Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 59
Tækniþróunarsjóður
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum nr.
4/2003 um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.
Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu
Vísinda- og tækniráðs.
Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.
Sjóðurinn veitir framlög til nýsköpunarverkefna sem eru til þess fallin að auka
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Forsenda fyrir aðkomu sjóðsins er að fyrir liggi vel mótuð hugmynd um hagnýtt gildi og
líklegan ávinning sem þróun viðkomandi verkefnis getur leitt til.
Framlag til framúrskarandi verkefna getur numið allt að 30 milljónum króna
samanlagt á þrem árum.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi.
Eyðublöð og nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð
eru á heimasíðu Rannís, www.rannis.is
Á
rslistar eru til margs
brúklegir en einna
best nýtast þeir til að
leita að nýrri músík,
tónlist sem maður
missti af á árinu eða hlustaði ekki
nógu mikið á. Víst eru þeir oft svo
almennar upptalningar að lítið er
á þeim að græða, allir með nýju
Dylan-plötuna, Scott Walker (ein
af þessum plötum sem kemst á
lista án þess að menn geti hlutað á
hana), Arctic Monkeys allstaðar,
Yeah Yeah Yeahs líka og gott ef
Band of Horses er ekki á öllum
listum.
Skemmtilegast er að rekast á
eitthvað sem maður þekkir ekki,
að ekki sé talað um ef það er mikil
snilld, og þó það gerist því miður
ekki oft verður það æ algengara,
hugsanlega vegna netvæðingar
heimsins, skyndilega opnast fyrr
mönnum að til er heill heimur tón-
listar sem er fersk, framandlega
og spennandi, við þurfum ekki að
sitja föst í vestrænni rokkformúlu
eða iðnaðarpoppi.
Eðlislægur menningarhroki
Popptónlistarmenn frá öðrum
álfum eiga líka allmargir erfitt
með að skilja hvers vegna þeirra
músík er skipað á annan bás en
þeirri vestrænu og þegar þeir
ferðast til Vesturlanda að spila á
hátíðum með þjóðlegri tónlist,
World Music, en ankannanlegt að
þar er boðið upp á evrópska þjóð-
lagatónlist en afrískt eða aust-
urlenskt popp. Á bak við það er
menningarhrokinn sem Vest-
urlandabúum er eðlislægur – öll
tónlist sem er ekki eins og okkar
er frumstæð.
Það er kannski óskhyggja, en
síðustu ár hefur mér sýnst ég sjá
breytingu á árslistum hjá helstu
plötuverslunum á Netinu og gott
dæmi árslisti Amazon-netversl-
unarinnar, þar sem tíundaðar eru
bestu plötur að mati tónlistarrit-
stjórnar verslunarinnar. Þegar
skoðaðar eru þrjátíu bestu plöt-
urnar gefur að líta allt það sem
búast mátti við, Dylan, Beck, TV
on the Radio og Hold Steady, svo
dæmi séu tekin, en kemur á óvart
hve margar plötur eru úr allt ann-
arri átt, frá öðrum löndum en
þessum venjulegu, Bandaríkjunum
og Bretlandi. Fimm plötur er með
breskum listamönnum, fjórtán
bandarískar, en síðan eru plötur
frá ýmsum löndum, ein frá Kan-
ada, ein frá Venesúela, ein frá
Ástralíu, tvær frá Malí, ein frá
Mexíkó, ein frá Frakklandi, ein frá
Noregi og þrjár frá Brasilíu.
Fönk, dansdjass,
merengue og diskó
Væntanlega þekkja margir kan-
adísku söngkonuna Neko Case,
frönsku sveitina Gotan Project og
Ástralina í Wolfmother. Eins má
gera ráð fyrir því að einhverjir
kannist við norska söngvarann
Sondre Lerche og Malímennina Ali
Farka Toure og Toumani Diabate,
en sá fyrrnefndi lék eitt sinn hér á
landi. Væntanlega þekkja svo fáir
venesúelsku fjörkálfana í Los Ami-
gos Invisibles, sem sendu frá sér
stuðplötuna Superpop Venezuela
og rataði á lista Amazon – blanda
af fönki, dansdjass, merengue og
diskó, en lögin á skífunni, sautján
alls, eru einskonar saga venesú-
elsks vinsældapopps síðustu ára-
tuga. Eins geri ég ráð fyrir að
fæstir kannist við mexíkóska parið
Rodrigo Sanchez og Gabriela
Quintero, sem hafa þó náð hylli á
Írlandi sem Rodrigo y Gabriela, en
þau leika líflegt kassagítarpopp og
taka meðal annars Zepplin-
lummuna Stairway to Heaven og
Metallicu-lagið Orion á síðustu
skífu sinni.
Af öðru forvitnilegu sem Ama-
zon tínir til er þrjár skífur bras-
ilískar; Tropicalia-safnplata, ný
plata Badi Assad og einkar
skemmtileg plata CSS, Cansei de
Ser Sexy, sem er upp full með ný-
bylgjukenndu dansskotnu rokki –
frábær plata.
Ótalmargt nýtt
Í áratugi hafa útgefendur
skammtað okkur tónlist sem iðu-
lega var frekar að sem þeim hent-
aði að selja frekar en það sem okk-
ur langaði til að heyra og nú
þegar Netið hefur rutt þeim úr
vegi að mestu uppgötvar maður
ótalmargt nýtt, hvort sem það er á
MySpace, YouTube.com, eMusic,
Pitchforkmedia, Stylus Magazine,
mundanesounds eða einhverju af
þeim milljón músíkbloggum sem
dreifa mis-löglegri tónlist.
Fjölþjóðleg áramótagleði
Fjörkálfar Los Amigos Invisibles, vinsælasta hljómsveit Venesúela
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Árslistar benda margir
til þess að tónlist-
arsmekkur sé að breyt-
ast, að Netið sé að
ryðja úr vegi markaðs-
hindrunum fyrir tónlist
frá öðrum álfum en
okkar eigin.
Reuters
Rollingarnir Ýmsir halda enn í vonina um að Mick Jagger og félagar komi
hingað til lands og haldi tónleika.