Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 4
4 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FLÓÐIN í Hvítá og Ölfusá fyrir
jólin eru ekki einsdæmi, að sögn
Árna Snorrasonar, forstöðumanns
Vatnamælinga Orkustofnunar.
Morgunblaðið hafði fregnir af því
að ýmsir veltu því fyrir sér hvort
rekja mætti flóðin til breytinga t.d.
í farvegum til fjalla því ekki var ís-
stíflum fyrir að fara í ánum í
byggð.
Árni sagði að mikil flóð hefðu
komið áður á vatnasviði Hvítár/
Ölfusár, þótt árnar hefðu verið
lausar við ísstíflur. Flóð sem kom í
Ölfusá í mars 1930 var t.d. talsvert
meira en flóðið nú. Vatnsborðið
1930 hafi stigið einhverjum tugum
sentimetra hærra við Selfoss en
nú. „Flóðið 1930 var örugglega
með mestu flóðum sem þálifandi
menn mundu eftir og varð við svip-
uð skilyrði og nú, enginn ís í ánni
að ráði líkt og nú,“ sagði Árni.
Hann sagði að einnig hefðu orðið
mikil flóð 1948, 1960 og 1962.
Landnotkun er mikið breytt
Orkustofnun ætlar að gera út-
breiðslukort af flóðunum fyrir jólin
til þess að fá sem gleggstar upplýs-
ingar um við hvers konar vanda er
að etja í svona flóðum. Kortin
verða gerð í samvinnu við Al-
mannavarnir, skipulagsyfirvöld og
Vegagerðina, að sögn Árna. „Það
er mjög gott að fá aðstoð frá
bændum til þess að kortleggja sem
best hvað vatnið fór víða,“ sagði
Árni. Hann sagði að kortið yrði
góður grunnur til að meta hvar
vatn kynni að fara yfir og eins til
að skipuleggja viðbrögð ef von
væri á flóðum. Árni sagði að upp-
lýsingar af þessu tagi skorti á
vatnasviði Hvítár. Einnig vantaði
útbreiðslukort flóða víðar, t.d. í
Borgarfirði, Skagafirði, Eyjafirði
og við Skjálfandafljót.
„Landnotkun er orðin allt öðru
vísi en hún var fyrir nokkrum ára-
tugum. Það eru t.d. komnir sum-
arbústaðir úti um allt og hross höfð
mjög víða,“ sagði Árni.
Það er þekkt frá fornu fari að
Sunnlendingar byggðu bæi sína á
því sem kallað var hávaðar. Eggert
Ólafsson og Bjarni Pálsson nefndu
t.d. í ferðabók sinni að byggt væri
á holtunum því ágangur væri frá
ánum. Árni sagði að nú hefði sést
talsvert af útihúsum sem voru um-
flotin vatni eða flæddi því þau voru
ekki byggð á hávöðum.
Verið að undirbúa kort
af útbreiðslu flóðanna
Morgunblaðið/RAX
Stórflóð Þegar mest gekk á voru sumir bæir likastir eyjum í hafinu.
Í HNOTSKURN
» Flóð á vatnasviði Hvítárog Ölfusár eru ekki ný af
nálinni. Til dæmis er talið, að
flóðið í Ölfusá 1930 hafi verið
meira en nú fyrir jól en þá eins
og nú var áin íslaus. Í annan
tíma má hins vegar rekja flóð-
in til mikilla klaka- eða ís-
stíflna í ánum.
» Til að menn hafi sem best-ar upplýsingar um afleið-
ingar flóðanna hefur Orku-
stofnun ákveðið að láta gera
kort af flóðunum fyrir jól og
afleiðingum þeirra
TALSVERÐUR erill var hjá lögreglunni í Keflavík í
gærnótt. Kveikt var í nokkrum fiskikörum í Grindavík
á tólfta tímanum en greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Skömmu eftir brunann stöðvaði lögreglan bifreið í
Grindavík en ökumaður og farþegi voru grunaðir um
fíkniefnamisferli. Við leit í bílnum fundust 12 grömm af
amfetamíni, og voru ökumaður og farþegi fluttir á lög-
reglustöð til skýrslutöku, en þeir eru grunaðir um að
hafa ætlað að selja efnin.
Á sjötta tímanum á laugardagsmorgun handtók lög-
regla svo tvo menn í Keflavík vegna gruns um fíkni-
efnamisferli. Við nánari leit fundust munir sem tengj-
ast innbroti í bifreiðar og voru mennirnir vistaðir í
fangageymslum meðan rannsókn fór fram.
Lögreglan þurfti einnig að hafa afskipti af ölvuðum
ungum manni á Ægisgötu í Keflavík undir morgun.
Hann hafði hótað að henda sér í sjóinn en endaði í
fangaklefa þar sem hann svaf af sér áfengisvímuna.
Eldur og fíkniefni í Grindavík
Ljósmynd/Stella
TALSMAÐUR
neytenda hefur
óskað eftir upp-
lýsingum frá flug-
félögunum Ice-
landair og Iceland
Express um
tekjur félagana
vegna skatta og
gjalda sem tengd
eru farmiðakaup-
um, auk þess sem spurt er um
hversu háa upphæð félögin hafi
greitt í skatta og gjöld í kjölfar slíkr-
ar innheimtu.
