingum í fangelsi leyni-
lögreglu Pinochets. Um 3.000 manns hurfu
sporlaust eða voru myrt í valdatíð Pin-
ochets fyrir meint tengsl við kommúnista.
Bachelet var læknanemi þegar hún og
móðir hennar voru fluttar í fangelsið. Hún
hefur sagt að þær mæðgurnar hafi verið
aðskildar og stundum sætt pyntingum.
Eftir nokkurra vikna vist í fangelsinu
voru þær leystar úr haldi og þær fóru í út-
legð til Ástralíu.
Faðir Bachelet var foringi í flugher
Chile og var handtekinn fyrir að leggjast
gegn valdaráni hersins. Hann dó í fangelsi.
Forsetinn skoðar
gamla píslarstaðinn
Reuters
MARIA Borelius, sem lét af störfum
sem viðskiptaráðherra í sænsku
stjórninni á laugardag, gæti fengið
rúma milljón sænskra króna, sem
svarar rúmum tíu milljónum ís-
lenskra, í starfslokagreiðslur frá rík-
inu. Hún gegndi þó embættinu aðeins
í rúma viku og er það styrsti ráð-
herraferill í sögu Svíþjóðar.
Fram kom í sænska dagblaðinu
Dagens Nyheter í gær að Borelius
gæti fengið greiðslur sem næmu árs-
launum ráðherra, eða rúma 1,1 millj-
ón sænskra króna.
Aldrei hefur gerst áður að launa-
nefnd ríkisstjórnarinnar hafi þurft að
taka afstöðu til þess hvort ráðherra
eigi að fá þessar greiðslur eftir að
hafa gegnt embætti í svo skamman
tíma, að sögn Dagens Nyheter. Því er
ekki víst að launanefndin bregði út af
þeirri venju að greiða ráðherrum árs-
laun eftir starfslok.
Borelius sagði af sér vegna ásak-
ana um skattamisferli.
Fast er nú lagt að Ceciliu Stegö
Chiló, menntamálaráðherra Svíþjóð-
ar, að fara að dæmi viðskiptaráðherr-
ans og segja af sér eftir að upp komst
að hún hefur ekki borgað afnotagjöld
af útvarpi og sjónvarpi í mörg ár.
Fær árslaun
fyrir vikuna
BENEDIKT XVI páfi tók fjóra
menn í dýrlingatölu við athöfn á
Péturstorginu í Róm í gær.
Á meðal fjórmenninganna eru
Filippo Smaldone (1848–1923),
ítalskur prestur sem kom á fót
stofnunum fyrir heyrnarlaust fólk
og Mexíkómaðurinn Rafael Guizar
Valencia, sem páfi lýsti sem „bisk-
upi hinna fátæku“.
Tvær nunnur voru einnig teknar
í dýrlingatölu, franska nunnan
Anne-Therese Guerin og Rosa
Venerini frá Ítalíu.
Reuters
Fjórir nýir
dýrlingar