Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 24
daglegt líf
24 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
V
on og ótti togast á í mannshug-
anum þegar nýtt ár gengur í
garð. Þetta er sammannlegt og
einkennir raunar öll meiriháttar
tímamót í lífi manneskjunnar.
Þegar árið er liðið minnist fólk gleði- og
sorgarstunda þess, en hitt er enn ofar í huga
– hvað nýja árið ber í skauti sér? Það veit
enginn á þeirri stundu þegar tíminn virðist
skiptast í tvennt með næstum áþreifanlegum
hætti – um áramót.
Við Íslendingar þekkjum alls kyns sögur
sem bera þessu vott. Huldufólk og álfar
gegndu miklu hlutverki í þjóðtrú okkar. Á
nýársnótt fluttu þeir sig búferlum og Guð
hjálpi þeim manni sem á einhvern hátt flækt-
ist inn í þá atburðarás.
Hver man ekki eftir manninum Fúsa sem
sat á krossgötum og neitaði öllum gylliboðum
huldufólksins þar til það bauð honum flot,
dýrafitu sem hélt uppi starfskrafti forfeðr-
anna. „Sjaldan hef ég flotinu neitað,“ sagði
maðurinn og beit að svo mæltu í flotskjöldinn
og varð hugstola frá þeirri stundu.
Við áramót strengjum við Íslendingar
gjarnan heit, ætlum að grenna okkur eða
verða betri menn á nýju ári. Við drögum sam-
an eldivið og dót í brennur og söfnumst sam-
an um þær með þeim svip sem einkennir fólk
þegar það horfir á náttúruna í veldi sínu –
finnum djúpt í sálinni hvernig eldurinn eirir
engu. En svo hristum við af okkur þessa til-
finningu og drífum okkur heim í stofu til þess
að horfa á áramótaskaupið. Fjölskyldur safn-
ast saman, sumir fara út að skjóta upp flug-
eldum en aðrir standa við gluggann og horfa.
Klukkan tólf á miðnætti, eftir að útvarps-
stjóri hefur lokið máli sínu, byrja klukkur að
slá og gamla árið dragast saman og verður að
engu á sjónvarpsskjánum. Svolitla stund er-
um við í einskonar tímaleysi – svo kemur nýja
árið á skjáinn, örsmátt í fyrstu en stækkar og
stækkar – nýtt ár er gengið í garð. Við kyss-
umst og finnum um leið hve vænt okkur þykir
hvert annað, um landið – og lífið sjálft. Á
þessu viðkvæma augnabliki er það einmitt
sem vonin og óttinn togast á hvað mest. Hvað
mun gerast á nýju ári?
Frá því mannkynið tók að skipta tímanum
upp í einingar hefur sú tilfinning sem reynt
var að lýsa hér að ofan eflaust verið sam-
mannleg. En tilfinning er annað en hefðir og
siðir. Með öðrum þjóðum eru allskonar ára-
mótahefðir sem okkur kunna að þykja fram-
andi. Það er alltaf skemmtilegt að spegla sig í
öðrum. Rætt var við fjóra einstaklinga sem
allir eiga það sameiginlegt að koma frá er-
lendu menningarsamfélagi og í ljós kom að
talsverður munur er á því hvernig fólk kveð-
ur gamla árið og tekur á móti því nýja.
Sinn er siður í landi hverju
Við áramót togast á sundurleitar tilfinningar, jafnt í mannssál-
inni sem í þjóðarsálinni. Hvað mun gerast? Hvernig mun okk-
ur vegna? Við bregðumst við þessu með því að mynda hefðir
og siði og á sama hátt eiga aðrar þjóðir sína áramótasiði. Guð-
rún Guðlaugsdóttir ræddi við fjóra einstaklinga sem allir eiga
það sammerkt að búa nú á Íslandi en hafa fæðst og alist upp í
allt öðru menningarumhverfi.
REUTERS
Flugeldasýning Glæsileg flugeldasýningin í höfninni í Sydney.
ÍPóllandi byrjar tími skemmtihalds ágamlárskvöld,“ segir Stanislaw Bartos-zek málfræðingur sem nýlega gaf útpólsk-íslenska orðabók.
„Ég kom til Íslands fyrir 19 árum til að læra
íslensku en ég hafði áður meistarapróf í norsku
og ensku.
Ég á pólska konu og tvö uppkomin börn og
þau komu síðar til Íslands til búsetu.
Við höldum áramótin hér á Íslandi á íslensk-
an hátt en einmitt í ár ætla ég að fara til Pól-
lands og vera þar yfir áramótin ásamt íslensk-
um vinum. Þá munum við halda áramótin að
pólskum hætti. Við ætlum að fara á veitingastað
og dansa eins og flestir gera og á miðnætti ætl-
um við fara út á Gamla torg í Poznan, sem er í
vesturhluta Póllands, en á torginu eru oft haldn-
ir tónleikar og fólk getur dansað þar og skemmt
sér. Ég var á Gamla torgi fyrir fjórum árum í
Kraká, þá voru þar stórir tónleikar og hundrað
þúsund manns að hlusta og skemmta sér á torg-
inu. Þess má geta að í nær öllum borgum Pól-
lands er til eitthvert torg sem gengur undir
nafninu Gamla torg.
Í Póllandi er ekki hefð fyrir brennum, ára-
mótaskaupum eða fjölskylduhátíðum. Fólk fer
þar út að skemmta sér á gamlárskvöld í vina-
hópi. Það ríkir partístemming.
