Morgunblaðið - 06.12.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 45
dægradvöl
Borðaði ég kvöldmat í gær?
Frásagnargáfa og húmor
eins og Íslendingar vilja
hafa hann
„Þetta er þaulhugsaður
texti, hverfist um skýra
fléttu hverrar sögu án
útúrdúra. Og um allt
leikur elskuleg hæðni
sem veldur hlátri hjá
grandalausum lesanda
sem veit varla hvers er
von.“
Páll Baldvin Baldvinsson,
Fréttablaðinu 13. nóvember
Nýtt íslenskt skáld
Óskar Magnússon
Staðan kom upp á minningarmóti Capa-
blanca sem lauk fyrir skömmu í Ha-
vanna á Kúbu. Rússinn Evgeny Bareev
(2683) hafði hvítt gegn heimamanninum
Lazaro Bruzon (2648). 34. Bxf6! Ba6
hvítur hefði einnig staðið til vinnings
eftir 34 … gxf6 35. Dxb7+. 35. Bc3 Dg5
36. Db1+ Kh8 37. Db8+ Kh7 38. Db1+
Kh8 39. Db8+ Kh7 40. De5 Dg6 41. Bd4
hvítur hefur unnið tafl og innbyrti hann
vinninginn tuttugu leikjum síðar.
41 … Be2 42. Kf2 Bc4 43. e4 Kg8 44.
De7 Bb5 45. Bc3 h5 46. Bb2 Dh6 47.
Bc3 Dg6 48. Bd2 Kh7 49. Dg5 Dd6 50.
Dxh5+ Kg8 51. De8+ Kh7 52. Dh5+
Kg8 53. Dg5 Dd3 54. De3 Df1+ 55. Kg3
Dc4 56. Bc3 Kh7 57. Dd4 Df7 58. De5
Kg8 59. Db8+ Kh7 60. Df4 Dc4 61. De5
og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Dýr misskilningur.
Norður
♠Á10
♥ÁD32
♦D86
♣G932
Vestur Austur
♠9832 ♠G74
♥97 ♥G864
♦G92 ♦75
♣ÁD65 ♣K1084
Suður
♠KD65
♥K105
♦ÁK1043
♣7
Suður spilar 4♠
Bjarni Einarsson hafði tilfinningu
fyrir því að Bandaríkjamennirnir Pas-
sell og Wold væru ekki alveg með sagn-
ir á hreinu en þeir höfðu nýlega tekið
upp flókið biðsagnakerfi og voru enn á
slípunarstiginu. Spilið kom upp í Koeh-
ane-keppninni á Hawaii sem Íslend-
ingasveit Tony Kadays vann. Passell
vakti á Precision-tígli í norður, Wold
svaraði á spaða og Passell sagði eitt
grand. Allt eðlilegt fram að þessu. En
nú sagði Wold í suður tvö grönd, sem
var veltisögn í þrjú lauf, og síðan þrjá
spaða í kjölfarið til að sýna skiptinguna
4–3–5–1. En Passell var ekki á sömu
bylgjulengd og sagnir enduðu í fjórum
spöðum á 4–2 samlegu. Þungar stunur
Passell sannfærðu Bjarna um misskiln-
inginn og hann ákvað að spila upp á
stytting - húrraði út laufás og meira
laufi sem reyndist vera banvæn vörn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 spýtubakka, 8
lófinn, 9 seinka, 10 veið-
arfæri, 11 kremja, 13
sælu, 15 káta, 18 lítið, 21
setti, 22 háski, 23
erfðafé, 24 pretta.
Lóðrétt | 2 fjáður, 3
þekkja, 4 féllu, 5 hefja, 6
draug, 7 afturendi, 12
fóstur, 14 læri, 15 not, 16
stétt, 17 gömul, 18 vinna,
19 huldumaður, 20 lifa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bugur, 4 skjár, 7 lasin, 8 orkan, 9 náð, 11 reit,
13 eira, 14 útför, 15 flón, 17 rúmt, 20 haf, 22 kræfa, 23
lyfið, 24 neita, 25 taðan.
Lóðrétt: 1 bolur, 2 gesti, 3 rann, 4 stoð, 5 jakki, 6 renna,
10 álfta, 12 tún, 13 err, 15 fíkin, 16 ótæti, 18 úlfúð, 19 tíð-
in, 20 hala, 21 flot.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Ungur ökumaður á BMW á sum-ardekkjum hefur játað á sig
ofsaakstur. Hversu hratt ók hann?