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, segir aðspurður að tilefni fyr-
irspurnarinnar séu fullyrðingar sem
m.a. fram komi í grein í fréttabréfi
Félags íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB), og fyrirspurnir sem hann hafi
fengið í kjölfarið.
Í fréttabréfi FÍB segir m.a.: „Nú
er svo komið að þessi tvö flugfélög
[Icelandair og Iceland Express] inn-
heimta rúmlega tvöfalt hærri upp-
hæð undir heitinu „skattar og gjöld“
heldur en þau skila til flugvalla og
opinberra aðila sem raunverulegum
sköttum og gjöldum. Í sumum tilfell-
um taka þau margfalda skattupp-
hæðina.“
Gísli vildi ekki fullyrða að munur
væri á innheimtu félagana og því
sem þau síðan greiddu en sagði rétt
að kanna hvort svo væri. Hann
reiknar með því að fá svör við fyr-
irspurnum sínum í janúar, en vildi
ekki slá föstu hver viðbrögðin gætu
orðið, kæmi í ljós að félögin hefðu
innheimt hærri upphæðir en þau svo
hefðu greitt.
Vill upplýs-
ingar frá
flugfélögum
Gísli Tryggvason
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað fjórum sinnum út frá
föstudagskvöldi fram á aðfaranótt
laugardags vegna elds í blaðagám-
um. Að sögn varðstjóra var kveikt í
fyrsta gáminum kl. 20.30 og til-
kynnt um þann síðasta kl. 3.30 um
nóttina.
Talið er að ungmenni hafi kveikt
í gámunum en greiðlega gekk að
slökkva í þeim þegar slökkvilið kom
á staðinn. Gámarnir voru allir aust-
arlega á höfuðborgarsvæðinu; einn í
Mosfellsbæ, annar í Norðlingaholti,
þriðji við Selásskóla og fjórði við
Foldaskóla. Af gefnu tilefni verða
allir blaðagámar tæmdir fyrir ára-
mót.
Kveikt í
fjórum
blaðagámum
DANA Cowin, aðalritstjóri banda-
ríska tímaritsins Food & Wine,
spáir því í samtali við bandaríska
dagblaðið USA Today, að matvæli
frá Íslandi verði vinsæl þar í landi
á næsta ári. Hún nefnir sérstak-
lega íslenskt vatn, skyr og lamba-
kjöt.
Cowin segist telja, að Skandin-
avía verði „hinn nýi Spánn“ í
bandarískri matarmenningu.
„Það eru nokkrir frábærir mat-
reiðslumenn í þessum heimshluta
og þeir hafa gert tilraunir með
hráefni þaðan og þeir blása nýju
lífi í matinn þeirra, eins og mat-
reiðslumenn gerðu og gera enn á
Spáni,“ segir Cowin.
„Ég hélt, að ég hefði kynnst öll-
um nýjum innflutningi frá öðrum
löndum en þar skjátlaðist mér. Ég
tel, að á næsta ári munum við fá
að kynnast og reyna íslenska
framleiðsluvöru, sem mun þá ekki
síst njóta vinsælda vegna hrein-
leikans. Í því sambandi nefni ég ís-
lenska vatnið, skyrið og lamba-
kjötið. Við munum líka fá að
kynnast matvælum frá Afríku en
þaðan hafa þau ekki komið sem
neinu nemur,“ sagði Dana Cowin
meðal annars.
Spáir íslensk-
um matvæl-
um vinsæld-
um 2007
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands
hefur sýknað leiðsögumann af kæru
fyrir að hafa í fyrra hótað starfs-
manni upplýsingamiðstöðvar þjóð-
garðsins í Skaftafelli og beint að hon-
um vasahnífi með ógnandi hætti.
Starfsmaðurinn kvaðst hafa verið
nýbúinn að hleypa hópi erlendra
gesta með leiðsögumanni í gestastof-
una í Skaftafelli. Þá kom umræddur
leiðsögumaður ásamt öðrum að af-
greiðsluborðinu. Voru þeir mjög
óánægðir yfir að erlendi leiðsögu-
maðurinn fengi að vera með hóp í
gestastofunni og halda þar erindi.
Starfsmaðurinn sagði að annar leið-
sögumaðurinn hefði dregið sig í hlé
en hinn dregið upp hníf og sagst ætla
að ráðast á útlendu gestina í gesta-
stofunni. Starfsmaðurinn kvaðst
hafa tekið þessu sem óviðeigandi
gríni. Leiðsögumaðurinn kom aftur,
tók upp hnífinn og beindi að starfs-
manninum sem upplifði það sem ógn
gegn sér.
Sakborningurinn neitaði sakar-
giftum og sagðist ekki hafa beint
hnífnum að starfsmanninum. Þá
sagðist hann ekki minnast þess að
hafa tekið hnífinn tvisvar upp. Í nið-
urstöðu dómsins segir að engin vitni
hafi verið að þessum samskiptum.
Maðurinn hafi frá upphafi staðfast-
lega neitað því að hafa haft í frammi
þessa háttsemi. Því standi orð gegn
orði og ósannað að maðurinn hafi
gerst sekur um háttsemi þá sem
greinir í ákæru.
Sækjandi var Páll Björnsson
sýslumaður og verjandi Kristín Ed-
wald hrl. Ragnheiður Bragadóttir
dómstjóri kvað upp dóminn.
Sýknaður af ákæru