Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 36
|mánudagur|16. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Vestur-Íslendingurinn Jason
Hare segir frá dvöl sinni á Ís-
landi í sumar og hvernig hann
upplifði land forfeðranna. » 39
viðtal
Ríkarður Ö. Pálsson dæmir tón-
verkið Eddu I eftir Jón Leifs
sem var frumflutt í Háskólabíói
á laugardaginn. » 37
dómur
Leikarinn og sjarmatröllið
George Clooney fékk American
Cinematheque-verðlaunin af-
hent um helgina. » 40
fólk
Way Through Zero, nýjasti
geisladiskur dúettsins Gjallar,
fær fjórar stjörnur af fimm
mögulegum. » 38
gagnrýni
Sýning Þórdísar Aðalsteins-
dóttur á Kjarvalsstöðum, Því
heyrist þó hvíslað að einhverjir
muni komast af, fær dóm. » 45
dómur
F
luga er sífellt að kanna nýjar kaffi-
húsalendur og menninguna í kringum
þær. Með slíkar rannsóknir í huga
mætti hún eldsnemma á föstudags-
morguninn á Kaffivagninn úti á
Granda en þar ráða karlmenn að mestu ríkjum og
í lofti blöndnu frekar gamaldags rakspíra og jóla-
kökum sátu töff trillukarlar eins og leikarinn Árni
Tryggvason og spjölluðu. Fluga sá þar líka Jó-
hann Vilhjálmsson byssusmið og fleiri merkisbera
alvöru karlmennsku. Nokkuð ólíkt „crowd-inu“
sem safnast saman á Kaffi París en nokkrir
myndarlegir metrómenn sátu þar í gærmorgun og
ræddu af nokkurri tilfinningasemi draumfarir síð-
astliðinnar nætur. Ansi ólíkt umræðuefnum Kaffi-
vagnskarla sem berja hnefum í borð og ræða
kvóta og ræskja sig hraustlega. Forvitnileg
mannlífsstúdía, þessi klíkumyndun kaffihúsanna.
Í blautviðrinu um helgina var kósí að kaffihúsast
í þykkum leggings og stuttri regnkápu, staupa
sig á nýkreistum appelsínusafa og hlýja sér á
bolla af Sviss Mokka meðan rigningin buldi á
móðu skreyttum rúðunum. Frú Dorrit Mouss-
aieff setti myndlistarhátíðina Sequences á föstu-
daginn í Nýlistasafninu á Grettisgötu en hún,
þ.e. hátíðin, hyllir þá gerð listar sem líður í tíma
og rúmi eins og vídeóverk, gjörninga og ýmsa
aðra „performansa“. Forsetafrúin fallega, sem er
verndari Sequences, tiplaði inn í Nýló eftir rauð-
um dregli og setti hátíðina formlega. Við inn-
ganginn sat listamaðurinn Snorri Ásmundsson
inni í glerpíramída, berfættur í jakkafötum og
jógastellingu. Alltaf mjög listó á Nýló.
Fluga skellti sér á leikritið Pétur Gaut á laug-
ardagskvöldið sem sýnt er í Kassanum hjá Þjóð-
leikhúsinu og fannst undarleg upplifun að vera
ekki á frumsýningu, eins og skvísunnar er vandi.
Kætti hana því að koma auga á Maríu Ellingsen
leikstjóra og bónda hennar, Þorstein Joð sjón-
varpsmann, á meðal gesta sem var staðfesting á
því að vera bara „fashionably late“. Sjarmörinn
Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálagaur og
stundum sjónvarpsmaður, er orðinn nágranni
Flugunnar og annars slektis hér á 101 fermetr-
unum og er það ákaflega gleðileg búbót í
strákaflóru hverfisins að mæta frakkaklæddum,
glæsilegum Glúmi í mjólkurbúðinni á morgnana.
En talandi um riddara sem ríða um hverfið; það
hefur varla farið framhjá nokkrum manni að her-
lausa eyjan okkar hefur ver-
ið að drukkna í dátum und-
anfarna daga. Þeir eru víst á
vegum bandarísks herskips
sem liggur við Reykjavík-
urhöfn í „friðsamlegum“ til-
gangi og var tilkynnt hátíð-
lega að eigi brúkuðu
skipverjar vopn nema í
sjálfsvörn. Þó sýndist Flugu-
stelpu nokkrir hermannanna
grípa til sinna persónulegu
vopna í samskiptum við ís-
lensku dömurnar en þær
hafa eflaust sett verjur á
vopnin … | flugan@mbl.is
Flugan
Klíkumennska kaffihús-
anna og karlmennskan
… myndarlegir metrómenn sátu þar í gærmorgun og
ræddu af nokkurri tilfinningasemi draumfarir síðastlið-
innar nætur …
»Edda IJóns Leifs
var frumflutt
í Háskóla-
bíói.
Þórey Sigþórsdóttir, Hera Hilm-
arsdóttir og Hilmar Oddsson.
Árni Blandon og
Guðrún Einarsdóttir.
Áslaug Pálsdóttir og
Birna Rún Gísladóttir.
Inga Þorgeirsdóttir og
Knud Ødegaard.
Guðjón A. Kristjánsson og
Maríanna Barbara Kristjánsson.
Þórunn Gréta Sigurðardóttir
og Davíð Þór Jónsson.
Ragnhildur Gísladóttir og
Kolbrún Halldórsdóttir.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
og Guðrún Kristjánsdóttir.
Thor Vilhjálmsson, Gunnar Kvaran
og Vigdís Finnbogadóttir.
Gunnar I. Birgisson, Vigdís Karlsdóttir, Þor-
gerður Einarsdóttir og Pétur Óli Pétursson.
Hrund Andradóttir, Guð-
mundur Steingrímsson og
Svava Sigurjónsdóttir.
Guðbjörg Kristjánsdóttir, John R. Porter,
Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson.
Ármann Kr. Ólafsson, Hulda Páls-
dóttir og Jakop Frímann Magnússon.
»Kanadísk menning-arhátíð var sett í
Gerðarsafni.
Ari Trausti Guðmundsson, Elías Hall-
dórsson og Elísabet Sveinsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert