Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 43
skerast í leikinn. Mín sár gróa en sár
eftir nauðgun gróa aldrei og því vildi
ég forða henni frá. Ég er með átta
spor í gegnum vörina, allar tennur
farnar, en það skiptir mig ekki máli.
Þrátt fyrir þær aðgerðir sem ég hef
þurft að upplifa á munninum á mér,“
segir Ólafur ákveðinn. Hjálpa eigi
náunganum hvenær sem er ef hann
eigi í vanda og með því að bera virð-
ingu fyrir lífinu fái maður alltaf end-
urgreitt.
Ólafur Jón og Katarina hafa fengið
ráðgjöf síðan um viku eftir árásina en
Katarina kennir sjálfri sér enn um
það sem gerðist. „Ég hefði átt að fara
á klósettið uppi. Maður býst samt við
því að fólk beri almenna virðingu fyr-
ir öðru fólki þótt læsingin hafi verið
brotin. Ég hafði rangt fyrir mér,“
segir hún. Einnig hafi heyrst orðróm-
ur um að nauðgun hafi átt sér stað á
salerni á efri hæð Café Victors
helgina áður.
Hugarfar ekki þjóðerni
Bæði Ólafur og Katarina segja
ekki skipta máli að árásarmennirnir
hafi verið Pólverjar og Litháar, þjóð-
erni skipti ekki máli, heldur sé það
hugarfarið. „Það eru margir sem tala
um það þannig að þetta séu útlend-
ingar. Ég lít ekki á þá sem útlend-
inga, ég lít á þá sem persónur. Þetta
hefðu alveg eins getað verið Íslend-
ingar sem gerðu þetta. Ég er ekki
reiður en ég er sár og mér finnst að
menn sem gera svona eigi að fá
þyngsta mögulegan dóm. Skiptir
ekki máli hvort þeim hafi tekist ætl-
unarverkið eða ekki en þetta var til-
raun, mjög alvarleg tilraun til mjög
alvarlegs brots,“ segir Ólafur Jón og
tekur fram að sér finnist að senda
eigi þá úr landi eftir afplánun. „Já, ég
vil að þeir fái að gjalda fyrir það sem
þeir gerðu,“ segir Katarina með
áherslu.
Telur sig heppinn
Ólafur fær verri krampaköst í bak-
ið en áður og er enn dofinn í andlit-
inu. „Það kemur fyrir að ég gleymi
einföldum hlutum og andlega líður
mér miklu verr [heldur en eftir slys-
ið]. Það er ekki hægt að lýsa því hvað
þetta tekur mikið á mann því maður
fær verki um allan líkamann og veit
ekkert hvar næsti verkur kemur. En
ég er bara ánægður, ég er ennþá á
lífi, ég get ennþá gengið og ég get
ennþá talað. Ég var heppinn. Það
hélt einhver yfir mér verndarhendi
þetta kvöld og ég er þakklátur fyrir
það.“ Hann segir árásina að sjálf-
sögðu setja strik í reikninginn en
hann taki einn dag í einu, þau njóti
þess sem þau hafi og láti engan
stoppa sig. „Viðhorf mitt til lífsins er
að vera ég sjálfur, njóta þess. Lífið er
of stutt, maður getur ekki farið aftur
á bak, maður verður að halda áfram.
Maður á góða fjölskyldu og verður að
vera bjartsýnn, það þýðir ekkert
annað. Þetta mun ganga yfir. Það
hefði verið verra ef þeim hefði tekist
að nauðga henni. Þá værum við lík-
legast ekki hérna í dag að tala sam-
an.“
Ekki valmöguleiki að gefast upp
„Jú, þetta er erfitt, ég viðurkenni
það,“ segir Katarina. „Að fá mar-
traðir á næstum hverri nóttu er ekki
beint skemmtilegt en ég mun komast
yfir þetta. Það sem mestu skiptir er
hvernig maður höndlar hlutina. Ég
er viss um að þetta er bara dropi í
hafsjó lífsins, en þótt hann sé bitur
má ekki gefast upp. Það eru of marg-
ir dásamlegir hlutir í lífinu til þess að
láta eitthvað svona eyðileggja fyrir
sér.“
Viðhorf Ólafs Jóns til lífsins hefur
ekki breyst eftir árásina, heldur tek-
ur hann á hlutunum með rósemd og
skynsemi. Hann heldur áfram að
vera hann sjálfur; jákvæður, bjart-
sýnn og raunsær. Bæði hafa hjónin
afar sterka lífslöngun og ekki spillir
sú mikla ást og virðing sem greini-
lega ríkir milli þeirra. „Við áttum
bæði í þessu og vitum nákvæmlega
hvar við stöndum,“ segir Ólafur og
tekur í höndina á eiginkonu sinni.
„Já, við erum bæði sterk og komumst
í gegnum þetta,“ segir Katarina að
lokum.
Ólafur Jón Gunnarsson og Katarina
Waters eru ekki raunveruleg nöfn
viðmælenda.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 43
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.
Starfsfólk Eignamiðlunar.
Óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegrar hátíðar
og farsældar á komandi ári. Ester og Karl
P E L S I N N 3 0 Á R A
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs nýs árs
og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Útsalan hefst 3. janúar