Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 22
daglegtlíf Hugleikur Dagsson hefur vakið skiptar skoðanir með teikn- ingum sínum og skopskyni og fengið harkaleg viðbrögð. » 38 beittur penni Skemmtun hjóna breyttist í martröð þegar ráðist var á þau á skemmtistað í Reykjavík. Þau lýsa reynslu sinni. » 42 martröð Í Krasnojarsk í Rússlandi er byrjað að fagna áramótum með flugeldum. Hvers sakna útlend- ingar á Íslandi að heiman? » 24 áramót Sænsk tíska hefur hingað tiltengst hinu praktíska ogfjöldaframleidda með vel-gengni fyrirtækja á borð við H&M og Ikea. Nú hefur ný bylgja sænskra hönnuða með sérstæðari stíl sett mark sitt á hinn alþjóðlega tískuheim. Innblásturinn kemur ekki frá löngum vetrum og náttúrunni og fellur ekki eingöngu undir hefð- bundna norræna naumhyggju. H&M hefur þó mikið að segja því margir sænskir hönnuðir hefja fer- ilinn hjá keðjunni. Þar læra þeir að fylgjast vel með alþjóðlegum tísku- straumum og -stefnum og því að gera mörgum til hæfis. Skólunin í lýðræðislegri hönnun hjálpar þeim en lykilatriðið að vinsældunum núna er að sænska hönnunin virðist henta tíðarandanum. Svartur litur og gráir tónar eru vinsælir í vetur og líka ýmiss konar öðruvísi snið, nýjar útlínur sem sænskir hönnuðir hafa leikið sér mikið með. Stíllinn, sem sænskum hönnuðum er að einhverju leyti í blóð borinn, passar vel inn í tískuna um þessar mundir. Acne fyrir tískumeðvitaða Tískuhúsið Acne Jeans er í far- arbroddi í sænsku bylgjunni. Meira að segja Victoria Beckham mælir með gallabuxum frá Acne í nýrri bók sinni, That Extra Half an Inch, sem kom út fyrir jólin. Gallabuxur eru helsta tromp fyrirtækisins, sem virð- ist ávallt vera einu skrefi á undan í hönnun. Buxurnar renna út eins og heitar lummur en fatnaður Acne er hins vegar ekki fyrir alla. Sniðin eru óhefðbundin, allt frá ruslapokavíðum kjólum yfir í ofurháar buxur í mittið. Umfram allt er Acne töff og vinsælt hjá tískumeðvituðu fólki, þó sniðin séu ekki alltaf hliðholl þeim sem eru ekki grannholda. Stefna fyrirtækisins er að þó hver lína myndi „konsept“ sé hægt að nota hverja flík sjálfstætt og að hún blandist vel með öðrum merkjum. „Með því að hanna einföld og hagnýt föt vill Acne Jeans skapa nútíma- ramma fyrir einstaklingseðlið,“ segir á vefsíðu tískuhússins. Acne var stofnað í Stokkhólmi árið 1996 og var stefnan að framleiða eig- in vörur auk þess að hjálpa öðrum að byggja upp vörumerki. Í kjölfarið fékkst fjöldi verkefna við auglýs- ingar, grafíska hönnun, sjónvarps- framleiðslu og fleira. Núna starfa mörg fyrirtæki undir nafni fyrirtæk- isins, Acne Film, Acne Creative og Acne Digital auk þess sem það gefur út eigið blað sem heitir einfaldlega Acne Paper og kemur út tvisvar á ári. Fyrsta eiginlega fatalínan kom í verslanir árið 1998 og hefur hönn- unarstjórinn og hugmyndasmiðurinn Jonny Johanson unnið með einvala liði hönnuða og markvisst byggt upp sterka vitund fyrir merkinu. Ein skýring á öðruvísi hönnun Acne er uppruni Johanson og það að fyr- irtækið starfar á ýmsum sviðum. Hann er ekki menntaður hönnuður og segist fá innblástur frá