2 Sigríður B. Guðjónsdóttir hefurverið skipuð aðstoðarríkislög-
reglustjóri. Við hvað starfaði hún?
3 Á listaverkauppboði var boðinupp þrykkmynd eftir einn af
meisturum síðustu aldar. Hver var
hann?
4. Vinstrihreyfingin – grænt fram-boð hefur ákveðið framboðs-
lista sinn í Suðurlandskjördæmi. Atli
Gíslason leiðir listann en við hvað
starfar hann?
Svör við spurningum gærdagsins:
1 Í hvaða bandaríska stórblaði birtist
harðorður leiðari gegn afstöðu Íslendinga
varðandi bann með botnvörpuveiðar á út-
höfunum? Svar: Washington Post. 2. Mikl-
ar umræður hafa orðið um nauðsyn vega-
bóta á aðalvegum út frá borginni vegna
banaslyssins á laugardag og for-
stöðumaður Rannsóknarnefndar umferð-
arslysa sagt brýnt að aðskilja aksturs-
leiðir á vegunum til að fyrirbyggja slík slys.
Hver er hann? Svar: Ágúst Mogensen. 3.
Íslenskur rithöfundur hefur verið til-
nefndur til ítölsku Nonino-verðlaunanna.
Hver er hann og fyrir hvaða verk? Svar:
Guðbergur Bergsson fyrir Svaninn.
Spurt er …
ritstjorn@mbl.is
EFTIR blóði drifna slóð Frelsarans
í Píslarsögu Mels Gibson, er Leiðin
til Betlehem (The Nativity Story),
blessunarlega friðsæl og falleg
mynd um Jósef og Maríu og fæð-
ingu Jesú. Hún segir á látlausan
hátt sögu af unglingsstúlkunni Mar-
íu (Castle-Hughes), sem er skyndi-
lega skellt í hnapphelduna að ráði
föðurs síns. Samkvæmt siðvenjum
fær María engu ráðið um maka-
valið, en lætur það yfir sig ganga,
það er óumflýjanlegt og smiðurinn
Jósef (Isaac), virðist vænsti maður.
María er ekki búinn að jafna sig
á ráðahagnum þegar enn óvænni og
alvarlegri atburðir gerast. Á hennar
fund kemur erkiengillinn Gabríel og
tjáir henni að hún verði þunguð af
heilögum anda og muni í fyllingu
tímans fæða dreng sem er sjálfur
Messías og spámennirnir hafa boð-
að, hinum rómversku valdhöfum til
hremmingar.
Flest þekkjum við þessa sögu til
enda, við minnumst hennar á fæð-
ingardegi Frelsarans og hér fá
börnin skýra og umbúðalausa mynd
af atburðunum, lítið er vikið frá
textanum eins og maður minnist
hans úr biblíusögum bernskunnar.
Leikstjórinn Hardwicke (Thirteen),
og handritshöfundurinn Mike Rich,
varast alla dramatíska útúrdúra en
leggja áherslu á að draga upp mynd
af venjulegu fólki sem lendir í at-
burðarás sem er stærri en lífið
sjálft. Ekkert ofbeldi né blóðs-
úthellingar, heldur er sagan rakin
líkt og í röð biblíumyndanna sem
gefnar eru í sunnudagaskólum.
Enginn íburður né tilgerð, af þeim
ástæðum finnst sjálfsagt ein-
hverjum Leiðin til Betlehem flöt og
líflítil. Að gera mynd um „stærstu
sögu allra tíma“, líkt og hún er
gjarnan kölluð, atburðarásina í
landinu helga fyrir röskum tveimur
árþúsundum, er mikill ábyrgð-
arhluti. Hollywood og fleiri hafa oft-
ast unnið úr henni glansmyndir,
aðrir hafa smáð hana, hér fáum við
útgáfu sem heldur sig við milliveg-
inn og hefði gjarnan mátt vera tal-
sett á íslensku því í einfaldleikanum
á hún ekki síst erindi til yngri
barnanna.
Sagan samkvæmt guðspjöllunum
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Regnboginn
Leikstjóri: Catherine Hardwicke. Aðal-
leikendur: Keisha Castle-Hughes, Oscar
Isaac, Hiam Abbass, Shaun Toub, Ciaran
Hinds, Shohreh Aghdashloo. 100 mín.
Bandaríkin 2006.
Leiðin til Betlehem – The Nativity Story
Sæbjörn Valdimarsson
Leiðin til Betlehem „Ekkert
ofbeldi né blóðsúthellingar heldur
er sagan rakin líkt og í röð
biblíumyndanna sem gefnar eru
í Sunnudagaskólum.“