Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 25 Tryggvagötu 28 Rvík sími 552 5005 Hamraborg 10 Kóp. sími 554 4414 Kringlan • Sími 533 4533 Smáralind • Sími 554 3960 Laugavegi 80 • Sími 561 1330 Óskum viðskiptavinum okkar árs og friðar og þökkum viðskiptin á árinu Samkvæmt okkar dagatali, sem varinnleitt af bolsévikum 1917, höldumvið nýársfagnað 1. janúar og síðankoma jólin 7. janúar,“ segir Sergey Gushichin, starfsmaður í rússneska sendi- ráðinu. „Við kaupum jólatré svona þremur dögum fyrir nýár og skreytum það strax. Nýárs- dagur er fjölskylduhátíð í Rússlandi eins og jólin eru hér á Íslandi,“ heldur hann áfram. „Við sitjum saman við borðið og njótum nýársmatar. Í matinn eru ýmiss konar salöt, t.d. síldarsalat og eggjasalat, mandarínur eru mikilvægur hluti borðhaldsins. Mandarínur eru ræktaðar í Abkhazía- héraði í Kákasusfjöllum. Þar er hlýtt og þar er mandarínum safnað einmitt á þessari ár- stíð. Einnig er kampavín nauðsynlegt í borð- haldinu. Á slaginu 12 horfum við á ávarp for- seta Rússlands í sjónvarpinu og svo þegar klukkurnar í Kremlarturni byrja að slá tólf þá lyftum við glösum og skálum fyrir nýju ári í kampavíninu. Þetta er venja í öllu Rúss- landi. Fyrir byltinguna 1917 var jólum fagnað á allt öðrum tíma eftir öðru tímatali en gilti í Evrópu. Þá komu jólin 7. janúar og nýárs- fagnaðurinn var 14. janúar. Bolsévíkar hófu að halda nýársfagnaðinn á sama tíma og tíðkaðist í Evrópu en jólin héldu áfram að vera 7. janúar. Nú eiga Rússar tvo nýárs- fagnaði, annan 1. janúar og hinn 14. janúar í minningu þeirrar hefðar sem var fyrir bylt- inguna. Næstum allir í Rússlandi halda upp á báða dagana. Þetta er því mikil hátíð. Á síðasta ári ákvað rússneska ríkisstjórnin að hafa frídaga frá 30. desember til 8. janúar. Þannig fær fólk 12 frídaga og þarf ekki að fara til vinnu. Á nýárskvöld þegar klukkan slær tólf ósk- ar fólks sér einhvers um leið og klukkur Kremlar hringja og drukkið er út kampa- vínsglasinu. Einnig er sú trú ríkjandi að hið nýja ár verði eins og fagnaðurinn var á nýár- skvöld. Ef eitthvað fer úrskeiðis í fagn- aðinum þá þýðir það að árið verður erfitt. Rússar fara til jólamessu að kvöldi hins 6. janúar og eru í kirkjunni fram til klukkan tvö eða þrjú að nóttu 7. janúar. Fólkið tekur á móti jólunum og fæðingu Jesú Krists í kirkjunni. Þetta var líka svona á miðöldum og allt fram á 19. öld. Gefnar eru nýársgjafir í Rússlandi og þær hafa meiri þýðingu en jóla- gjafirnar. Eftir að Sovétveldið hrundi fóru Rússar aftur að fagna jólum opinberlega en jólahald var illa séð á sovéttímanum. Nýárs- gjafir tóku því við hlutverki jólagjafa á sov- éttímanum. Nú eru jólin hins vegar aftur komin til sögunnar og nú gefur fólk bæði ný- ársgjafir og jólagjafir. Morgunblaðið/Sverrir Sergey Gushichin frá Rússlandi Tveir nýársfagnaðir Ég kom fyrst í heim-sókn til kærastansmíns árið 2002, viðhöfðum kynnst í Nikaragva. Svo fór ég aftur heim en kom árið 2003 alkom- in til Íslands, þá nýgift,“ seg- ir Marjorie Hernandez. Hún starfar í leikskóla en er í fæðingarorlofi um þessar mundir. En eru íslensku áramótin frábrugðin áramótum í Nik- aragva? „Áramótin þar eru að sumu leyti svipuð og hér á landi en líka talsvert öðruvísi. Við er- um með brennur sem krakkar safna í. Sjálf var ég mjög ró- leg sem krakki og tók aldrei þátt í að safna í brennu. Við höfum líka flugelda en það er þó miklu meira skotið af þeim hér. Ég og maðurinn minn, sem er íslenskur, giftum okk- ur heima í Nikaragva og ég hafði sagt honum að mikið væri um flugelda heima hjá mér, en honum fannst lítið til koma – beið og beið eftir að farið væri að skjóta almenni- lega upp sem ekki gerðist. Fjölskyldurnar safnast saman og eyða áramótunum saman, kannski tuttugu manns í húsi. Ég kem úr stórri fjölskyldu og við vorum alltaf öll saman, stór- fjölskyldan. Reyndar líka á jólunum. Við borðum um áramótin oft heitt relleno sem er svína- kjöt, nautakjöt og kjúklingar sem fyrst er steikt og svo soðið í potti með grænmeti, kryddað og búin til sósa. Svo borðum við sælgæti á eftir. Við eigum ekki álfa eða huldufólk en margt fólk trúir því að ef það fer undir borð klukkan 12 á miðnætti þá gifti það sig á árinu. Á mið- nætti brjótum við líka egg út í kalt vatn í glasi og setjum undir rúm. Lát- um það bíða þar fram til klukkan 12 daginn eftir, þá tökum við eggið úr vatninu og spáum í lagið á egginu. Ég gerði þetta líka hér í fyrra með tengdamömmu og spáin kom fram. Hjá henni kom kirkja og mág- kona mín gifti sig í mars en hjá mér kom vagga og þá vissum við að barn var á leið- inni. Ég held þessum sið hér áfram þótt mað- urinn minn hlæi að mér og kalli þetta vúdú- galdra. En þetta er ekki neitt slíkt, bara venjuleg hjátrú. Einnig má geta þess að á miðnætti borða allir 12 vínber og óska sér einu sinni fyrir hvert vínber. Mínar óskir hafa oft komið fram. Loks vil ég geta um einn sið enn. Við förum gjarnan út rétt um miðnætti með tösku og göngum kringum húsið og komum svo strax aftur inn. Þetta þýðir að viðkom- andi fer í langferðalag á árinu. Þetta hef ég gert mjög oft það hefur ræst.“ Marjorie Hernandez frá Nikaragva Spá í egg um áramótin Morgunblaðið/Golli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.