Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
FORSTJÓRI EADS, móðurfélags
Airbus, hefur lýst því yfir að hann
sé andvígur því að þýska ríkið gangi
inn í félagið sem hluthafi. Airbus
hefur átt í fjárhagslegum erfiðleik-
um undanfarið og hafa dagblöð
fjallað um þann möguleika að þýska
ríkið kaupi 7,5% hlut Daimler-
Chrysler í Airbus. Franska og
spænska ríkið eru nú þegar meðal
hluthafa.
Thomas Enders segist ekki sjá
neinn tilgang með inngöngu þýska
ríkisins í fyrirtækið. EADS hefur
átt á brattann að sækja undanfarin
misseri vegna seinagangs í þróun og
framleiðslu A380 risaþotunnar, sem
innanbúðarmenn vonast til að verði
flaggskip fyrirtækisins, og verður
fyrsta eintakið ekki flutt til kaup-
anda fyrr en undir lok árs 2007.
Engir möguleikar útilokaðir
Hagræðingaraðgerðir sem spara
eiga um 1,6 milljarða evra eiga að
taka gildi fljótlega og hefur það
valdið ugg meðal þýskra stjórn-
málamanna sem hafa af því áhyggj-
ur að framleiðsla sem nú er í Þýska-
landi kunni að verða flutt til
Frakklands. Telja sumir sérfræð-
ingar að gangi þýska ríkið inn í
EADS sem hluthafi verði það í
sterkari aðstöðu til að koma í veg
fyrir hugsanlegan flutning starfa úr
landi. Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, hefur sagt að ekki hafi
verið tekin ákvörðun um málið, en
lagði á það áherslu að engir mögu-
leikar hefðu verið útilokaðir.
Vill ekki þýska ríkið inn í Airbus
Reuters
Tafir Afhending nýju A380-farþegaþotu Airbus hefur tafist mjög.
Í SÍÐUSTU viku var 136 kaupsamn-
ingum þinglýst á höfuðborgarsvæð-
inu. Þar af voru 96 samningar um
eignir í fjölbýli,
20 samningar
um sérbýli og
20 samningar
um annars
konar eignir.
Heildarveltan
var 3.872 millj-
ónir króna og
meðalupphæð á samning 28,5 millj-
ónir króna. Er það talsverð aukning
frá síðustu vikum en að meðaltali
hefur 108 kaupsamningum verið
þinglýst á viku undanfarnar tólf vik-
ur.
Á sama tíma var 11 kaupsamning-
um þinglýst á Akureyri. Þar af voru
7 samningar um eignir í fjölbýli, 2
samningar um eignir í sérbýli og 2
samningar um aðrar eignir. Heild-
arveltan var 176 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 16,0 millj-
ónir króna.
Á sama tíma var 9 kaupsamning-
um þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar
af voru 3 samningar um eignir í fjöl-
býli og 6 samningar um sérbýli.
Heildarveltan var 150 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
16,6 milljónir króna.
Aukning í
fasteigna-
viðskiptum
STÆRSTA verslanakeðja heims,
Wal-Mart, hefur verið dæmd til að
greiða 78 milljónir bandaríkjadala
(um 5,3 milljarða íslenskra króna) hið
minnsta í bætur til starfsmanna sem
voru neyddir til að vinna í lögbundn-
um hvíldarhléum. Kviðdómur í Penn-
sylvaníu komst að þeirri niðurstöðu
að með því að neita að greiða fyrir
þessa aukavinnu starfsfólksins hefði
Wal-Mart brotið fylkislög. Um er að
ræða dómsmál sem höfðað var af um
187.000 starfsmönnum Wal-Mart
sem unnið höfðu fyrir fyrirtækið á
árunum 1997-2006. Wal-Mart hefur
sagst vera að undirbúa áfrýjun.
Starfsmaðurinn sem hóf málið,
Dolores Hummel, segist hafa þurft
að vinna í hléum og eftir venjulegan
vinnutíma og gerir hún ráð fyrir að í
hverjum mánuði hafi hún unnið milli
8 og 12 tíma launalaust. Segir hún að
ein af óyfirlýstum aðferðum Wal-
Mart til að hámarka ágóða sé að
koma upp vinnuumhverfi sem stuðli
að því að starfsmenn á tímakaupi
vinni lengur en þeir fái greitt fyrir.
Wal-Mart
dæmt til
greiðslu
bóta
HUGSANLEGT er að samtök olíu-
framleiðsluríkja, OPEC, dragi á
næstunni úr olíuframleiðslu til að
bregðast við lækkandi heimsmark-
aðsverði á hráolíu, að því er segir á
fréttavef Telegraph. Segir þar að
samtökin, sem framleiða um 40%
allrar olíu í heiminum, muni funda
næsta fimmtudag til að taka ákvörð-
un um það hvort dregið verði úr
framleiðslu.
Gert er ráð fyrir því að þessar
vangaveltur muni þrýsta olíuverði
upp á ný, en það hefur fallið um 20%
frá því í júlí og er nú undir 60 banda-
ríkjadölum á fatið. Edmund Dauk-
oru, formaður OPEC, segir allar
ráðstafanir þó aðeins tímabundnar.
Draga úr
framleiðslu
♦♦♦
♦♦♦