Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 19
Yamaha píanó.
Yamaha píanó og flyglar
með og án SILENT búnaðar.
Veldu gæði – veldu Yamaha!
Samick píanó.
Mest seldu píanó á Íslandi!
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 357.000 kr.
Goodway píanó.
Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný.
Verð frá 238.000 kr.
15 mán. Vaxtalausar greiðslur.
Estonia flyglar.
Handsmíðuð gæðahljóðfæri.
Steinway & Sons
Fyrir þá sem vilja aðeins það besta.
Til sýnis í verslun okkar.
H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350
!"# $% &' ()*+"#
,-# .$/ $0 1112+232#
SKRÁNING SKULDABRÉFA
Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
Glitnir banki hf. – GLB 08 0825 –
kr. 7.500.000.000.
Nafnverð útgáfu
Skuldabréf samtals að nafnverði kr. 7.500.000.000 hafa
verið seld frá útgáfudegi þann 25. ágúst 2006. Bréfin eru
gefin út í samræmi við lýsingu (e. Offering Circular of GMTN
Program) sem staðfest var af Financial Services Authority
(FSA) í Bretlandi þann 26. júní 2006 í samræmi við til-
skipun nr. 2003/71/EC og var lýsingin tilkynnt Fjármála-
eftirlitinu (FME) á grundvelli heimildar í nefndri tilskipun.
Útgefandi
Glitnir banki hf., kt. 550500-3530 Kirkjusandi,
155 Reykjavík.
Skilmálar skuldabréfanna
GLB 08 0825 er 2 ára óverðtryggt vaxtagreiðslubréf. Bréfin
bera 12,5% nafnvexti. Útgáfudagur var 25. ágúst 2006.
Fyrsti vaxtagreiðsludagur er 25. ágúst 2007. Höfuðstóll
skuldarinnar verður endurgreiddur með einni greiðslu
25. ágúst 2008. Skuldabréfin eru verðlögð í viðskiptakerfi
Kauphallar Íslands hf. án áfallinna vaxta (e. clean price).
Auðkenni skuldabréfaflokksins
Auðkenni skuldabréfanna í kerfi Kauphallar Íslands er GLB
08 0825, ISIN númer flokksins er XS0266362648.
Skuldabréfin eru gefin út rafrænt í Euroclear í 100.000 kr.
einingum.
Skráningardagur í Kauphöll
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá 16. október 2006.
Umsjónaraðili og milliganga vegna skráningar
Glitnir banki hf., kt. 550500-3530, Kirkjusandi,
155 Reykjavík, sími 440-4000.
Grunnlýsingu og gögn sem vísað er til í henni er hægt að
nálgast hjá umsjónaraðila, eða á www.glitnir.is.
Reykjavík,
16. október 2006
TIL að bæta einkunnirnar gætu
nemendur grunnskóla þurft að
stytta þann tíma sem þeir eyða fyrir
framan sjónvarpið eða leikjatölvuna,
að því er fram kemur í niðurstöðu
rannsóknar sem birt var í tímaritinu
Pediatrics.
Rannsóknarmennirnir ráðleggja
foreldrum nemendanna eftirfarandi:
Að þeir sjái til þess að börnin
horfi ekki á sjónvarp og leiki ekki
tölvuleiki lengur en í eina klukku-
stund á dag á virkum dögum.
Setji strangar reglur um sjón-
varps- og tölvuleikjanotkun
barnanna.
Banni börnunum að horfa á
myndir sem eru ekki við hæfi
barna.
Þessar ráðleggingar byggjast á
rannsókn sem náði til um 4.500
barna 5. til 8. bekkjar í New Hamps-
hire og Vermont í Bandaríkjunum.
Helsta niðurstaðan var sú að nem-
endurnir með hæstu einkunnirnar
eyddu minnstum tíma við sjónvarpið
og leikjatölvuna á virkum dögum.
Þessir nemendur voru einnig lík-
legri til að hafa fengið strangar regl-
ur frá foreldrum sínum um sjón-
varpsnotkun og ólíklegri til að horfa
á myndir sem eru bannaðar börnum.
Þessi niðurstaða breyttist ekki
þegar tillit var tekið til annarra
þátta, svo sem sjálfsmats barnanna,
annarra uppeldisaðferða foreldra og
félagslegra og fjárhagslegra þátta.
Rannsóknarmennirnir sögðu þó
að rannsóknin sannaði ekki að mikið
sjónvarpsgláp væri orsök lægri ein-
kunna. Hugsanlegt er að nemend-
urnir með hæstu einkunnirnar hafi
einfaldlega minni áhuga á að horfa á
sjónvarpið og nemendurnir með
lægstu einkunnirnar hneigist til
þess að horfa meira á sjónvarpið.
Gatistarnir
glápa á
sjónvarpið
Morgunblaðið/Sverrir
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122