Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 51

Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 51 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnagæsla ,,Au pair’’ London janúar ‘07. Hæ, okkur vantar ,,au pair’’ í janúar til að passa kátan 1 árs strák. Búum ná- lægt Tower Bridge. Gleðileg jól. steinarasia@yahoo.com. Símar 820 6850 og 44 7823 531 442. Spádómar Dýrahald English Springer Spaniel hvolpar til sölu Upplýsingar í síma 661 6892. Fæðubótarefni Heilbrigði-hollusta-árangur! Herbalife leggur grunninn. Ráðgjöf og stuðningur alla leið. Hanna hjúkrunarfræðingur. S. 557 6181/897 4181. www.internet.is/heilsa Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sími 694 5494, www.EFTiceland.com . Húsnæði í boði Til sölu 125 fm íbúð á 1. hæð með sérinngangi við Þórðarsveig. Verð 29.700.000. Upplýsingar gefa Anton í síma 699-443 og Óli í síma 892-9804. Rúnar S. Gíslason, hdl., lögg. fasteignasali. Húsnæði óskast Húsnæði óskast Stúlku utan af landi sem er í vinnu og námi á höfuðborgarsvæðinu vantar íbúð til leigu sem fyrst, allt kemur til greina. Er ábyrg og reglusöm, upplýsingar í síma 868 7397. 2ja-3ja herbergja íbúð óskast Reglusamt, reyklaust par um þrítugt óskar eftir 2ja-3ja herb. íbúð, helst í langtímaleigu. Traustar og öruggar greiðslur, jafnvel fyrirfram í boði. Uppl. í s. 695 9543. Sumarhús Sumarhús — orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu bygging- arstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Til sölu Varmadælur fyrir sumarhús www.ishusid.is Hagkvæm hitun á köldum svæðum, greiddu fyrir 1 kw en fáðu 4 kw til baka. Frekari upplýsingar á www.ishusid.is/Loftkaeling/varma- dalur, sími 566 6000. Íshúsið ehf. PREM-I-AIR lofthreinsitæki Nú er 15% jólaafsláttur af PREM-I- AIR lofthreinsitækjunum. HEPA filter sem hreinsar út 99,97% af ryki úr loftinu. Íshúsið ehf., www.ishusid.is, sími 566 6000. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt GEÐ GIGKT-ÁR-HJÁLP Goð búdda krissi til brunns að bera í Eþíópíu og Ceilon. Gleðilegt og farsælt nýár. Margaret & Ómúbúrúgu. Uggar, Gréta & Árni Bergþór. Hjálpum þeim, SÞ, HSK & RKÍ Bátar Óska eftir 180+ hp díselvél + drif Vantar notaða díselvél með drifi. Má ekki vera minni en 180 hp. Er einnig að leita að öðrum notuðum búnaði í báta. Uppl. í s. 868 7241, Arnar. Vörubílar Vagnasmiðjan auglýsir: Getum afgreitt ,,Íslandsvagn’’ 2007 í febrúar og mars. Aldrei glæsilegri og vandaðri. Nú með EBS og Ecas tölvu fyrir hemla og loftfjaðrabúnað. Vagnasmiðjan, Eldshöfða 21, Rvík, s. 894 6000. Mótorhjól Óska eftir gömlu mótorhjóli Gamalt mótorhjól óskast, ekki yngra en 1980. Má þarfnast viðgerðar en kostur er ef ekki vantar í það vara- hluti. Sími 897 1156, netfang dollih@msn.com . Bílar aukahlutir Eldsneytissparari. Hvirfilstæki í bíla SPARNAÐUR: Lágmark 7% til +30%*. 4 til +20* auka HP. Forðist ef- tirlíkingar. Lífstíðarábyrgð www.snjo- kedjur.is SKM ehf., s.517 8400. Þjónustuauglýsingar 5691100 BRAUTSKRÁNING nemenda frá Fjölbrautaskóla Vesturlands fór fram 21. desember sl., voru 49 nem- endur brautskráðir. 32 luku stúd- entsprófi, 16 luku burtfararprófi af iðnbrautum og 1 lauk versl- unarprófi. Athöfnin fór fram á sal skólans og fyrst ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari samkomuna, því næst flutti Atli Harðarson aðstoð- arskólameistari annál haustannar 2006. Fyrir athöfnina lék klarín- ettukór Skólahljómsveitar Akra- ness. Aðrir listamenn sem komu fram voru: Kristín Edda Egilsdóttir og Guðmundur Freyr Hallgrímsson sem léku saman á klarínett og píanó; Karitas Ósk Ólafsdóttir og Birna Björk Sigurgeirsdóttir sem léku saman á flautu og píanó; Steinunn Eðvaldsdóttir sem söng við undir- leik Birnu Bjarkar Sigurgeirsdóttur. Skólameistari kvaddi Þórólf Ævar Sigurðsson íþróttakennara sem lét af störfum við skólann í sumar eftir langan og farsælan kennsluferil. Honum var fært listaverk að gjöf frá skólanum. Hafdís Mjöll Lárusdóttir nýstúd- ent flutti ávarp fyrir hönd