svo fjöl- breytilegum stöðum og það skapi nýja tilfinningu fyrir fagurfræði. Árið 2003 opnaði fyrirtækið fyrstu verslunina, Acne Jeans Studio, í Stokkhólmi, næsta var opnuð í Kaupmannahöfn árið eftir og eftir það varð vöxturinn hraðari. Til við- bótar eru vörur frá Acne seldar á meira en 450 sölustöðum víðs vegar um heiminn. Þekktustu versl- anirnar eru án efa Colette í París, Selfridges og Brown’s Focus í London og Barneys í New York. Sænska hornið í Kaupmannahöfn Í Kaupmannahöfn fæst Acne Jeans í stórversl- uninni Illum og eigin sér- verslun við Gammel Mønt 10. Það er einmitt á horni Gammel Mønt og Christ- an IX’s Gade, sem nýju risarnir í sænskri tísku hafa raðað sér, Acne Jeans, Tiger of Sweden og J. Lindeberg. Þessi þrjú merki byggja öll stóran hluta viðskipta sinna á gallabuxum og eiga margt fleira sameiginlegt. Þau eru með föt fyrir bæði konur og karla og oft klæðnað sem gengur fyr- ir bæði kynin, eða lítur út fyrir að gera það. Fötin hafa rokkaðan blæ yfir sér, mikið um jakkaföt, skyrtur, þröngar buxur og leðurjakka. Auk Acne Jeans er vel þess virði að kynn- ast Tiger of Sweden og J. Lindeberg. Þrátt fyrir líkindi í hönnun er upp- runinn ólíkur. Tiger of Sweden er meira en aldargamalt fyrirtæki, stofnað af tveimur klæðskerum. Ræturnar liggja í herrafatnaði en merkið fór ekki að höfða til yngri við- skiptavina og kvenna fyrr en á tí- unda áratugnum. J. Lindeberg er hins vegar tíu ára gamalt fyrirtæki, stofnað af Johan Lindeberg sem áður vann hjá Diesel. Bjart er yfir fyrirtækinu en búist er við því að sala á vörum þess aukist um 25% á næsta ári í Bandaríkj- unum. Viðbótarinnar er vænst m.a. vegna nýrrar línu sem mun bera nafnið Johan by J. Lindeberg og verður 45% ódýrari en meginlínan. Fötin hafa verið vinsæl meðal íþróttamanna og þá sérstaklega golf- ara og einnig tónlistarfólks. Til að leggja áhersluna á þessa rokkteng- ingu fékk J. Lindeberg söngvarann Dave Gahan úr Depeche Mode og Al- ison Mosshart úr The Kills til að sitja fyrir í auglýsingaherferð síðasta sumar. Lindeberg sjálfur hafði ein- mitt hannað öll sviðsföt Gahan í nokkurn tíma. Á undan þeim horfðu ekki síðri rokkarar framan í mynda- vélina fyrir Svíana, leik- og söng- konan Juliette Lewis og Carl Barât úr Dirty Pretty Things og áður The Libertines. Takmark Lindeberg er að verða leiðandi og nýtískulegt tískuafl á 21. öldinni og hann ásamt fleiri sænsk- um tískuhúsum virðist vera kominn vel á veg með það. Sænsk tíska er í miklum uppgangi svo tekið er eftir á alþjóðavettvangi. Inga Rún Sigurðardóttir kannaði þessa nýju bylgju sænskra hönnuða. Acne Jeans Töff úr tískusýn- ingunni á vetrarfötunum. Acne Jeans Buxurnar eru háar í mittið og með strákalegum axlaböndum. Tiger of Sweden Rætur þessa aldargamla fyr- irtækis eru í klæðskerasaumuðum herrafötum. J. Lindeberg Úr auglýsingaherferðinni með Dave Gahan úr Depeche Mode. ingarun@mbl.is |sunnudagur|31. 12. 2006| mbl.is Tískuinnrás Svíanna Acne Jeans Rokkaralegur bragur á strákafötunum. Tiger of Sweden Úr auglýsinga- herferð í vetur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.