Fólk borðar heima hjá sér og fer svo út að
skemmta sér. Áður hefur það talað sig saman
um hvar það ætli að hittast og hvað það ætli
gera. Dansinn er mikið atriði, Pólverjar hafa
gaman af að dansa. Þetta er tími karnivals sem
hefst á gamlárskvöld og stendur allt fram á
sprengidag en eftir þann dag hefst fasta sem
stendur fram að páskum.
Það að fara út að skemmta sér á gamlárs-
kvöld er nokkuð gömul hefð. Desember er hins
vegar tími föstu en sú fasta er samt ekki lengur
tekin eins alvarlega og páskafastan. Lengi vel,
eða þar til fyrir nokkrum árum, borðuðu Pól-
verjar ekki kjöt á aðfangadagskvöld, heldur
fisk. Kirkjan lét þau boð út ganga fyrir fáum ár-
um að hún hefði ekki lengur neitt á móti kjötáti
á aðfangadagskvöldi, en eigi að síður halda Pól-
verjar í þá hefð að borða fisk á aðfangadag.
Á gamlársdag er ekki um að ræða neitt sér-
stakt borðhald en fólk drekkur freyðivín saman.
Það hefur færst í vöxt að sprengja flugelda í
Póllandi en oft er það gert á vegum yfirvalda á
hverjum stað. Annað gæti skapað hættu, t.d. í
stórborgum.
Sumir fara á fín böll um áramótin og klæða
sig þá uppá en hinir sem eru á torginu klæða sig
bara eftir veðri. Eftir að klukkan hefur slegið
tólf á miðnætti og fólk hefur skálað í freyðivíni
þá heldur það áfram að skemmta sér fram á
rauða nótt. Á nýársdag sefur fólk vel og lengi.
Morgunblaðið/Ómar
Stanislaw Bartoszek frá Póllandi
Allir fara út að skemmta sér
Á Srí Lanka halda Búdda-trúarmenn áramót 13.apríl og nýja árið byrj-ar svo 14. apríl.
Á Srí Lanka eru þó um 8% íbúa
kaþólskir og þeir halda sín ára-
mót eins og aðrir kristnir menn,
þ.e. 31. desember.
Madu Wanthie Priyargika
Kumari er gift íslenskum manni
sem hún kynntist á Srí Lanka.
„Hann var að vinna þar og þess
vegna er ég nú komin hingað, við
giftumst á Srí Lanka og fluttum
svo hingað. Ég kom til Íslands
2003,“ segir hún.
En er Madu kaþólsk?
„Nei, ég er Búddatrúar og hélt
því áramótin hátíðleg 13. apríl
þegar ég bjó á Srí Lanka. Ég
þekkti hins vegar kaþólikka,
mágkona mín er kaþólsk og hún
fer til fjölskyldu sinnar til að
halda jól, bróðir minn fer með en
tekur ekki þátt í jólahaldinu.“
En hvað um þig hér á Íslandi?
„Ég tek þátt í jóla- og áramóta-
haldi með tengdafjölskyldu minni
og finnst það rosalega gaman.
Eftir að ég kom til Íslands þá hélt
ég svolítið upp á Búddatrú-
aráramótin 13. apríl 2004. En það
er erfitt að halda í þennan sið
hérna svo ég gerði ekkert í fyrra
og veit ekki hvað ég geri árið
2007. En ég sakna minna gömlu
áramóta og langar til að halda
þau aftur hátíðleg fyrir mig og
son minn sem er tveggja og hálfs
árs, ég vil að hann kynnist líka mínum ára-
mótum.“
Hvernig eru Búddatrúaráramót?
„Þann 10. og 11. apríl ár hvert er húsið
þrifið hátt og lágt og málað ef þarf. Þegar
allt er orðið hreint og fínt förum að elda mat.
Við notum hveiti og sykur til að búa til hefð-
bundin sætan mat, þetta tekur nokkra daga.
Þá kaupum við líka áramótagjafir, í minni
fjölskyldu gefum við föt. Þann 13. apríl þvær
maður af sér gamla árið og notum þá sér-
staka olíu í hárið til þess að hreinsa það. Eft-
ir það förum við í Búddahof með blóm og
matinn sem við höfum búið til. Þetta afhend-
um við munki í hofinu. Allt á sinn tíma. Þeg-
ar við komum heim aftur byrjar nýja árið.
Maður lofar innra með sér að vera eins góð-
ur á árinu og hægt er og kveikir á olíulampa
fyrir Búdda. Mamma byrjar nýja árið með
því að kveikja á eldavélinni og elda grjóna-
graut sem er aðeins þykkari en íslenski
grjónagrauturinn og úr kókosmjólk og svo
borðum við saman. Við þessa eldamennsku
klæðist sú sem kveikir á eldavélinni í fyrsta
sinn á nýju ári sérstökum lit, í fyrra var það
rauði liturinn. Næsta ár gæti liturinn verið
grænn eða gulur. Þetta er ekki vitað fyrr en
rétt fyrir hvern 13. apríl.
Ég er að hugsa um að fara í Búddahofið í
Kópavogi næsta 13. apríl – en það er dálítið
öðruvísi en hofin í Srí Lanka því það er ætlað
fólki frá Taílandi. Hina siðina mína get ég
svo haft eins og heima í Srí Lanka.
Madu Wanthie Priyargika Kumari frá Srí Lanka
Fagna áramótum 13. apríl
Morgunblaðið/Sverrir