útskrift- arnema. Nokkrir útskriftarnemar fengu verðlaun og viðurkenningar: Daði Jónsson fyrir bestan árang- ur útskriftarnema í verklegum greinum (verðlaun gefin af Kötlu Hallsdóttur og Ínu Dóru Ástríðar- dóttur) og fyrir góðan árangur í raf- iðngreinum (verðlaun gefin af Loft- orku ehf. Borgarnesi). Gunnar Smári Jónbjörnsson fyrir störf að forvarnamálum (verðlaun gefin af Rótarýklúbbi Akraness). Ívar Árnason fyrir góðan árangur í tölvufræði (verðlaun gefin af Tölvu- þjónustunni ehf. Akranesi). María Mist Helgadóttir fyrir góð- an árangur í ensku (verðlaun gefin af Landsbankanum hf. Akranesi), fyrir góðan árangur í frönsku (verð- laun gefin af Kaupþingi banka hf. Akranesi) og fyrir góðan árangur í sálfræði og uppeldisfræði (verðlaun gefin af Glitni hf. Akranesi). Márus Lúðvík Heiðarsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (verðlaun gefin af GT-tækni ehf. Grundartanga). Sigurlaug Ásmundsdóttir fyrir góðan árangur í ensku (verðlaun gefin af Sparisjóðnum Akranesi). Stefán Jóhann Sigurðsson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2006 og verðlaun fyrir góðan árang- ur í ensku og dönsku (gefin af Kaup- félagi Borgfirðinga). Steinunn Eðvaldsdóttir fyrir góð- an árangur í dönsku (verðlaun gefin af Danska sendiráðinu) og fyrir góð- an árangur í þýsku (verðlaun gefin af Þýska sendiráðinu). Þór Daníel Hammer Ólafsson fyr- ir góðan árangur í rafiðngreinum (verðlaun gefin af Íslenska járn- blendifélaginu hf. Grundartanga). Hörður Ó. Helgason skólameist- ari ávarpaði útskriftarnemendur, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Að athöfn lokinni þáðu gestir veitingar í boði skólans. Útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands Brautskráning nemenda frá Fjölbrautaskóla Vesturlands  Þann 28. ágúst síðastlið- inn varði El- ínborg Ingunn Ólafsdóttir dokt- orsritgerð sína í hagnýtri stærð- fræði við Ed- inborgarháskóla. Ritgerðin bar yf- irskriftina At- mospheric-Wave Generation: An Exponential- Asymptotic Ana- lysis. Leiðbeinendur hennar voru Adri B. Olde Daalhuis og Jacques Vanneste, og andmælendur voru Chris J. Howls og John G. B. Byatt-Smith. Í ritgerðinni er lýst tilurð bylgna í gufuhvolfinu með aðferð- um veldisvísis-aðfellugreiningar auk þess sem útlit bylgnanna er skoðað tölulega með aðstoð tölvu. Sér í lagi er skoðað hvernig hæg- fara orkuríkt flæði í umhverfi þar sem mikill snúningur og lagskipt- ing eru ríkjandi framleiðir skyndi- lega orkulitlar og hraðar bylgjur sem nefnast tregðu-þyngdarafls- bylgjur. Í þeim tilgangi eru skoðuð tvö líkön, annars vegar líkan Lo- renz sem er hneppi af ólínulegum hlutafleiðujöfnum og þykir eitt það einfaldasta sem lýsir samspili hraðra og hægra bylgna. Hins veg- ar eru sérlausnir af hreyfijöfn- unum í nálgun Boussinesq skoð- aðar, en þær gefa raunhæfari lýsingu á hreyfifræði gufuhvolfsins en fyrra líkanið. Það, hvernig hæg hreyfing fram- leiðir skyndilega hraðar bylgjur sem hafa útslag í hlutfalli við veld- isvísisfall með neikvæðum stórum stika, er stærðfræðilega þekkt sem fyrirbæri Stokes. Fræðin sem greina og lýsa því fyrirbæri nefn- ast veldisvísis-aðfellugreining. Með notkun þessara aðferða er í rit- gerðinni í fyrsta sinn gefin stærð- fræðileg lýsing á framleiðslu slíkra bylgna í raunhæfu umhverfi, til staðfestingar og skilningsauka á því sem tölulegar hermanir hafa gefið í skyn. Að auki er þessari tækni lýst í einum hluta ritgerð- arinnar og útskýrt hvernig hana má nota til nákvæmrar aðfellu- greiningar sérlausna á hliðraðri jöfnu Airy. Elínborg er stúdent frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð og lauk B.S. prófi frá Háskóla Íslands 2003. Hún er dóttir Vilhelmínu Johnsen menntaskólakennara og Ólafs Ásgeirssonar þjóðskjalavarð- ar. Elínborg er gift Stefáni Inga Valdimarssyni stærðfræðingi. Doktor í hagnýtri stærðfræði Elínborg Ingunn Ólafsdóttir varði doktorsritgerð sína í hagnýttri stærð- fræði við Ed- inborgarháskóla. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.